Fréttablaðið - 30.04.2001, Qupperneq 19
4
MÁNUDAGUR 30. apríl 2001
FRÉTTABLAÐIÐ
19
Vortónleikar Stefnis
Syngja lög úr
ýmsum áttum
tónleikar Karlakórinn Stefnir er nú
að ljúka annasömu vetrarstarfi á
hefðbundinn hátt með tónleikahaldi
sem verður í Fella- og Hólakirkju
þriðjudaginn 1. maí kl. 17, Samkomu-
húsinu Hvammstanga föstudaginn 4.
maí kl. 20.30 og í Miðgarði, Varma-
hlíð á Sæluviku með Karlakórnum
Heimi og fleirum laugardaginn 5.
maí. Stjórnandi Karlakórsins Stefnis
er Atli Guðlaugsson. Undirleikari
kórsins er Sigurður Marteinsson, pí-
anóleikari, en að þessu sinni verður
auk hans Yuri Federov harmonikku-
leikari með í nokkrum lögum.
Jean Posocco sýnír í Sverrissal, Hafn-
arborg. Yfirskrift sýníngarinnar er
Stemming eða „Ambiance". Á sýning-
unni eru vatnslitamyndir, flestar unnar
á þessu ári. Posocco stundaði nám í
Myndlista- og handíðaskóla íslands
1985-1989 og er þetta 5. einkasýning
hans. Sýningin er opin alla daga nema
þriðjudaga kl. 11-17 og henni lýkur 14.
maí.
i Ásmundarsafni við Sigtún í Reykjavík
stendur yfir samsýning á verkum Páls
Guðmundssonar og Asmundar Jóns-
sonar. Safnið er opið 13-16.
Sesselja Tómasdóttir sýnir „portrait" af
dóttur sinni og vinum hennar, sem öll
eru á fjórða ári í Listhúsi Ófeigs,
Skólavörðustíg. Hún hefur fylgst með
þessum börnum frá fæðingu og reynir
að láta persónutöfra þeirra njóta sín í
myndunum.
í Listasafninu á Akureyri stendur yfir
sýning á Ijósmyndum eftir hinn þekkta
franska Ijósmyndara Henri Cartier-
Bresson, en líklega hefur enginn átt
Víkingarnir í Hafnarfirði:
Hversdagslíf
og vígaferli
sýning Hvernig var lífið í víkinga-
þorpinu Jórvík á Englandi árið 948?
Þeir sem leggja leið sína í Hafnar-
fjörðinn gætu orðið nokkru nær um
það. Á bak við Fjörukrána hefur verið
sett upp ótrúlega nákvæm eftirlíking
af götu með mannlífi eins og talið er
að það gæti hafa verið á þessum tíma.
Hin sýningin er heldur óhugnan-
legri, en ekki síður athyglisverð. Þar
má sjá raunverulegar h'kamsleifar,
beinagrind og hauskúpur með greini-
legum áverkum eftir vígaferli.
Sýningarnar koma báðar frá hinu
þekkta víkingasafni í York á
Englandi (Jorvik Viking Center). ■
KARLAKÓRINN STEFNIR
Syngja rússnesk lög við svellandi harmonikuleik.
Efnisskrá er fjölbreytt og syng-
ur kórinn m.a. rússnesk lög við
svellandi harmonikuleik ásamt pí-
anóundirleik. Þá er á efnisskránni
að finna lög eftir innlend og erlend
tónskáld svo sem Atla Guðlaugsson,
Árna Thorsteinsson, Eirík Bóasson,
Björgvin Þ. Valdimarsson, Pál ís-
ólfsson, Andrew Lloyd Webber,
Herman Palm, Gavin Sutherland, auk
rússneskra þjóðlaga. Þrír félagar úr
röðum kórmanna, Ármann Ó. Sig-
urösson, Ásgeir Eiríksson og Birgir
Hólm Ólafsson, syngja einsöng og
tvísöng með kórnum í nokkrum lög-
um
Miðar verða seldir við innganginn
og kosta 1.500 kr. ■
meiri þátt í því að gera Ijósmyndun að
viðurkenndri listgrein. Opið 14-18.
Myndir 370 barna af mömmum í spari-
fötum eru á sýningu í Galleríi Sævars
Karls við Bankastræti í Reykjavík. Opið
á verslunartíma.
„Drasl 2000" nefnir rithöfundurinn
Sjón sýningu í
Menningarmið-
stöðínni Gerðubergi
í sýningarröðinni
„Þetta vil ég sjá".
Þar hefur Sjón valið
til sýningar verk eftir
Erró, Magnús Páls-
son, Magnús Kjart-
ansson, Hrein Frið-
finnsson, Friðrik
Þór Friðriksson og fleiri. Menningar-
miðstöðin er opin frá 9 að morgni til
21 að kvöldi.
í gallerí@hlemmur.ís stendur yfir sýn-
ing Erlu Haraldsdóttur og Bo Melín
„Here, there and everywhere". Á sýn-
ingunni leika þau Erla og Bo sér að því
að breyta Reykjavík í fjölþjóðlega borg
með aðstoð stafrænt breyttra Ijós-
mynda. Opið 14-18.
Á Kjarvalsstöðum stendur yfir sýning
norska listmálarans Odds Nerdrums,
sem baðst nýverið afsökunar á því að
hafa siglt undir fölsku flaggi með því
að kalla sig listamann. Sýningin er opin
10-17 en til kl. 19 miðvikudaga.
„Heimskautalöndin unaðslegu" er heiti
sýningar sem lýsir með myndrænum
hætti lífi, starfi og hugsjónum Vestur-ís-
lendingsins Vilhjálms Stefánssonar.
Sýningin er um leið kynning á umhverfi,
menningarheimum og málefnum norð-
urslóða, en hún er í Listasafni Reykja-
víkur - Hafnarhúsinu og er opin 10-17.
í Listasafni Kópavogs - Gerðarsafni
stendur yfír sýningin
Carnegie Art Award
2000, þar sem sýnd
eru verk eftir 21
norrænan myndlist-
armann, en þar á
meðal eru þeir
Hreinn Friðfinns-
son og Tumi Magn-
ússon. Opið 11-17.
„Á meðan eitthvað er að gerast hér, er
eitthvað annað að gerast þar" nefnist
sýning á vekum Bandaríkjamannsins
John Baldessari sem stendur yfir í
Listasafni Reykjavíkur - Hafnarhúsi.
Hann er eitt af stóru nöfnunum í sam-
tímalistasögunni og hefur verið nefnd-
ur Ijóðskáld hinnar öfugsnúnu fagur-
fræði og húmoristi hversdagsleikans.
Sýningin er opin 11-18 og fimmtudaga
til kl. 19.
Sænska listakonan Anna Hallin sýnir
málverk og teikningar í Gryfju Lista-
safns ASf og heitir sýning hennar
„Soft Plumbing". Olga Bergmann sýnir
I Ásmundarsal safn verka sem unnin
eru með blandaðri tækni.
Vortónleikar Lúðrasveitar
Hafnarfjarðar
Leika lög
úr sjónvarps-
þáttum
tónleikar Vortónleikar Lúðrasveitar
Hafnarfjarðar verða haldnir í Hafn-
arborg, Hafnarfirði, í kvöld kl. 20.30.
Á efnisskránni verður meðal annars
að finna lög úr sjónvarpsþáttum,
dægurlög og sólóstykki. Auk þess
verður dagskrá tónleikanna brotin
upp, þar sem nokkrir félagar úr
lúðrasveitinni spiia saman í smærri
hópum.
í lúðrasveitinni eru u.þ.b. 30
hljóðfæraleikarar á aldrinum 13-50
ára. Stjórnandi lúðrasveitarinnar er
Stefán Ómar Jakobsson. Aðgangs-
eyri verður stillt í hóf, en miðinn
kostar 500 krónur. ■
Sumarmálahátíð
Bergmáls:
Langveikum
og blindum
boðið til sum-
ardvala
liknarmal Líknar- og vinafélagið
Bergmál heldur sumarmálahátíð sína
á rnorgun kl. 16 í Hamrahlíð 17, 2.
hæð. Kammersveit Skagfirsku
söngsveitarinnar syngur.
Eins og undanfarin ár býður
Bergmál langveikum, blindum og
krabbameinssjúkum til einnar viku
dvalar að Sólheimum í Grímsnesi
þeim að kostnaðarlausu. Fyrri vikan
verður haldin 31. maí til 7. júní en sú
síðari 23.-30. ágúst. Skráning er hafin
í fyrri vikuna. Nánari upplýsingar
eru veittar hjá Bergmáli. ■
VÍGAFERLI VÍKINGA
Áþreifanlegar minjar um lífshætti vlkinga á tíundu öld.
GEISLADISKUR
Nýr brœðíngur
Jakob Frímann Magnússon
bræddi saman djass og rokk
fyrir 20 árum undir nafninu Jack
The Magnet en nú kallar hann sig
JFM og bræðir saman djass og
teknó. Þannig vill hann líklega sá
fræjum djassgeggjunar í hjarta
nýrrar kynslóðar og sætta hina
eldri við nýja strauma.
Yfirleitt er „grúvið“ í fyrir-
rúmi í tónlistinni. Það er ekki af
verra taginu en oft er laglínan
borin ofurliði. JFM leikur sér inn
á milli að því að bródera og sýna
að hann er í fremstu röð á hljóm-
borð og orgel. Hrynsveitin er
skipuð snillingum úr ýmsum
heimshornum og blásararnir Guy
Barker, Sigurður Flosason, Simon
Made In Revkiavik
Flytjandi: JFM, ásamt Steve White,
Tim Rennick, Bob Roberts, Jóhanni
Ásmundssyni og fleirum.
Tónlist og upptökustjórn: JFM, Steve
Sidelnyk og Kenny Campbell.
Taylor og Jóel Pálsson skreyta
tónlistina.
Hljóðfæraleikaraplata. Heiðar-
leg tilraun til að leiða saman
gamla strauma og nýja en
huga hefði mátt betur að lag-
línu og heildarsýn.
petur@frettabladid.is
GARÐABÆR
www.gardabaer.is
Grunnskólar Garðabæjar
Garðabær auglýsir laus
til umsóknar eftirtalin störf
yið
Flataskóla
• íþróttakennari 100% starf
• Smíðakennari 70-100% starl'
• Einnig vantar starfsmann í starf
skólaliða (hægt að semja um
starfshlutfall)
í Flataskóla eru nemendur 1.-6. bekkjar. Árlega
er varið miklu fjármagni til endurmenntunar og
umbóta á faglega sterku skólastarfi. Góð
starfsaðstaða og mikil samvinna.
Umsóknum skal skila til Sigrúnar Gísladóttur,
skólastjóra Flataskóla v/ Vífilsstaðaveg 210
Garðabæ sem jafnframt veitir upplýsingai
um störfin í síma 565 8560, 565 8484
og netfang: sigrun@gardabaer.is
Hofsstaðaskóli
• Bekkjarkennari, yngsta stig, 100% starl'
• Listgreinakennari 100% starf
• Einnig vantar starfsmann í
Tómstundaheimili skólans (lengd
viðvera) 75% starf
í Hofsstaðaskóla eru nemendur 1.-6. bekkjar.
Árlega er varið miklu fjármagni til
endurmenntunar og umbóta á faglega sterku
skólastarfi. Góð starfsaðstaða og mikil samvinna.
Umsóknum skal skila til Hilmars Ingólfssonar,
skólastjóra Hofsstaðaskóla v/ Skólabraut, 210
Garðabæ sem jafnframt veitir upplýsingar um
störfin í síma 565-7033, 565-6087
og netfang: hilmari@gardabaer.is
Umsóknarfrestur er til 11. maí 2001.
Einnig eru upplýsingar um störfin á vefsvæði
Garðabæjar www.gardabaer.is.
Laun em samkvæmt kjarasamningi Launanefndar
sveitarfélaga og Kennarasambands íslands.
J!
Grunnskólafulltrúi
Fræðslu- og menningarsvið