Alþýðublaðið - 24.04.1960, Page 3
HAB — Volksvvagenbílarnir eru ennþá sex og í næsta drætti boðstólum í ALÞÝÐUHÚSINU og BÓKABÚÐ OLIVERS
verður dregið um tvo. — Aðeins nokkrar sölumiðar enn á í Hafnarfirði. — HAB.
Sérstöðuríkin
GENF, 23. apríl. Allar tillögur
eru nú komnar fram á Land-
helgisráðstefnunni í Genf og
hefur verið skýrt frá þeim flest
um í blaðinu. Til viðbótar skal
greint frá breytingartillögu
Ghana við USA—Kanadatillög-
una. Þar segir, að milli land-
helgi ríkja skuli ætíð vera
Þriggja mílna belti, sem sé
frjáls siglingaleið. Ekkert ríki
hefur rétt til þess að fara með
herskipum inn í fiskveiðibelti
annarra ríkja eða fljúga yfir
það nema gera viðvart áður. Þá
eru ákvæði um það, að ef vís-
indalega sannist að nauðsyn-
legt sé að vernda fiskistofn á
ytra beltinu skuli fiskveiðiríki Jf
semja um það sérstaklega.
Brasilía, Kúba, Uruguay og
ísland bera öll fram tillögur um
sérstöðu ríkja, sem að miklu
leyti eru háðar fiskveiðum.
Eins og áður er getið flytja
nú tíu ríki tillögu um að fresta
ákvörðunum um landhelgi í
fimm ár. Þessi ríki eru Indó-
nesía, írak, Líbanon, Mexíkó,
Marokkó, Saudi Arabía, Arab-
íska sambandslýðveldið, Vene-
zúela og Jemen, en fluttu áður
ásamt átta öðrum ríkjum til-
lögu um að landhelgi skuli vera
12 sjómílur. Ríkin, sem heltust
úr lestinni, eru Eþíópía, Ghana,
Guinea, íran, Jórdanía, Líbýa
og Túnis.
Samkvæmt fundarreglum
verður tillaga USA—Kanada
borin undir atkvæði á eftir tíu-
ríkjatillögunni.
SIGGA VIGGA
MYNDIN er af Eiði við
Geldinganes. Þarna v'ar
það sem fólk skemmti sér
á björtum sumarkvöldum
á árunum fyrir stríð. Nú
eru líkur til að húsnæðis-
lausir sakamenn á íslandi
fái þarna þak yfir höfuðið.
Þéir hafa verið á hálfgerð-
um vergangi að undan-
förnu. Verður að segjast
eins og er, að það hefur
verið mikill mannvinur,
sem lét sér til hugar koma
að byggja fangahús á svo
friðsælum stað sem þess-
um. Og þarna verður að
líkindum hægt í fyrsta
sinn að hýsa sakakonur
með sæmilegu móti.
í GÆR fékk Alþýðublaðiö
staðfesta þá frétt, að atvinnu-
þjófar þeir, sem herjað hafa að
undanförnu, hafi verið hand-
teknir síðastliðinn miðvikudag.
Þá höfðu þeir framið milli þrjá-
tíu og fjörutíu innbrot.
Höfðu mannaveiðarnar staðið
yfi'r í einar þrjár vikur og marg
ir búnir að taka þátt í þeim, og
margt verið rannsakað, áður en
leitin bar árangur á miðviku-
dagsmorguninn. Mun þar með
loki'ð einni dýrustu þjófaleit,
sem gerð hefur verið á íslandi.
Þjófarnir eru þrír og bifreiða
síjórar að atvinnu. Náðist sá
fyrsti þeirra á miðvikudags-
morguninn, en hinir tveir um
kvöldið. Þeir eru sakaðir um
fjölda innbrota bæði í Hafnar-
firði og Reykjavík, eða 30—40.
Enginn þeira hefur gerzt brot-
legur við landslög áður. Tveir
Framhald á 5. síðu.
IWWWWMWWWWMWWWWM
Yaldimar Stefánsson,
sakadómari, hefur fengið
þriggja mánaða frí frá
störfum til að kynna sér
fangelsismál á Norður-
löndum. Síðan mun hann
gefa skýrslu til dóms-
málaráðuneytisins. Mun
ætlunin að gera ýmsar
endurhætur í fangelsis-
málum okkar, sem m. a.
verða byggðar á skýrslu
sakadómara. Valdimar er
nú farinn utan fyrr-
greindra erinda.
Fyrirhugað mun að reisa nýtt
fangelsi í nágrenni Reykjavík-
ur. Ekki mun þessu fangelsi
hafa verið ákvarðaður staður
endanlega, en miklar líkur eru
ti'l að Eiði við Geldinganes verði
fyrir valinu. Fyrir stríð var
þarna útiskemmtistaður Sjálf-
stæðismanna í Reykjavík.
Undanfarið hefur verið unnið
að því, að gera skrá yfi'r þá, sem
hafa verið dæmdir síðastliðin
fimm ár. Skrásetning þessi nær
yfir- allt landið, en eftir niður-
stöðum hennar á að reikna út
hve nýjia fangelsisibyggingin á
að vera stór.
Þótt þetta nýja fangelsishús
komi til sögunnar er ekki hug-
myndin að leggja Litla-Hraun
niður. Nýja fangelsið á að vera
fyrir þá, sem dæmdir eru til
stuttrar fangelsisvistar.
Þá heyrir það til nýlundu,
að í þessu nýjia fangelsi er
hugsað fyrir sérstakri deild
fyrir konur. Er það í fyrsta
sinn, sem sakakonum er gert
svo hátt undir höfði.
Þetta nýja fangahús mun ó-
efað leysa það mikla vandamál,
sem refsivist sakamanna hefur
verið hér á landi í lengri tíma.
Hefur húsnæðisleysi fyrst og
fremst valdið því, að stundum
hafa allt að tvö hundruð dæmd-
ir menn verið á biðlista, og er
það stór hópur hjá ekki stærri
þjóð.
Hefur þetta átt mikinn þátt í
að gera allt löggæzlustarf erfitt
og dóma stundum haldlitla, þar
sem ekki hefur verið hægt að
framfylgja þeim vegna þakleys-
is.
Ekki hefur áður verið farið í
það af slíkum krafti, að lagfæra
fangelsismálin. Skýrsla saka-
dómara mun áreiðanlgea liggja
fyrir í lok orlofsins, og sú skrá-
setning, sem þegar hefur farið
fram yfir dæmda menn síðast-
liðin fimm ár auðveldar mjög
að ákvarða, hver húsnæðisnauð
synin er á næstu áratugum.
Sýningunni
lýkur í dag
SÝNINGUNNI Húsgögn 1960
lýkur í dag. Sýninign er til húsa
að Pósthússtræti 9 og er opin
kl. 10—10 í dag. Á 4. þúsund
manns hafa skoðað sýninguna.
Meðal gesta í fyrradag voru for
setahjónin.
Húsgögnin á sýningunni eru
teiknuð af félögum í Félagi' hús
gagnaarkitekta. Þarna eru einn
ig allmörg- olíumálverk eftir
Jón Stefánsson listmálara, er
ekki ihafa verið sýnd hérlendis
áður. Nokkur þei'rra hafa selzt.