Fréttablaðið - 26.04.2001, Qupperneq 15
FIIVIMTUPACUR 26. apríl 2001
FRÉTTABLAÐIÐ
15
ÉC Á HANN
Shawn Bradley úr Dallas Mavericks og
Olden Polynice úr Utah Jazz berjast um
boltann í fyrrinótt. Dómarinn dæmdi upp-
kast. Utah vann leikinn.
| MOLAR 7
Rúmlega þúsund manns biðu heila
nótt á gangstétt í Singapore til
að tryggja sér miða á leik með
Manchester
United. Liðið fer
í júní til að spila
við það lið sem
vinnur deildina í
Singapore. David
Beckham og fé-
lagar eru gífur-
lega vinsælir í Singapore þar sem til
er Man Utd. Café. Aðdáendurnir
hefðu getað sparað sér ómakið þar
sem einungis var búið að selja 7500
af þeim 39500 miðum sem voru í
boði þegar miðasalan lokaði seinna
um daginn.
Leeds hefur gengið frá kaupum á
írska landsliðsmanninum Robbie
Keane frá Inter Mílan fyrir 11 milj-
ónir punda. Keane hefur reyndar
verið í láni hjá Leeds síðan í desem-
ber en hann var keyptur til Inter frá
Coventry fyrir 13 miljónir punda í
ágúst sl. Leeds gerði 5 ára samning
við Keane sem hefur gert 8 mörk
fyrir félagið síðan hann kom til
Leeds.
ótt freistandi tilboðum hafi rignt
yfir Ralf Schumacher segist
hann vera mjög sáttur hjá Williams-
liðinu og ætla að
vera þar um
ókomna framtíð.
Ralf kom til liðs-
ins árið 1999, eft-
ir tvö slök ár hjá
Jordan. Þó hon-
um hafi gengið
vel í síðustu keppni segist hann ekki
vilja vera of vongóður. „Ég ætla ekki
að láta mig dreyma um titilinn. Ég
einblíni bara á að standa mig vel í
næstu keppni og læt þar við sitja.“
Kimi Raikkonen segist vera tilbú-
inn til að krækja sér í fleiri stig
um helgina. Finninn ungi þekkir
brautina í Katalóníu vel eftir margar
æfingar og segist vera fullviss um
að sér og sínu liði eigi eftir að ganga
vel.
Umboðsmaður Lennox Lewis er
búinn að vinna hörðum höndum
í vikunni til að skipuleggja það að
Lewis mæti Ra-
hman aftur sem
fyrst. Líklegt er
að hnefaleika-
kapparnir berjist
18. ágúst. Lewis
tapaði WBC og
IBF heimsmeist-
aratitlunum þegar hann féll fyrir
hægri hendi Rahmans á sunnudag-
inn. Samkvæmt samningi má Ra-
hman berjast einu sinni áður en
hann mætir Lewis aftur og að sjálf-
sögðu er Mike Tyson efst á listanum.
Það myndi tryggja honum fleiri
milljónum dollara í vasann. Umboðs-
maður Tyson segist vera reiðubúinn
til samninga en fyrst þarf Tyson að
berjast við David Izon í Washington
2. júní.
Slúðurblöð heimsins keppast um
að gera grín að Lewis. Ein af sög-
unum er um þegar hann loksins lenti
í Suður-Afríku. Sérstök sendinefnd
beið hans þar sem einkavélin lenti,
með rauðan dregil og þriggja mán-
aða ljónsunga, Nödju. Þegar Lewis
sá ungann út um gluggann á vélinni
fraus hann og neitaði að fara út fyrr
en búið væri að setja þetta „hættu-
lega“ dýr í búr.
Blazers mæta Lakers í annað skipti í kvöld:
Nú er að duga eða drepast
nba í kvöld eru tveir leikir á döfinni í
NBA-deildinni. New York Knicks taka
á móti Toronto Raptors í Madison Squ-
are Garden og Los Angeles Lakers taka
á móti Portland Trail Blazers.
Leikmenn New York hafa margt
annað að hugsa um þessa dagana. í
fyrradag lenti Marcus Camby í miklum
vandræðum þegar brjálæðingur tók
móður hans og systur í gíslingu. Þeir
eru samt yfir í viðureigninni við
Toronto Raptors með einn vinning.
Portland þurfa að vanda sig í nótt.
Los Angeles er yfir með einn vinning
og ef þeir ná að knýja fram sigur í
kvöld geta þeir tryggt sér sigurinn í
viðureigninni næstkomandi laugardag.
„Nú er að duga eða drepast,“ segir
þjálfari Portland, Mike Dunleavy.
„Okkur mistókst á sunnudaginn en það
gerist ekki aftur.“ Scottie Pippen gerir
sér líka grein fyrir vandamálinu: „Við
þurfum kraftaverk ef við lendum und-
ir í 2-0. Það er vonandi að þetta gangi
upp í kvöld.“
Karl Malone skoraði 34 stig þegar
Utah Jazz unnu Mavericks, 109-98, í
fyrrinótt. Utah hafði tögl og hagldir í
fyrstu þremur leikhlutunum og komust
tuttugu stigum yfir. Fyrstu sex mínút-
ur fjórða leikhlutans náðu Mavericks
að skora 15 stig á móti 6 sem bætti að-
eins stöðuna. Leikurinn endaði 90-87.
Þarmeð eru Utah komnir með 2-0 for-
rystu í einvíginu á milli liðanna og geta
tryggt sér sigur næstkomandi laugar-
dag.
Philadelphia 76ers jöfnuðu metin á
móti Indiana Pacers þegar þeir sigruðu
þá 116-98 í fyrrakvöld. Staðan í viður-
eign liðanna er 1-1. Liðin mætast aftur
á laugardag.
Charlotte Hornets unnu Miami
Heat 102-76. Charlotte er því yfir 2-0
en liðin mætast aftur á morgun. San
Antonio lögðu Minnesota 86-69 og eru
einnig komnir i 2-0. Þriðji ieikur lið-
anna er á laugardag. ■
KANN AÐ PRJÓNA
ítalinn Valentino Rossi fagnar sigri á 500cc
Grand Prix í Suður Afríku á sunnudaginn.
Þetta er annar sigur Rossi I röð.
Á FULLRI FERÐ
Landsliðið er á fullri ferð og til alls líklegt.
Lentu undir en sneru leiknum við
íslendingar unnu Möltubúa 4-1 í undankeppni HM 2002 á Ta’qali í gær. Malta skoraði fyrsta mark leiksins.
Island er komið í íjórða sæti riðilsins og Malta er á botninum.
landsleikur Þó að íslendingum hafi
gengið vel í síðustu leikjum við Möltu
og Möltu hafi gengið mjög illa í leikj-
um sínum í ár þýddi það þó ekki að
leikurinn í gær væri gefinn. Allt get-
ur gerst í knattspyrnu eins og sannað-
ist þegar Möltubúar gerðu jafntefli
við Tékka á vellinum á Ta’qali í fyrra-
haust.
En allt fór á besta veg. Þó að
Möltubúar hafi skorað fyrsta mark
leiksins, strax á 14. mínútu, í gær
gáfust Islendingar ekki upp. Það er
erfitt að lenda undir strax í byrjun
leiks en þrátt fyrir það tóku þeir leik-
inn í sínar hendur.
Á 42. mínútu jafnaði Tryggvi Guð-
mundsson eftir skemmtilegt spil. Þá
léttist yfir liðinu og strax þremur
mínútum seinna skallaði Helgi Sig-
urðsson eftir fyrirgjöf frá Eiði
Guðjohnsen á vinstri kanti.
Seinni hálfleikur byrjaði rólega og
lítið gerðist. Atli Eðvaldsson stokkaði
liðið aðeins upp og svo á 81. mínútu
kom reiðarslagið fyrir Möltubúa. Eið-
ur Smári fékk boltann til sín í vinstra
hornið, vann sig framhjá varnar-
manni og negldi boltanum beint í net-
ið. Stuttu seinna skoraði Þórður Guð-
jónsson fjórða mark íslendinga og
jafnframt síðasta mark leiksins.
Þessi leikur var í undankeppni HM
2002 og úrslitin þýða að ísland er í
fjórða sæti í riðlinum með 6 stig eftir
fimnt leiki og eru í miðjum riðlinum.
Malta er á botni riðilsins með eitt stig.
Næsti leikur landsliðsins er á móti
Möltu og fer fram á Laugardalsvelli 2.
júní. Strax fjórum dögum seinna tek-
ur landsliðið á móti Búlgaríu. Leikur-
inn síðan í gær verður sýndur kl.
14.55 á sunnudaginn á Sýn. ■
TfUNDI LEIKURINN
Leikurinn í gær var
tíundi leikur landslíðsins
undir stjórn Atla Eðvaldssonar.