Fréttablaðið - 18.06.2001, Side 14
14
FRÉTTABLAÐIÐ
18. juní 2001 MÁNUDAGUR
HVERNIC FER?
KR-Keflavík?
ALBERT SÆVARSSON.
MARKVÖRÐUR
GRINDAVÍKUR
„KR-ingar hafa alltaf verið
í erfiðleikum með Kefla-
vík, en ég held samt að
þeir hysji upp um sig
buxúrnar núna og vinni
leikinn. KR vinnur 2-1."
KJARTAN EINARSSON,
SÓKNARLEIKMAÐUR
BREIÐABLIKS.
„Ég er alveg með það á
hreinu að KR tapar þess-
um leik 2-0. Þeir verða
þvl áfram við botn deild-
arinnar."
MOLAR
Jón Arnar Magnússon lenti í fjórða
sæti á Opna þýska meistaramótinu
í tugþraut, sem haldið var í Ratingen
um helgina. Jón
Arnar var í fimmta
sæti eftir fyrri
keppnisdaginn með
4139 stig. Hann end-
aði með 7938 stig.
Þjóðverjar urðu í
efstu þremur sæt-
unum. Ólympíu-
meistarinn Erki
Nool hætti keppni í 400 metra hlaupi.
• • /
Onnur umferð Islandsmótsins í
ralli, ESSO rallinu, fór fram á
Höfn í Hornarfirði á laugardaginn.
Feðgarnir, Rúnar
Jónsson og Jón R.
Ragnarsson, sigr-
uðu á Subaru
Impreza en þeir
voru tæpri mínútu á
undan Hirti Pálma
Jónssyni og fsak
Guðjónssyni. Hjör-
leifur Hilmarsson
og Jón Þ. Jónsson voru í þriðja sæti.
Leiðirnar, sem eknar voru á laugar-
daginn, voru torfærnar og flestum
ökumönnunum ókunnar.
Magnús Magnússon keilari vann
bronsverðlaun í einstak-
lingskeppni á Evrópumeistaramótinu
í keilu, sem fram
fer í Álaborg þessa
dagana. Magnús
náði 1402 stigum í
sex leikjum og urðu
aðeins Finninn Mika
Luoto með 1445 stig
og Svíinn Anders
Öhman með 1432
stig hærri. Alls
voru 135 keppendur. Þetta er í fyrsta
skipti sem íslenskur keilari kemst á
verðlaunapall á alþjóðlegu keilumóti.
Af afrekum annarra íslenskra kepp-
enda á mótinu má nefna 9. til 10. sæti
Elínar Óskarsdóttur í einstak-
lingskeppni kvenna.
Coca-Cola bikarinn:
Öll úrvalsdeildar-
liðin komust áfram
knattspyrna Engin óvænt úrslit litu
dagsins ljós í 32- liða úrslitum bikar-
keppni karla, Coca-Cola bikarnum
um helgina. Víkingur Reykjavík
sigraði Nökkva á Ármannsvelli með
fjórum mörkum gegn einu.
Á Keflavíkurvelli tapaði ung-
mennalið Keflavíkur fyrir KA með
þremur mörkum gegn engu.
Stjarnan fór létt með Árborg á
Selfossvelli 4-1, Sindri bar sigurorð
af Leiftri fyrir austan, 1-0.
Skagamenn virðast vera komnir á
skotskóna því þeir unnu sannfær-
andi sigur á Þór Akureyri, fyrir
norðan, 5-0.
Fram 23 ára og yngri tapaði fyrir
FH með tveimur mörkum gegn engu
og voru unglingarnir óheppnir að fara
ekki með sigur af hólmi. FH-ingar lei-
ddu leikinn með einu marki og hefðu
heimamenn auðveldlega getað jafnað
og komist yfir. Lukkudísirnar voru
hinsvegar ekki á þeirra bandi í þetta
sinn og FH skoraði síðasta markið og
er því komið í 16 liða úrslit.
GULIR OG GLAÐIR
Skagamenn fóru unnu sannfærandi sigur á Þórsurum fyrir norðan. Þór hefur farið mikinn
s.l. timabil en þurftu að játa sig sigraða fyrir þeim gulu.
Á hádegi í dag verður dregið um
hvaða lið mætast í 16- liða úrslitum
en eftirfarandi lið hafa tryggt sér
þáttöku. Úrvalsdeild: Grindavík,
ÍBV, ÍA, FH, Breiðablik, Valur,
Keflavík, Fylkir, KR, Fram. 1 deild:
KS, KA, Stjarnan, Víkingur R. 2.
deild: Sindri, .Víðir ■
Lokaumferð ítalska boltans:
Roma
meistari
knattspyrna AS Roma vann Parma 3-1
í gær í lokaumferð ítölsku knatt-
spyrnunnar og tryggði sér ítalska
meistaratitilinn, eftir átján ára bið.
Francesco Totti, Vincenzo Montella
og Gabriel Batistuta skoruðu mörk
Rómverja í gær en Maco Di Vaio
skoraði fyrir Parma.
Það var fyrirliðinn Francesco
Totti sem skoraði fyrsta mark leiks-
ins í gær á 19. mínútu, en flestir telja
að hann verði valinn leikmaður árs-
ins á ftalíu enda hefur hann sýnt feik-
na góðan leik með meisturunum.
„Þetta er sem draumi líkast,"
sagði Totti eftir leikinn. „Þetta hefur
verið draumur alla mína ævi.“
Montella skoraði annað markið, er
hann fylgdi eftir þrumuskoti Argent-
ínumannsins Gabriels Omars
ÆSTIR AÐDÁENDUR
Aðdáendur AS Roma rífa hér sundur mark-
ið á Ólympíuleikvanginum í Róm eftir að
heimamenn höfðu tryggt sér meistaratitil-
inn. Átján ára bið eftir meistaratitlinum var
loks lokið.
Batistuta. Batistuta innsiglaði síðan
sigur Rómverja er hann skoraði þrið-
ja markið með vinstri fótar skoti,
framhjá ítalska landsliðsmarkverðin-
um Gianluigi Buffon. Batistuta fagn-
aði vel en hann kom frá Fiorentina
fyrir þetta tímabil þar sem hann náði
ekki að vinna einn einasta titill.
Þúsundir aðdáenda ruddust inná
völlinn þótt enn væri nokkuð eftir af
leik og þurfti að reka þá aftur í sætin
enda hætt við að liðið fengi á sig sekt
fyrir skrílslætin.
Síðustu fimm mínútur leiksins
þrengdu þeir svo að lögreglu, sem
slegið hafði skjaldborg í kringum
völlinn, veifuðu fánum og sungu
„Grazie Roma, Grazie Roma“ (Takk
SERIA A
LEIKIR u J T MÖRK STIC
AS Roma 34 22 9 3 68:31 75
Juventus 34 21 10 3 61:27 73
Lazio 34 21 6 7 65:36 69
Parma 34 16 8 10 51:26 56
Inter Milan 34 14 9 11 47:47 51
AC Milan 34 12 13 9 56:47 49
Atalanta 34 10 14 10 38:34 44
Brescia 34 10 14 10 44:41 44
Fiorentina 34 10 13 11 53:52 43
Bologna 34 11 10 13 48:53 43
Perugía 34 10 12 12 49:53 42
Udinese 34 11 5 18 49:59 38
Lecce 34 8 13 13 40:54 37
Reggina 34 10 7 17 32:49 37
Verona 34 10 7 17 40:59 37
Vicenza 34 9 9 16 37:51 36
Napoli 34 8 12 14 35:50 36
Bari 34 5 5 24 30:65 20
BESTUR
Francesco Totti, fyrirliði Roma leiddi sína menn til sigurs í deildarkeppninni. Hann verður
að öllum líkindum valinn leikmaður ársins á Ítalíu.
Róma) sem er stuðningslag liðsins.
Það endaði með því að æstir áhan-
gendur þustu inn á völlinn og hófu að
rífa leikmenn úr treyjum og buxum.
Þetta er þriðji deildarmeistaratit-
ill Roma sem sigraði árin 1943 og
1983 en hafnaði einungis í sjötta sæti
í fyrra. Þetta var hinsvegar fimmti
titill þjálfarans Fabio Capellos, en
hann vann fjóra titla með hinu sögu-
fræga liði AC Milan.
„Við sýndum góðan karakter allt
tímabilið, frá upphafi til enda,“ sagði
Capello. „Aðdáendur okkar hafa ein-
staka ástríðu sem hjálpaði okkur
mikið í baráttunni." ■
Sölufólk
óskast!
Blindrafélagið stendur fyrir merkjasölu.
Okkur vantar hresst og duglegt
sölufólk til starfa.
Góð sölulaun í boði.
Nánari upplýsingar á skrifstofu félagsins
í síma 525 0000 alla virka daga
á milli 8:30 og 16:00.
Blindrafélagið
Grindavík í Intertotokeppninni:
Olafur Örn tryggði sigurinn
knattspyran Grindvíking-
ar báru sigurorð á FC
Vilash frá Azerbaísjan í
Intertotokeppninni í gær
með einu marki gegn
engu. Það var fyrirliðinn,
Ólafur Örn Bjarnason
sem tryggði Grindvíking-
um sigurinn úr víta-
spyrnu.
Fyrri hálfleikur var
nokkuð fjörugur og sóttu
Grindvíkingar stíft. Þeir
fengu þó nokkur færi en
áttu erfitt með að finna
réttu leiðina í net-
möskvana. Tvö hættuleg-
ustu færin sem heima-
menn fengu enduðu í hlið-
arneti gestana
Seinni hálfleik byrj-
uðu heimamenn af sama
krafti en náðu ekki að
nýta sér færin fyrr en á
83. mínútu þegar Sinisa Kekic var
felldur innan teigs og dæmd var
vítaspyrna. Það var sem fyrr segir
Við þurftum bara að
skora fleiri mörk,“ sagði
Rúnar Sigurjónsson, for-
maður meistaraflokks-
ráðs knattspyrnudeildar
Grindavíkur í samtali
við Fréttablaðið. Seinni
leikur liðanna verður
háður í Azerbaísjan á
sunnudaginn komandi og
verður róðurinn eflaust
erfiður. „Ég tel okkur
eiga mikla möguleika á
að komast áfram miðað
við hvernig leikurinn
þróaðist í dag. Maður
veit samt aldrei," sagði
Rúnar.
Grindvíkingar vígðu í
dag áhorfendastúku við
nýjan knattspyrnuvöll
en stúkan rúmar 1.500
manns í sæti. Rúmlega
1.000 manns komu sér
fyrir í nýju stúkunni og var það mál
manna að vel hefði tekist til við gerð
hennar. ■
FAGNA FYRIRLIÐANUM
Leikmenn Grindavíkur fagna hér fyrirliðanum, Ólafi Erni Bjarnasyni. Hann skoraði
eina mark leiksins eftir vítaspyrnu
Ólafur Örn Bjarnason sem tryggði
liðinu sigur úr spyrnunni.
„Þetta var bara mjög glæsilegt.