Fréttablaðið - 23.04.2001, Síða 22
22
FRÉTTABLAÐIÐ
23. apríl IViANUOACUR
Kristján Möller
alþingismaður:
Spyr Davíð
um útgjöld
alþinci Kristján Möller alþingismað-
ur hefur leitað svara við tveimur
spurningum hjá Davíð Oddssyni for-
sætisráðherrtT Þingmaðurinn vill
annars vegar vita hversu mikið út-
gjöld forsætisráðuneytisins munu
lækka á árunum 2000 og 2001 eftir að
byggðamál voru flutt úr ráðuneytinu.
Og hins vegar vill Kristján fá að vita
hvers vegna iðnaðarráðuneytið fær
ekki aukið fjármagn í fjárlögum eftir
að byggðarmálin voru flutt til þess
ráðuneytis. ■
[ HARÐSOÐIÐ
RAGNAR KR. KRISTJÁNSSON
framkvæmdastjóri
Ragnar Kristinn Kristjánsson er 40 ára gamall
framkvæmdastjóri Flúðasveppa á Flúðum.
Verð á grænmeti hefur verið til umræðu að
undanförnu. Flúðasveppir eru einu framleið-
endur sveppa hér á landi og hafa því mjög
sérstaka stöðu á markaðnum.
HVAÐ hefur það þýtt fyrir þitt fyrirtæki
að vera eitt á markaði?
„Ég vil nú bara svara þessu þannig að það er
öllum frjálst og leyfileg' að rækta sveppi á Is-
landi."
HVERS VEGMA eru ekki önn-
ur fyrirtæki i þessari atvim ugrein?
„Fyrir um 10 árum voru sex F rirtæki i þessari
framleiðslu. Það er verið að bera upp á mig að
ég hafi fengið heilt ráðuneyti til að stöðva inn-
flut'-ing á rotmassa sem er notaður í ræktunina.
Það var í mesta lagi I mánuð sem ekki var hægt
að fl/tja inn rotmassa, Aðrir héldu áfrarr að
rækta en vissulega var hörð samkeppni a mark-
aðnum. Þetta er flókin ræktun og aðrir ;áfust
upp og i tvö ár vorum við ein. Sú svepparækt
sem þá varð til starfaði í eitthvað um tva ár og
þeir notuðu erlendan rotmassa."
Flvenær sérð þú fram á að verð á svep aum hér
á landi verði sambærilegt og það er í rágranna-
löndunum?
„Ég er kannski ekki rétti maðurinn til að svara
því. Ég get nefnt sem dæmi að við erum að fá
um 340 krónur fyrir kílóið. Fyrir um Fá árum
fengum við 400 krónur, ætli það sé ekki um 600
krónur á núverandi verðlagi. Ég held því að við
höfum gert ýmislegt til að koma verðinu niður."
HVORT
hentar einokunir þér
eða mér
betur?
„Ég heíd að það eitt að rækta grænmeti hér á
landi sé ávinningur fyrir þjóðina, en menn verða
að kunna fótum sinum forráð Við höfum aldrei,
og endurtek aldrei, misnotað okkar aðstöðu. Ég
get tekið sem dæmi að um hátíðir þegar eftir-
spurn er mikil, höfum við aldrei hækkað verð á
sveppum, eins og gerist annarsstaðar. Mín skoð-
un er sú að þetta séu allta' miklir hagsmunir.
Flér starfar margt fólk, við kaupum hálm af
byggræktinni og svo framvegis."
Ný staða í framboðsmálum í Geðhjálp:
Eg hef séð fólk brotna saman
geðhiAlp „Ég er stálhraustur
og þetta hefur ekki gengið að
heilsu minni, ég hef hinsveg-
ar séð fólk brotna niður allt í
kringum mig. Ég er ýmsu
vanur og hef tekið þessu af
æðruleysi," sagði Sigur-
steinn Másson stjórnarmaður í Geð-
hjálp, en hann hefur sagst ekki vera í
framboði til formanns í Geðhjálp, en
vitað er að talsvert hefur verið þrýst
á hann til að gefa kost á sér.
„Ég er ekki í framboði en útiloka
ekki neitt,“ sagði Sigursteinn. Hann
segir að hann sitji í stjórn Geðhjálp-
ar, var kosinn fyrir ári til tveggja ára
og hafi í eitt ár gegnt starfi varafor-
manns.
Sigursteinn segist ekki
geta útilokað að fari mál far-
sællega muni hann endur-
skoða afstöðu sína og gefa
kost á sér til formanns. „En
fari mál með versta hætti
mun ég hætta öllum afskipt-
um af starfsemi Geðhjálpar." Hann
segist meðal annars vera að taka tillit
til ástvina þegar hann segist sér ekki
áfram um að fara í kosningaslag um
formannssæti Geðhjálpar. ■
SIGURSTEINN MÁSSON
hyggst draga framboð til formanns
Geðhjálpar til baka
--♦--
„Ég er ekki í
framboði en úti-
loka ekki neitt"
—+—
Ólafur Örn Haraldsson
alþingismaður:
Vill aðgerðir
gegn ofbeldi
alþinci Ólafur Örn Haraldsson al-
þingismaður hefur lagt fram á AI-
þingi tillögu gegn ofbeldi í Reykja-
vík og nágrenni. Þingmaðurinn vill
að skipaður verði sérstakur starfs-
hópur sem finni leiðir til að koma í
veg fyrir ofbeldi. Hann segir að of-
beldi og innbrot hafi aukist á fáum
árum og að borgarbúar telji að
ekki sé lengur hægt að ganga um
borgina að kvöld- og næturlagi án
þess að eiga á hættu að verða fyrir
árásum. ■
FRÉTTIW AF FÓLKI [
Deilan innan Verzlunarmannafé-
lags Reykjavíkur er hatrömm og
iar á bæ bíða menn spenntir eftir
niðurstöðum nefnd-
arinnar sem ætlað
er að rannsaka
sannleiksgildi þeir-
ra atriða sem þeir
hafa borið hvor á
annan, Magnús L.
Sveinsson og Pétur
A. Maack. í allri
umræðu hefur verið sagt að upphaf
deilnanna sé að finna í deilum um
bílastæði við Faxafen, en þar er
meðal annars líkamsræktarstöð, þar
sem Ágústa Johnsen ræður ríkjum,
en hún er frænka Péturs og þar rek-
ur tvíburabróðir Magnúsar einnig
fyrirtæki. Heimildir Fréttablaðsins
vilja meina að rót sundurlyndis
Verzlunarmannafélagsmanna sé allt
önnur og augljósari. Þannig er að
syni Magnúsar, Sveini Magnússyni,
framkvæmdastjóra Geðhjálpar, var
falið eftir að hann hafði verið nokkr-
ar vikur í starfi að reka bókarann,
Kristjönu Kristjánsdóttur, en hún er
eiginkona Péturs A. Maack. Sem
sagt sonur Magnúsar rak konu Pét-
urs og eftir það varð allt vitlaust.
Afram meö Verzlunarmannafélag-
ið og félagana Magnús L. Sveins-
son og Pétur A. Maack. Kaup Verzl-
unarmannafélags-
ins á jörðinni Stóra-
Kamb er eitt þeirra
deilumála sem risið
hafa milli Magnús-
ar og Péturs, en
Pétur hefur sagt að
Magnús hafi keypt
jörðina á yfirverði
af greiðasemi við seljandann, sem
sagður er vera kunningi Magnúsar.
Einn viðmælenda Fréttablaðsins
gerði lítið úr þessum ásökunum Pét-
urs. Hann sagði tvennt koma til,
annars vegar eru áhöld um hvor er
meiri kunningi jarðarsalans Magnús
eða Pétur og hitt atriðið er að Pétur
skrifaði undir kaupsamningi án at-
hugasemda.
Einkavæðingarnefnd bíður enn
átekta með sölu á hlut af ríkis-
kökunni í Landssímanum. Búið er að
taka tilboðum frá fjármálafyrirtækj-
um til þess að annast útboð fyrir
einkavæðingarnefndina. Tekið var
lægstu tilboðum í umsýsluna og eru
samkeppnisaðilar þeirra sem hnoss-
ið hlutu ekki sérlega ánægðir með
sinn hlut. Bent er á að endurskoðun-
ar- og ráðgjafafyrirtækið Price Wa-
terhouse Cooper, sem á að annast
kynningu og sölu á erlendum vett-
vangi, hafi aldrei nálægt slíku kom-
ið, og að Búnaðarbankanum, senS
hefur verið falið að annast söluna
innanlands, hafi gengið illa að annast
útboð á trúverðugan hátt í nokkur
skipti.
r. Pétur Pétursson lætur af
störfum rektors í Skálholtsskóla
í haust. Skálholtsskóli er fræðasetur
Þjóðkirkjunnar og hefur einkum
sinnt ýmiskonar námskeiða og ráð-
stefnuhaldi að
undanförnu. Sex
umsækjendur eru
um rekstorsstöð-
una og eru þeir
Árni Svanur Daní-
elsson guðfræð-
ingur, séra Bald-
ur Gautur Bald-
ursson, séra Bernharður Guð-
mundsson verkefnisstjóri á Bisk-
upsstofu, Guðmundur Einarsson
kennari, sem eitt sin var fram-
kvæmdastjóri Hjálparstofnunar
kirkjunnar, Smári Ólason tónlist-
armaður og séra Torfi Hjaltalín
fyrrum sóknarprestur á Möðru-
völlum. Skólanefnd með Sigurð
Sigurðarson vígslubiskup og Geir
Waage í farabroddi mælir með um-
sækjenda í starfið en kirkjuráð
veitir embættió frá og með næsta
hausti. Ekki er óliklegt að Bern-
harður njóti fulltingis biskups í
rekstorsstöðuna.
Nafnbreytingar eru ekki ótíðar
á vinstri hlið íslenskra stjórn-
mála. í haust verður haldinn lands-
fundur Samfylk-
ingarinnar og nú
er verið að senda
út þreifara um það
af hálfu flokksfor-
ystunnar hvort
ástæða sé til nafn-
breytingar. Sam-
fylkingin fór hik-
andi af stað og það þykir hafa
skaðað ímynd hennar. Við stofnun
hennar voru margir sem vildu
Bæjarstjórar í heim-
sókn á Fréttablaðinu
Bæjarstjórar af höfuðborgar-
svæðinu komu í heimsókn á rit-
stjórn Fréttablaðsins og kynntu sér
fyrirhugaða útgáfu á síðasta sprett-
inum fyrir „frumsýninguna". Þetta
voru Ásdís Halla Bragadóttir bæj-
arstjóri í Garðabæ, Gunnar Valur
Gíslason bæjarstjóri í Bessastaða-
hreppi, Ingibjörg Sólrún Gísladóttir
og aðstoðarkona hennar, Jóhann
Sigurjónsson bæjarstjóri í Mos-
fellsbæ, Sigurður Geirdal bæjar-
stjóri í Kópavogi og Sigurgeir Sig-
urgeirsson bæjarstjóri í Seltjarnar-
nesbæ. Magnús Gunnarsson bæjar-
stjóri í Hafnarfirði átti ekki heim-
angengt. Var auðheyrt fbæjarstjór-
unum að þeir töldu útkomu Frétta-
blaðsins talsverð tíðindi sem mundu
setja annan brag á bæjar- og borg-
arlífið en verið hefði. ■
BÆJARSTJÓRARNIR
FRÆDDUST UM ÚTKOMU
FRÉTTBALAÐSINS
Frá hægri Sigurður Geirdal í
Kópavogi, Gunnar Valur
Gíslason i Bessastaðahreppi,
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir I
Reykjavík og Jóhann Sigur-
jónsson í Mosfellsbæ.
Síðustu ár hefur Visir.is boðið uppá áreiðanlegar fréttir
í samvinnu við öfiugustu fréttastofur landsins.
I dag, mánudaginn 23. apríl, bjóðum við velkomna til leiks
fréttastofu Fréttablaðsins.
y', p ■ y . .. . :
.
góður punktur!