Fréttablaðið - 25.04.2001, Side 13
MIÐVIKUPAGUR 25. apríl 2001
FRÉTTABLAÐIÐ
u
Ritstjóri vefsíðu vegna kærumáls
Með opið hús fyrir svín
Sjaldgæft krabbamein
Drengur fær
geimbúning
netið „Þetta er hreinlega eins og að
vera með opið hús fyrir gesti sem
komi vaðandi inn, segi ekki til
nafns, hagi sér eins og svín og fari
svo,“ segir Hlynur Þór Magnús-
son, ritstjóri netútgáfu vikublaðs-
ins Bæjarins besta á ísafirði, um
níðskrif sem birtust á netspjallrás
blaðsins og kærð hafa verið til lög-
reglu eins og skýrt var frá hér í
Fréttblaðinu á mánudaginn. „Mað-
ur fær ekki einu sinni að vita hvað
þeir heita.“
„Þegar þetta kom upp í vetur
lagði ég mjög að Stebba Dan að
kæra þetta og láta reyna á það.
Það er ekki nokkur lífsins leið fyr-
ir okkur að fá uppgefið hverjir
voru að skrifa á netspjallinu," seg-
ir Hlynur Þór.
Hann segir að lögreglukæra
sem barst á sig fyrir nokkrum vik-
um út af öðru máli beinist ekki
lengur gegn sér.
„Enda liggur það Ijóst fyrir að
það er ekki að mínum vilja að fólk
var með þennan sora þarna. Allt í
einu fór að safnast inn á spjallið
alls konar klám og kjaftæði og
svívirðingar. Við létum strax loka
fyrir það og eyddum flestu út
sem komið var inn,“ segir Hlynur
Þór. ■
TEXfls af Hinn átta ára gamli Texas-
búi Cardi Hicks hefur aldrei getað
leikið sér úti í sólinni vegna sjald-
gæfs húðkrabbameins sem hann
hefur haft frá fæðingu. „Hann var
orðinn svo pirraður að ég varð að
fara með hann til sálfræðings,"
sagði Samatha móðir hans.
Tæknin sem notuð var við gerð
búningsins er sú sama og fyrir al-
vöru geimfara og verndar hann
Cardi gegn 99,9% af öllum útfjólu-
bláum geilsum sólarinnar. „Mig
langar að spila golf,“ sagði Cardi
meðal annars við móður sína og vini
þar sem hann var úti að leika sér.
Cardi þarf að gangast undir
skurðaðgerð á um þriggja mánaða
fresti til að láta fjarlægja æxli. Þeg-
ar hann var 14 mánaða þurfti að
fjarlægja úr honum tvö heilaæxli.
Læknir Cardi sagði að erfitt væri að
segja til um hversu lengi hann muni
lifa. ■
LOKSINS ÚT AÐ LEIKA
Cardi Hicks með vinum sínum í nýja „star-
wars" búningnum
Grímsey og Hrísey
Meirihluti
mótmælir
UNDIRSKRIFTflRSÖFNUN MjÖg mikill
þátttaka var í undirskriftarsöfnun
íbúa Grímseyjar og Hríseyjar gegn
lögum um kvótasetningu á ýsu, ufsa
og steinbít. Alls skrifuðu 55 af 90 íbú-
um Grímseyjar sig á undirskriftar-
listann og sömuleiðis meirihluti íbúa
í Hrísey. Sæmundur Ólason smábáta-
sjómaður í Grímsey segir að allir íbú-
arnir hefðu skrifað sig á ef ekki
hefðu komið til ferðalög um páska.
Hann segist óttast að lítið verði um
nýliðun í smábátastéttinni í eyjunni
ef lögin koma til framkvæmda.
Stefnt er að því að listarnir verði af-
hentir sjávarútvegsráðherra í dag. ■
HEGÐUNARTRUFLANIR ER VANDI í
SKÓLUM
Dalbrautarskóli þjónar nemendum sem
eru innlagðir á barna- og unglingageð-
deild. Nýi ráðgjafarskólinn mun þjóna
nemendum sem eru útskrifaðir þaðan en
ekki færir um að setjast á skólabekk í al-
mennum grunnskólum.
Ráðgjafarskóli tekur til
starfa í Reykjavík í haust:
Skóli fyrir atferl-
istrufluð börn
skólamál Ráðgjafarskóli fyrir nem-
endur með alvarlegar geð- og hegðun-
artruflanir tekur til starfa í Reykjavík
í haust. Gert er ráð fyrir að 15-20 nem-
endur sem ekki geta stundað nám í al-
mennum grunnskóla verði í skólanum
en sá hópur barna sem á við geð- og
hegðunartruflanir hefur farið vaxandi
á undanförnum árum.
Ráðgjafaskólinn verður einn af
grunnskólum Reykjavíkur og er
markmiðið hans að gera nemendur
færa um að takast á við almennt
skólastarf, hegðun og samskipti og
veita almennum grunnskólum ráðgjöf
vegna nemenda sem stríða við geð-
truflanir. ■
Búðu þig undir sumarið
j SUPERSER
I Gasofn
113.900 kr.
þlf
illinasen.
VERSLUN ATHAFNAMANNSINS
Grandagarði 2 | Reykjavik j Sími 580 8512 j Fax S80 8501
[ GAS ISKÁPAR SIBIR
i Gas +12 V + 220 W
I 55 I. 54.
Gasísskápar + 220
105 1. 89.939
1501. 102.422 kr.
2101. 116.055 kr.
Opið alla virka daga frá kl. 8:00-18
og laugardaga frá kl 10-14
- flLLTAF NÆG BÍLASTÆBI -
m
| RENO 2000 z
II0.500 kr.
MEPEMSA I
Gasofnar '
900 w 12.899 kr. I
1700 w 14.900 kr. !
MEPEMSA I
Standur |
950 kr. I
tr&ðu
Láttu Ijós þitt skína
uiyít r iidah
HÁti VdWW.U.ul