Fréttablaðið - 30.04.2001, Síða 22
22
FRÉTTABLAÐIÐ
30. apríl 2001 MÁNUPAGUR
HRADSOÐIÐ
BRYNDÍS HLÖÐVERSDÓTTIR
þingflokksformaður
Gott hljóð í fólki
HVAÐ stendur upp úr að loknum
flokkstjórnarfundi?
Mér finnst það s:anda upp úr hvað
það er gott hljóð í fólk. Það kom
fram mikil ánægja með störf for-
manns flokksins á þessum fundi og
fundarmenn fögnuðu þróttmiklu
starfi flokksins á síðustu misserum.
Þetta er fyrsti fundurinn þar sem
bryddar alls ekki á eftirsjá af gömlu
flokkunum.
HVER eru þessi verkefni helst?
Það er enn verið að stofna Samfylk-
ingarfélög og undirbúa vinnu í nýj-
um kjördæmum.
Við höfum stofnað Stjórnmálaskóla
Samfylkingarinnar og haldið
Kvennaþing, þar sem samþykkt var
að mynda samskiptanet kvenna.
Fundaröð um lýðræðismál hefur
heppnast mjög vel og framundan er
fundaröð um Evrópumál, sem hefst í
vor en verður haldið ífram í haust.
Þar verður kynnt niðurstaða af
könnun sérfróðra einstaklinga á
þeim samningsmarkmiðum sem ís-
lendingar ættu að setja fram ef til
aðildarviðræðna kæmi við Evrópu-
sambandið. Við höfum líka haldið
stefnufundi um málefni útlendinga
og nýbúa. Þetta eru nokkur dæmi
um öfluga málefnavinnu sem er í
gangi hjá okkur.
HVERNIG hefur þér gengið að
fóta þig sem þingflokksformaður?
Það hefur verið skemmtilegt verk-
efni og talsvert frábrugðið því sem
ég hef kynnst áður í þinginu. Ég læt
aðra um að dæma hvernig til hefur
tekist en þingflokkurinn hefur lagt
sig fram um að auðvelda mér verk-
ið. Þetta felst mikið í að samræma
störf þingmanna og semja við aðra
þingflokka, og í formennskunni fel-
ast mikil samskipti við fólk úr ýms-
um áttum. Það á ágætlega við mig.
Biyndfs Hlöðversdóttir er 40 ára lögfræðing-
ur og hefur setið á þingi sfðan 1995. Hún tók
við formemsku f 17 manna þingflokki Sam-
fytkingarinnar f upphafi þings eftir áramót
Össur Skarphéðinsson með útspil:
Uppstilling verði á framboðslista
framboðslistar f umræðum á flokks-
stjórnarfundi Samfylkingarinnar
sl. laugardag sagði Össur Skarp-
héðinsson formaður flokksins að
hans persónulega skoöun væri sú
að viðhafa ætti uppstillingu við val
á lista flokksins í komandi kosning-
um. Formaðurinn slær því út af
borðinu fyrir sitt leyti allar hug-
myndir um meira eða minna opin
prófkjör. Hugmynd Birgis Dýr-
fjörðs, fastamanns í uppstillinga-
nefndum Alþýðuflokksins og Sam-
fylkingarinnar í Reykjavík, að taka
upp þá aðferð Alþýðubandalagsins
að hafa póstkosningu flokksmanna
um lista virðist því ekki eiga hljóm-
grunn hjá formanninum. Hugmynd
Birgis gekk út á það að allir þeir
sem fyrir tilsettan tíma gerðust fé-
lagar í Samfylkingunni væru á
kjörskrá við val á lista og þeim
gæfist kostur á að raða á framboðs-
lista með póstkjöri.
Rök Össurar Skarphéðinssonar
fyrir afturhvarfi til uppstillinga-
nefnda og samþykktar lista í félög-
um og kjördæmisráðum er sú, að
engin slík samloðun sé innan nýju
kjördæmanna að hættandi sé á
prófkjör. Svo geti farið að kjör-
dæmin logi stafnana á milli vegna
landshluta- og hrepparígs í kjölfar
prófkjörs. Því sé betra að semja um
uppstillingu á listana milli flokks-
félaga á svæðinu og vega saman öll
þau sjónarmið sem uppi eru þangað
til þolanleg sátt fæst um uppstill-
inguna.
Kjördæmisráðin ákveða sjálf
fyrirkomulag vals á framboðslista
og svo getur því farið að þau velji
ólíkar leiðir þegar til kastanna
kemur.
HANDRAÐAÐ
Össur Skarphéðinsson vill hverfa
aftur til kerfis uppstillinganefnda og telur
prófkjör ekki henta nýju kjördæmunum
Bush hefur þegar fest í sessi hægri stefnu og stíl
Hveitibrauðsdagarnir liðnir
FYRSTU 100 DAGARNIR
I dag hefur George W. Bush verið 100 daga í embætti forseta Bandaríkjanna. Á mynd-
inni veifar hann til fagnandi áhorfenda ásamt konu sinni Láru.
BANDARíKiN Bush Bandaríkjaforseti
hefur í dag setið 100 daga í emb-
ætti. Hann var valinn með minni-
hluta atkvæða en meirihluta kjör-
manna, en lætur það ekki aftra
sér frá því að taka ákveðna
stefnu. Hann bakaði sér óvinsæld-
ir með því aó afnema ýmsar
skyndiákvarðanir til umhverfis-
bóta sem Clinton forseti tók á síð-
ustu dögum embættistíðar sinnar.
Hann hefur dregið í efa að Kyoto
bókunina um aðgerðir til þess að
sporna gegn útblæstri gróður-
húsalofttegunda þjóni hagsmun-
um Bandaríkjamanna. í utanríkis-
málum virðist tónninn ætla að
vera lágmæltur en ákveðinn.
Hann þykir hafa dregið taum
bandarískra stórfyrirtækja á
fyrstu 100 dögunum eins og búast
mátti við. Bush hefur útnefnt rík-
isstjórn sem er hvað hugmynda-
fræði ráðherra snertir talsvert
íhaldssöm. Hann virðist vera á
leið með að tryggja meirihluta á
þingi fyrir áformum sínum um
miklar skattalækkanir, og þykir
hafa sýnt lagni við að ná saman
sjónarmiðum Republikana og
Demókrata á þingi, en mjög jafnt
er á með flokkunum í styrkleika.
Þá heldur Bush ótrauður áfram
með áform sínum um breytingar á
menntastefnu og útboð á félags-
legri þjónustu til trúarhópa.
Stíllinn í Hvíta húsinu hefur
breyst og er nú allt með íhaldsbrag,
allir í velhnepptum jakkafötum og
stundvísi sett ofar öðru. Öll lausung
er forboðin og jafnvel myndaúrvalið
í Air Force One, flugvél embættis-
ins, hefur verið endurskoðað þannig
að það falli í íhaldssaman smekk. ■
FRÉTTIR AF FÓLKI f'
Yjað hefur verið að því að ástæðan
fyrir sætaskiptum Þorsteins Þor-
steinssonar, framkvæmdastjóra
verðbréfasviðs Bún-
aðarbankans og
Yngva Arnar Krist-
inssonar fram-
kvæmdastjóra Bún-
aðarbankans í Lúx-
emborg hafi veriö
sú slæma ímynd
sem verðbréfasvið
bankans hefur feng-
ið á sig vegna nokkurra vandræða-
mála sem hafa verið í fjölmiðlum.
Nauðsynlegt hafi þótt að taka málin
nýjum tökum og þess vegna hafi Þor-
steinn verið sendur utan og Yngvi
Örn kallaður heim. Nær mun vera
sanni að Alf Muhlig sem ásamt
Yngva Erni var framkvæmdastjóri í
B.I. International S.A. gafst upp á
samstarfinu við hinn síðarnefnda.
Þannig háttar til að í Lúxemborg er
þess krafist að það séu „fjögur augu“
við bankastjórn, tveir bankastjórar
sem séu ábyrgðarmenn bankarekst-
ursins. Alf Muhlig og Yngvi Örn
voru því báðir framkvæmdastjórar.
Muhlig var áður aðstoðarbankastjóri
Union Bank of Norway International
í Lúxemborg og hefur 12 ára reynslu
af bankarekstri þar í landi, og mikil
norræn samskipti. Yngvi Örn var
áður framkvæmdastjóri peninga-
málsviðs Seðla-
bankans og þótti
þar ráðríkur vel og
viss í sinni sök.
Þannig fór að
Muhlig tilkynnti
bankastjórninni að
hann vildi fremur
hætta en vinna
áfram við hlið vík-
ingingsins íslenska. Svo dýrmætur
var Muhlig talinn bankanum að
ákveðið var að senda Þorstein utan
með bankastjóratitil. Hann hefur
reynslu af bankastörfum hjá Nor-
ræna fjárfestingarbankanum og þyk-
ir vera diplómat í samskiptum.
Muhlig verður svo aðstoðarbanka-
stjóri, en Yngvi Örn kallaður heim til
þess að aga verðbréfasviðið. Ekki er
að efa að það verður agi (hemum.
trásarævintýri bankanna á er-
lendri grund ganga misvel.
Tfmasetningin er allt og Búnaðar-
bankinn og íslandsbanki FBA súpa
nú seyðið af því að hafa farið of seint
á stað og lent inn í niðursveiflunni á
alþjóðlegum verðbréfamörkuðum.
Kaupþing situr víst líka í súpunni
með útibú sitt í Stokkhólmi sem skil-
aði hagnaði á sl. ári en berst nú við
taprekstur. í New York þar sem
Kaupþingsmenn fóru síðast af stað
er verið að fást við fleiri hluti en
verðbréfabrask, og þar ku vera ríf-
andi gangur.
Búnaðarbankinn er ekki að ná ár-
angri í Lúxemborg að svo komnu
máli vegna aðstæðna á mörkuðum.
íslandsbanki FBA hefur verið f tóm-
um vandræðagangi með Raphael
bankann f Bretlandi sem íslands-
banki FBA keypti með húð og hár.
Það er talið einkenni fyrir slæmt
ástand að öllum yfirmönnum bank-
ans hefur verið skipt út. Tómas Sig-
urðsson er hættur sem bankastjóri
og Ólafur Guðjónsson sem var for-
stöðumaður einkabankaþjónustu
Raphael bankans sagði upp og hefur
ráðið sig til Kaupþings.
Samfylkingin hélt flokkstjórnar-
fund á laugardag og þar vakti
þrumuræða Margrétar Frímanns-
dóttur varaformanns flokksins sér-
staka athygli. Hún tók á þvf máli að
fyrst eftir stofnun Samfylkingarinn-
ar hefðu menn verið mjög mótaðir af
gömlu flokkunum. Margir hefðu
saknað starfsins f Alþýðuflokknum,
Alþýðubandalaginu
og Kvennalistanum.
Enda þótt þar hafi
gengið á ýmsu var
það þó umhverfi
sem menn þekktu
og fundu sig heima
í. En Margrét sagði
að Samfylkingar-
menn mættu ekki
gleyma því að það hefði ekki bara
verið draumurinn um að sameina
vinstri menn, félagshyggjufólk og
kvenfrelsissinna sem hafi leitt til
stofnunar nýs flokks. Ekki mætti
gleyma þvf að um hafi verið að ræða
hugmyndafræðilega stöðnun gömlu
flokkanna. Það hafi verið þessi stöðn-
un sem menn vildu komast út úr og
hefði ekki sfður verið ráðandi í ferl-
trampólín
! 'tó: