Fréttablaðið - 23.07.2001, Qupperneq 2
FRÉTTABLAÐIÐ
KJÖRKASSINN
EKKI KOMIÐ NÓC
Þrír af hverjum fimm
kjósendum vilja fá
meira að heyra af mál-
um Árna Johnsen.
Er komið nóg af fréttum af
máli Árna Johnsen?
Niðurstöður gærdagsins
á www.visir.is
Spurning dagsins í dag:
Eru íslendingar að leggja sitt af mörkum
til að draga úr útblæstri gróðurhúsaloft-
tegunda?
Farðu inn á vísi.is og segðu
þina skoðun I
___________
ABDURRAHMAN WAHID
Tilskipun var lesin í sjónvarpi fyrir hönd
forseta Indónesfu, en sjón hans er orðin
takmörkuð.
Indónesía:
Wahid verst
vantrausts-
tillögu
jakarta. ap Abdurrahman Wahid,
forseti Indónesíu, gaf út tilskipun
þess efnis seint í gær að löggjöf
landsins verði vikið frá til að
koma í veg fyrir að vantrauststil-
laga þingsins á hendur honum nái
fram að ganga. Hann hefur oft
hótað að lýsa yfir neyðarástandi í
landinu til að verja embætti sitt,
en ekki var Ijóst hvort hann léti
verða af því að þessu sinni. And-
stæðingar forsetans saka hann
um spillingu og almennt vanhæfi.
Andstaðan hefur magnast síðstu
daga og í gær var 70 skriðdrekum
raðað upp gegnt forsetahöllinni. ■
Bensínlækkun:
Ekkert
ákveðid
SAMCðNCUR Þetta er bara í skoðun,
ég get ekki svarað þessu núna.
Það hefst ný vinnuvika á morgun
og við fylgjumst bara með. Það er
ekkert svoleiðis í pípunum svo ég
viti. Fyrir hver mánaðamót þá
stúderum við markaðinn eins og
venjulega og gerum það núna
líka.“, sagði Einar Marinósson
fjármálastjóri Olís, aðspurður um
hvort lækkun á bensíni væri fyr-
irhuguð. Kristinn Björnsson for-
stjóri Skeljungs tók í sama streng,
„ég get ekkert sagt um þetta, við
erum bara að horfa á hlutina og
kanna þetta.“ Hann sagði það
„kunna að vera“ að mál þessi
skýrðust í vikunni. ■
—#—
Banaslys í Vestmanna-
eyjahöfn:
Maður féll
úr stiga
slys Banaslys varð um borð í bátn-
um Smáey VE í Vestmannaeyja-
höfn á laugardagsmorgun. Tæp-
lega fertugur karlmaður lést er
hann féll úr stiga. Hann var einn
um borði í bátnum þegar slysið
varð og er ekki vitað nánar um til-
drög þess. Maðurinn sem lést hét
Guðjón Kristinn Matthíasson til
heimilis að Heiðarvegi 51 í Vest-
mannaeyjum. Hann lætur eftir
sig sambýliskonu og þrjú börn. ■
2
23. júlí 2001
MÁNUAGUR
Leiðtogafundurinn í Genúa:
Ekkert samkomulag
um gróðurhúsaáhrif
cenúa. ap. George Bush, Banda-
ríkjaforseti, og Vladimir Putin,
Rússlandsforseti, gáfu sameigin-
lega yfirlýsingu í gær um að eld-
flaugavarnaráætlun Bandaríkja-
manna muni haldast í hendur við
fækkun kjarnorkuvopna. Svo fór
því ekki að fundur sjö stærstu iðn-
ríkja heims, ásamt Rússlandi, tæki
enda án þess að fjallað yrði um
deilu Bandaríkjanna og Rússlands.
Leiðtogarnir átta samþykktu að
beita sér fyrir alþjóðavæðingu
með hagsmuni fátækari þjóða að
leiðarljósi. Þeim sé best borgið
með því að hjálpa þeim til að fá að-
gang að heimsmarkaði. Þá var
samþykkt að stofna alþjóðlegan
sjóð sem ætlað er að berjast gegn
útbreiðslu HlV-veirunnar, malaríu
og berkla. Einnig voru leiðtogarnir
áhugasamir um að auka vægi end-
urnýtanlegrar orku í heiminum.
Að öðru leyti er fundurinn í
Genúa talinn hafa einkennst af
umræðum á bakvið tjöldin um
Kyoto-samkomulagið. Jacques
Chirac hvatti m.a. Kanada og Jap-
an til þess að láta ekki undan þrýst-
ingi Bandaríkjanna um að hverfa
MÓTMÆLI
Lögregla fjarlægir varnargirðingu í miðborg
Genúa í gær. IMótmælandi var skotinn til
bana af lögreglu og rúmlega 400 særðust í
átökum föstudags og laugardags í Genúa.
frá samkomulaginu. Eins og búist
hafði verið við staðfesti Bush við-
horf sitt um að samkomulagið frá
1997 sé ótækt vegna skaðlegra
áhrifa sem það muni hafa á Banda-
rískt efnahagslíf. ■
|lögreglufréttir| ~
Maður keyrði á ljósastaur á
Reykjanesbrautinni um sex-
leytið í gær en lét það ekki aftra
sér og hélt upp í Heiðmörk þar
sem hann velti bílnum. Leigubíl-
stjóri varð vitni að óhappinu og
veitti bílum eftirför. Eftir veltuna
hélt ökumaður enn áfram en var að
lokum stöðvaður af lögreglunni. þá
kominn upp í Breiðholt. Maðurinn
er grunaður um ölvun við akstur
IGyrrakvöld barst mikill hávaði
úr húsi í Garðbæ en þar stóð yfir
mikið samkvæmi. Þegar lögreglan
kom á vettvang til þess að leysa
samkvæmið upp var gerður aðsúg-
ur að henni. Tveir piltar spörkuðu í
sinn hvorn lögreglubílinn með
þeim afleiðingum að dyrnar á öðr-
um bílnum skemmdust töluvert.
Enn er reynt að bjarga
Kyotobókuninni
Islendingar sammála grundvallaratriðum miðlunartillögu Jan Pronk. Gætum þá aukið útblástur
um 75%. Meðgjöf til áliðnaðarins upp á 2 milljarða segir Arni Finnsson.
umhverfismál Reynt var til þrautar
í gærkvöldi að ná samkomulagi um
Kyotobókunina á loftslagsráð-
stefnunni í Bonn. Jan Pronk forseti
ráðstefnunnar lagði fram tvær
miðlunartillögur til að freista þess
að ná samkomulagi. Þar er gert ráð
fyrir 10% aukningu á útblást-
urskvóta íslendinga, miðað við
fyrri útgáfu Kyoto-bókunarinnar.
Fyrir var gert ráð fyrir því að
hægt væri að auka
. , ., útblástur um 10%
„Það er verið 0g fði íslendingar
að gera alltof undanþágu frá
litlar kröfur til bókuninni eins og
áliðnaðarins stefnt að er það
meðþvíað þýðir þaö 55 % í
þeir þurfi viðbót. Árni Finns-
engu að kosta Son segir tillögu
til vegna gróð- Pronks því fela í
urhúsaloftteg- sér að íslendingar
unda sem þeir geti, fái þeir und-
sleppa út í anþáguna, aukið
andrúmsloft- útblástur um 75%.
ið." „Það er verið að
4— gera alltof litlar
kröfur til áliðnað-
arins með því að þeir þurfi engu að
kosta til vegna gróðurhúsaloftteg-
unda sem þeir sleppa út í andrúms-
loftið." Hann segir að þetta þýði að
íslenska ríkið sé að semja um af-
slátt fyrir áliðnaðinn á íslandi upp
á tæpa 2 milljarða króna miðað við
það verð sem British Petrolium
reikni með að hvert tonn gróður-
húsalofttegunda muni kosta þegar
viðskipti með slíkan kvóta hefjist.
Umhverfisrápherrar Norður-
landanna utan íslands sendu frá
sér bókun þar sem lýst var stuðn-
ingi við^ fyrri miðlunartillögu
Pronks. Árni Finnsson segir það
reginhneyksli að Siv Friðleifsdótt-
ir undirritaði ekki yfirlýsinguna.
Hann segir skýringuna vera þá að
ísland hafi ekki viljað styggja ríki
YORIKO KAWAGUCHI UMHVERFISRÁÐHERRA JAPAN OG JAN PRONK UMHVERFISRÁÐHERRA HOLLANDS OG FORSETI
LOFTSLAGRÁÐSTEFNUNNAR í BONN.
HSIV FRIÐLEIFSDÓTTIR
segir Islendinga standa
við bakið á Jan Pronk,
þrátt fyrir að hafa ekki
undirritað sameiginlega
stuðningsyfirsýsingu
norrænna umhverfisráð-
herra.
eins og Kanada og Japan vegna
þeirrar undanþágu sem íslending-
ar vilja fá á síðari stigum samn-
ingaferlisins.
Siv Friðleifsdóttir umhverfis-
ráðherra neitar þessu og segir
ástæðuna vera þá að íslendingar
hafi metið það svo að umræðurnar
væru á viðkvæmu stigi og því ekki
tímabært að gefa út slíka yfirlýs-
ingu. „Við höfum staðið þétt við
bakið á tillögu Jan Pronk og teljum
tillögu hans ásættanlega fyrir al-
þjóðasamfélagið."
Siv segir undanþágu ákvæði ís-
lendinga ekki vera til umræðu á
ráðstefnunni, heldur hafi hún snú-
ist um stóru grundvallaratriðin.
Hún segir að undanþágutillagan
verði hins vegar uppi á borðinu á
síðari stigum.
Dennis Tamlin hjá World Wild-
life Fund for Nature segir að fái
íslendingar undanþágu frá
Kyotobókuninni, skapi það for-
dæmi fyrir fátækari lönd. „Það
er mikið horft til Norðurland-
anna og ef eitt þeirra er að fá
undanþágu getur reynst erfitt að
standa gegn því hjá öðrum. í sjál-
fu sér hafa öll ríki einhverjar
séróskir ef út í það er farið, en
menn verða að leggja slíkt til
hliðar, sérhagsmunir verða að
víkja fyrir þeirri hættu sem
steðjar að heiminum." ■
2% vinnandi fólks í
Smáralind í ágúst
Verslunarmiðstödin sem verður opnaruð 10.
október verður nokkurs konar yfirbyggt sam-
félag fyrir 25 þúsund manns.
smáralind „Nú eftir verslunar-
mannahelgi verða hér á milli 700 og
1000 manns að störfum, fyrir utan
þá sem eru að vinna að framleiðslu
úti í bæ, sem verða um 1000 manns.
Þetta verða því tæp tvö þúsund
manns fyrir utan verslunarfólk það
sem hér á eftir að koma að störfum.
Mér telst til að þetta verði því hátt
á annað prósent af vinnuafli í land-
inu,“ segir Pálmi Kristinsson fram-
kvæmdastjóri Smáralindar ehf.,
sem ráðgert er að opna 10. október.
Pálmi vill líkja hinum 63 þúsund
fermetrum við yfirbyggt samfélag,
nokkurs konar þorp. Auk fjölda
verslana, verður ýmis þjónusta á
staðnum, veitingahús, bj'óhús, bank-
ar og fleira. Vörugeymsla verður í
kjallara „þetta verður klárlega
stærsta matarforðabúr landsins."
Aðspurður um það hvort allt verði
frágengið á staðnum þegar hann
verður opnaður í október, sagði
Pálmi það verða svo, hvað varðar
þann þátt sem sýnilegur verður við-
skiptavinunum, en ýmislegt mun þó
þarfnast frekari slípunar „bak-
sviðs“, til að mynda stillingar á loft-
ræstikerfinu. Fljótlega eftir versl-
unarmannahelgi kemur starfsfólk
hverrar verslunar fyrir sig, að
FJÖLMENNUR VINNUSTAÐUR
Við verðum með hátæknivætt upplýsingakerfi sem getur gefið okkur upplýsingar um bíla-
fjölda og eins verða fólksteljarar við alla innganga, segir Pálmi Kristinsson.
hönnun og undirbúningi fyrir opn-
unina. Við sumar verslananna er
vinnu verktakans nánast lokið.
„Þetta er mjög langt komið af hálfu
Istaks, lokið er við flísalagningu á
gólfi, handrið eru á leiðinni og lyft-
urnar koma hingað tilbúnar.
Hér mega vera 25 þúsund
manns samkvæmt eldvarnarreglu-
gerðum, en hvað rými varðar gætu
verið hér um 50 þúsund manns.
Bílastæðin verða fyrir 3000 bíla
þannig að ef þorpið fyllist af fólki
þá gætu skapast vandamál." Raf-
stöðvar í Smáralind eru öflugar,
„hér höfum við orku umfram orku-
þörf byggingarinnar og því er
möguleiki á að selja út á bæjarkerf-
ið i neyðartilvikum. Ef allt verður
rafmagnslaust á höfuðborgarsvæð-
inu í desember þá eigum við orku
aflögu.“ ■