Fréttablaðið - 18.06.2001, Page 4
4
FRÉTTABLAÐIÐ
18. júní 2001 MÁNUPACUR
SVONA ERUM VIÐ
FJÖLDI NÝSKRÁÐRA BÍLA
A MÁNUÐI 1999-2001
I stað 15-20% samdrætti I fjölda nýskráðra
bifreiða á milli ára, eins og sumir bjuggust
við, virðist hann ætla að verða nær 50%.
Tryggvi Eiríksson hjá Þjóðhagsstofnun segir
að bílarnír séu þó að jafnaði dýrari; þannig
gæti verðmætissamdráttur verið um 40%
þó fjöldasamdrátturinn sé nálægt 50% á
milli fyrstu mánaða 2000 og 2001.
| INNLENT~|
Erill var hjá lögreglu aðfaranótt
sunnudagsins 17. júní. Tvo
menn þurfti að flytja á slysadeild
eftir að á þá hafði verið ráðist af
ofurefli liðs. Annar mannanna varð
fyrir árás þriggja manna undir
morgun en þeir börðu hann í jörð-
ina og spörkuðu í hann þar sem
hann lá. Maðurinn var fluttur á
slysadeild en árásarmennirnir í
fangageymslur. Tveir til viðbótar
voru handteknir eftir að hafa ráð-
ist á mann snemma morguns þan-
nig að flytja þurfti hann á sjúkra-
hús. Hvorugur mannanna er alvar-
lega slasaður.
—♦—
Sprengingin í Oklahoma:
Fær Nichols einnig
dauðadóm?
penver. ap. Skömmu áður en
Timothy McVeigh var tekinn af lífi
í síðustu viku, bað hann lögfræð-
inga sína um að hjálpa vini sínum
Terry Nichols, sem átti þátt í að
skipuleggja sprengingu alríkis-
byggingarinnar í Oklahoma, að
komast hjá því að fá dauðadóm.
Nichols afplánar nú lífstíðardóm
fyrir aðild sína í hryðjuverkinu,
þar sem alls létust 168 manns. Var
hann dæmdur fyrir morð af óyfir-
lögðu ráði og fyrir að eiga þátt í
dauða átta lögreglumanna. Sækj-
endur í málinu hafa nú lagt fram
160 morðákærur gegn honum og
krefjast dauðarefsingar eftir að ný
gögn komu fram í málinu þann 11.
júní. ■
KREFJAST DAUÐADÓMS
Terry Nichols á mynd sem tekin var af
honum á lögreglustöð í Oklahoma I lok
janúar á síðasta ári. Líkur eru á því að eins
fari fyrir honum og fór fyrir félaga hans,
Timothy McVeigh, í síðustu viku.
Bretland:
Ruslpósturinn
fer beint í ruslið
neytendawAl Næstum því helmingur
alls ruslpósts sem kemur inn um lúgu
bresks almennings fer beint í rusla-
körfuna án þess að hann sé nokkurn
tímann skoðaður, að því er kemur
fram í nýlegri könnun. Þar segir að
41% neytenda hendi öllum tilboðum
sem komi til þeirra með tölvupósti
auk auglýsinga um leið og þeir sjái
þau. Næstum átta af hverjum tíu
sögðu að ruslpóstur og símasölumenn
eigi alls ekki upp á pallborðið hjá
þeim. Sex af hverjum tíu sögðu hins
vegar að þeir yrðu móttækilegri fyrt
tilboðum af ýmsu tagi ef þeir fengju
sjálfir að ráða hvernig þau kæmu til
þeirra. ■
Davíð segir Islendinga
styðj a eldflaugavarnir
Mikill árangur næst á leidtogafundi NATO. Davíð telur að eldflaugakerfi Bandaríkjanna skuli byggt sé það
hægt. Fundur utanríkisráðherra bandalagsins í Reykjavík í maí ræðir frekari stækkun NATO til austurs.
Tjarnarskóli í Reykjavík, eini
einkarekni grúnnskólinn þar
sem nemendur tóku samræmd próf
10. bekkjar, er með þriðju lökustu
útkomuna af 22 grunnskólum höf-
uðborgarinnar. Það vekur athygli
að útkoma prófa tíunda bekkjar í
skólanum er slök en talsverðar
deilur urðu meðal skólafólks þegar
Tjarnarskóli var stofnaður fyrir
sextán árum og töldu andstæðingar
hans að með stofnuninni yrði hætta
á að nemendum yrði mismunað.
Þangað færu börn efnameiri for-
eldra og í krafti skólagjalda væri
hægt að bjóða upp á skólastarf
sem væri ekki á færi annarra
skóla. Margrét Theódórsdóttir,
annar skólastjóra skólans, segir
skýringuna að hluta til samsetn-
ingu tíunda bekkjar skólans í ár og
bendir á að á starfstímanum hafi
Tjarnarskóli yfirleitt verið meðal
tíu efstu skóla í Reykjavík á sam-
ræmdum prófum. Þá ítrekar hún
að samræmd próf séu ekki algildur
mælikvarði á gæði skólastarfs.
Að sögn Sigríðar Dúnu Krist-
mundsóttur var litið á íslend-
inga sem forystuþjóð á ráðstefn-
unni Konur og lýðræði sem fram
fór í Vilníus í Litháen um helgina.
Sigríður segir gífurlegan áhuga
hafa verið á málefnum kvenna á
ráðstefnunni og að greinilegur ár-
angur hafi orðið af verkefnunum
sem sett voru af stað í Reykjavík
og það svo að húsnæði fyrir vinnu-
hópana dugði ekki til. Að sögn Sig-
ríðar Dúnu var forsetahöllin opnuð
og vinnuhópunumm útveguð að-
staða þar. Þátttakendur á ráðstefn-
unni voru um 500.
leiðtogafundur Davíð Oddsson, for-
sætisráðherra, er ánægður með ár-
angur leiðtogafund Atlantshafs-
bandalagsins, NATO. Hann sagði að
fundurinn hefði verið árangursríkur
og að nú væri einsýnt að af stækkun
NATO til austurs yrði.
„Það mun þó betur koma í Ijós á
fundi utanríkisráðherra NATO sem
haldinn verður í maí n.k. - líklega í
Reykjavík - en þar verður frekari
stækkun bandalagsins rædd. Á fund-
inum núna, sem var nokkurs konar
óopinber leiðtogafundur, voru engin
ákveðin lönd nefnd á nafn vdrðandi
stækkun bandalagsins," sagði Davíð.
Mál á borð við ástandið í fyrrum ríkj-
um Júgóslavíu - einkum Makedóníu -
voru í aðalhlutverki á fundinum
ásamt því sem leiðtogarnir ræddu
hvernig NATO gæti komið að því að
nútímavæða heri bandalagsríkjanna.
Hann bætti því við að í nóvember
2002 yrði haldinn opinber leiðtoga-
fundur leiðtoga NATO-ríkjanna í
Prag í Tékklandi og þá yrðu mögu-
lega teknar ákvarðanir varðandi
frekari stækkun bandalagsins til
austurs.
Þegar Davíð var spurður hvort
honum hefði virst vera sátt um eld-
flaugavarnarkerfið sem Bandaríkja-
menn hafa vilja koma sér upp sagði
Davíð að fslendingar styddu slíkt
kerfi „ef það er vísindalega fært að
mynda slíka vörn“ og bjóst hann ekki
við því að slíkt kerfi myndi raska
valdajafnvæginu í heiminum.
Davíð sagðist hafa hrifist af Geor-
ge W. Bush, forseta Bandaríkjanna,
en fjölmiðlar hafa jafnan lýst honum
sem „einföldum" manni.
„Hann kom mér fyrir sjónir eins
og maður sem veit hvað hann er að
segja. Hann kemur sér beint að kjar-
na málsins og á auðvelt með að
greina kjarnann frá hisminu," sagði
Davíð. Þetta er fyrsti fundur Davíðs
með núverandi Bandaríkjaforseta.
omarr@frettabladid.ís
STÆKKUN TIL AUSTURS
Leiðtogar NATO-ríkjanna telja að orðið geti af frekari stækkun ríkjanna til austurs á næsta
fundi leiðtoganna í Prag í nóvember 2002. Davíð telur að búast megi við miklum árangri
af viðræðum utanríkisráðherra bandalagsins á islandi í maí n.k.
Veðurstofunni óheimilt að hagnast
Haf- og lofthjúpsfræðistofan Halo segir Veðurstofu Islands sitja á gögnum sem henni beri að láta af hendi og bjóða
stórlega niðurgreidda þjónustu á samkeppnismarkaði og hefur kært Veðurstofuna til Samkeppnisstofnunar.
samkeppnismál Björn Erlingsson,
stjórnaformaður haf- og lofthjúps-
fræðistofunnar Halo ehf., segir al-
menning gjalda þess að Veðurstofa
íslands hafi reynt að hindra sam-
keppni með því að neita Halo um
aðgang að veðurgögnum og með að
bjóða stórlega niðurgreidda þjón-
ustu. Halo hefur kært Veðurstofuna
til Samkeppnisstofnunar og þar er
málið nú til meðferðar.
íslensk Auðlind
Lækjartorgi
Leigumiðlun
Þarft þú að leigja út íbjíð,
skrifstofuhúsnæði eða aðra fasteign.
Skráðu þá eignina hjá okkur -
þér að kostnaðarlausu - í síma 5614000
eða á vef okkar
www.audlind.is/skraning.
Halo rekur meðal annars vefset-
ur á Internetinu þar sem hægt er
nálgast ýmis konar veðurfræðileg-
ar upplýsingar fyrir Ameríku og
Evrópu auk íslands. Fyrirtækiö
byggir vinnu sína alfarið á gögnum
frá bandarískri veðurfræðistofu,
sem Björn segir „að taki hlutverk
sitt alvarlega“ gagnstætt Veður-
stofu íslands sem ráði yfir sömu
gögnum en neiti að láta þau af
hendi.
Björn segii að
afstaða Veðurstof
unnar þýði meiri
vinnu og kostnað
fyrir Halo og tefji
eðlilega framþróun
í framsetningu
veðurupplýsinga.
„Notendur líða því
framganga Veður-
stofunnar er eins
og hemill á frekari
þróun á tækni- og
þjónustustigi í
greininni,“ segir
hann.
Magnús Jónsson veðurstofu-
stjóri segist ekki sammála sjónar-
miðum Halo.
„Við viljum ekki láta þá fá á
engu verði, eins og þeir vilja, ís-
lensk og erlend veðurgögn, sem
Veðurstofan hefur aðgengi að með
alþjóðlegum samningum fyrir hönd
íslenska ríkisins. Við höfum enga
HÖMLUR Á
VIÐSKIPTI
„Við erum ekki
markaðsstofnun"
segir Magnús
Jónsson veður-
stofustjóri
GJÖRNINGAVEÐUR Á VEÐURFRÆÐIMARKAÐI
Veðurfræðistofan Halo sakar Veðurstofu Islands um brot á samkeppnislögum
en veðurstofustjóri segir Veðurstofuna fara að lögum og aðeins vera að sinna
skyldu sinni við almenning.
heimild til að láta af hendi gögn,
sem verða til á öðrum veðurstöðv-
um í markaðslegum tilgangi," segir
um Magnús. „Þannig að við erum
ósammála Halo en að sjálfsögðu
verðum við auðvitað að hlýta úr-
skurði Samkeppnisstofnunar þegar
hann kemur."
Auk aðgangsins að veðurfræði-
gögnunum telur Halo að Veðurstof-
an selji á markaði alls kyns veður-
fræðiupplýsingar á stórlega niður-
settu verði. Þetta á m.a. um veður-
spár til dagblaða og ljósvakamiðla.
„Við erum ekki markaðsstofnun
og okkur er í raun óheimilt að hagn-
ast á þessu en eigum að selja okkar
vinnu á ákveðnu tímagjaldi sam-
kvæmt samþykki ráðuneytis. Þá má
ekki gleyma því að við höfum laga-
lega skyldu til að miðla veðurupp-
lýsingum til almennings," segir
Magnús.
gar@frettabladid.is