Alþýðublaðið - 10.04.1960, Blaðsíða 16
GJMlUÍ)
41. árg. — Sunnudagur 10. apríl 1980 — 84. tbl.
ftOTtWWWWWMMiWWWtWtWMMMWMMWWWmWW
Hér hefst greinaflokkur um kommúnistann Walter Ernst Ulbricht, for
sætisráðherra Austur-Þýzkalands. Næsta grein birtist í briðjudagsbiaði. Al-
þýðublaðið hvetur lesendur sína til að lesa þennan flokk af athygli. Þetta
er pólitísk ævisaga pólitísks ævintýramanns. Um leið er þetta merkileg lýs'-
ing á starfs- og baráttuaðferðum mannanna, sem valizt hafa til forystu hins
aiþjóðlega kommúnisma.
„LÁTUM hin góðu örlög
forða þýzka kommúnista-
flokknum frá þeim degi, er
þessum manni skýtur upp á
yfirborðið. Mér geðjast ekki
að þessum manni. Horfið að-
eins í augu hans og þér sjá-
ið slægðina og óhreinlynd-
ið“.
Klara Zetkin lifði ekki til
ársins 1945. Hún var vin-
kona Rósu Luxemburg og
einn af stofnendum Komm-
únistaflokks Þýzkalands.
Það var hún sem sagði þessi
orð árið 1925 við Ossip Py-
atnitzky, einn af leiðtogum
Komintern. En árið 1945 var
einmitt svona komið. „Hin
góðu örlög“, sem Klara Zet-
kin vonaðist eftir, höfðu
ekki rætzt. Þrátt fyrir allar
aðvaranir, skaut Ulbricht
upp á yfirborðið — vegna
hylli hans hjá Iosif Vissario-
novich Dzhugashvili, öðru
nafni Stalin.
í apríl 1945 undirbjó
sovézki herinn s;g, undir
stjórn Zhukovs, til árásar á
Berlín.
Hinn 13. apríl 1945 gekk
Walter Adolfevich Ulbricht
(þetta er hans rússneska
nafn, en var áður Walter
Ernst Karl Ulbricht) inn í
herbergi nr. 137 í Lux hótel-
inu í Moskvu. Þar beið hinn
metorðagjarni hjálparmaður
hans, Lotte Kiihn, eftir hon-
um.
Walter Adolfevich var að
koma af fundi með Stalin.
Hafði Poskrebyshev, einka-
ritari Stalins, gefið honum
fyrirskipanir þá um morg-
uninn um að koma til fund-
arins. Áður en Ulbricht datt
í hug að láta Wilhelm Pie.ck
vita um viðræður sínar við
Stalin, flýtti hann sér að
segja Lotte sínum allt um
þær. Hóp Ulbricht-manna
átti að mynda, að því er
hann sagði, og fara fljúg-
andi bráðlega til Berlínar.
Það stóð ekki lengi á Lotte
Kuhn að koma með fyrstu
tillögurnar um, hvrejir ættu
að vera í þessum hópi.
Að lokum gat Ulbriclit
komið fram úr skugganum.
Valdadraumum hans skyldi
nú fullnægt, jafnvel þó
valdið væri aðeins að láni.
Stalin hafði gert hann að
ræðismanni. Hann átti að
verða landstjóri Stalins á
rússneska hernámssvæðinu
á milli Elbu- og Oderfljóta.
Fram að þessu hafði Ul-
briiht verið vanur að lifa í
skugga annarra. Hann var
einn af hinum mörgu and-
legu kostgöngurum Stalins.
Nú átti hann að verða lepp-
ur hans númer eitt í Þýzka-
landi.
lílbricht hafði náð t'ak-
marki sínu. Hann var orðinn
valdamesti maðurinn í Kom-
múnistaflokki Þýzkalands
(Kommunistische Partéi
Deutschlands, KPD), því að
Wilhelm Pieck var ekki leng
ur í framsveitum Stalíns.
Stalin hafði sitt eigið álit á
Pieck og hann sagði eitt sinn
við Tító: „Pieck er orðinn
eins og gamall afi. Hánn get-
ur ennþá klappað mönnunj
vinalega á bakið, en hann
hefur ekki hugmynd um,
hvernig á að vísa þeim veg-
inn að hinum miklu mark-
miðum“.
Pieck varð að dveljast í
Moskvu en Ulbricht fór til
Þýzkalands í kjölfar sigra
rússneska hersins.
Vissulega voru margir
menn úr mótspymulireyf-
ingunni í Þýzkalandi 1945,
sem höfðu orðið að þola all-
ar byrðár og fórnir bardag-
ans gegn Hitler, og sem
hefðu haft alla hæfileika til
þess aðbyggja flokkinn upp
að nýju. En Stalin áleit þá
ekki hentuga til þessa verks.
Þeir voru alltof „spilltir“ af
sínum eigin sjálfstæðu skoð-
unum. Að þoka burtu mönn-
unum úr mótspyrnuhreyf-
ingunni var hin nýja flokks-
lína, sein Ulbricht.kom með
frá Moskvu.
Hann Walter Adolfevich
Ulbricht, hinn gætni, hann
sem, árum saman hafði ver-
ið snuðrandi í einkamálum
annarra, hann, sem alltaf lá
í leyni, reiðubúinn að hag-
nýta sér mistök annarra,
hann sem lét aði’a slíta sér
út og fórna sér, hann sem
alltaf beið eftir því, að vinir
hans gæfu á sér liöggstað,
svo að hann gæti komið þeim
fyrir kattarnef miskunnar-
laust, — einmitt hann hafði
náð trúnaði Stalins. Án þess
að depla augunum liafði
hann gleypt hinar grófustu
móðganir Stal’ns og svíð-
andi auðmýkingu á útlegð-
arárum sínum í Moskvu.
Hann var alltaf auðmjúkur
og trúr, hann var hinn
tryggi aðstoðarmaður
Stalins. Nú, árið 1945, skyldi
undirgefni hans launuð.
( . V . ' V — . — — — — W . w v w v'v . ■