Fréttablaðið - 30.04.2001, Blaðsíða 15

Fréttablaðið - 30.04.2001, Blaðsíða 15
MÁNUPAGUR 30. apríl 2001 FRÉTTABLAÐIÐ 15 BRINGAN FRAM Johnson vakti athygli fyrir sérkennilegan hlaupastíl og gullkeðjuna sem hann ber um hálsinn. Heimsmethafi leggur upp laupana: Johnson hættir keppni friAlsar íþróttir Spretthlauparinn frægi, Michael Johnson hefur til- kynnt það að hann ætli að hætta hlaupunum nú í ár. Johnson, sem ber jafnan gullkeðju um hálsinn þegar hann hleypur, hefur fimm sinnum unnið til gullverðlauna á Ólympíuleikum og á heimsmet í bæði 200 og 400 metra spretthlaupi. Hann ætlar að keppa í báðum vega- lengdum á mótum í Evrópu áður en hann hættir keppni endanlega í september á Goodwill-leikunum í Brisbane. Á laugardaginn keppti hann í síðasta skipti í Bandaríkjun- um þegar bandaríska sveitin vann 4x400 metra boðhlaup á frjáls- íþróttamóti í Philadelphia. Johnson vakti mikla athygli þeg- ar hann setti nýtt heimsmet með því að hlaupa 200 metra á 19.32 sekúnd- um á Ólympíuleikunum í Atlanta 1996. Þá varð hann einnig fyrsti maðurinn sem hefur unnið gull í bæði 200 og 400 metra hlaupi á sömu Ólympíuleikum. Þremur árum seinna setti hann nýtt heims- met í 400 metra hlaupi, 43.18 sek- úndur á heimsmeistaramóti í Seville á Spáni. Johnson hefur unn- ið níu sinnum til gullverðlauna á heimsmeistaramóti. Hann bætti tveimur Ólympíugullum í safnið í Sydney í fyrra þegar hann vann 400 metra hlaupið og 4x400 metra boð- hlaup karla. ■ RUDDAR Bandaríkjamaðurinn Eric Weinrich slæst við Úkraínumanninn Artem Osrousko í heimsmeistarakeppninni í ísknattleik. Keppnin var sett í Þýskalandi á laugardag- inn. Bandaríkin unnu leikinn, 6-3. Stuðningsmenn Stoke: Bensínsprengjum kastað á lögreglu knatt5pyrna Það voru mikil læti fyrir leik Oldham Athletic og Stoke City í 2. deild ensku knattspyrnunnar á laug- ardaginn. Stuðningsmönnum liðanna lenti saman fyrir leikinn á heimavelli Oldham og var tveimur bensín- sprengjum kastað á lögreglumenn sem reyndu að koma á friði. Það hafði þó ekki mikil áhrif á Guðjón Þórðarson og hans menn. Stoke vann leikinn með tveimur mörkum gegn einu. Það voru íslend- ingarnir Brynjar Björn Gunnarsson og Ríkharður Daðason sem skoruðu mörkin. Brynjar Björn skoraði fyrra mark Stoke úr vítaspyrnu og Ríkharð- ur tryggði Stoke sigurinn sex mínút- um fyrir leikslok. Stoke er í fimmta sæti annarar deildar með 74 stig og lítur út fyrir að liðið muni keppa um að komast upp í fyrstu deild. í ensku úrvalsdeildinni tapaði Chelsea á heimavelli Leeds, Elland Road, 2-0. Eiður Smári Guðjohnsen kom inn á sem varamaður á lokamín- útu leiksins. Bæði mörkin komu undir lok leiksins en það voru Robbie Keane og Mark Viduka sem skoruðu. Chel- sea er í sjötta sæti deildarinnar með 54 stig á meðan Leeds er komið upp í þriðja sæti með 62 stig. Ipswich er nú í fjórða sæti, einnig með 62 stig. Þar sem Leeds hafði borið sigur- orð af Chelsea var það mikilvægt fyrir Liverpool að sigra Coventry seinna um daginn. Coventry þurfti einnig á stigum að halda í fallbar- áttunni. Gary McAllister sendi bolt- ann úr hornspyrnu á Hyypia sem kom Liverpool yfir á 83. mínútu. Þremur mínútum seinna var McAll- ister aftur að verki þegar hann skor- aði mark úr aukaspyrnu. Þetta var fjórða mark McAllister, sem er 36 ára, í fjórum leikjum. Liverpool er í fimmta sæti með 59 stig. Arsenal vann Derby með tveimur mörkum gegn engu. Kanu og Pires skoruðu fyrir Arsenal en Eranio fyr- ir Derby. Þórður Guðjónsson kom inn á fyrir Derby á 86. mínútu. Arsenal er í öðru sæti með 66 stig. Arnar Gunnlaugsson kom inn á völlinn sem varamaður á 61. mínútu þegar lið hans Leicester tapaði fyrir Newcastle, 1-0. Leicester er í 13. sæti með 45 stig. David Beckham og Phil Neville skoruðu fyrir Manchester Utd. þeg- ar liðið lagði Middlesborough. Manchester Utd. er enn á toppi úr- valsdeildarinnar með 80 stig þegar fjórir leikir eru eftir. ■ FÚSA LIGGUR Á Harry Kewell, leikmaður Leeds, smeygir sér framhjá Celestine Babayaro, leikmanni Chelsea, á laugardaginn. Leeds vann leikinn með tveimur mörkum gegn engu. AÐ HÆTTI MILLER Reggie Miller jafnaði þremur mínútum fyrir leikslok í leik Indiana og Philadelphia á laug- ardaginn. Philadelphia vann leikinn, 92-87 og eryfir, 2-1, í viðureign liðanna. NBA um helgina: Haldið í horfinu nba Úrslitakeppnin í bandarísku NBA-deildinni er spennandi eftir leiki helgarinnar. Þó þrjú lið hefðu getað dottið út úr keppninni á laugardaginn gáfust þau ekki upp og unnu leikina. Á föstudag slógu Charlotte Hornets Miami Heat út úr keppninni með sigri 94-74, en þá var liðið búið að vinna þá þrjá leiki sent þarf til sigurs. Á laugardaginn voru fjórir leikir á dagskrá. Staðan var jöfn í viðureign Philadelphia 76ers og Indiana Pacers, 1-1, þegar þau mættust í Philadelphia. Heimamennirnir í 76ers unnu með 92 stigum gegn 87. Það mátti _þó ekki miklu muna, Reggie Miller jafnaði leikinn með þriggja stiga körfu þrem- ur mínútum fyrir leikslok, 82-82, en það dugði ekki til. Allen Iversson var stigahæstur í liði Philadelphia með 32 stig. Liðin mætast aftur á miðviku- dag. Dallasbúarnir í Mavericks voru undir, 2-0, þegar þeir mættu Utah Jazz í Dallas. Þeir rétt mörðu sigur, 94-91. Staðan er því 2-1 fyrir Utah þegar liðin mætast aftur í Dallas ann- að kvöld. Minneapolis Timberwolves voru einnig undir, 2-0, þegar liðið mætti San Antonio Spurs á laugardag. Timbervolves unnu leikinn, 93-84, og halda því áfram í undankeppn- inni. Fjórði leikur liðanna er í kvöld. Úrslitin urðu ekki ljós fyrr en í framlengingu í Orlando þar sem heimamennirnir í Magic unnu Milwaukee Bucks með 121 stigi gegn 116. Staðan í viðureign liðanna er því 2-1 fyrir Milwaukee. Tracy McGrady kom sterkur inn fyrir Magic-liðið, skoraði 42 stig, þar af 21 í fjórða leikhluta og framleng- ingu. McGrady var einmitt heiðrað- ur sem sá leikmaður sem hefur tek- ið mestum framförum í NBA-deild- inni fyrr um daginn. Fyrir leikinn hafði Orlando tapað ellefu síðustu leikjum á móti Milwaukee. Á tíma- bili virtist sem sagan ætlaði að end- urtaka sig þegar Orlando glutraði 14 stiga forskoti í lok venjulegs leiktíma. Þeir taka sig væntanlega saman í andlitinu þegar þeir mæta Milwaukee aftur í Orlando annað kvöld. ■

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.