Fréttablaðið - 18.06.2001, Blaðsíða 18
HVAD BÓK ERTU AÐ LESA
Ástráður Eysteinsson
prófessor í bókmenntafræðum við
Háskóla íslands
Ég er að lesa Grettissögu en upphaf-
lega leit ég bara í hana til að kanna
ákveðið atriði í tengslum við verkefni
hjá mér. Svo vissi ég ekki fyrr en ég sat
fastur í bókinni, en þetta er gömul eft-
irlætislesning hjá mér. Þessi saga er
alltaf jafn áleitin. ■
1 METSÖLUBÆKURNAR [
TOPP 10 Á AMAZON.COM
Cfe David McCullough
JOHN ADAMS
Janet Evanovich
SEVEN UP
Hampton Sides
GHOST SOLDIERS
Cf> Christiane Northrup M.D.
THE WISPOM OF MENOPAUSE
Bob Rosner, et al
THE BOSS'S SURVIVAL GUIPE
Bruce H. Wilkinson
THE PRAYER OF JABEZ
n Trisha Posner
THIS IS NOT YOUR MOTHER'S MENO..
fjl Spencer Johnson, Kenneth H. Blanchard
WHO MOVED MY CHEESE?
fíf Brad Schoenfeld, Carole Semple-Marzetta
LOOK GREAT NAKED
© Jim Karas
THE BUSINESS PLAN FOR THE BODY
Erlendar bækur:
arbækur
vinsælar
bækur Sálfshjálparbækur eru alltaf
vinsælar hvort sem þær snúast um
breytingarskeið kvenna eins og
bækurnar sem verma 4. og 7. sætið
eða hvort það sé sálin sem vanti að-
stoð en litla bænabókin sem vermir
6. sætið gæti hjálpað til með það eða
ef menn vilja ná sér í form á einung-
is 15 mínútum á dag, þá er bókin í 9.
sæti til leiðbeiningar eða ef vinnan
og lífið er orðið þreytt og þú vilt
breytingar þá er að skella sér á bók-
ina sem er í 8. sætinu. ■
Kr. 1500 afsláttur
af varanlegur gljáa
í Auto Saver * Klear Seal
100% varaniegur
gljái í stað bóns
100% varanleg
jónaryðvörn í bíla
ársábyrgð á efni og vinnu
------------------1
Glæran ehf |
stórhöfða 18 110 RVK [
Sími 698-9253 I
mmmmmmmmmmmmmmmmmmsmmmmmmmmm
Herbalife
Hafðu samband
vlð mig ef þig
vantar vörur
Eyrún Anna Einarsdóttir
sjálfstæður Herbalife
dreifingar aðili
sími 8616837 visa - euro
18
FRÉTTABLAÐIÐ
18. júní 2001 MÁNOPAGUR
Gallerí Geysir:
I völundarhúsi
sálarinnar
ÓSKAR BERGMANN ALBERTSSON
„Ég finn brot úr sálu minni á götunni og fólk stígur niður fæti nær sálu minni en áður,"
segir I einu Ijóða hans.
sínum, Ásgarði í Lækjarbotnum. Þar
vinna um það bil fimmtán manns við
að búa til leikföng úr tré.
Óskar hefur jafnframt gefið út
litla ljóðabók með sjö ljóðum eftir
sjálfan sig. „Þetta hafa verið svona sjö
átta ár sem ég hef verið að fikta við að
skrifa ljóð,“ segir hann og vill ekkert
frekar segja um ljóðin. Þau tala fyrir
sig sjálf eins og myndirnar. ■
Kirkjudagar á Skólavörðuhæðinni:
Látlausir dagar en
glaðir og gagnlegir
kirkjustarf Kirkjudagar verða
haldnir á Skólavörðuhæð dagana
22. 23. júní nk. og að þeim standa
þjóðkirkjan og Reykjavíkurpró-
fastsdæmin eystra og vestra. Að
sögn Bernharðs Guðmundssonar,
verkefnisstjóra Kirkjudaga, er
lögð áhersla á samtal og samveru.
„Við bjóðum til sameiginlegrar
uppbyggingar og stefnumörkunar,
ekki með ályktunum eða með yfir-
lýsingum, heldur með upplifun og
er yfirskriftin Komdu fagnandi.
Þetta verða látlausir dagar en glað-
ir og gagnlegir." Bernharð sagði
mikið um að vera í kirkjustarfi og
að ástæðan fyrir kirkjudögunum
væri sú að þjóðkirkjan vildi láta
það sjást og heyrast að hún ætti
samleið með íslensku þjóðinni. „Við
viljum halda áfram að eiga veiga-
mikinn hlut í mótun og menningar-
uppeldi nýrrar kynslóðar. “
Dagskráin er viðamikil og mun
barna- og unglingadagskrá spila
þar stóran þátt og meðal nýjunga
má geta þess að haldið verður
kirkjuþing unga fólksins. Þar koma
saman tveir fulltrúar úr hverjum
prófastsdæmi og er framkvæmda-
stjóri þess Guðni Már Harðarson.
„Eg fékk 10 manns úr hverju pró-
fastsdæmi á aldrinum 15-22 ára til
að koma saman með hugmyndir um
hvað þeim þætti mikilvægast að
kirkjan myndi ræða um á nýrri öld
til að eflast og endurspeglast um-
ræðuefnið á kirkjuþinginu það
samstarf." Auk þingsins verður
sérstök ungiingadagskrá með tón-
list, afródans, stomp, umræðum og
fleira.
Gísli Jónasson, prófastur
Reykjavíkurprófastsdæmis eystra,
sagði daga sem þessa vel þekkta er-
lendis frá t.d. í Noregi og Þýska-
SKIPULEGGJENDUR KIRKJUDAGANNA
Kirkjulistarhátíðarhöldin hafa tekið allt í allt tvö ár. Það var horft aftur í söguna í fyrri
hlutanum, vendipunkturinn var á Kristnitökuhátíðinni á Þingvöllum og nú er verið að
horfa til framtíðar.
landi og sagði þjóðkirkjuna njóta
góðs af reynslu þeirra við fram-
kvæmdina. „Einhvern tíman var nú
notað orðið fjölskylduhátíð kirkj-
unnar yfir þessar uppákomur og er
hugmyndin að kirkjufólk geti lært
hvort af öðru. Það er svo margt að
gerast í kirkjunni sem fer ekki
mjög hátt og þekki ég það persónu-
lega sem sóknarprestur að það
kemur fólki á óvart sem kemur inn
í söfnuðinn og áttar sig á því hvað
mikið starf fer fram í kirkjuhúsinu
en flestir halda að þau standi tóm
alla daga nema eina klukkustund á
sunnudögum."
Á kirkjudögum er boðið er upp á
um 50 málstofur sem margar eru í
samvinnu við ýmsar stofnanir í
samfélaginu s.s. Landvernd, Ör-
yrkjabandalagið, Siðfræðistofnun
o.fl. Einnig koma fram ritstjórar,
skáld, leikarar og fjöldi tónlistar-
manna sem taka þátt í kvöldsam-
vei-um á föstudags- og laugardags-
kvöld. Dagskráin fer fram á fjórum
stöðum á Skólavörðuhæðinni: Hall-
grímskirkju, Iðnskólanum, Vörðu-
skóla og í tjaldi fyrir framan kirkj-
una. Hægt er að nálgast dagskrána
á netinu á slóðinni kirkjan.is og
bæklingar liggja einnig frammi í
öllum kirkjum og á biskupsstofu.
Boðið er upp á bai’nagæslu, lögð
hefur verið áhersla á aðgengi fyrir
fatlaða og kvöldvökur verða túlkað-
ar á táknmáli. Allir dagskrárliðir
eru með ókeypis aðgang. ■
mynplist „Þetta datt bara ofan í mig.
Ég var búinn að vera veikur og vildi
hafa eitthvað að gera svo ég fór að
fikta við að teikna, en annars hef ég
alltaf verið að teikna eitthvað í
fimmtán ár,“ segir Óskar Bergmann
Albertsson sem nú sýnir 32 myndir
eftir sjálfan sig í Gallerí Geysi í Hinu
húsinu.
„Ég kalla þetta pennateikningar,
þetta eru form og línur. Ég þyrja
alltaf á einni línu og vinn mig út frá
henni, set eina línu á blað og svo
I IWIÁNUPACUR
18.JÚNÍ
FUNDIR___________________________
16.00 Þórhallur Örn Guðlaugsson,
M.S. nemi í viðskiptafræðum
heldur fyrirlestur er hann nefn-
ir: Viðhorf viðskiptavina sem
árangursmælikvarði. Fyrirlest-
urinn verður haldinn í stofu
201 í Odda. Allir velkomnir.
16.15 Margrét Bragadóttir heldur
fyrirlestur um meistaraverkefni
sitt í matvælafræði: Stöðug-
leiki íslensks loðnumjöls. Fyr-
irlesturinn verður í stofu 158 í
VR-II, byggingu verkfræði- og
raunvísindadeilda Háskóla ís-
lands. Hann er öllum opinn.
TÓNLIST__________________________
Á Gauki á Stöng í kvöld leika þrjár
ungar hljómsveitir. Fyrst ber að telja
hljómsveitina Úlpu sem leikur lög af
væntanlegri breiðskífu sinni. Með
henni leika hljómsveitirnar Manhatt-
an og Kuai. Tónleikarnir hefjast kl.
21 og er miðaverð 500 kr.
SÝNINGAR_________________________
íslenskar þjóðsögur og ævintýri er
þema sumarsýningarinnar sem opn-
uð hefur verið
í Safni Ásgríms Jónssonar við
Bergsstaðastræti 74 í Reykjavík. Á
sýningunni sem stendur til 1. sept-
ember eru margar af frægustu þjóð-
sagnamyndum listamannsins.
Þar má einnig sjá vinnustofu, heimili
og innbú hans.
Önnur af sumarsýningum Listasafns
Reykjavikur - Kjarvalsstaða ber
nafnið Flogið yfir Heklu. Sýningar-
stjóri er Einar Garibaldi Eiríksson
myndlistarmaður og prófessor við
Listaháskóla Islands. Á sýningunni
getur að líta mismunandi myndir
Heklu sem sýndar verða hlið við hlið.
Sýningin stendur til 2. september.
Hin sýningin sem verður sett upp í
miðrými Kjarvalsstaða og ber hún
yfirskriftina 1461 dagur. Þar sýnir
Gretar Reynisson verkefni sem hann
hefur unnið að frá 1. janúar 1997 og
sér ekki fyrir endann á enn. Þetta er
vaxtarverkefni af þeirri tegund sem á
ensku væri kallað „work in progress.
Sýningin stendur til 19. ágúst.
í Stöðlakoti við Bókhlöðustíg 6
stendur yfir sýning á útsaumsverkum
Kristínar Schmidhauser. Sýningin er
opin daglega kl. 14-18 og lýkur 24.
júní.
Ljósmyndasafn Reykjavíkur hefur
opnað sýninguna Henri Cartier-
Bresson í Grófarsal, Grófarhúsi,
Tryggvagötu 15. Sýnd eru verk þessa
franska Ijósmyndara sem nú er á tí-
ræðisaldri og hefur oftast verið
kenndur við stílinn „hið afgerandi
augnablik". Sýningin er opin virka
daga frá kl. 12-17 og um helgar kl.
kemur þetta bara smátt og smátt.
Það er hægt að sjá heilmikið út úr
hverri mynd. Ég hef selt nokkrar
myndir og þeir sem hafa keypt hafa
séð ýmislegt furðulegt út úr mynd-
unum.“
Þetta er fyrsta sýning Óskars. „Ég
vonast samt til að þetta verði ekki eina
sýningin mín. Ég vona að ég haldi
áfram á sömu braut
Óskar tekur fram að hann hafi
sjálfur búið til rammana utan um
myndirnar. Hann bjó þá til á vinnustað
13-17 og stendur til 29. júlí.
Sænski Ijósmyndarinn Lars Erik
Björk sýnir Ijósmyndir frá Færeyjum í
anddyri sænska sendiráðsins í Lág-
múla 7 sem hann nefnir Leiftur frá
Færeyjum. Sýningin verður opin virka
daga kl. 9-16 til 22. júní.
Freysteinn G. Jónsson sýnir Ijós-
myndir í versluninni Míru, Bæjarlind
6. Sýningin nefnist Mannlif á Ind-
landi og samanstendur af Ijósmynd-
um frá Indlandi, bæði svarthvítum og
í lit. Sýningin er opin á opnunartíma
Míru og stendur til 20. júní.
Ari Magg sýnir Ijósmyndir á Atlantic
í Austurstræti og er þetta er fyrsta
einkasýning Ara. Þema sýningarinnar
á Atlantic er íslenski fáninn. Gengið
er inn frá Austurvelli.
I Sjóminjasafninu í Hafnarfirðí
stendur handverkssýning Ásgeirs
Guðbjartssonar. Frá 1. júní til er Sjó-
minjasafnið opíð alla daga frá kl. 13
til 17. Sýningin stendur til 22. júlí.
Málverkasýning í Eden:
Myndefni frá
Suðurlandi
málverk Jón Ingi Sigurmundsson
opnar málverkasýningu í Eden,
Hveragerði, í kvöld kl. 21 þar sem
hann sýnir olíu-, pastel- og vatnslita-
myndir málaðar á þessu ári og síð-
astliðnu ári. Myndefnið er að mestu
leyti frá Suðurlandi. Þetta er 18.
einkasýning Jóns Inga en hann hef-
ur sýnt víða á Suðurlandi, Akureyri
og í Danmörku. Á síðasta ári sótti
hann nokkur námskeið í myndlist
m.a. hjá þekktum vatnslitamálara í
Englandi. Sýningunni lýkur sunnu-
daginn 1. júlí. ■
1 ^ ^ 1
íslensk skurðlist:
Utskorin
horn og bein
sýning Þjóðminjasafn íslands í sam-
vinnu við Landsvirkjun og Byggðasafn
Árnesinga gengst fyrir sýningu í kynn-
ingarsal Landsvirkjuna í Ljósafossstöð
við Sog. Sýningunni var valið heitið
Skáldað í tré íslensk skurðlist úr Þjóð-
minjasafni en þar er lögð áhersla á að
kynna fyrir sýningargestum sem fjöl-
breyttast úrval útskorinna muna úr
tré, beini og horni sem varðveittir eru
í Þjóðminjasafni íslands. Varpað er
Ijósi á hina íslensku tréskurðarlist sem
var stunduð hér á landi allt frá lands-
námsöld og fram til okkar daga. ■