Alþýðublaðið - 10.04.1960, Síða 3
glæðast
FRÁ mánaðamótum hafa fjórir
togarar selt afla sinn í Bxet-
landi, samtals 680,5 lestir fyrir
41.671 sterlingspund. Voru
sölurnar ágætar miðað við árs-
tíma. í vikunni, sem leið, lönd-
uðu níu togarar hjá Togaraaf-
greiðslunni h.f. í Reykjavík,
samtals nær 1800 lestum. Er
afli togaranna heldur að glæð-
ast.
Togarinn Geir seldi í Grims-
by 1. apríl 200 lestir fyrir 11.
613 pund. Þorkell máni seldi
4. apríl í Hull 192 lestir fyrir
11.039 pund. Jón forseti seldi
í Hull 5. apríl 155 lestir fyrir
9.428 pund og loks seldi Norð-
lendingur í Grimsby 8. apríl
133,5 lestir fyrir 9591 pund. Eru
þetta ágætar sölur miðað við
árstíma, eins og fyrr segir.
Þessir níu togarar lönduðu í
Reykjavík í síðustu viku, sam-
tals hátt á 18. hundrað lestum.
Neptúnus 165 lestum og Þor-
steinn Ingólfsson 200 lestum,
báðir á sunnudag og mánudag.
Fylkir landaði á mánudaginn
212 lestum og sama dag Skúli
Magnússon 222 lestum. Á mið-
vikudaginn lönduðu Hvalfell
217 lestum og Pétur Halldórs-
son 218 lestum. Egill Skalla-
grímsson landaði á fimmtudag-
inn 187 lestum. Askur landaði
253 lestum á föstudaginn og
loks var verið að landa úr Nep-
túnusi í gær, röskum 100 lest-
um. — Úranus er væntanlegur
inn í fyrramálið.
Allir þessir togarar voru að
veiðum á heimamiðum, nema
Askur, sem var við Austur-
Grænland. Aflinn var blandað-
ur fiskur, þorskur, ýsa og karfi.
Togaraxmir munu halda sig á
svipuðum slóðum á næstunni,
enda er aflinn heldur að glæð-
ast sem áður segir. Ekki hefur
borið á öðru en að nægur mann
skapur fengist á togarana eða
því sem næst.
Sigga Vigga
níKKI SV0 Aí) SKILJA AÐ HANIsl VANTREVSTI MÉRa
SKILUR-ÐU. HANN SEGIST BARAEKKl VILJA
VANTREVSTA MÉRy SKILURDU"
TVEIR íslenzkir lögreglu-
þjónar, sem verið hafa í
Bandaríkjunum urn 6 mán-
aða skeið, eru nýkomnir
heim. Lögregluþjónar þessir,
sem heita Bjarki Elíasson og
Trausti Eyjólfsson fóru til
Bandaríkjanna í boði Inter-
national Corporation Ad-
ministration. Þesis félags-
skapur sér um heimboð er-
lendra manna til Bandaríkj-
anna og gefur þeim kost á að
kynnast starfsháttum Banda
ríkjamanna á ýmsum svið-
um.
Löregluþjónar þessir frótu
fyrst til Washington DC þar
sem þeir voru í fimm vikur
í skólum og við störf með
lögreglunni í Maryland. Var
þessi dvöl þeirra þar eins
konar undirbúningur undir
frekara ferðalag.
’Síðan fóru þeir til Conn-
ecticut og New Hampshire,
og störfuðu þar xheð borgar-
lögreglum og fylkislögreglu.
Síðan fóru þeir til Rochester
N.Y. og störfuðu þar með
lögreglunni, og skoðuðu
deild frá Kodak ljósmynda-
vélaverksmiðjunum, er hef-
ur með að gera myndatökur
fyrir lögregluna. Deild þessi
veitir lögregluliðum í Banda
ríkjunum ýmsa tæknilega
aðstoð, t.d. eins og við mynda
töku á fingraförum, og einn-
ig hefur þessi deild náð góð-
um árangri við að upplýsa
ítrekuð innbrot með því að
koma fyrir sjálfvirkum
myndavélum á innbrotsstöð-
um.
Að þessu loknu fóru þeir
til Michigan State Univers-
deild úr háskóla, en þar
lærðu þeir um stjórn og
skipulagningu lögreglumála.
Þar voru með þeim lögreglu
þjónar víðs vegar að úr heim
inum.
Á þessu ferðalagi sínu
komu lögregluþjónarnir í
aðaldeild hinnar víðfrægu
bandarísku lögreglu F.B.I.
Þeir kynntust þar starfshátt
um þessarar lögreglu, sem er
Störfuðu með
bandarísku
lögreglunni
ity, sem er háskóli, sem starf
rækir sérstaka deild til þjálf-
unar lögreglumanna. Þar
voru þeir í einn mánuð ásamt
351 lögregluþjónum frá
Bandaríkjunum við nám al-
hliða lögreglufræða. Einnig
fóru þeir til Indiana og Ken-
tucky, en í Kentucky voru
þeir við nám í Southern Pol-
ice Institute, sem einnig er
af mörgum talin ein bezta
lögregla í heimi.
Lögregluþjónarnir komu
heim 30. marz s.l., og í við-
tali, sem Alþýðublaðið átti
við annan þeirra, Bjarka
Elíasson, sagði hann, að
ferðalagið hefði verið í allan
máta lærdómsríkt og ánægju
legt og ölT fyrirgreiðsla hin
bezta.
IMMWWWWWVVMMWMWWiWVlWWtmWWWWWWWWWWVHWiWtWWMW
SKlÐAMEISTARI
FÓTBROTNAR illa
Músík-
stríð í
Svíþjóð
FÉLAG sænskra hljóðfæra-
leikara (Svenska musikerför-
bundet) á um þessar mundir í
kaupdeilu við Samhand hljóm-
plötufyrirtækja í Svíþjóð
(Grammafanleverantörernas
Förening). Af þessum sökum
hafa hljóðfæraleikaramir á-
kveðið að starfa ekki fyrir
hljómplötufyrirtækin meðan
deilan er óleyst.
Alþjóðasamband hljóðfæra-
leikara (FIM) hefur ákveðið að
veita Svíum fullan stuðning í
deilunni, og hefur skrifað öll-
um félögum sem að samband-
inu standa og beðið þau að vara
félagsmenn við að taka að sér
nokkur störf við hljómplötu-
upptökur fyrir hin sænsku
hlj ómplötufyrirtæki. Félag ís-
Framhald á 5. síðu.
SIGLUFIRÐI í gær. Skíðamót
íslands, hið 21. í röðinni, hefst
hér miðvikudaginn 13. apríl,
klukkan 13, við Skálafell.
Mótið verður sett af for-
manni ÍBS, Helga Sveinssyni,
og Hermann Stefánsson, for-
maður SKÍ, flytur ávarp og
Lúðrasveit Siglufjarðar leikur.
Keppnin hefst kl. 13.30 með
15 km göngu 20 ára og eldri,
15 km göngu 17—19 ára og 10
km göngu 10—16 ára.
Hér er nú góður skíðasnjór
og helzt hann vonandi svo hinir
98 þátttakendur geti þreytt
keppni hver við annan. Frá
Siglufirði verða alls 43 þátttak-
endur.
! Einn bezti skíðamaður okkar
Siglfirðinga, svig- og brun-
meistari Siglufjarðar, Hjálmar
Stefánsson, var svo óheppinn
að fótbrotna sl. föstudag á æf-
ingu í Hvanneyrarskál. Hlaut
hann mjög slæmt beinbrot. —
Þetta er mikið áfall fyrir* lið
okkar á skíðamótinu. — JM
GARÐYRKJUFÉLAG fslands
efnir til nokkurra fræðslu-
kvölda um garðyrkjumál í þess-
um mánuði. Fundirnir fara alj-
ir fram í Iðnskólanum á Skóla-
vörðuholti og hefjiast klukkan
20.30. Fyrsta fræðslukvöldið
verður nk. mánudagskvöld, 11.
apríl, en hin verða 20., 25. og
27. apríl.
Alþýðublaðið — 10. apríl 1960 J