Fréttablaðið - 18.06.2001, Blaðsíða 11
FRÉTTABLAÐIÐ
MÁNUPACUR 18. júní 2001
Framkvæmdastjórn Landspítala- háskólasjúkrahúss:
Samþykkti nýja skipan
slysa- og bráðaþjónustu
slysapeilp Framkvæmdastjórn Land-
spítala - háskólasjúkrahúss hefur
samþykkt skipan slysa- og bráða-
þjónustu á allra næstu árum.
Mörkuð er sú stefna að slysa- og
bráðaþjónusta spítalans verði sam-
einuð á einum stað. Til þess þurfi
hins vegar annað hvort nýbyggingu
eða endurbyggingu sem varla verður
lokið við á næstu þremur til fjórum
árum. Ekki er tekin afstaða til þess
hvort slysa- og bráðaþjónustan verði
byggð upp í Fossvogi eða Hring-
braut. Það ráðist af þeirri stefnu sem
þurfi að marka í náinni framtíð um
uppbyggingu spítalans í heild. Meðal
annarra ákvarðana sem tengjast
samþykkt um skipulag slysa- og
bráðaþjónustunnar er að slysa- og
bráðamóttaka verði sameinuð um
næstu áramót í Fossvogi undir stjórn
slysa- og bráðasviðs. Móttakan byggi
á hugmyndafræði bráðalæknisfræð-
innar. Tvískipting bráðavakta milli
Hringbrautar og Fossvogs verði lögð
niður frá sama tíma. Sjúklingum sem
taldir eru vera með bráðakransæða-
stíflu verði beint á Hringbraut. í
Fossvogi er ekki gert ráð fyrir sjálf-
stæðri hjartadeild. Við Hringbraut
verði hjartadeild ætlað meginrými í
nábýli við hjartaskurðlækningar. Þá
er í samþykkt framkvæmdastjórnar
gert ráð fyrir því að innlagnastjóri
stýri bráðainnlögn og álagi milli
húsa. ■
ÓLAFUR SIGURÐSSON
Skólameistarinn er Reykvíkingur en starfaði í nokkur ár við Verkmenntaskóla Austurlands áður en hann kom í Grafarvoginn árið 1996
þegar Borgarholtsskóli hóf göngu sína. Hann var nýlega skipaður skólameistari.
Agi, virðing
og væntingar
Borgarholtsskóli stendur undir nafni sem íjölbrautarskóli. Frammistaðan
í spurningakeppninni endurspeglar mikla flölbreytni og breidd skólans,
segir nýr skólameistari, Olafur Sigurðsson.
framhalpsskóli. „Einkunnarorð skól-
ans eru í samræmi við skammstöfun
hans sem er BHS. Þau eru bókmennt,
handmennt og siðmennt," segir Ólaf-
—♦—
Það er viss
land-
nemastemmn
ing hjá starfs-
liði skólans.
ur Sigurðsson, nýr
skólameistari Borg-
arholtsskóla í Graf-
arvogi, og tekur
undir það að prýðis-
góður andi sé í skól-
anum. „Við höfum
—♦— einnig skýr leiðarjós
sem eru agi, virðing
og væntingar. Það er ekkert erfitt í
sjálfu sér að koma fram við nemend-
ur af virðingu, en við gerum líka
væntingar til þeirra og viljum bygg-
ja upp aga í þeirri jákvæðu merkingu
að fólk agi sig sjálft til góðra verka.“
Góður árangur skólans í spurn-
ingakeppni framhaldsskóla sl. vetur
vakti athygli en Ólafur segir hann
ekki hafa komið honum sérstaklega á
óvart. „Þetta eru mjög duglegir strák-
ar sem voru búnir að undirbúa sig
mjög vel. Frammistaðan sýnir fyrst
og fremst breidd skólans því hér
erum við með nánast allan skalann.
Við erum með öfluga bóknámsbraut
til stúdentsprófs, almenna námsbraut
fyrir þá sem standast ekki kröfur
samræmdu prófanna og sérnáms-
braut fyrir fatlaða nemendur sem
flestir koma úr Öskjuhlíðarskóla. Þá
erum við með nokkrar starfsnáms-
brautir auk hinna hefðbundnu iðn-
greina málmiðna og bílgreina, svo
sem starfsnám í félagsþjónustu,
verslun og upplýsinga- og fjölmiðla-
greinum." Einnig er skólinn með list-
námsbraut sem tengist margmiðlun-
arhönnun. „Okkar helsta sérstaða er
þessi fjölbreytni," segir Ólafur.
Það er fyrst næsta haust sem skól-
inn hefur úr allri byggingunni að
moða og segir Ólafur að auðvelt hafi
verið að fylla hann af nemendum, en
útlit er fyrir allt að 900 nemendur á
næsta skólaári, þar af rúmlega 400
nýnema. Þá er starfslið skólans að
nálgast 80 manns og lætur Ólafur vel
að því. „Þetta er mjög framsækið
fólk. Eins og alltaf í nýjum stofnun-
um þá er landnemastemmning og
gríðarlega mikið þróunarstarf unnið
hér.“
matti@frettabladid.is
Ný rannsókn:
Hár blóðþrýstingur
eykur líkur á alzheimer
heilsa Fólk með háan blóðþrýsting og
hátt kólesterólmagn í blóðinu á í mun
meiri hættu á að fá alzheimer-sjúk-
dóminn þegar það eldist, heldur en
hinir sem ekki eiga við þetta vanda-
mál að stríða.
Kemur þetta fram í nýlegri
finnskri könnun. Uppgötvun þessi er
talin vera mikilvægt vopn í barátt-
unni gegn þessum skæða sjúkdómi,
sem einn af hverjum fimm sem náð
hafa áttræðisaldri þjást af.
Að því er kemur fram á Reuters
segja þeir vísindamenn sem unnu að
könnuninni að niðurstöðurnar komi
til með að hjálpa mönnum við að
greina og meðhöndla þá sem eiga á
hættu að fá sjúkdóminn. ■
w
FYRIRTÆKJASALA
ISLANDS iiSSfSK
FYRIRTÆKI TIL SOLU
SÝNISHORN ÚR SÖLUSKRÁ
15
5160
Gissur V. Kristjánsson hdl. og
lögg. fasteigna- og fyrirtækjasali
SÖLUSTJÓRI
GUNNAR JÓN YNGVASON
Bókbandsstofa eitt elsta og þekktasta
fyrirtæki landsins í þessari grein, mikill
og góður búnaður.
Videoleiaa. þekkt og vinsæl leiga með
mikið úrval. Mjög góð velta.
Snvrtivöruumboð/heildsala þekkt
merki allt að 20 ára, vandaðar vörur
fyrir snyrtifræðinga og apótek.
Heildsala /verslsun með heimsþekkt
merki í kvennfatn.og fylgiv, þ.e undirf.,
skart, töskur, förðunarv og fl.
Sport-heild-oa smásala m/ vinsælt
og þekkt merki, fatnaður, skór o.fl.
samningar við íþróttafélög í gangi.
Atvinnuhúsnæð
Barnafataverslun í Krinalunni vel
staðsett, gott að gera, gott verð,
Trésmiðia rótgróin í eigin húsnæði
traust verkefnastaða, góður búnaður.
Veitinaastaður og bar í úthverfi borg-
arinnar, vel útbúið eldh, góðar innrétt,
gott að gera , risaskjár og fl.
Tölvuheildsala/verslun/verkstaeði m/
eginn innflun á þekktum merkjum í
tölvum og íhlutum, netverslun og fl.
TOPP söluturn með tæpar 50 milj í
veltu, 32% framl. Verð 12 milj+ lager
Bæiarflöt Grafavoai 1436 fm vandað
atvinnuhúsn, 7-8 m lofthæð á lager,
glæsilegar skrifst.og sýningar salur full
frágengin lóð. Áhv.77milj
Til leiou Bæiarlind Kóp glæsilegt
áberandi ca 420 fm verslunarhúsnæði
stórir og margir gluggar , innkeyrsluh,
góð bílastæði. Góð þekkt fyrirtæki eru í
næstu bilum.
Fiárfestar Lauaaveaur glæsilegt 293
fm endurnýjuð eign 10ára leigus. tekjur
5,4. verð 49,8 milj.áhv 36 m
Reylqavíkiiiborg
Borgarverkfrœðingur
Lóðir fyrir leiguhúsnæði í
Grafarholti
Reykjavíkurborg auglýsir eftir
umsóknum um byggingarrétt á þremur
lóðum í Grafarholti. Lóðunum verður
úthlutað til þess að á þeim verði reist
fjölbýlishús með leiguíbúðum. Askilið er,
að Félagsþjónustan í Reykjavík hafif.h.
skjólstœðinga sinna forgangsleigurétt að
allt að 20% íbúða á hverri lóð.
Um er að ræða þessar lóðir:
• Þórðarsveig 1-9,
• Þorláksgeisla 6 — 18 og
• Þorláksgeisla 20 — 34.
Borgarráð mun gefa fyrirheit um úthlutun bygg-
ingarréttar á ofangreindutn lóðum ef fulhiægjandi
umsóknir berast. Núgildandi deiliskipulag á
lóðunum verður endurskoðað að höfðu samráði
við væntanlega lóðarhafa áður en fonnleg úthlut-
un byggingarréttarins fer fram.
Umsækjendur skulu leggja fram með umsóknum
sínum stutta greinargerð og gögn, sem veita upp-
lýsingar um starfsemi umsækjanda á sviði hús-
bygginga eða húsnæðismála, um fjármögnun
fyrirhugaðra framkvæmda, fyrirhugað rekstrar-
fyrirkomulag leiguíbúðanna, áætlað leiguverð
íbúða eða viðmiðunargrundvöll leigu og annað,
sem máli kann að skipta. Umsækjendur skulu
vera reiðuhúnir til að gefa nánari upplýsingar
um fjárhagsstöðu. Athygli er vakin á því, að
endurnýja þarf eldri umsóknir.
Um lóðimar gilda sérskilmálar, auk þeina skil-
rnála sem að öðm leyti gilda um lóðir í Grafarholti,
og fást þeir afhentir á skrifstofu borgarverk-
fræðings, Skúlatúni 2, 3. hæð.
Brýnt er fyrir umsækjendum að kynna sér
rækilega þá skilmála, sem um lóðimar gilda.
Umsóknum skal skila til skrifstofu borgarverk-
fræðings, Skúlatúni 2, fyrir kl. 16:00 föstudaginn
29. júní 2001.
Nánari upplýsingar em veittar í síma 563 2300.
Borgarverkfrœðingurinn í Reykjavík