Alþýðublaðið - 28.04.1960, Qupperneq 16
Fimmtudagur 28. apríl 1960 — 94. tbl
Þar sem framundan er nokk
Ur prófraun fyrir íslenzkan
iðnað, vegna samkeppni við
ýmsan innfluttan varning
spurði blaðið Kolbein, ihvar
hann héldi að framleiðsla eins
og þessi stæði í slíkri' sam-
keppni.
— Mér líst vel á samkeppn-
ina, sagði Kolbeinn. — Verð
á málningu 'hér miðað við verð
á henni erlendis er vel sam-
keppnisfært, miðað við aðra
íslenzka framleiðslu.
Og sannarlegá' verður hag-
stseðara að kaupa innlenda
málningu í framtíðinni, þegar
þetta dæmi er tekið
Ísienzk
málnsng
erlenda
samkeppni
★ MYNDIRNAR
eru teknar í Málningu.
Fyrirtækið setur sjálft
saman dósirnar undir
framleiðsluna. Og marg-
ar hendur hafa fjallað um
efnið, áður en það er orð-
ið að söluvöru í búð.
i'ngar. Hún er iafnfarmt sú
eina, sem hefur á sér stimpil
einkaleyfisins, og er því fram
leidd undir sama nafni og með
sáralitlum breytingum í fiest-
um löndum heims.
Málning í Kópavogi fram-
leiðir 2-3 lestip af málningu
og lakki og öðru tilheyrandi
á dag, að því er Kolbeinn Pét-
ursson, framkvæmdastjóri, —
sagði Alþýðublaðinu. ■—- Um
helmi'ngur þessa magns er
spred-málning. Fyrirtækið
var stofnað í janúar 1953, en
framleiðsla hófst í apríl það
ár. Þegar fyrirtækið bvrjaði
keypti það gamalt hús af Funa
— leirbrennslu, sem þarna
hafði 250 fermetra verksmiðju
pláss. Nú hefur húsið verið
stækka upp í 1800 fermetra.
Fjögurra lítra dós af spred-
satin kostar nú út úr búð
krónur 198,00.
Gjaldeyrir sem eyðist í þetta
magn málningar nemur krón-
um 70,00.
Fjögurra lítra dós af spred-
satin innflutt kostar út úr búð
krónur 340,00.
Gjaldeyririnn, sem greiðist
fyrir það magn .nemur krón-
um 150,00. Þetta er óvéfengj-
anlegt dæmi, þar sem um ná-
kvæmalega sömu vörutegund
er að ræða. Engu munar nema
því, að ó'dýrari' málningin er
framleidd innanlands.
Og hús og veggir geta þess
vegna haldið áfram að skína
við gestum og gangandi í öll-
um regnbogans litum.
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
heimsótti vinnusali Máln
ingar h.f. í Kópavogi
núna í vikunni, þar sem
þrjátíu manns vinna að
því að framleiða máin-
ingu- handa húseigend-
um, svo hinir ýmsu flet
ir fasteigna þeirra megi
gleðja augu gesta og gang
andi.
Þarna er íramleidd spred-
málning, sem er ein tegund
þeirrar handhægu málningar,
er á undanförnum árum hefur
gert leikum sem lærðum í
málarakúnst mögulegt að lit-
skrýða veggi sína. Hefur þetta
meðal annars leitt til þess, að
hús eru nú yfirleitt djarflegar
máluð og fjölbreyttari að lit
en áður og jafnvel steinkumb-
aldar, sem áður stóðu gráir og
gneypir og niður rigndir
hlæja nú við augum manna
í öllum regnbogans litum.
Þannig getur uppfinning,
eins og sú, að búa til máln-
ingu, sem hægt er að blanda
vatni í stað fernisolíu, og hef-
ur auk þess fáa annmarka
gömlu málningarinnar, sem
krafðist meistara og kunnáttu
manna við blöndun og aðra
meðferð, orðið til þess að
hleypa heilum löndum út í
það, sem nálgast að vera lita-
svall.
Spred m'álningín, sem
Málning h.f. framleiðir er ein
tegund þessarar nýju máln-