Fréttablaðið - 26.04.2001, Blaðsíða 14

Fréttablaðið - 26.04.2001, Blaðsíða 14
FRÉTTABLAÐIÐ 26. apríl 2001 FIIVIIVITUDACUR _______________14 HVERNIC FER? ” Fyrsti úrsiitaleikurinn miili KA og Hauka? JÚLÍUS JÓNAS- SON, NÝRÁÐINN PJÁLFARI ÍR. „KA vinnur leikinn. Þeir eru á heimavelli og það skiptir miklu máli. Það verður ekki auðvelt að stoppa Guðjðn Val ef hann fer í gang." HÉÐINN GILSSON, LEIKMAÐUR FH. „KA. Þeir eru spræk- ari. Atli þjálfari er að gera góða hluti fyrir norðar. með ungt og skemmtilegt lið. Þeir vinna keppnina með þremur vinn- ingum gegn einum." 1 FÓTBOLTI Godo tennismótið á Spáni: Allir vilja milljón Þjóðverjar munu að öllum líkind- um sækja um að fá að halda sum- arólympíuleikana árið 2012. Gerhard Schröeder, kansl- ari Þýskalands, hefur heitið þýsku ólympíu- nefndinni póli- tískum sluðn- ingi. Þýska ólympíunefndin mun taka ákvörðun um það í nóvejnber nk. hvort þeir sækja um sumarleikana árið 2012 eða vetrárleikaná 2010 eða- 2016. Ólympíuleikar voru síðast haldnir í Þýskalandi'árið 1972 þegar hryðjuverkasamtökin Svartur sept- ember réðust á ísraelsku íþr.ótta-: mennina í Munchen. Flestir eru sammála uní það. að XFL deildin, grófari útgáfán af NFL deildinni í amerískum fótbolta, hafi verið misheppnuð. Deildin, sem var skipulögð af WWF (glímu- sambandinu) og fjölmiðlafyrirtæk- inu NBC, er að klára sitt fyrsta keppnistímabil. Jafnvel áður en leiktíðin klárast eru leikmenn í hrönnum að leita sér að útgöngu- leiðum og eru átta nú þegar búnir að tryggja sér samning aftur í NFL deildinni. Líklegt er að fjölmargir fylgi í kjölfarið. tennis Það er til mikils að keppa fyr- ir tennisleikarana sem keppa á Opna Gogo mótinu á Spáni. Sigur- verðlaunin eru 100 milljópir doll- ara. ’ Mótið tók óvænta stefnu í gær þegar Svíinn Magnus Noi-man, sem var sterkasti leikmaðurinn á mót- inu, þurfti að segja sig úr keppni í gær vegna magapínu. Norrrian hóf mótið sem næst sterkasti tennisleikai'inn en færðist . upp um éitt sæti á þi'iðjudaginn ' þegár Brásilíumaðurinn Gustavo 'Kuerten. þurfti að hætta keppni þegar hann tognáði á hægri lær- vöðva. „Mig'lángaði til að ganga vél á mótinu. Því lék ég þó ég. væri ve.ikur. Ég vonaðist til að inaginn myndi íagast en vissi fljötlega að ég yrði að hætta keppni,‘-‘ sagði Norm- an í gær. Þetta þýðir að Júan Carlos Ferrero, sem er tíundi á heimslist- anum, er sterkasti leikmaður móts- ins. Næsta umferð mótsins fer fram í dag. Þeir tennisleikarar sem enn keppa um milljónina eru Arnaud Clement frá Frakklandi, Thomas Enqvist frá Svíþjóð, Andrei Med- vedev frá Úkraínu, Federico Luzzi EKKI SÁTTUR ítalinn Davide Sanguinetti gengur út af tennisvellinum eftir að hafa tapað leik á móti Svlanum Thomas Enqvist i gær. frá Ítalíu, Michael Kratochvil frá Sviss og Spánverjarnir Albert Portras, Alex Calatrava, Carlos Moya, Albert Costa og Tommy Robredo. ■ Úrslitaviðureignin í handbolta hefst í kvold: Hverjirverða Islandsmeistarar? hanpbolti í kvöld kl.20.15 á Akureyri hefst fyrsti leikurinn í úrslitabarátt- unni um íslandsmeistaratitilinn í handknattleik. Þar mætast Haukar og KA, en bæði liðin unnu undanúr- slitaviðureignir sínar í æsispenn- andi leikjum um síðustu helgi. BARÁTTA Haukar þurfa að berjast í kvöld á heimavelli KA. KA vann Aftureldingu í bráða- bana á föstudagskvöld og Haukar unnu Valsmenn í seinni framleng- ingu á suhnudagskvöld. Báðir leik- irnir voru oddaleikir. Fyrra Iiðið til að vinna þrjá leiki stendur uppi sem Íslandsmeistari, Næsti leikur á eftir þeim á Akureyri í kvöld verður að Ásvöllum á laugardag- inn. Seinni hálfleikur leiksins verð- ur sýndur á RÚV kl. 21. ■ HVAÐ SEGIR SAGAN? Leíkir Hauka og KA ■ Níssandeildinní síðastliðin ár. 2000-2001 21. mars síðastliðinn mættust liðin að Ásvöllum (21. umferð. KA var yfir í hálfleik, 15-1 log vann leikinn með 33 mörkum gegn 32. 23. nóvember ‘OO mættust liðin á Akureyri í 10. umferð. KA var yfir i hálfleik, 13-10, og vann leikinn með 26 mörkum gegn 22. 1999-2000 12. mars '00 mættust liðin á Ak- ureyri. KA var yfir í hálfleik, 17-10, og vann leikinn með 30 mörkum gegn 24. 21. nóvember '99 mættust liðin við Strandgötuna í Háfnarfirði. KA var yfir í hálfleik, 13-11, og vánn leikinn með 25 mörkum gegn 24. 1998-1999 10. mars '99 mættust liðin við Strandgötuna í Hafnarfirði. Hauk- ar voru yfir í hálfleik, 16-13, og unnu leikinn með 28 mörkum gegn 27. 2. desember '98 mættust liðin á Akureyri. Haukar voru yfir í hálf- leik með tólf mörk gegn 10. KA vann hinsvegar leikinn með 23 mörkum gegn 22. 1997-1998 2. mars '98 mættust liðin á Akur- eyri. KA voru yfir í hálfleik, 14-11, og unnu leikinn með 28 mörkum gegn 27. 12. nóvember '97 mættust liðin við Strandgötuna í Hafnarfirði. KA voru yfir í hálfleik með 12 mörk gegn ellefu. Leikurinn endaði hinsvegar í jafntefli, 24-24. Hvenær eru leikirnir? Úrslitakeppnin hefst í KA-heimiI- .inu í kvöld kl.20.15, annar leikur verður að Ásvöllum á laugardag kl. 16 og sá þriðji á Akureyri á þriðjudag kl.20.15. í lokaúrslitum þarf að sigra í þrem leikjum. Ef :I fjórði leikurinn verður að veru- leika verður hann að Ásvöllum fimmtudaginn 3. maí. Það er ekki alls ólíklegt að viðureignin endi í fimmta og síðasta leiknum, odda- leiknum, báðar undanúrslitaviður- eignirnar gerðu það. Oddaleikur- inn myndi þá fara fram í KA- heimilinu laugardaginn 5.maí. íslandsmeistaratitlar Haukar hafa tvisvar verið fslands- meistarar, árin 1943 og 2000. KA hefur einu sinni unnið titilinn, árið 1999. VINNUEFTIRLITIÐ Ársfundur verður haldinn á morgun, föstudaginn 27. apríl, í funda- og ráðstefnusölum ríkisstofnana að Borgartúni 6, Reykjavík, og hefst kl. 14:00. DAGSKRÁ: • Fundarsetning Hilmar Kristjánsson, formaður stjórnar Vinnueftirlitsins • Ávarp: Páll Pétursson, félagsmálaráðherra • Starf Vinnueftirlitsins á árinu 2000 Eyjólfur Sæmundsson, forstjóri Vinnueftirlitsins • Breyttir tímar - breyttar aðferðir í eftirliti Þórunn Sveinsdóttir, deildarstjóri þróunar- og eftirlitsdeildar Vinnueftirlitsins • Mismunandi heilsufar starfs- og þjóðfélagshópa Dr. Hólmfríður K. Gunnarsdóttir, sérfræðingur í rannsókna- og heilbrigðisdéild Vinnueftirlitsins • Afhending viðurkenningar til fyrirtækis fyrir vinnuverndarstarf Páll Pétursson,, félagsmálaráðherra • Opnun nýrrar heimasíðu Páll Pétursscm, félagspiálaráðherra, ræsir heimasíðuna. Inghildur Einarsdóttir, fræðslufulltrúi, kynnir síðuna. • Veitingar Fundarmenn eru hvattir til að koma með fyrirspurnir til fyrirlesara. Islendingum gengur ágætlega á heimsmeistaramótinu í borðtennis: Frammistaðan framar vonum borðtennis Heimsmeistaramótið í borðtennis fer fram þessa dagana í Osaka í Japan. Aldrei hafa jafn margir keppt á heimsmeistaramót- inu, sem hófst á mánudag og stendur í tvær vikur. 380 karlar og 260 konur frá 126 löndum taka þátt í liöa- og einstaklingskeppni. íslenska borðtennislandsliðið flaug út í vikunni til að taka þátt í mótinu. Liðió er skipað þeim Guð- mundi Stephensen, Ádam Hai’ðars- syni og Markúsi Árnasyni. Þeir eru undir styrkri leiðsögn landsliðsþjálf- arans Hu Dao Ben. Liðinu hefur gengið vel og byrjaði það mótið á því að sigra Azerbaijan 3-0 en það lið sem fyrr sigrar þrjá einstaklings- SNÚNINGUR LÍFSINS Suður-Kóreubúinn Kim Taek-soo gefur ein- beittur upp á móti Tékkanum Marek Klasek í gær. leiki vinnur viðureignina. Þvínæst unnu strákarnir Puerto Rico, einnig með þremur vinningum gegn engum. Argentínubúarnir sem fylgdu í kjöl- farið reyndust hinsvegar vera of stór biti í háls og endaði sú viðureign í 3- 1. Það er ekki skrýtið þar sem Liu Song, sem spilar með Argentínu, komst í 32 manna úrslit á síðasta heimsmeistaramóti og er talinn mjög sterkur varnarspilari. Það munaði litlu að Guðmundur Stephensen næði að sigra hann í æsispennandi odda- lotu. Þar sem Guðmundur er sterkasti leikmaður íslenska liðsins spilar hann jafnan fjórða leik. Eftir Argentínu sigruðu strákarnir Tahítí með þremur vinningum gegn einum og sömuleiðis Kýpur, sem var jafn- framt síðasti leikurinn í riðlinum. Þetta þýðir að liðið mun keppa um 49. til 57. sæti en 97 þjóðir taka þátt í liðakeppninni. Þetta er góður árang- ur þar sem liðið átti ekki möguleika fyrirfram á að lenda í toppbaráttu vegna stöðu sinnar á styrkleikalist- um. Þau lið sem komust í undanúrslit í karlaflokki á mótinu eru heims- meistarar Svía, Kína, Þýskaland, Suður-Kórea, Frakkland, Ítalía, Belgía og Austurríki. í kvennaflokki eru það heimsmeistarar Kínverja sem eru sigurstranglegastir. Auk þeirra keppa Ungverjaland, Japan, Rúmenía, Suöur-Kórea, Singapore, Norðui'-Kórea og Tawain. Um helg- ina verður keppt til úrslita og í næstu viku hefst síðan einstak- lingskeppnin. ■

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.