Alþýðublaðið - 14.04.1960, Síða 14
ULBRICHT
Framhald af 4. síðu.
Á tímabili þýzk-rússneska
friðarsáttmálans hélt Ul-
bricht áfram samstöðupólitík
sinni við þýzku nazistana.
Árið 1939 tilkynnti hann:
„Innan ráðamanna Þýzka-
lands eru tveir hópar — ann-
ar er hlynntur austrinu og
leiðtogi hans er Göring, en
hinn er hlynntur vestrinu og
leiðtogi hans er von Thyssen.
í baráttu þessara tveggja
hópa styðjum við þá sem
hlyntir eru austrinu gegn
þeim sem fylgja vestrinu“.
Þegar Ulbricht ræðir um
hóp þeirra sem hlynntir eru
austrinu undir forystu Gör-
ings, bætir hann við: „Ráð-
andi öfl í Þýzkalandi ákváðu
að hverfa frá vestrinu og
halla sér að austrinu11.
Með þessu gefur Ulbricht
það í skyn, að nazistar eigi
í réttlætanlegri styrjöld við
England og Frakkland og
styðja beri Þýzkaland í henni.
Ári síðar biður Ulbricht op-
inberlega þýzka vei'kamenn
að styðja styrjöld Hitlers gegn
Bretíandi og Frakklandi.
Þetta gerði hann í grein, sem
nefnist „Hilferding og „Þýð-
ing styrjaldarinnar11 sem
birt var 9. febrúar 1940 í
'Stokkhólmi í tímaritinu Die
Welt, sem gefið var út á
býzku.
í þessari grein ræðir Ul-
bricht þá afstöðu þýzkra jafn
aðarmanna að styðja hið vest-
ræna lýðræði gegn ofstjórn
Hitlers. í greininni segir Ul-
bricht m. a.: „Viðhorf leiðtoga
jafnaðarmanna gagnvart
styrjöldinni beinist ekki að-
'eins gegn hagsmunum -þýzku
- þjóðarinnar heldur einnig
vilja milljón verkamanna í
Bretlandi og Frakklandi“.
Hann segir ennfremur:
„Hinir byltingarsinnuðu
verkamenn og hin framsæknu
öfl í Þýzkalandi vilja ekki
skinta á núverandi stjórn og
þjóðernislegri og félagslegri
kúeun brezkrar heimsveldis-
stefnu og brezk-hlyntra auð-
kýfinga í Þýzkalandi“.
í lok greinarinnar talar Ul-
bricht um friðarást nazista og
hann kallar Bretland herská-
asta og afturhaldssamasta
ríki veraldar. Þetta hefur Ul-
bricht að segja: „ . .. . Hin
brezka heimsveldisstefna hef-
ur enn einu sinni sannað sitt
afturhaldssama eðli með því
að hafna boði Þýzkalands um
að binda endi á stvrjöldina ■—-
tilboði. sem stutt var áf ríkis-
stiórn Sovétríkjanna11.
Þessar staðreyndir skýra,
hvers vegna Ulbricht var, á
fvrsta fundi flokksins 25.
júní 1945. ákafasti stuðnings-
maður kenningarinnar um
samsekt þýzku þjóðarinnar,
oo hvers veffna hann vildi
ekki gefa skýrslu um starf-
semi miðstiórnar sinnar á ár-
unum 1933 til 1945.
Ulbricht mundi eftir naz-
istunum. jafnvel eftir 1945, og
tók bá fram yfir fyrrverandi
mótspyrnumenn. Ulbricht
ruddi mótspyrnumönnunum
úr vegi á kerfisbundinn hátt,
félagsskapurinn fyrir fórnar-
lömb nazista var leystur upp,
uppgjafahermenn úr spánska
stríðinu voru flæmdir úr stöð-
um sínum hjá flokknum og
jafnaðarmennirnir voru of-
sóttir og kastað í fangelsi.
Þeirra var ekki lengur þörf.
Þeir voru jafnvel hættulegir,
því þeir höfðu sjálfstæðar
skoðanir.
En fyrrverandi nazistar,
sem höfðu snúið frá einræði
nazismans til hins rauða ein-
ræðis, fengu þýðingarmikil
embætti og var hrúgað inn í
stjórnarmaskínuna. Þeir voru
auðmjúk verkfæri í hendi Ul-
brichts við að breyta Austúr-
Þýzkalandi í rússneskt hérað.
Hér höfum við Hitlershers-
höfðingja eins og Vincenz
Múller, W. Freytag, Dr. Kor-
fes, von Lenski, H. Wulz og
Lattmann. Jafnvel SS hers-
höfðingjar eins og Eberecht
og Berger fengu stöður hjá
Ulbricht. Þeir eru allir á-
nægðir í dag, því þeir þurftu
aðeins að skipta um húsbónda,
en ekki sannfæringu.
ÍÞRÓTTIR
Framhald af 11. síðu.
herji. Guðmundur þarf að æfa
meira upp snerpu og hraða.
Birgir er harður og fylginn
sér og það getur verið kostur
svona í hófi. Ekki er nokkur
vafi á því, að Birgir á eftir að
sýna enn meiri leikni í körfu-
knattleik í framtíðinni. —■ Þor-
steinn Hallgrímsson er fjölhæf
astur allra íslenzkra körfuknatt
leiksmanna og þó að hann skor
aði ekki nemfe sjö stig í ívrra-
kvöld, átti hann stóran hlut í
körfum sumra félaga sinna.
Hann hefur þó sýnt betri leik
en hann gerði í þetta sinn.
Gunnar Sigurðsson er góður
körfuknattleiksmaður og lang-
skot hans í fyrri hálfleik voru
frábær. Gunnar. er einnig snjall
varnarleikmaður. Hinir leik-
mennirnir voru allir lítið inn
á. en Kristinn sýndi þó margt
gott, þennan litla tíma, sem
hann lék með.
Beztur Bandaríkjamanna
var (nr. 3) og heitir sá Guymon,
hann skoraði 14 stig og mörg
fallega. Rajavski (nr. 43) og
Smith (nr. 5) áttu einnig ágæt-
an leik, en Deegan (nr. 51) sem
lék vel í Keflavík á laugardag-
inn, var ekki í essinu sínu nú.
Dómarar voru Ingi Þór Ste-
fánsson og Bandaríkjamaður-
inn Orban. Þeir dæmdu vel
mest allan leikinn, en slepptu
nokkrum grófum brotum síð-
ast, enda erfitt að dæma þá. Nú
var dæmt eftir alþjóðareglum
eins og vera ber. í heild má
segja, að keppni þessi hafi tek-
izt vel og hafi Bandaríkjamenn
bökk fyrir komuna og góðan
leik. Það er gott og lærdóms-
ríkt fyrir íslenzka körfuknatt-
leiksmenn að fá tækifæri til að
þreyta kapp við varnarliðs-
menn í þessari íþrótt, sem er
nokkurs konar þjóðaríþrótt
Bandaríkj amanna.
14. apríl 1960 — AlþýðublaSið
-inimiiidagur
Veðrið:
Stinningskaldi; skýjað.
o----------------------o
Gengin. Kaupgengi.
1 sterlingspund ...'. 106,65
1 Bandaríkjadollar . . 38,00
1 Kanadadollar .... 39,93
100 danskar kr......551,40
100 norskar kr....... 532,80
100 sænskar kr...... 734,70
100 vestur-þýzk mörk 911,25
o------------------------o
Naeturvarzla apótekanna um
hátíðirnar.
Fram á laugardag er næt-
urvarzla í lyfjabúðinni Ið-
unn. Vikuna frá 16.—22. apr-
íl er næturvarzla í Vesturbæj
ar apóteki, 14. apríl. Skírdag
er opið frá kl. 10 f. h. til kl. 9
e. h. í Austurbæjar apóteki.
Föstudaginn langa er opið í
lyfjabúðinni Iðunn á sama
tíma. Annan páskadag er opið
frá kl. 10 f. h. til kl. 9 e. h. í
Igólfs apóteki.
-0-
Slysavarðstofan
er opin allan sólarhringinn.
Læknavörður fyrir vitjanir
er á sama stað kl. 18—8. Sími
15030.
-o-
✓
Skírdagur:
11.00 Messa í
barnask. Kópa-
vogs. 13.15 Er-
indi: Flett blöð-
um sálmabókar-
innar, latnesku
sálmarnir þar
(séra Sigurjón
Guðjónsson pró
fastur). 14 Mið-
degistónleikar:
15 Káffitíminn.
18.30 Þetta vil
ég heyra. 19.30
Einsöngur: Ern-
esto Nicelli. 20.20 Hörputón-
leikar: Nicanor Zabaleta.
20.40 Húnvetningakvöld. 1—
22.10 Kvöldtónleikar: Atriði
úr óperunni „Porgy og Bess“.
Föstudagurinn lángi.
9 Morguntónleikar 11.00
Messa í Laugarneskirkju.
13.15 Erindi: Getum við
treyst vitnisburði biblíunnar?
(Ásmundur Eiríkss. trúboði).
14 Messa í hátíðasal Sjó-
mannaskólans. 15.15 Miðdeg-
istónleikar. 18.15 Frá kirkju-
viku á Akureyri. 20.20 Ein-
söngur: Kristinn Hallsson.
20.40 Viðhöfn í íslenzkum
passíusálmalögum (dr. Hall-
grímur Helgason flytur erindi
með tóndæmum). 21.10 Krist
indómurinn og uppeldið, dag
skrá tekin saman af Kristi-
legu stúdentafélagi. 22 Kvöld
tónleikar: „Stabat Mater“
eftir Pergolesi.
Laugardagur.
12.50 Óskalög ■'sjúklinga.
14.15 Raddir frá Norðurlönd-
um: „Enn syngur vornótin“,
dagskrá frá norska útvarpinu
um Tómas Guðmundsson og
Ijóðaþýðingar Ivars Orglands.
14.30 Laugardagslögin. 17
Bridgeþáttur. 17.20 Skákþátt
ur. 18 Tómstundaþáttur
barna og unglinga. 18.30 Út-
varpssaga barnanna. 18.55
frægir söngvarar: Aureliano
ertile og Titta Ruffo. 20.30
Leikrit: „Sagan af Jakob“ eft
ir Laurence Hausman í þýð-
ingu Andrésar Björnssónar
cand. mag. Leikstjóri: Indriði
Waage. 22.10 Lestri Passíu-
sálma lýkur (séra Sigurður
Pálsson). 22.20 Tónleikar:
Þættir úr léttklassiskum tón-
verkum.
Páskadagur:
8 Messa í Neskirkju. 9.15
Lúðrasveit Rvíkur leikur.
10.20 Morguntónleikar. 11
Messa í Dómkirkpunni. 13.15
Erindi: Menningarsamband
Þjóðverja og íslendinga (AI-
exander Jóhannesson prófess
or). 14 Miðdegistónleikar.
15.15 Kaffitíminn. 15.45 End
urtekið leikrit: „Páskar" eft-
ir August Strindberg, þýtt af
Bjarna Benedikssyni frá Hof^
eigi. Leikstjóri: Þorst. Ö.'
Stephensen. 17.30 Barnatími.
18.30 í hljómleikasal: Þórar-
inn Guðnason læknir rabbar
um tónverk og leikur hljóm-
plötur. 19.30 Einsöngur: ís-
lenzkir söngvarar syngja ís-
lenzk lög. 20.20 Páskahug-
vekja (séra Ingólfur Ástmars
son). 20.40 ,,í Jesú nafni“,
mótetta eftir Hallgrím Helga-
son. 20.55 „Ó, Jerúsalem, upp
til þín“: Dagskrá um Jórsala-
ferðir íslendinga.21.40 Hljóm
sveit Ríkisútvarpsins leikur.
22.10 Kórsöngur: Karlakór
Reykjavíkur syngur.
Annar páskadagur:
8.30 Fjörleg músík í morg-
unsárið. 9.10 Morguntónleik-
ar. 11 Messa í Hallgfíms-
kirkju. 13.15 Miðdegistónleik
ar. 15.15 Upplestur (Árni
Tryggvason leikari). 15.30
Kaffitíminn. 16.20 Söngleikur
inn „Rjúkandi ráð.“ 17.30
Barnatími. 18.30 Hljómplötu-
safnið. 19.30 Tónleikar. 20.20
Einleikur á píanó: Mikael
Voskresenski. 20.35 Hvaða ár
var þetta? 21.10 „Nefndu lag
ið,“ getraunir og skemmti-
efni. 22.05 Danslög. 2 Dag-
skrárlok.
Þriðjudagur:
18.30 Amma segir börnun-
um sögu. 20.30 Daglegt mál.
20.35 Útvarpssagan. 21 Kór-
söngur: Roger Wagner kórinn
syngur. 21.15 „Kvæðin ég af
.sulti syng“, dagskrá um Sig-
urð Breiðfjörð skáld, tekin
saman af Andrés Björnssyni.
22.10 íþróttir. 22.30 Lög unga
fólksins.
-o-
Frá Kvenréttindafél. fslands.
Næsti fundur félagsins verð
ur haldinn í félagsheimili
prentara á Hverfisgötu 21
þriðjudaginn 19. apríl (þriðja
í páskum) kl. 8.30 e. h. Aðal-
efni fundarins: Breytingar á
hjúskaparlöggjöfinni (fram-
sögumaður Anna Sigurðar-
dóttir).
Egsrert Guðmundsson,
Ásvallagötu 57, er 65 ára í
dag. Hann hefur verið starfs-
maður hjá Reykjavíkurhöfn í
30 ár.
Ríkisskip.
Hekla fór frá
Rvík í gær vestur
um land til Akur-
eyrar. Esja er á
Austfjörðum á
norðurleið. Herðu
breið er á Austfjörðum á suð
urleið. Skjaldbreið er á Vest-
er á Eyjafjarðarhöfnum. Herj;
fjörðum á suðuprleið. Þyrill
ólfur fer frá Vestm-eyjum í
dag til Horríafjarðar.
Skipadeild SÍS.
Hvassafell er á Akureyri.
Arnarfell átti að fara í gær
frá Rotterdam til Rostock.
Jökulfell er í Rvík. Dísarfell
er á Kópaskeri. Litlafell er í
olíuflutningum í Faxaflóa.
Helgafell er í Þorlákshöfn.
Hamrafell fór 9. þ. m. frá
Hafarfirði til Batum.
Eimskip.
Dettifoss fór frá ísafirði f
gær til Hofsóss og Borgar-
fjarðar eystra og þaðan til
Rostock, Halden og Gauta-
borgar. Fjallfoss fer frá Rott-
erdam í dag til Antwerpen og
Hamborgar. Goðafoss fór frá
Khöfn 12/4 til Rvíkur. Gull-
foss fór frá Helsinborg í gær
til Khafnar. Lagarfoss kom til
New York 10/4, fer þaðan um
20/4 til Rvíkur. Reykjafoss
fór frá Nörresundby 12/4 til
Odense og Helsingborgar. Sel
foss fór frá Rvík í morgun til
Akraness. Tröllafoss kom til
Rvíkur 9/4 frá New York,
Tungufoss fór frá Hafnarfirðí
í gær til Reykjavíkur.
-o-
Millilandaflug:
Hrímfaxi fer til
_.|;Glasgow og K,-
|ɧ83íSi5g|l hafnar kl. 8 í
f dag. Væntanleg-
«. ur aftur f jj Rvík
ur kl. 22.30 £
; kvöld. Innan-
landsflug: í dag
er áætlað að
fljúga til Akureyrar (2 ferð-
ir), Bíldudals, Egilsstaða, ísa
fjarðar, Kópaskers, Patreks-
fjarðar, Vestmannaeyja og
Þórshafnar. Á morgun: Ekk-
ert innanlandsflug.
Loftleiðir.
Edda er væntanleg kl. 9 frá
New York. Fer til Osló,
Gautaborgar, Khafnar og
Hamborgar. Leifur Eiríksson
er væntanlegur kl. 23 frá Lux
emburg og Amsterdam. Fer
til New York kl. 0.30.
LAUSN HEILABRJÓTS:
Rjómatertan var fyrst
skorin í fjóra jafn stóra
hluta með því að skera tvisv
ar sinnum. Síðan eru teknir
hlutar og þeim raðað ofan á
hina tvo og síðan er allt skor
ið með einu hnífsbragði.