Fréttablaðið - 26.04.2001, Blaðsíða 19

Fréttablaðið - 26.04.2001, Blaðsíða 19
FIMMTUDAGUR 26. apríl 2001 FRÉTTABLAÐIÐ 19 A FERÐ UM GEIMINN Berglind bíður áhorfendum að ferðast um geiminn og kanna áður óþekktar plánetur. 2000, þar sem sýnd eru verk eftir 21 norrænan myndlistarmann, en þar á meðal eru þeir Hreinn Friðfinnsson og Tumi Magnússon. Opið 11-17. „Drasl 2000" nefnir rithöfundurinn Sjón sýningu í Menningarmiðstöðinni Gerðubergi í sýningarröðinni „Þetta vil ég sjá". Þar hefur Sjón valið til sýningar verk eftir Erró, Magnús Pálsson, Magn- ús Kjartansson, Hrein Friðfinnsson, Friðrik Þór Friðriksson og fleiri. Menn- ingarmiðstöðin er opin frá 9 að morgni til 21 að kvöldi. í gallerí@hlemmur.is stendur yfir sýning Erlu Haraldsdóttur og Bo Melin „Here, there and everywhere". Á sýningunni leika þau Erla og Bo sér að því að brey- ta Reykjavík í fjölþjóðlega borg með að- stoð stafrænt breyttra Ijósmynda. Opið 14-18. Á Kjarvalsstöðum stendur yfir sýning norska listmálarans Odds Nerdrums, sem baðst nýverið afsökunar á því að hafa siglt undir fölsku flaggi með því að kalla sig listamann. Sýningin er opin 10- 17. „Heimskautalöndin unaðslegu" er heiti sýningar sem lýsir með myndrænum hætti lífi, starfi og hugsjónum Vestur-ís- lendingsíns Viihjálms Stefánssonar. Sýningin er um leið kynning á umhverfi, menningarheimum og málefnum norð- urslóða, en hún er í Listasafni Reykja- víkur - Hafnarhúsinu og er opin 10-17. „Á meðan eitthvað er að gerast hér, er eitthvað annað að gerast þar" nefnist sýning á vekum Bandaríkjamannsins John Baldessari sem stendur yfir í Listasafni Reykjavíkur - Hafnarhúsi. Hann er eitt af stóru nöfnunum í sam- tímalistasögunni og hefur verið nefndur Ijóðskáld hinnar öfugsnúnu fagurfræði og húmoristi hversdagsleikans. Sýningin er opin 10-17. „Eruð þið enn reið við mig?" nefnist sýning á verkum eftir breska lista- manninn John Isaacs i Listasafni Reykjavikur - Hafnarhúsi þar sem gef- ur m.a. að líta sláandi nákvæma sjálfs- mynd listamannsins, sem þar skyggnist undir eigið yfirborð í orðsins fyllstu merkingu. Viðbrögð áhorfenda við verk- um hans ýmist hlátur eða hrollur, en vlst er að listamaðurinn leggur mikið upp úr því að hreyfa við fólki, á hvorn veginn sem er. Safnið er opið 10-17. Sænska listakonan Anna Hallin sýnir málverk og teikningar í Gryfju Lista- safns ASÍ og heitir sýning hennar „Soft Plumbing". Olga Bergmann sýnir í Ás- mundarsal safn verka sem unnin eru með blandaðri tækni. Sesselja Tómasdóttir sýnir „portrait" af dóttur srnni og vinum hennar, sem öll eru á fjórða ári í Listhúsi Ófeigs, Skóla- vörðustíg. Hún hefur fylgst með þessum börnum frá fæðingu og reynir að láta persónutöfra þeirra njóta sín í myndun- um. ** | MYNDBAND FYRIR KVÖLD.D j Gamaldags hasar Sameinuðu þjóðirnar með árásar- gjarna njósnaþjónustu eru í brennidepli myndarinnar The Art of War, sem er ein nýjustu mynd- anna á leigunum um þessar mund- ir. Wesley Snipes, sem við þekkjum sem harðan nagla úr aragrúa hasarmynda er frekar dúkkaður saumur í þessari mynd. Það er kannski vegna þess að að hann er svo fjári illa svikinn af samherjun- um, rétt eins og ég varð illa svik- inn af myndinni. Maður er vanur Wesley bratt- ari, einbeittari og kannski umfram allt hugmyndaríkari en í þessari mynd. Það er kannski kanadíski þátturinn í henni sem gerir hana hvorki né; hvorki þriller né hasarmynd, rétt eins og leikstjórinn væri ekki al- veg viss um hvora gerðina hann ætti að velja. Fyrir þá sem vilja slagsmál, aðrir verða fyrir vonbrigðum The Art of War________ ____________ Kanadísk/Bandarísk frá 2000 Leikstjórn: Christian Duguay Handrit: Wayne Beach. Byggt á sögu eftir hann sjálfan. Aðalhlutverk: Wesley Snipes, Anne Archer, Maury Chaykin. SÖNGSVEIT HAFNARFJARÐAR Á ÆFINGU Stefnan er að flytja eingöngu óperu- og óperettutónlist. Heimir Þór er sonur okkar, þannig að við erum þarna fjölskyldan," segir Elín Ósk. Tónleikarnir verða haldnir í Hafn- arborg, Strandgötu 34, Hafnarfirði, og hefjast klukkan 20. ■ í Norræna húsinu sýna fimm myndlist- armenn frá Svíþjóð Rose-Marie Huuva , Erik Holmstedt, Eva-Stina Sandling, Lena Yiipáá og Brita Weglin. Norður- botn er á sömu norðlægu breiddargráð- um og ísland og að flatarmáli helmingi stærra þó íbúar séu þar álíka margir og á íslandi. Sýningin stendurtil 13. maí. í Ásmundarsafni við Sigtún í Reykjavík stendur yfir samsýning á verkum Páls Guðmundssonar og Asmundar Jóns- sonar. Safnið er opið 10-16. í Listasafninu á Akureyri stendur yfir sýning á Ijósmyndum eftir hinn þekkta franska Ijósmyndara Henri Cartier- Bresson, en líklega hefur enginn átt meiri þátt í því að gera Ijósmyndun að viðurkenndri listgrein. Opið 14-18. Myndir 370 barna af mömmum í spari- fötum eru á sýningu í Galleríi Sævars Karls við Bankastræti í Reykjavík. Opið á verslunartíma. í Listasafni Kópavogs - Gerðarsafni stendur yfir sýningin Carnegie Art Award Gallerí Ófeigur: Boðið í ferð um geiminn ljósmvndir Berglind Björnsdóttir, ljósmyndari, opnar um helgina sýn- ingu á Ijósmyndum í Gallerí Ófeigi á Skólavörðustíg 5. Sýningin hefst á laugardaginn kl. 16. Berglind útskrif- aðist árið 1994 með BA gráðu í ljós- myndum. Sýningin nefnist 2001 Space Odyssey. Áhorfendum er boðið í ferð um geiminn og tilgangur farar- innar er að kanna áður óþekktar plánetur, tungl og stjörnur. Myndinar sýna okkur hversdaglega hluti sam- félags okkar í nýju ljósi. Sýningin stendur til 16. maí og er opin virka daga kl. 10-18, laugard. 11-16 og sunnud. 13-17. SKEMMTIGARÐUR | Gaman fyrir rússíbanafólk i Líklega heimsækja flestir sem koma til Parísar með börn Dis- neyland. Að minnsta kosti er mannfjöldinn þar alveg gríðarleg- ur. Kaupmennskan er í algleym- ingi á þessum stað og má enda- lausan Disneyvarning hangandi utan á fólki á leið úr garðinum. í raun er Disneyland eins og hvert annað tívolí með Disneyyfir- bragði og því gósenland rússí- banafíkla. Hinir sem ekki hafa jafngaman af þesskonar skemmt- un verða að láta sér nægja að njóta gleði hinna. Pisneyland París Verðlag: Sanngjarnt ef ætlunin er að verja deginum á staðnum og fara í mörg tæki. Umhverfi: Skrautlegt en yfirborðslegt og gríðarlegur manfjöldi. Hverjir koma: Börn með foreldrum sínum Frakkar og útlendingar. Kostir: Flest börn munu eiga ógleymanleg- an dag í Disneylandi. Hægt er að stytta sér biðtíma með fyrirframpöntun. Gallar: Langar biðraðir við vinsæl tæki og óheyrilegur hávaði í skrúðgöngu sem fer reglulega um garðinn. Góð skemmtun fyrir þá sem hafa gaman af tívolítækjum SVERRIR GUÐJÓNSSON ER LISTRÆNN HÖNNUÐUR VERKSINS Verkið hefst og endar á þremur klukknahljómum sem koma frá bjöllu síðan um árið 1200 sem staðsett í í Skálholti. Bein EBU-útsending frá Skálholti Astarsögu Ragnheiðar og Daða gerð skil tónlist Ástarsögu Ragnheiðar Brynj- ólfsdóttur og Daða Halldórssonar verða gerð skil í beinni útvarpssend- ingu til flestra evrópulandanna næst- komandi sunnudagskvöld kl. 23 þeg- ar Sverrir Guðjónsson, listrænn hönnuður verksins, og félagar flytja í tali og tónum þessa velkunnu sögu. „Margir vilja tengja söguna við ís- landsklukku Halldórs Laxness enda kýs ég að kalla verkið íslandsklukk- una eða „Beil of Iceland“, sagði Sverrir í samtali við Fréttablaðið. Ut- sendingin er liður í samstarfsverk- efni evrópskra útvarpsstöðva, EBU sem valdi sögulega merka staði sem ákveðið þema, því var ákveðið að velja Skálholtskirkju sem útsending- arstað. Sverrir sagði verkið hafa tekið sex rnánuði í undirbúningi. „Ég ákvað strax að ekki yrði um hefðbundna tónleika að ræða heldur að uppbygg- ingin á því yrði meira dramtísk og það réði vali mínu á þessari ástar- sögu.“ Þeir sem koma fram á þessum tónleikum auk Sverris eru Arnar Jónsson, leikari, sem lesa mun upp eitt ljóða Daða Halldórssonar, Æru- krans, Voces Thules sönghópurinn, Hallveig Rúnarsdóttir, sópransöng- kona, og Nóra Cornblue, sellóleikari, en þær flytja verk Snorra Sigfúsar Birgissonar. Sverrir sagðist hrifinn af útvarp- inu sem miðli þar sem það gæfi ímyndunaraflinu Iausan tauminn. „Ég mæli meö að fólk komi sér vel fyrir og ferðist aftur á bak í tímann og upplifi á ný þessa dramatísku ást- arsögu á þessum sérstökum nótum,“ sagði Sverrir að lokum. ■ Norræna húsið: Kuml og íslensk forsaga fornleifar í kvöld kl. 20.30 heldur Adolf Friðriksson forstöðumaður Fornieifastofnunar íslands opinn fyr- irlestur á vegum Vísindaféiags ís- lendinga í Norræna Húsinu. Adolf ætlar að benda á nýjar leiðir til að nota heiðnar grafir til aukins skiln- ings á forsögu íslands. Um leið varp- ar hann fram nýjum spurningum: Hvað geta kuml sagt um íslenskt samfélag á víkingaöld? Geyma þau vitneskju um samfélagsgerð? Eru óráðin tákn fólgin í staðsetningu kumla í landinu? íslensk fornleifafræði hefur á síð- ustu árum tekið miklum stakkaskipt- um. Nú er framlag fornleifafræðinga til aukinnar þekkingar á fortíðinni ekki lengur bundið við að varpa ljósi á efnislega þætti fornmenningar eins og t.d. húsagerð og áhaldanotkun, heidur er helsta ögrun þeirra að nýta þessi nýju gögn til að leggja drög að íslenskri forsögu, sem engar ritaðar samtímaheimildir eru til um. Á síðustu árum hefur Adolf rann- sakað kuml og þingminjar. Hann rit- stýrði endurútgáfu á doktorsritgerð Kristjáns Eldjárns, Kuml og haugfé, sem kom út fyrir skömmu og vinnur nú að athugun á staðfræði kumla. ■ Vortónleikar 1 Langholtskirkju: Gospelsystur með Páli Rós- inkranz tónleikar Klukkan 20.30 í kvöld verða vortónleikar Gospelsystra haldnir í Langholtskirkju. Stjórnandi kórsins er Margrét Pálmadóttir, en einsöngv- ari með kórnum er Páll Rósinkranz. Boðið verður upp á skemmtilega blöndu af gospellögum, en tónleik- arnir byrja í rólegri kantinum á lög- um eins og Go tell it on the mountain, I am just a happy little boy og Love Changes evreything. Þegar líður á tónleikanna fer hins vegar að færast meira fjör í leikinn og við taka lög á borð við Swing low, Oh Happy Day og All my TVials. ■ ÁRNESINGAKÓRINN Kórinn hefur starfað i rúm þrjátíu ár og hefur starfsemin farið ört vaxandi með hverju ári. Ymir við Skógarhlíð. Arnesinga- kórinn heldur vortónleika tónleikar Árlegir vortónleikar Árnes- ingakórsins í Reykjavík verða hald- nir í Ými, hinu nýja húsi Karlakórs Reykjavíkur að Skógarhlíð 20, laug- ardaginn 28. apríl kl. 17. Kórinn mætir eldhress tii leiks og ætlar að flytja m.a. á þessum tón- leikum nokkur íslensk þjóðlög í út- setningu Jóns Ásgeirssonar. Einnig syngur kórinn ljóð eftir Tómas Guð- mundsson við lög eftir ýmsa lagahöf- unda, lag og ljóð eftir Loft S. Lofts- son og væna syrpu af lögum úr söng- leiknum Porgy og Bess. Einsöngvar- arnir á vortónleikunum koma úr röð- um kórsins og eru þeir Árni Sighvats- son, Davíð Viðarsson, Njáll Þorgeirs- son og Þorsteinn Þorsteinsson. Árnesingakórinn í Reykjavík hef- ur starfað í rúm þrjátíu ár og hefur starfsemin farið ört vaxandi með hverju árinu sem líður. Stjórnandi kórsins er Sigurður Bragason og undirleikari á tón- leikunum verður Bjarni Þ. Jónatans- son. ■

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.