Fréttablaðið - 18.06.2001, Side 2
FRÉTTABLAÐIÐ
KJÖRKASSINN
18. júní 2001 MÁNUDAGUR
TIMOTHY MCVEIGH
Hefði ekki verið tekinn
af lífi hér á landi ef
meirihluti netverja
hefði fengið að ráða.
Ertu fylgjandi dauðarefsingum?
Niðurstöður gærdagsins
á wyvw.visir.i;
Nei
31%
69%
Á að stytta opnunartíma
skemmtistaða á ný?
Farðu inn á vísi.is og segðu |
þína skoðun I
Sigur Rós heimsfræg
Erlend tímarit sýna íslenskum hljómsveitum mikinn áhuga. Greinar hafa birst um
þær víða um heim og þá beinast sjónir einna helst að Sigur Rós.
tónlist Hróður íslenskra hljómsveita
berst víða og í kanadíska tónlistar-
blaðinu Earshot eru þrjár opnur
undirlagðar íslenskum listamönn-
um. Þar má finna viðtöl við nokkrar
af þessum sveitum, þar á meðal við
Sigur Rós. Sveitin hefur verið að
gera það gott erlendis og birtist m.a.
grein um hana í nýjasta hefti The
Economist. Hvaða þýðingu skildi
grein svo virtu tímariti hafa fyrir
sveitina? „Ég bara veit það ekki. Ég
hef ekki séð þessa grein“ sagði Ge-
org Hólm, meðlimur hljómsveitar-
innar í samtali við Fréttablaðið í
gær. „Ætli þetta sé ekki bara enn ein
greinin."
Sigur Rós er talin vera á barmi
heimsfrægðar og ýta greinar í er-
lendum tímaritum undir það.
„Já, já ætli við séum ekki bara
heimsfrægir. Þetta er aðallega fynd-
ið því þetta er svo íslenskt að vera á
barmi heimsfrægðar. Það gengur
annars bara mjög vel hjá okkur og
okkur líður vel,“ sagði Georg.
Hann segist ekki vita hve mörg
eintök af fyrstu plötu þeirra Ágætis
byrjun hafi verið seld en síðast þeg-
ar hann vissi voru það eitthvað um
200.000 eintök. Hann segir hljóm-
sveitina samt ekki vera græða neina
peninga á þessu. „Nei, það er það
fyndna við þetta. Það eru bara hrís-
grjón í matinn á hverjum degi.“
í báðum blöðunum er sagt frá því
að Sigur Rós syngi annaðhvort á ís-
lensku eða á svokölluðu Hoplandic-
tungumáli.
„Það er eiginlega bara bull tungu-
mál. Það er hægt að líkja þessu við
það þegar hljómsveitir hafa ekki
samið textana og syngja bara eitt-
hvað með. Það er alltaf jafn fyndið
þegar við erum að spila á tónleikum
í EARSHOT
Þrjár opnur eru lagðar undir íslenska tón-
list í Earshot. Mikill éhugi virðist vera á ís-
lenskum sveitum ytra.
og fólk syngur með. Maður hugsar
bara hvað er fólk að syngja?" sagði
Georg. ■
TOLLAR AFNUMDIR
Engir tollar verða lagðir á tegundir eins og
lauk og jöklasalat eftri að reglugerðabreyt-
ing kom frá landbúanaðrráðuneytinu. Það
hefur samt ekki umtalsverð áhrif á kaup-
mátt neytenda.
Afnám tolla á nokkrum
grænmetistegundum:
Vegur
ekki þungt
grænmeti Landbúnaðarráðuneytið
sendi frá sér reglugerðabreytingu á
föstudag þar sem tollar af nokkrum
tegundum grænmetis voru afnumdir.
Margar af þessum tegundum skipta
neytendur engu stórmáli sökum þess
hversu lítið magn er keypt af þeim og
einnig hve lágar þær eru í verði fyr-
ir.
„Það er eitthvað af þessu sem við
höfum verið að láta flytja inn fyrir
okkur og kemur til með að lækka í
næstu sendingu," sagði Þórður Þóris-
son framkvæmdastjóri 10-11 versl-
ananna í gær.
Einar Þór Sveinsson, fram-
kvæmdastjóri Ávaxtahússin, sagði
þessar reglugerðabreytinga hafa
lækkun í för með sér í þeim tegund-
um sem reglugerðin tilgreindi. Þar
vegur þyngst lækkun á lauk og jökla-
salati, sem fólk kaupir þó nokkuð af.
Einar segir þessa reglugerð frá-
brugðna því sem verið hefur undan-
farin ár. Stefnubreytingin nú felur í
sér afnám hafta sem notaðar voru til
tekjuöflunar fyrir ríkisvaldið en ekki
til að vernda innlenda framleiðendur.
Það mun koma neytendum að ein-
hverju leyti til góða þó þessar teg-
undir vegi ekki þungt í dag í innkaup-
um almennings. ■
Hagurinn
batnaði við
aukið frelsi
Stofnun Háskóla Islands dirfskufullt skref.
Framkvæmdavaldið hlýtur að tryggja Háskóla íslands
sem bestan aðbúnað. Fjáls viðskipti þýðingarmesta
forsenda framfara og velsældar. Hæfileikar Jóns
Sigurðssonar hefðu leitt hann til forystu á hvaða
tíma sem er.
pióðhAtíð Davíð Oddsson, forsætis-
ráðherra, sagði í hátíðarræðu sinni
á Hrafnseyri í gær að fram-
kvæmda- og fjárveitingavaldið
gæti ekki setið hjá á hliðarh'nunni
ef við vildum standa hér undir
burðugum þjóðarháskóla. Það hlyti
að kosta kapps um að tryggja skól-
anum sem bestan aðbúnað og skil-
yrði til að efla sig á alla lund.
Davíð sagði stofndag Háskóla ís-
lands hafi verið látinn bera upp á
aldarafmæli Jóns Sigurðssonar, í
virðingar- og þakklætisskyni við
hann. Nú nítíu árum síðar hefur
betur tekist til með Háskólann en
bjartsýnustu menn gátu gert sér
vonir um enda var skrefið dirfsku-
fullt og dýrt.
Hann sagði íslendinga í mun að
forðast persónudýrkun af sér-
hverju tagi en þeim væri óhætt að
viðurkenna að Jón Sigurðsson væri
afburðarmaður og hæfileikar hans
hefðu efalítið leitt hann til forystu
og metorða á hvaða tíma sem var og
undir merkjum sérhverrar þjóðar
sem hann hefði fæðst til. Því hljóti
hann að standa á veglegri stalli en
aðrir menn á íslandi vegna afreka
sinna og baráttu.
Jón átti kollgátuna þegar kom að
verslunar- og viðskiptafrelsi og
taldi frjáls viðskipti manna og
þjóða á milli eina þýðingarmestu
forsendu framfara og almennrar
velsældar.
„Hagur þjóðarinnar batnaði
jafnan í réttu hlutfalli við það
aukna frelsi, sem hún öðlaðist. Auð-
vitað er það rétt, sem sumir undir-
strika í tíma og ótíma, að misskipt-
ing lífsins gæða er meiri en þegar
fátæktin var eina sameign þjóðar-
innar. En sá er vonandi vandfund-
inn sem þættist betur staddur ef
frelsið væri takmarkaðra og for-
ræði íslenskra mála væru fremur í
annarra höndum en okkar sjálfra.
Þessa er okkur hollt að minnast,"
sagði Davíð Oddsson.
Eiríkur Finnur Greipsson, for-
maður Hrafnseyrarnefndar sem sá
um skipulagningu hátíðarhaldanna,
sagði að gestir hefðu verið á fjórða
hundrað í einstakri veðurblíðu.
Guðrún Edda Gunnarsdóttir
prestur á Þingeyri var með
guðþjónustu í kapellunni á
Hrafnseyri sem var fjölsótt. Ræðu-
höld fóru fram undir berum himni
og á eftir var veislukaffi í bursta-
bænum, fæðingarstað Jóns Sigurðs-
sonar.
í föruneyti Davíðs voru tveir
Vestur-íslendingar, Eric Stefanson
og Kristjan Stefanson, báðir
háttsettir emættismenn í Manitoba
fylki, sem eiga ættir sínar að rekja
vestur á firði. ■
iÓN SIGURÐSSON
Jón taldi ekki að einangrun þjóðarinnar og
heimóttarskapur væri lausnin sem leita
bæri að sagði Davíð Oddsson
Islensk Auðlind
L æ k j a r t o r g i
Hafnarstræti 20. 2h
101 Reykjavík
561-4000
www.audlind.is
Hin íslenska Fálkaorða:
Blóma og gjafavöruverslun
Vorum að fá á söluskrá okkar glæsllega blóma og gjafavöruverslun á frábær-
um stað í úthverfi Reykjavíkur. Um er að ræða fyrirtæki með góða viðskipta-
vild, smekklega innréttað og fína veltu. Fyrirtækið er rekið í leiguhúsnæði.
Öflugur grillstaður
Einn af þekktari grillstöðum borgarinnar er til sölu vegna sérstakra aðstæðna.
Fyrirtækið er mjög þekkt og með fína viðskiptavild, vel tækjum og búnaði
búið og góða veltu. Allar nánari uppl. gefnar á skrifstofu.
Innflutningur-Heildsala
Erum með á söluskrá okkar þekkt fyrirtæki sem þjónað hefur landanum til
margra ára með frábærum íþróttavörum sem slegið hafa í gegn.
Matvælaframleiðslufyrirtæki
Vorum að fá á söluskrá okkar traust og gott matvælaframleiðslufyrirtæki sem
sérhæfir sig m.a. í sallatgerð ásamt öðru. Fyrirtækið er með stóran og traustan
viðskiptahóp.
Vegna mikillar sölu undanfarið vantar okkur allar gerðir af fyrirtækjum
a skrá. Erum með mjög öfluga og trausta káupendur sem leita af
ákveðnum fyrirtækjum til kaups.
15 Islendingar heiðraðir
viÐURKENNiNG Forseti íslands, Ólafur
Ragnar Grímsson, sæmdi 15 íslend-
inga riddarakrossi viö hátíðlega at-
höfn á Bessastöðum í gær.
Ármann Halldórsson fyrrum kennari,
riddarakross fyrir störf í þágu mennt-
unar og uppeldis.
Björn Jónsson fyrrverandi prestur,
riddarakross fyrir störf að bindindis-
og menningarmálum.
Bragi Ásgeirsson listmálari, riddara-
kross fyrir störf í þágu lista og menn-
ingar.
Egill Bjarnason ráðunautur, riddara-
kross fyrir störf í þágu landbúnaðar.
Guðrún Agnarsdóttir læknir, riddara-
kross fyrir störf að heilbrigðismálum.
Gyða Stefánsdóttir kennari, riddara-
kross fyrir störf í þágu menntunar og
fræðslu.
Haraldur Sumarliðason húsasmíða-
meistari, riddarakross fyrir störf í
þágu iðnaðar.
Helga Ingólfsdóttir tónlistarmaður,
riddarakross fyrir störf í þágu lista og
menningar.
Ingibjörg Pálmadóttir fyrrverandi
ráðherra og alþingismaður, stórridd-
arakross fyrir störf í opinbera þágu.
Jón Ásgeirsson tónskáld, riddara-
kross fyrir störf í þágu menningar og
lista.
Kristín Pétursdóttir bókasafnsfræð-
ingur, riddarakross fyrir störf í þágu
bókasafns- og uppýsingafræða.
Stefán Baldursson, þjóðleikhússtjóri,
riddarakross fyrir störf í þágu lista og
menningar.
Svava Jakobsdóttir, rithöfundurr
riddarakross fyrir störf í þágu lista og
menningar.
Svavar Gestsson, sendiherra og fyrr-
verandi ráðherra, stórriddarakross
fyrir störf í opinbera þágu.
Þorsteinn Gunnarsson rektor
Háskólans á Akureyri, riddarakross
fyrir störf í þágu menntunar og vís-
inda. „sá. I
BCSiít*
Fyrirtækjasala 1 Fasteignasaía I Leigumiðlun I Lögfræðiþjónusta