Fréttablaðið - 26.04.2001, Blaðsíða 1
NÝBÚAR
Menntunin nýtist
ekki Vestur-
Islendingi
bls 13 ►
HAFNARFIÖRÐUR
Kennarar reiðir
bœjaryfir-
völdum
bls 13 ►
MENNiNG
Astarsaga
Ragnheiðar
og Daða
bls 19 >>
- einfaldlega hollt!
FRÉTTABLAÐIÐ
• .
4. tölublað - 1. árgangur Þverholti 9, 105 Reykjavík — sími 515 7500 Fimmtudagurinn 26. apríl 2001
PvnffiMiirvjaiMiaii
KVÖLPIÐ í KVÖTdT
Tónlist 18 Bíó 16
Leikhús 18 íþróttir 14
Myndlist 18 Sjónvarp 20
Skemmtanir 19 Útvarp 21
Jagland til
landsins í dag
heimsókn Torbjörn
Jagland, for-
sætiráðherra Nor-
egs, kemur til ís-
lands í dag til fund
ar við Halldór Ás-
grímsson, utanrík-
isráðherra.
Haukar mæta
KA í kvöld
hanpbolti Úrslitaviðureignin um ís-
landsmeistaratitilinn í handknatt-
leik hefst í kvöld á Akureyri.
bls. 14
Hópslysaæfing
æfing Flugvél með 50 manns hefur
hlekkst á. Þannig hljóðar útkall á
um 300 manna hópslysaæfingu,
sem hefst á Sauðárkróki í dag og
stendur til sunnudags. bls. 11
Síðasta prófið
próf Samræmdu prófunum lýkur í
dag með prófi í stærðfræði.
[ vepriðTpag j
REYKIAVI'K Suðaustan 5-8
m/sek. og skúrir. Breytist í
suðaustan 10-15 m/sek. og
fer að rigna i kvöld. Hiti 5-10.
VINDUR ÚRKOMA HITI
ísafjörður O 5-8 skýjað ©6
Akureyri © 5-8 léttskýjað ^10
Egilstaðir © 1-3 skúrir O7
Vestmannaeyjar O 5-8 skúrir O'0
„Við erum eins og
gíslar skæruliða“
Dapurlegt að fresta útskrift eftir sex ára háskólanám.
Læknanemar óánægðir með aðgerðir háskólakennara
Brynja Ragnarsdóttir, útskriftar-
nemi í læknadeild háskólans, gagn-
rýnir háskólakennara harðlega fyrir
tímasetningu á boðuðu verkfalli og
segir forystu stúdentaráðs hafa verið
lina bráttu sinni fyrir hagsmunum
stúdenta. Verkfall háskólakennara
hefst 2. maí næstkomandi og segir
Brynja það dapurlegan endi á sex ára
háskólanámi að fresta þurfi útskrift.
„Við erum öll búin að ráða okkur í
vinnu 1. júní og hefjum þá kandi-
datsár en forsenda fyrir því er lækn-
ingarleyfi, sem við fáum með því að
ljúka prófunum,“ segir Brynja.
Læknanemar hafa fundað tvisvar um
hvernig minnka megi það rask sem
verkfallið veldur en allar beiðnir um
færslu á próftöku hefur verið hafna.
Deildarstjóri læknadeildar og pró-
fessor í skurðlækningum studdu til-
lögu læknanema um breyttan
próftökutíma en kennarar og próf-
stjóri komu í veg fyrir að hún yrði
samþykkt.
Brynja segir aðferðir kennara
gamaldags og beiting verkfalls-
vopnsins með þessum hætti komi
eingöngu niður á stúdentum. „Ég hef
orðið vör við það meðal stúdenta að
mikil óánægja er í garð háskólakenn-
ara fyrir að hafa valið próftímabilið
fyrir þessar aðgerðir. Við erum eins
og gíslar skæruliða."
Mikil vonbrigði eru meðal lækna-
nema með baráttuaðferðir Stúdenta-
ráðs í málinu. Þeir segja litla um-
ræðu vera meðal stúdenta og barátt
þeirra hafi helst falist í því að álykta
með launakröfu kennara. Brynja
segir skoðun læknanema að leggja
eigi áherslu á hve illa verkfallið get-
ur komið niður á nemendum; út-
skriftir frestast, námslán berast ekki
og vinnutap verður ef próf færast
fram á sumar.
Sjálf segir Brynja taka fjögur
próf í vor. Hún segir læknanema
vera á fullu í lestri þessa dagana því
fyrsta prófið er 30. apríl og lendir
ekki á verkfallstímanum. Eitt munn-
legt próf er 2. maí, sem færist eitt-
hvað til, en mesta óvissan ríkir um
prófin 14. og 15. maí. Líklegt er að
vinna kandidata á spítölunum raskist
eitthvað ef ekki næst að útskrifa
læknanemana. ■
Elsta kona í heimi:
115 ára
Tours, APHin franska Marie
Bremont hélt upp á 115 ára afmæli
sitt i gær, en hún er talin elsta núlif-
andi kona heims af Heimsmetabók
Guinnes. Bremont var að sögn hjúkr-
unarfræðinga á elliheimilinu sem
hún dvelur á hin hressasta á deginum
stóra og bauð gestum upp á
súkkulaðiköku.
Fyrri eiginmaður hennar lést í
fyrri heimsstyrjöldinni og sá síðari
árið 1967. „Ég hef átt tvo góða eigin-
menn. Ég hef alltaf verið hamingju-
söm ... Ég er stolt af því að vera elsta
kona í heimi,“ sagði afmælisbarnið.
Líf hennar hefur ekki alltaf verið
dans á rósum, en þegar hún var 103
ára keyrði á hana bíll og hún hand-
leggsbrotnaði. ■
BREMONT A AFMÆUSDAGINN
Bauð gestum upp á súkkulaðiköku og vín.
Afkoma ríkissjóðs
Hægir á veltu
í hagkerfinu
efnahagsmál í greinagerð fjármála-
ráðuneytisins um greiðsluafkomu rík-
issjóðs fyrstu þrjá mánuði ársins
kemur fram að tekjur ríkissjóðs af
vöru og þjónustu hafa vaxið mun
minna miðað við sömu mánuði í fyrra.
Hækkunin í ár nam einungis 0,5% og
ef tekið er tillit til
4% verðbólgu vegna
hækkandi verðlags
endurspeglar þessi
þróun samdrátt að
raunvirði.
Virðisaukaskatt-
ur hefur vaxið um
2,3% miðað við
fyrstu þrjá mánuði í
fyrra en til saman-
burðar óx hann um
30,5% sömu mánuði
1999 miðað við árið
1998.
í greinagerðinni
segir að þessi þróun
geti gefið skýra mynd af þróun eftir-
spurnar í hagkerfinu. Greinilegt er
samkvæmt þessum tölum að það sé að
hægjast á veitu innan hagkerfisins og
landsmenn haldi fastar í budduna sína
en áður.
Rekja má þessa lækkun að nokkru
leyti til verulegs samdráttar á vöru-
gjöldum af bifreiðum og bensíni, en
innflutningur ökutækja hefur dregist
saman um 30% á milli ára. ■
30% FÆRRI
BÍLAR FLUTTIR
INN
Landsmenn halda
fastar í budduna
en áður og
eftirpurn minnkar
ÞETTA HELST
Davíð Oddsson veitti í gær viður-
kenningu úr hendi Mikhails S.
Gorbatsjovs, fyrurm forseta Sovét-
ríkjanna. Verðlaunin voru veitt þrem-
ur aðilum í New York fyrir hönd sam-
takanna Global Green USA fyrir
stefnu íslensku ríkisstjórnarinnar í
umhverfismálum. í fréttatilkynningu
segir að verðlaunahafarnir hafi stuðl-
að á mikilvægan hátt að sjálfbærri og
öruggri framtíð fyrir komandi kyn-
slóðir.
Evrópubankinn ákveður í dag hvort
stýrivöxtum verður breytt. Sam-
kvæmt upplýsingum frá Evrópu-
bandalaginu í gær fer hagvöxtur í
Evrópu undir 3% á þessu ári og því
næsta. Gætu þær upplýsingar haft
áhrif á ákvörðun bankans. Reiknað
hafði verið með meiri hagvexti en sú
spá hefur nú verið lagfærð. Telja hag-
fræðingar Evrópubandalagsins að
bágu efnahagsástandi í Bandaríkjum
sé helst um að kenna.
~ | FÓLK |
Þjónn Díönu ákœrður
fyrir þjófnað
SÍÐA 16 ►