Alþýðublaðið - 28.04.1960, Blaðsíða 5
KARLSRUHE, 27. apríl, (NTB-
AFP). Adenauer, kanzlari, var
I dag- endurkjörinn formaður
kristilega dómókrataflokksins í
Vestur-Þýzkalandi næstu tvö
ár. Hlaut hann 427 atkvæði á
flokksþinginu hér, eh fjórir
voru á móti og tíu sátu hjá,
Adenauer hefur verið formað-
ur flokksins frá stofnun hans
árið 1946.
Adenauer, kanzlari, sagði í
dag samkvæmt Reutersfregn,
að Vestur-Þjóðverjar mundu
undir hans stjórn halda fast við
samtök vestrænna ríkja. í ræðu
á flokksþingi kristiiega-demó-
krataflokksins hér bætti hann
við: „Þið skuluð ekki hafa of
miklar áhyggjur af því hver
muni taka við af mér. Þegar
sá tími kemur, er ég sannfærð-
ur um, að nóg verður af mönn-
Um til að taka stjórnvölinn í
öruggar og sterkar hendur“,
sagði hann.
Þá hélt Adenauer því fram,
að 'Vestur-Þjóðverjar hefðu á-
unnið sér alþjóðlega virðingu
síðan vestur-þýzka stjórnin var
sett á laggirnar árið 1949. Kvað
hann þá geta aukið þá virðingu
með orðheldni og með því að
uppfylla sínar skuldbindingar.
Hann kvað stefnu Vestur-
Þjóðverja byggjast á NATO.
„Án NATO yrðum við leiksopp
ur og mundum vafalaust falla
í hendur Rússum“, sagði hann.
„Án NATO mundi Vestur-
Þýzkaland vera í sömu aðstöðu
og Austur-Þýzkaland, þar sem
fólk er svift sínu síðasta frelsi“,
saeði hann. Hann kvað Austur-
Þjóðverja mundu fá eignir sín-
ar aftur, þegar Þýzkaland hefði
aftur verið sameinað.
Hann kvað þær staðhæfingar
Krústjovs, að Evröna stafaði
hætta af Vestur-Þýzkalandi
vera hlægilegar. „Ógnunin við
frelsið stafar og mun alitaf stafa
frá hinni trúlausu forustu Svét
ríkjanná“, sastði Adenauer, sam
kvæmt AFP-fregn. Þá kvað
hann Krústiov aðeins óska eftir
friði vegna þess, að honum staf-
aði mikil hætta af ófriði.
RIO DE JANEIRO, 27. apríl —
(NTB-AFP). Markmaðurinn í
áhugamannafélagi nokkru hér,
Silvio Lopez Ferreira, fór illa
út úr síðasta leik félags síns.
Hann tók sér mjög nærri hve
mörg mörk voru gerð hjá hon-
um. S'tuttu eftir leikinn skaut
hann sig.
LONDON, 27. apríl, (NTB-
AFP). Þingmenn jafnaðar-
manna gefðu harða hríð að
istjórninni [ neðri málstofunni
í dag, er hafin var umræða þar
um smíði brezku eldflaugarinn-
ar Blue Streak, sem stjórnin
tilkynnti nýleara að hætt yrði
við áð framle'ða eftir að mill-
jónum hafði verið eytt í hana.
Brown. þingmaður jafnaðar-
manna, heimtaði, að rannsókn-
arnefnd vrði sk'puð til að kanna
stefnu stjórrarínnar í bessu
máli off ásakaði fvrst og fremst
Sandys. fluemálaráðherra, en
Okvað Maemillan, sem formann
landvarnanefndar st.iórnarinn-
ar, verða að taka á sig hluta af
ábyrgðinni.
Halda jafnaðarmenn bví fram
að rúml®«i ‘5 5 milljörðum kr.
hafi verið evtt í Blue Streak.
SEOUL, 27. apríl, (NTB-REUT-
ER. Mynd’r af Syngman Rhee,
fyrrverandi forseta Suður-
Kóreu, voru í dag fjarlægðar
úr opinberum skrifstófum og
bæjarskrifstofum, á meðan
Rheé og fjölskylda hans pökk-
uðu niður einkamunum sínum
og fluttu burtu úr forsetahöll-
inni. Fréttinni um, að forsetinn
Um er að ræða vantrauststil-
lögu frá jafnaðarmönnum
vegna meðferðar stjórnarinnar
á máli þessu og þar eð hún vill
ekki setja rannsóknarnefnd í
málið.
Brown, sem er landvamaráð-
herra í „skuggastjórninni“ kvað
sérfræðinga hafa dæmt Blue
Streak úr leik þegar árið 1957,
þar eð hún þyrfti fljótandi
brennsluefni og aðeins væri
hægt að skjóta henni frá föst-
um skotstöðvum. Hann kvað
Thor-flaugarnar, sem líka eru
notaðar í Bretlandi, vera úrelt-
ar af sömu sökum.
Watkinson, landvarnaráð-
herra, sagði í svarræðu sirmi, að
meirihluti sérfræðinga hefði
allt þar til í nóvember 1959 ver
ig því meðmæltur, að haldið
væri áfram framleiðslu Bl'ue
Streak.
Syngman Rhee.
hefði sagt af sér, var tekið með
gleði af flestum, en af nokkrum
með sorg. Tilvera Suður-Kóreu
sem sjálfstæðs ríkis er nátengd
nafni Rhees.
Rhee, sem er 85 ára gamall,
mun setjast að í húsi sínu „Húsi
heiðursblómanna“ í útjaðri höf-
uðborgarinnar og eyða lífi sínu
sem venjulegur, kóreanskur
borgari. Hann lét í Ijós mikla
sorg yfir að yfirgefa garðinn
við forsetahöllina, þar sem
hann fór einn í langa gönguför
í gærkvöldi, og mun hafa sagt
við einn af riturum sínum, að
hann vonaðist eftir að fá að
koma þangað á hverju vori til
að sjá trén blómstra.
Ró komst á í Seoul, er for-
setinn hafði sagt af sér. Yfir-
lýsing Rhees var svona: „Ég
Syngman Rhee, hef ákveðið að
segja af mér embætti forseta,
þar eð ég fellst á ályktun þings-
ins, og ég mun helga þáð sem
eftir er af lífi mínu landi og
þjóð sem venjulegur borgari“.
Flokkur Rhees, frjálslyndi
flokkurinn, sem hefur leystst
upp við síðustu atburði og misst
2 milljónir verkamanna, hefur
skipt um nafn og kallast nú só-
síal-demókrataflokkurinn — en
verður samt áfram íhaldsflokk-
ur. Andstöðuflokkurinn, demó-
kratar, hefúr tilkynnt, að hann
muni ekki taka sæti í bráða-
birgðastj órninni, en mun samt
semja um umsetningu hennar.
Háskólar hefjast á föstudag,
en menntaskólar á mánudag,
Tíu tíma útgöngubannið heiuv
verið stytt í 8 tíma. ,
Krústjov
til UAR
BEIRUT, 27. apríl (NTB— <
AFP). Krústjov, forsætisráð-
herra Sovétríkjanna, þefur ver -
ið boðið að heimsækja Arabíska
sambandslýðveldið í haust. Heí<!
ur stjórn sambandslýðveldisin.u
stungið upp á þeim tíma, þar ,eð
þá er veðrið bezt í Sýrlandi ög
Egyptalandi. Mun sendiherra
sambandslýðveldisins í Moskvra
hafa tilkynnt utanríkisráðuneyi;
inu, að heimsókn Krústjcvy
yrði opinber og Nasser vildi
gjarnan, að Krústjov héldi ekki
opinber-ar ræður á meðan á
heimsókninni stæði.
GROTON, 27. apríl, (NTB-
REUTER). Kafbátafloti Rússa
er fjórum sinnum stærri en
hinn ameríski og átta sinnum
stærri en kafbátafloti Hitlers
1939, sagði Taylor, yfirmaður
ameríska kafbáta-varðskipaflót
ans, í dag. Hann va^ að halda'
ræðu, er fyrsta atómknúna kaf-
bátavarðskipinu var hleypt aí
stokkunum. Skipið, Tullibee að
nafni, er 2600 tonn og um 99
metra langt, Það er búið hljóð-
greini, seni getur fundið- fjcnd-
samlega kafbáta í mikilli fjar-
-lægð.
LONDON, 27. apríl, (NTB-
REUTER). ídag sigraði Brian
London Bandaríkjamanninn
Peter Rademacher á róthöggi í
7. lotu. Brian hafði oft áður í
'keppni slegið Rademacher í
gólfið.
WASIIINGTON, 27. apr. (NTB-
REUTER). Eisenhower forseti
sagði í dag, að hann teldi ekki,
að aðvaranir Krústjovs til vest-
urveldanna nýlega táknuðu
stefnubreytingu hjá Sovétríkj-
umim. „Ég lít ekki á ummæli
Kr.ústjovs um Þýzkalandsmálin
sem enáurnýjun úrslitakost-
anna út af Berlín, og persónu-
lega tel ég ekki, að við eigum
að taka þau alvarlega“, sagði
forsetinn á blaðamannafundi
sínum í dag.
Hann lagði þó áherzlu á, að
ef yfirlýsing Krustjovs um, að
vesturveldin verði að undirrita
friðarsamning eða missa rétt-
indi sín í Berlín væri samt
meint sem úrslitakostir yrði
svar Bandaríkjamanna að vera
sem fyrr: með ógnun um vald,
valdbeitingu eða með úrslita-
kosti að baksviði mun ég aldrei
sítfund æðstu manna“, sagði
Fösenhbwer.
Forsétinn taldi annars, að það
sem vænta mætti af
jstu manna, væri mihnk
. r-.r.u í heiminum, þannig
að íó;: k gæti verið nokkurn veg-
'nn ö . ’ggt. „Ef við getum fært
tur og vestur nær hvort öðru
gaö traust og öryggi, verð
u mildð unnið“, sagði hann.
F'senhower kvaðst mundu
fara til Seoul 22. júní, eins og
fyrlphugað hefði verið og mót-
n u . ásökunum á hendur
Bandaríkjastjórnar fyrir að
blanda sér í innanríkismál Suð-
ur-Kóréu. Um Syngman Rhee
sagði forsetinn, að hann værl
„mikill maður, mikill í'öður-
landsvinur og faðir lands síns'L
Hann kvað de Gaulle, Frakk-
landsforseta, hafa fullvissað sigf
um í heimsókn sinni um dag-
inn, að Frakkar stæðu fast vifí
tilboð sitt um sjálfsákvörðun-
arrétt til handa Algier.
Eisenhower kvaðst ekki vita
um neinar nýjar áætlanir um
að finna lausn á deilunni miilt
Arabíska sambandslýðveldisim#
og þeirra landa, sem flytja vcr-
ur til ísraels. Við spurningu um,
hvort hann hyggðist sjálfuí'
skerast í leikinn, kvaðst Eisen-
hower ekki sjá, hvernig slíkjr
mætti verða.
Frestun vegnar
uppskurðar?
SACRAMENTO, 27. apr. (NTB-
AFP). Wirin, einn af verjend*
um Caryls Chessmans heítur
nieð skeyti hvatt ríkisstjóranis.
í Kaliforníu til að fresta aftökát
Chessmans, sem ákveðin hdfué
verið 2. maí n.k., þar eð hania
þurfi áð ganga undir uppskur#.
Lögfræðingurinn hefúr beðiÖ
um nokkurra daga frest, svo aí?
hann geti sjálfur fengið tæki-
færi til að sanna sakleysi Chesa
mans. — I skrifstofu Browns,
ríkisstjóra, var upplýst 1 dag,
að skeyti Wirins hefði enn ekki
borizt. t
Alþýðuhlaðið — 28. apríl 1960