Fréttablaðið - 23.04.2001, Side 10
10
FRÉTTABLAÐIÐ
23. apríl WIÁNUDACUR
| ERLENT
Ný bandarísk rannsókn
Kommúnistaflokkur Víetnam til-
kynnti í gær um valið á nýjum
aðalritara. Fyrir valinu varð Nong
Duc Manh sem þykir í hófsamari
armi flokksins. Manh, sem er sagður
óskilgetinn sonur uppreisnarhetj-
unnar Ho Chi Minh, er fyrsti leiðtogi
'flokksins sem tilheyrir minnihluta-
hópi.
Indversk stjórnvöld sögðu í gær að
átta indverskir hermenn sem féllu
fyrir hendi hermanna Bangladesh í
síðustu viku hafi verið pyntaðir áður
en þeir voru skotnir. Landamæra-
deilur hafa oft leitt til minniháttar
átaka en óvenjulegt er að jafn marg-
ir falli og í síðustu viku en þá létust
16 indverskir hermenn.
Síþreyta tengd hreyfingarleysi
PAÐ GETUR GREINILGA VERIÐ ERFITT AÐ VERA RÁÐHERRA
Steingrímur Hermannsson og Jón Baldvin Hannibalsson við skyldustörf.
iæknisfræði Síþreyta tengist hreyfing-
arleysi samkvæmt nýrri bandarískri
rannsókn. Vísbendingar um það
hverjum er hættara við að fá þennan
umdeilda sjúkdóm má finna með því
að rannsaka hjörtu og ónæmiskerfi
fólks segja vísindamennirnir við Ge-
orgetown háskóla. Rannsóknin leiðir
líkum að því að ákveðinn hluti fólks
sé fyrirfram í áhættuhópi um að fá
þau einkenni sem tengd hafa verið sí-
þreytu, svo sem almenna þreytu, ann-
ars óútskýrðan vöðvasársauka, höf-
uðverk og snert af þunglyndi. Sí-
þreytulæknirinn Dr. James Grisola
segir niðurstöðurnar geti hraðað fyr-
irbyggjandi meðferð sjúklinga sem
hafa einkennin á byrjunarstigi. Ekki
ætti fólk þó að reyna að sigrast á sí-
þreytunni á einum degi með þrotlaus-
um æfingum, en fara varlega í sak-
irnar til dæmis með daglegu sundi,
sagði læknirinn. ■
ÁSLANDSHVERFI f HAFNARFIRÐI
Þar er bæði bannað að hafa hunda og ketti. Nokkur brögð eru á að þessar reglur séu brotnar.
Fuglalíf í hættu:
Lífi flórgoðans við Ástjörn ógnað
nAttúra Fuglalíf við Ástjörn í Hafn-
arfirði virðist í hættu. Flórgoði
hefur lengi verpt við Ástjörn og
hafa 4 til 5 pör verið þar um árabil.
Svæðið er friðlýst samkvæmt nátt-
úruverndarlögum.
Flórgoðavarpið hefur verið í
skjóli hettumáfs en í fyrra hrundi
hettumáfsvarpið og óttast nú
margir um flórgoðann. Minki hef-
ur verið kennt um en uppbygging
hefur verið mikil í Áslandinu og
kann hún að hafa haft áhrif á fuglíf.
Hunda- og kattahald er bannað í
hverfinu en nokkuð mun vera um
að farið sé í kringum það bann.
Minkaleit við Ástjörn hefur ver-
ið á vegum Heilbrigðiseftirlits
Hafnarfjarðar og Kópavogssvæðis
og hefur að sögn Ólafs Torfasonar
fulltrúa í umhverfisnefnd gengið
vel undanfarin tíu ár eða þar til
nýir aðilar voru ráðnir til verksins
í fyrra.
Málið var til umræðu í um-
hverfisnefnd Hafnarfjarðar á dög-
unum og var samþykkt að finna
nýja aðila til að taka að sér eyðingu
minks umhverfis Ástjörn. Jafn-
framt skoraði umhverfisnefnd á
heilbrigðisfulltrúa að koma minka-
leit í viðunandi horf nú þegar. ■
j
kjk
keiMw*/tmmwm%fí/**if*
| ERLENT 1
Fjármálaráðherrar aðildarríkja
Evrópusambandsins hvöttu til
þess á fundi sínum í Málmey í Sví-
þjóð á laugardag að alþjóðasamfé-
lagið veitti tyrkneskum stjórnvöld-
um stuðning í viðleitni sinni til að
takast á við efnahagsvanda landsins.
Tyrkir hafa kynnt hugmyndir sem
fela í sér lækkun ríkisútgjalda og
endurskipulagningu bankakerfisins
og hafa óskað eftir tólf milljarða
dollara styrk til að takast á við erfið-
leikana.
borgarinnar
Itiger Steinson, Ölafur Ö. Póttirsson
úljaiarUjón útlaumtjóri
s. 691 0919 s. 896 659-1
Bárugötu 4, 101 Reykjavík.
s. 551 7080
Vönduð og persónuleg þjónusta