Fréttablaðið - 26.04.2001, Qupperneq 18
FRÉTTABLAÐIÐ
26. apríl 2001 FIIVIIVITUPACUR
HVERJU MÆLIR ÞÚ MEÐ?
Bergþóra Valsdóttir
Framkvæmdastjóri SAMFOK
Nemendur í 10. bekk grunnskólans eru að
' Ijúka síðasta samræmda prófinu I dag. Ég
mæli með að foreldrar þeirra verji deginum
og kvöldinu með börnum sinum eða hvetji
þau til að taka þátt í skipulögðum ferðum
sem farnar eru í flestum skólum í Reykjavík.
Mikilvægt er að hafa í huga að 16 ára ung-
lingar eru ekki fullorðið fólk því þurfa þeir á
nærveru og stuðningi foreldra sinna að
halda.
Rannsóknarstofa í
kvennafræðum:
Karlmanna-
ritið Njálu
kvennafræði Ármann Jakobsson bók-
menntafræðingur ætlar að flytja nú í
hádeginu erindi þar sem hann veltir
því fyrir sér hvort Njála sé fyrst og
fremst „karlmannarit".
Á síðasta ári birtist eftir Ármann
grein í Skírni um Njálu þar sem hann
skoðaði bókina út frá hugmyndum
um kynferði. Hann hélt því meðal
annars fram að hugmyndir sem þar
birtust um kynferði væru alls ekki
íhaldssamar né heldur væri þar á
ferðinni kvenhatur. Þvert á móti
megi greina í Njálu róttæka afbygg-
ingu á ýmsum hugmyndum um kyn-
ferði.
í erindinu, sem flutt verður kl. 12
í stofu 101 í Odda, mun Ármann fjal-
la um Skírnisgrein sína, viðtökur
hennar og um það sem hann lét ósagt
í greininni.
Sérstaklega ætlar hann að koma
inn á þann hluta greinarinnar sem
mest viðbrögð hefur fengið, þ.e. vin-
áttu Gunnars og Njáls og hvernig
beri að túlka viðbrögð annarra í sög-
unni við henni. ■
Ú
Málþing Siðfræðistofn-
unar Háskóla Islands: -
Litningagallar
á fósturstigi
málþing Klukkan fjögur nú síðdegis
hefst málþing Siðfræðistofnunar Há-
skóla íslands um nýjar aóferðir við
greiningu litningagalla á fósturstigi.
Um alllangt skeið hefur konum,
35 ára og eldri, verið boðið uppá
legvatnsástungu á meðgöngu til að
greina litningagalla fósturs, einkum
Downs heilkenni. Legvatnsástungan
sem slík getur hins vegar valdið fóst-
urláti og því eru margir verðandi
foreldrar hikandi að taka slíka
áhættu. Á síðustu árum hefur verið
þróuð ný tækni, svo kölluð hnakka-
þykktarmæling og ætlar Hildur
Harðardóttir, læknir á Kvennadeild
Landspítalans, að skýra frá þessari
nýju aðferð í sínum fyrirlestri.
Sigurður Kristinsson, lektor við
Háskólann á Akureyri, mun hins
vegar velta fyrir sér siðferðilegum
spurningum sem greining erfðagalla
á fósturstigi vekja, og velta fyrir sér
hvort ávinningurinn sem af henni
hljótist sé meiri en sú áhætta sem
greiningunni fylgir.
Að lokinni framsögu verða
umræður sem Vilhjálmur Árnason
heimspekingur við Háskóla íslands
stýrir.
Málþingið verður haldið í stofu
101 í Lögbergi og er öllum opið. ■
FRÁ ÆFINGU SINFÓNIUHLJÓMSVEITARINNAR
Tsuyoshi Tsutsumi sellóleikari og Adele Anthony fiðluleikari ásamt stjórnanda
hljómsveitarinnar, Rolf Gupta.
Rauðir tónleikar Sinfóníunnar í kvöld:
Rómatíski tíðar-
andinn beislaður
tónleikar Von er á góðum gestum á
rauðu áskriftartónleikana í kvöld:
Sellóleikaranum Tsuyoshi Tsutsumi
og fiðluleikaranum Adele Anthony.
Tsutsumi er einn þekktasti sellóleik-
ari heims og stjarna Adele Anthony
fer óðum rísandi í tónlistarheimin-
um.
Hún bar sigur úr býtum í alþjó-
legu Carl Nielsen fiðlusamkeppninni
árið 1996 og sömu sögu er að segja af
fleiri keppnum þar sem hún hefur
verið þátttakandi. Tsutsumi vann
sögufrægan sigur í upphafi ferils
síns í Casals-keppninni í Budapest
1963 og líktu fjölmiðlar því við annál-
aðan sigur Davids Oistrakhs í Brus-
sel 1930.
Öll efnisskrá tónleikanna kemur
úr smiðju Jóhannesar Brahms: Til-
brigði við stef eftir Haydn, Konsert
fyrir fiðlu, selló og hljómsveit og 1.
sinfónían.
Hljómsveitarstjóri er Rolf Gupta
en hann hleypur í skarðið fyrir Rico
Saccani sem ekki á heimangengt sak-
ir veikinda. Gupta hefur unnið með
flestum stærri hljómsveitum á Norð-
urlöndunum, og einnig okkar ágæta
Caput-hóp. ■
FIMMTUDAGURINN
26. APRIL
FUNDIR________________________________
10.00 mun Bragi Líndal Ólafsson flytja
erindið Prótín í mjólk í fundarsal
RALA á Keldnaholti 3. hæð.
12.00 flytur Ármann Jakobsson bók-
menntafræðingur er-
indið Karlmannaritið
Njála í Rabbi Rann-
sóknastofu í
kvennafræðum.
Rabb Rannsókna-
stofu í kvennafræð-
um er haldið i stofu
101 i Odda. Allir vel-
komnir.
12.30 verður haldinn fræðslufundur á
bókasafni Keldna en þar flytur
Sigriður Björnsdóttir, dýralæknir
á Hólum, erindi er hún nefnir:
Spatt í íslenskum hrossum.
14.00 Frjáls Ijóðalestur verður í Gjá-
bakka, félagsstarfi Kópavogs, í
dag. Allir sem vilja geta tekið þátt
og er nóg að hringja í Gjábakka
til að vera með og er þetta góð
æfing fyrir fólk að koma fram.
Við upphaf dagskrárinnar mun
Sigrún Egilsdóttir, sellónemandi í
Nýja tónlistarskólanum, koma
fram.
16.00 Siðfræðistofnun stendur fyrir
málþingi um nýjar aðferðir við
greiningu litningagalla á fóstur-
stigi, í dag. Á málþinginu heldur
Hildur Harðardóttir, læknir á
Kvennadeild Landspítalans,
erindi um nýjar aðferðir í fóstur-
greiningu og Sigurður Kristins-
son, lektor við Háskólann
á Akureyri, heldur erindi sem
hann nefnir Skimun og
skaðleysi.
16.15 Margrét Oddsdóttir, dósent í
skurðlækningum, flytur erindi í
málstofu læknadeildar Háskóla
fslands. Erindið nefnist: Aðgerðir
við vélinda bakflæði á Landspítal-
anum 1994-2000. Málstofan fer
fram i sal Krabbameinsfélags ís-
lands efstu hæð.
16.15 heldur Amos Carmeli frá Wies-
enthal stofnuninni í ísrael kynn-
ingarfyrirlestur í stofu M 301 í
Kennaraháskóla íslands um alþjó-
legt mentorverkefni sem er upp-
runnið í ísrael en hefur breiðst út
til margra landa. Mentorverkefnið
er samstarfsverkefni háskóla og
grunnskóla og felst í þvi að há-
skólanemar taka að sér mentor
(eða leiðbeiningarstarf) með
grunnskólabörnum á aldrinum 6-
12 ára.
20.00 Listasafn Rekjavíkur og Listahá-
skóli íslands standa sameigin-
r'
Operu-
ogVínar-
tónleikar
söngsveit Hafnarfjarðar er nýstofn-
aður kór, tæplega fimmtíu manna
hópur karla og kvenna sem ætlar að
halda veglega óperu- og Vínartón-
leika í kvöld og annað kvöld.
Stjórnandi kórsins og stofnandi er
Elín Ósk Óskarsdóttir óperusöng-
kona. „Þetta hefur verið draumur
minn mjög lengi að stofna svona
kór,“ segir hún. „Þetta er barnið mitt
og ég er mjög spennt að sjá það fæð-
ast.“
Söngsveitin var stofnuð í septem-
ber síðastliðnum og þetta eru því
fyrstu tónleikar hennar. Stefna kórs-
ins er að syngja eingöngu óperu- og
óperettutónlist en láta til að mynda
íslensku sönglögin alveg eiga sig.
„Þetta er kröftugur hópur sem
gefur sig alveg mér á vald,“ segir
Elín Ósk. „Þetta eru bæði lærðir
söngvarar og áhugafólk með reynslu
af kórstarfi, en það er inntökupróf til
að komast inn í hópinn."
Söngsveitin er markvisst byggð
upp sem óperukór og verður því ann-
ar óperukórinn sem starfar hér á
landi, og óhætt er að segja að stefnan
sé sett hátt. Söngfélagar kórsins
mæta til tónleikanna klæddir í við-
hafnarföt, konur í galakjólum og
karlar í kjól og hvítt. Veitt verður
kampavín í hléinu.
Sex einsöngvarar koma fram á
tónleikunum og píanóleikari er hinn
snjalli Peter Maté. „Hann er æðisleg-
ur,“ segir Elín Ósk. „Hann spilar eins
og heil hljómsveit.“Einsöngvararnir
eru þau Þorgeir J. Andrésson, Kjart-
an Ölafsson, Steinarr Magnússon,
Hanna Björk Guðjónsdóttir, Greta
Jónsdóttir og svo stjórnandinn Elín
Ósk Óskarsdóttir. Áuk þess leika
tveir slagverksleikarar með
söngsveitinni, þeir Smári Eiríksson
og Heimir Þór Kjartansson.
„Kjartan er maðurinn minn og
lega að dagskrá í tengslum uið
málverkasýningu Odd Nerdrum
að Kjarvalsstöðum.
LEIKLIST_______________________________
20.00 Leikritið Fífl í hófi er sýnt í ís-
lensku óperunni eftir Francis
Veber. Vinahópur Pierre heldur
kvöldverðarboð reglulega, þar
sem hver meðlimur hópsins býð-
ur með sér aðila sem hann telur
vera sem „fíflalegastan".
20.00 Þjóðleikhúsið. Smíðaverkstæð-
ið. Með fulla vasa af grjóti eftir
Marie Jones. Gamanleikrit um tvo
irska náunga sem taka að sér að
leika í alþjóðlegri stórmynd.
20.00 Borgarleikhúsið. Öndvegiskonur
í eldhúsi Ernu sitja Erna og Gréta
og Mæja. Þær reyna að láta sér
líða vel, þó líf þeirra virðist fremur
gleðisnautt, fjargviðrast yfir örlög-
um sínum og óhamingjunni sem
fylgir því að eiga börn er virða
ekki vilja mæðranna.
20.00 Þjóðleikhúsið. Laufin í Toskana
eftir Lars Norén. Á hverju sumri
kemur stórfjölskyldan saman til
að treysta böndin, þótt það kosti
bæði átök og árekstra.
20.00 Leikfélag (slands. Sýnt í Loftkast-
alanum. Sniglaveislan. Geir
Thordarsen stórkaupmaður hefur
þann árlega sið að halda stór-
veislu fyrir sjálfan sig og sparar
hvergi veisluföng. Að þessu sinni
ber óvæntan gest að garði.
TÓNLIST_______________________________
21.00 leikur Kvintett Carls Möllers á
jazzkvöldi Múlans i kvöld i Húsi
málarans. Carl flytur frumsamið
efni ásamt þekktum jazzperlum
með Birki Frey trompetleikara,
Ólafi Jónssyni tenór, Birgi Braga-
syni bassa og Erik Qvik á tromm-
ur.
20.30 Vortónleikar Gospelsystra í
Langholtskirkju, stjórnandi Mar-
grét Pálmadóttir. Tónleikarnir
verða endurteknir laugardaginn
28. apríl 14.00 og
17.00. Boðið verður
upp á blöndu af
gospellögum. Ein-
söngvari með kórn-
um er Páll Rósin-
kranz. Miðinn kostar
1.600 kr.
20.30 Karlakórinn Þrestir lýkur bráð-
lega 89. starfsári sínu og heldur
tónleika i kvöld í Viðistaðakirkju
og einnig á sama stað 28. april kl.
16. Stjórnandi er Jón Kristinn
Cortez. Á söngskránni kennir ým-
issa grasa.
MYNPLIST___________________________
Karin Sander sýnir um þessar mundir í
galleríi i8, Klapparstig 35, þrívidda-
myndir sem eru eftirmyndir unnar af
fólki með nýjustu tölvutækni og allar í
hlutfallinu einn á móti tíu af réttri lík-
amsstærð viðkomandi en fyrirmyndir
eru vinir og vandamenn listamannsins.
Sýningin stendur til 29. apríl.
FRÁ OPNUN SÝNINGAR ODDS NERDRUMS
Hvort þeir Hrafn Gunnlaugsson eru að spjalla um stöðu listarinnar skal ósagt látið,
en Nerdrum ræðir þau mál í samtali sínu við Edvard Munch.
Dagskrá um norska listamanninn Odd Nerdrum:
Listamaðurinn ræðir
við Edvard Munch
listasafn Reykjavíkur og Listaháskóli
íslands standa sameiginlega að dag-
skrá í tengslum við málverkasýningu
Odd Nerdrum að Kjarvalsstöðum í
kvöld klukkan átta.
Dagskráin hefst með leikþættin-
um Listveldið eftir Odd Nerdrum
sem er samtal Nerdrums við sam-
landa sinn Edvard Munch þar sem
þeir takast á um stöðu listarinnar al-
mennt og eðli og stöðu eigin listar.
Leikþátturinn var frumfluttur við
opnun sýningarinnar laugardaginn 7.
apríl en er nú fluttur öðru sinni. Leik-
arar eru Arnar Jónsson og Sigurður
Karlsson en leikstjóri er Hávar Sig-
urjónsson.
Að loknum leikþættinum verður
gert stutt hlé og gefst þá gestum
kostur á að ganga um sýninguna en
að því loknu hefst fyrirlestur Jan
Áke Petterson um list Odd Nerdrum.
Jan Áke er forstöðumaður Haugar-
Vestfold listasafnsins í Tönsberg,
Noregi en hann er vel heima í list-
sköpun Odd Nerdrum og hefur meðal
annars skrifað bækur um listamann-
inn.
Aðgangseyrir er kr. 400, en frítt
er fyrir nemendur Listaháskólans. ■