Fréttablaðið - 26.04.2001, Blaðsíða 11

Fréttablaðið - 26.04.2001, Blaðsíða 11
FIIVHVITUDAGUR 26. apríl 2001 FRÉTTABLAÐIÐ n ERLENT Að sögn talsmanns Hvíta hússins í Washington vöruðu flugmenn bandarískrar eftirlitsvélar flugmenn perúsku þotunnar sem skaut niður bandaríska trúboðavél við að skjóta hana niður. Þeir óttuðust að ekki væri öruggt að hún væri í eiturlyfja- flutningum. —♦— Norðmaðurinn Bprge Ousland komst á Norðurpólinn en hann er á ferð þvert yfir pólinn frá Rúss- landi til Kanada. Hann hefur áður gengið þvert yfir Suðurskautslandið. Hann lagði af stað þann 3. mars sl. frá Kapp Arcticesky á eynni Severnaya Semyla norður af Síberíu og vonast til að ná til Ward Hunt í Kanada eftir um það bil 40 daga. Hann hefur gengið um 800 kílómetra en á um 950 eftir. FLUGLEIÐAVÉL Farþegum fjölgaði fyrstu þrjá mánuði til og frá Islandi nokkuð en mest munar um 14% fjölgun farþega á leiðunum yfir Norður-Atlantshafið. Flugleiðir Aukin sala en minna framboð samgöngur Fjölgun varð á farþegum í millilandaflugi með Flugleiðum í mars á þessu ári miðað við árið í fyrra. Munurinn er um 11,4% eða tæplega 115 þúsund farþegar nú á móti 103 þúsundum í fyrra. Farþeg- um til og frá íslandi fjölgaði um 1,5% en farþegum á leiðum félagsins yfir Norður-Atlantshafið með viðkomu á íslandi, fjölgaði um 21,1%. Farþeg- um fækkaði hinsvegar um 4% í inn- anlandsflugi Flugfélags íslands, dótt- urfélags Flugleiða, frá því á sama tíma í fyrra. Aukin sala og minna framboð ein- kenndu starfsemi Flugleiða í milli- landaflugi á fyrsta ársfjórðungi 2001. Flugleiðir fluttu 7,5% fleiri farþega í millilandaflugi í janúar, febrúar og mars á þessu ári en í sömu mánuðum í fyrra. Á þessum fyrsta ársfjórðungi flutti félagið tæplega 270 þúsund far- þega í samanburði við tæplega 250 þúsund í fyrra. Þessi árangur náðist þrátt fyrir að sætaframboð hafi á sama tíma verið minnkað um 6,1% milli ára, enda var sætanýting 64,9%. Þar munar 8,7% milli ára því sæta- nýting árið 2000 var 56,3%. | innlentH Giedrius Cekuolis, varautanríkis- ráðherra Litháen, kom til lands- ins og átti í gær fund með Halldóri Ásgrímssyni, utanríkisráðherra, embættismönnum utanríkisráðuneyt- is og forsætisráðuneytis, auk þess að hitta fulltrúa utanríkismálanefndar Alþingis. Megintilgangur heimsókn- ar Cekuolis er að leita eftir stuðningi við aðild Litháen að Atlantshafs- bandalaginu og kynna með hvaða hætti unnið sé að undirbúningi aðild- ar landsins að því. Litháen tekur þátt í aðgerðaráætlun umsóknarríkja Atl- antshafsbandalagsins, sem samþykkt var á leiðtogafundi bandalagsins í Washington 1999. Níu ríki hafa sótt um aðild að bandalaginu, þar á meðal Eystrasaltsríkin þrjú. ...♦... : Stjórn Útvegsbændafélags Vest- mannaeyja hefur svarað tilboði Sjómannafélagsins Jötuns urn kjara- viðræður milli þessara félaga. í svari Útvegsbændafélagsins kemur fram að eftir fund stjórnar Útvegs- bændafélagsins, Landssambands ís- lenskra útvegsmanna og Samtaka Atvinnulífsins, sé ekki grundvöllur til samningaviðræðna milli Sjó- mannafélagsins Jötuns og Útvegs- bændafélags Vestmannaeyja þar sem samningsumboð þessara félaga séu hjá heildarsamtökunum. *• I Stórslys á Sauðárkróki Um 300 manns taka þátt í hópslysaæfingu björgunaræfing Hátt á þriðja hundrað manns munu taka þátt í hópslysaæf- ingu sem fram fer á Sauðárkróki dag- ana 26.-29. apríl. Æfð verða viðbrögð við því þegar flugvél með 50 manns innanborðs hlekkist á við enda flug- brautar flugvallarins á Sauðárkróki. Æfingin er samstarfsverkefni björgunarsveita, lögregluembættis- ins, Landhelgisgæslunnar, Almanna- BJÖRGUNARSVEITARMENN Mikið mun mæða á björgunarsveitar- mönnum við æfingu á Sauðárkróki nú um helgina. varna, Flugmálastjórn heilbrigðis- stofnana, slökkviliðsins, Rannsókna- nefnd flugslysa, Rauða krossins, sóknarpresta og fleiri. Almenningi gefst kostur á að hlýða á fræðsluerindi sem haldin verða í Fjölbrautaskóla Norðurlands fimmtudaginn 26. og föstudaginn 27. apríl. Á laugardeginum verða æfðar aðgerðir við tilkynningu um að ATR 42 flugvél með 47 farþega innan- borðs og þi'iggja manna áhöfn hafi skollið niður sunnan við Víkina og brotnað í nokkra hluta. ■ Nokkrir tugir handteknir Stuðningsmenn Falun Gong mótmæla víða í Asíu. Lögregla í Peking elti fólkið og barði. peking. ap Mótmæli brutust út í gær á vegum Falun Gong-hreyfingarinnar í Peking, Hong Kong og Tokyo. Lög- reglan í Peking brást við með því að berja og handtaka nokkra tugi mót- mælenda á Torgi hins himneska frið- ar í gær. Minnst var þess að nú eru tvö ár liðin frá því rúmlega 10.000 manns tóku þátt í þöglum mótmælum hreyfingarinnar í Peking. Fréttamenn á Torgi hins himneska friðar sögðu lögreglu hafa brugðist við með því að elta fólkið, berja það og draga það inn í lögregluvagna. „Falun Gong er gott!“ hrópaði einn kínverskur mótmælandi áður en lög- regla yfirbugaði hann. Kona með kröfuspjald hrópaði skilaboðin, „lög- reglan er að berja fólkið!" út um glugga á lögregluvagni. Tveir óein- kennisklæddir lögregluþjónar hlupu að henni og kýldu hana í andlitið, að sögn fréttamanna. Eftir að lögreglu hafði tekist að yfirbuga mótmælendurna var gæsla á torginu aukin, leitað var í töskum fólks og skilrikja krafist. Þá voru filmur í myndavélum evrópskra og amerískra ferðamanna sem voru á svæðinu eyðilagðar og þeim sem voru með myndbandsupptökuvélar gert að taka upp yfir atburði dagsins. Yfirvöld í Kína telja að ógn stafi frá Falun Gong og hafa barist hart gegn henni. Meðal annars hafa ríkis- fjölmiðlar verið óspart notaðir til að snúa almenningsáliti gegn hreyfing- unni. Mannréttindasamtök segja að yfir 100 meðlimir hafi látist í kín- verskum fangelsum. Lögregla hafði ekki afskipti af g friðsamlegum mótmælum í Hong g Kong sem fóru þannig fram að fólkið 5 sat við hugleiðslu fyrir utan skrif- * stofu Kínastjórnar. í Tokyo hafði lög- regla heldur ekki afskipti af nokkrum tugum manna sem söfnuð- ust saman fyrir utan kínverska sendiráðið og hrópuðu skilaboðin „virðið mannréttindi!" A LEIÐ ÚR VINNU Bátur ferjar starfsfólk spilavitis heim. Milljónatjón af völdum flóða í Mississipi-á „Móðir náttúra ræður öllu“ davenport Flóðið í Mississippi-á i Bandaríkjunum hefur valdið millj- ónatjóni. í gær náði það hámarki við Davenport í Iowa-ríki en það er stærsti bærinn á þessum slóðum þar sem ekki eru varanlegar flóðavarnir. „Móðir náttúra ræður öllu,“ segir íbúi í grennd bæjarins, Chet Simpson sem eins og margir þarf stöðugt að dæla vatni úr kjallara húss síns. „Flóðið er við það að ná hámarki núna,“ sagði Andy Ervin veðurfræð- ingur sem býst við því að áin verði breytileg áfram næstu daga. Fjöldi fólks í Iowa og Wisconsin hefur þurft að yfirgefa heimili sín af völdum flóðanna. Sjálfboðaliðar og hermenn hafa unnið hörðum höndum við að reisa flóðavarnir úr sandpok- um í Davétiport til að reyna að vern- da miðbæinn. Flóðgarðarnir eru í 3,6 m hæð sem er nægilegt til að girða ána meðan hún er í hámarki. Að sögn Clayton Lloyd, starfsmanns þróunar- sviðs' Davenport er þó talið að innan við 100 heimili muni verða fyrir tjóni af völdum flóðsins. Ekki er séð fyrir endann á vatnavöxtum í Mississippi því spáð hefur verið stormi um helg- ina í Minnesota og Wisconsin. ■ Nokkuð hefur dregið úr regluleg- um mótmælum hreyfingarinnar síð- an fimm meðlimir kveiktu í sér í mót- mælaskyni á torgi hins himneska friðar þann 23. janúar sl. Tvær konur létust. ■ MÓTMÆLI í KÍNA Lögregla brást hart við mótmælum á Torgi hins himneska friðar Yfirmaður hjá Gisco handtekinn Fyrirtækið lét lögreglu vita san jose. ap Robert S. Gordon yfir- maður viðskiptaþróunar hjá banda- ríska risafyrirtækinu Cisco Systems hefur verið handtekinn fyrir fjár- drátt. Er hann ákærður fyrir að kom- ast með óheiðarlegum hætti yfir 30.000 hluti í ákveðnu internetfyrir- tæki sem voru í eigu Cisco. Gordon seldi bréfin og notaði þær fimm milljónir dollara sem hann fékk fyrir til að kaupa hluti í samskiptafyrir- tækinu Spanlink sem er í samvinnu við Cisco. Þar margfaldaði hann fjár- festingu sína. Gordon má búast við háum sekt- um og allt að fimm ára fangelsi verði hann fundinn sekur. „Við höfðum samband við lögregluyfirvöld og styðjum þau af fremsta rnegni," sagði í yfirýsingu frá Cisco fyrr í vik- unni. Cisco Systems framleiðir meðal annars tæknibúnað fyrir netkerfi og hafa hlutabréf þess mestu veltu allra fyi'irtækja sem skráð eru á Nasdaq.B Tyrkland Rey nt að bj arga efnahaginum ankara. ap Ný lög í Tyrklandi veita seðlabanka landsins leyfi til að taka sjálfstæðar ákvarðanir varðandi hag- stjórn. Er það liður í að rétta við efnahag landsins en tyrkneska líran hefur fallið um 40% á stuttum tíma gagnvart bandaríkjadollar. Auk þess hefur um hálf milljón manna misst vinnu sína að undanförnu. Kermal Dervis, utanríkisráðherra Tyi'klands, sagði að lögin væru til þess fallin að tryggja efnahag þess gegn duttlungum stjórnmálamanna. Sjálfstæði seðlabankans kæmi í veg fyrir að ríkisstjórnir prentuðu pen- inga til að auka vinsældir sínar fyrir kosningar. Dervis er nú í Bandaríkj- unum þar sem hann sækist eftir lán- ,. um til að vinna að umbótunum. ■ Leltar eft,r stuðnm8' vlð efnahagsumbætur FJÁRMÁLARÁÐHERRA TYRKLANDS

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.