Fréttablaðið - 30.04.2001, Blaðsíða 4

Fréttablaðið - 30.04.2001, Blaðsíða 4
FRÉTTABLAÐIÐ 50. apríl 2001 MÁNUDACUR SVONA ERUM VIÐ FLEIRI KARLAR A VINNUMARKAÐI Þótt konum á vinnumarkaði hafi fjölgað mikið undanfarna áratugi eru þær enn heldur færri en karlarnir. Heildaratvinnu- ■ þátttaka er er tæplega 84%. Atvinnuleysi í apríl er rúmlega 2%, og heldur meira hjá konum en körlum. 1,7 Atvinnuleysi Atvinnuþátttaka Karlar Konur Allir HEIMILD: HAGSTOfA ISLANDS FALLIN HETJA Kínverski orrustuflugmaðurinn dó hetju- dauða að sögn dagblaða í Peking. Bandaríkjamenn: Fá að skoða eftir- litsflugvélina peking. ap Kínversk stjómvöld hafa ákveðið að leyfa bandarískum eftir- litsmönnum að skoða eftirlitsvél Bandaríkjanna sem nauðlenti á her- flugvelli í Kína, eftir árekstur við kínverska orrustuflugvél. Kínverska ríkisfréttastofan sagði frá þessu í gær. Flugvélin nauðlenti á Hainan-eyju við Kína þann 1. apríl sl. og hefur verið þar siðan. Ákvörðunin var tekin í ljósi þess að Kínverjar hafa lokið sinni eigin rannsókn á flugvélinni. Samkvæmt fréttastofunni eru Bandaríkjamenn að íhuga hvort þeir muni greiða Kín- verjum bætur vegna árekstursins. Kínverjar höfðu 24 manna áhöfn bandarísku eftirlitsflugvélarinnar í haldi í ellefu daga eftir nauðlending- una. Ekki kom fram hvenær skoðun- in mun eiga sér stað. ■ I LÖCRECLUFRÉTTIR I Ovenjurólegt var í Borgarfirði um helgina og að sögn lögreglunnar hringdi síminn ekki frá því ki. 20 á laugardagskvöldinu þangað til um ellefuleytið á sunnudagsmorgninum. Sagðist viðmælandi Fréttablaðsins ekki muna eftir öðru eins og vonaði að þetta væri ekki lognið á undan storminum. Upp komst þó að brotist hefði verið inn í átta sumarbústaði í Svarfhólsskógi í Svíndal í síðustu viku og þaðan stolið m.a. sjónvarps- tæki og videói. Ekki er vitað hver eða hverjir voru á ferðinni en að sögn lögreglunnar leikur grunur á að að tilgangurinn hafi helst verið áfengisleit eða leit að einhverjum öðrum vímugjöfum. Skemmdir á eignum voru ekki miklar. ■ Sparisjóðabankinn og Kaupþing Athuga hagkvæmni sameiningar bankamál Stjórnendur sparisjóða komu saman í lok mars til að ræða framtíð Sambands sparisjóða, Spari- sjóðabankans og samstarf þeirra á milli. Á fundinum var borin fram til- laga þar sem óskað var eftir því að fram færi athugun á hagkvæmni samruna Kaupþings og Sparisjóða- bankans. „Við eigum afgerandi hlut í Kaup- þingi og það er ekkert óeðlilegt að við viljum skoða hvaða kosti þessi mögu- leiki fæli í sér,“ segir Eiríkur Finns- son, sparisjóðsstjóri á Vestfjörðum. „Við erum að gera athugun á því hvort þessi skref skili sér í auknum hagnaði fyrir okkur og styrki sam- starfiö." Sveinn Agnarson, sparisjóðsstjóri á Norðfirði, segir þetta einn af mörg- um valkostum sem menn hafa viljað skoða. Hann bendir á að Kaupþing er komið á markað og orðið allt annars eðlis en samstarf sparisjóðanna um Sparisjóðabankann. Þetta skref gæti styrkt enn frekar rekstur Sparisjóða- bankans í samstarfi sparisjóða lands- ins. ■ SAMEINING? KPMG er falið að kanna hagkvæmni sam- einingar Sparisjóðabankans og Kaupþings Afkomendur Madisons:: Ættarmót forsetaþræla orange iapi Afkomendur þræla fjórða forseta Bandaríkjanna, James Madi- sons, komu saman um helgina á bú- garði hans, Montpelier í Virginíu-ríki. Einn afkomendanna, Rebecca Colem- an, var komin á fimmtugsaldur þegar hún komst að því að skýli á landar- eigninni hefði verið byggt af langafa hennar, þræli forsetans. „Við töluðum ekkert um þrælahald. Margir skamm- ast sín fyrir fortíðina og þær sorgir sem henni fylgdu." Um 100 þrælar voru í eigu Madisons, sem var forseti í upphafi 19.aldarinnar. Fyrir fundinn um helgina tókst að hafa upp á afkom- endum fimm þeirra. ■ Fj ölmenningarlegur leikskóli í Breiðholti Suðurborg er sá leikskóli borgarinnar sem hefur börn af flestum þjóðernum eða 11 alls. Fjölbreyttur bakgrunnur barnanna er nýttur til að auðga starfið í leikskólanum meðal annars með svokölluðum þjóðavikum. menntamál í Leikskólanum Suður- borg við Suðurhóla eru börn af 11 þjóðernum. Suðurborg er fimm deil- da leikskóli með 102 leikskólarým- um en þar eru 120 börn í mislangri vistun. Á leikskólanum eru 15 börn af erlendum uppruna. „Það setur óneitanlega svip á starfið," segir El- ínborg Þorláksdóttir leikskólastjóri. __^.... Frá áramótum _ , , ,. hefur verið unnið í Frá áramotum lejkskólanum með h.?fu[vfr!ð|Jnn' þemað „Þjóðirnar ið i leikskolan- okkar‘< Haldnar um með pem- eru svokallaðar að „Þjóðirnar þjóðavikur þar sem okkar". Unnið unnið er að kynn- er að kynningu jngU þjóðar eina hverrar þjóðar vjku f Senn. Þá er eina viku í þjóðfáninn kynnt- senn. Ur, borðuð er ein máltíð frá viðkom- andi landi í vikunni, fluttur er fræðslupistil og sýndar myndir frá landinu. Börnin hafa ein- nig komið með hluti að heiman sem á einhvern hátt eru dæmigerðir fyr- ir þióð þeirra. Á föstudögum koma allar deildir leikskólans saman í á sal og þá kynn- ir barn eða börn viðkomandi lands sig og klappað er fyrir þeim. Á laug- ardaginn var opið hús í Suðurborg og var þá afrakstur vetrarstarfsins sýnt bæði foreldrum og öðrum gest- um. Meðal þess sem sýnt var mátti finna ýmislegt sem tengist verkefn- inu „Þjóðirnar okkar“ en einnig teikningar og aðra vinnu leikskóla- barnanna. í leikskólanum starfa einnig málörvunarhópar til að efla ís- lenskukunnáttu erlendu barnanna. Málörvunin felst meðal annars i að lesa fyrir börnin og örva þau til að segja frá og einnig er spilað lottó sem auðgar orðaforða og skerpir framburð. ÞJÓÐIRNAR OKKAR Unnió hefur verið með þjóðfána þeirra landa sem leikskólabörnin koina frá og einnig hafa staðsetningar verið skoðaðar á kortum og hnöttum. SUNGIÐ SAMAN Fastur liður í leikskólastarfinu er söngurinn sem sameinaríólk á öllum aldri og þjóðernum. í Leikskólanum Suðurborg ríkir fullur hugur á að móta markvissa fjölmenningariega stefnu. „Verða ekki allir skólar að vera það?“ spyi' leikskólastjórinn á móti þegar hún er innt eftir hvcrt leikskólinn sé fjöl- menningarlegur. Verkefnið „Þjóðirnar okkar" er greinilega aðeins byrjunin á Suður- borg. „Okkur finnst við vera ríkari að hafa þessi börn hér í leikskólan- um,“ segir Elín'oorg Þorláksdóttir að Jokum. „Það auðgar menningu leik- skólans og við erum mjög ánægð með það.“ steinunn@frettabladid.is Skýrari línur eftir fundinn Ný stjórn kosin á aðalfundi Geðhjálpar. geðhjálp Aðalfundur Geðhjálpar var Opíð í Austurveri frá 8:00 á morgnana tíl 2:00 eftir míðnætti Lyf&heilsa fjjSní&ft, mwmmi RnBa haldinn á laugardag og komu hátt á þriðja hundraö ntanns á fundinn. Samþykktar voru breytingar á iögum félagsins og síðan kosin stjórn sam- kvæmt nýjum lögum. í nýjum lögum er ákvæði um að launaðir starfsmenn Geðhjálpar eru ekki kjörgengir í félaginu. Á fundin- um var talsvert tekist á um þetta at- riði en nýju lögin engu að síður sam- þykkt með rúmum 213 hluta atkvæða. Að sögn Sveins Rúnars Hauksson- ar stjórnarmanns er Geðhjáip fyrst og fremst sjúklingafélag þótt það sé opið bæði aðstandendum og sér- hverjum sem lætur sig geðheilbrigð- ismál varða. Þéssi afstaða skýrðist mjög á fundinum bæði með laga- STJÓRN GEÐHJÁLPAR Sigursteinn Másson formaður Sveinn Rúnar Hauksson Guðrún Ögmundsdóttir Elísabet K. Jökulsdóttir Sigríður Kristinsdóttir Varastjórn Áslaug Ragnars, Ingimundur K. Guðmundsson Ólafur Snorrason breytingunni og í stjórnarkjörinu. Staða félagsins hefur því skýrst að mati Sveins Rúnars. „Menn vita hvað Geðhjálp er og hvað hún vill vera.“ Nýkjörin stjórn kemur saman á mið- vikudag. ■ NÝKJÖRINN FORMAÐUR Sigursteinn Mássons var kjörinn formaður Geðhjálpar með 200 atkvæðum á móti 65 sem Kristófer Þorleifsson fékk.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.