Alþýðublaðið - 14.04.1960, Blaðsíða 16

Alþýðublaðið - 14.04.1960, Blaðsíða 16
 41. árg. — Fimmtudagur 14.- apríl 1960 — 87. tbl. Alþýðublaðið bauð söngkonunni Lucille Mapp og manni hennar í morgunferð um bæinn i fyrradag ^ LUCILLE MAPP, söngkonaj hefur verið kölluð svartþrösturinn og þrastasöngur hefur alltaf verið í miklu uppáhaldi hér á norðurhjaranum. Þess vegna var Alþýðublaðinu ánægja í að bjóða svo velkomnum þresti til morgunferðar um Reykjavík. Mapp er hér með manni sínum, fyrrverandi lögregluforingja á Trinidad. Alþýðublaðið talaði ekki um lögreglumál við hann, en það varð að samkomulagi að lýsa því yfir !að sjórinn væri eins sléttur og blár undan Ægissíðunni og liann er við Trinidad. Þeim þótti sólskinið gott og bjart yfir, þessum suðrænu gestum, er þau horfðu yfir Reykjavík af Öskjuhlíðinni. ýc Alþýðublaðið fylgdi svartþrestinum um Þjóðminjasafnið. Söngkonan stanz- aðýfyrst við timþurguð frá Suðurhafseyjum, en var mest snortin !af gömlum útskurði og langspilið átti hug liennar allan. Og það er enn ofið á vefstóla í Trinidad, eins og þann, sem þarna stendur. „Þeir vefa net í þeim“, sagði eig inmaðurinn. Söngkonan viarð sérlegasnortin af brjóstmynd í forsal á efri hæð inni. „Þetta hlýtur að vera af gáfuðum mianni“, sagði hún. Höggmyndin var af Sigurði Nordal. ýkr Morgunferðinni lauk á Ægissíðu. Svartþrösturinn settist á stein £ fjörunnl við sjóinn, sem var sléttur eins og marga bjart'a daga á Trinidad. Það eru fimm ár síðan hún fór þaðan og nú syngur hún í Lido á kvöldin. i

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.