Fréttablaðið - 23.07.2001, Page 11

Fréttablaðið - 23.07.2001, Page 11
MÁNUPAGUR 23. júlí 2001 FRÉTTABLAÐIÐ 11 Drukkin og próílaus: Kona beit lögregluþjón ÖLVUNARAKSTUR Lögreglan í Reykjavík stöðvaði Ijóslausa bif- reið í Ártúnsbrekku aðfararnótt sunnudagsins. Kona sem sat und- ir stýri var áberandi ölvuð og taldi afskipti lögreglunnar af sér hina mestu ósvinnu. Brást hún hin versta við hrækti á lögreglu- þjóna og náði að bíta einn þeirra. Við nánari eftirgrennslan kom svo í ljós að auk ölvunaraksturs- ins og ljósleysis bifreiðarinnar hafði konan ekki ökuréttindi. Hún var flutt í fangageymslu lög- reglunnar og síðan til yfir- heyrslu. ■ INNLENT yrla Landhelgisgæslunnar sótti slasaðan mann eftir umferðarslys á Snæfellsnesi. Meiðsli mannsins reyndust minni en leit út fyrir í fyrstu. Mikill mannfjöldi var á Snæ- fellsnesi um helgina og að sögn lög- reglunnar í Stykkishólmi voru tjald- stæðin á svæðinu nánast full. —. Mikið var um ferðamenn á Vest- fjörðum. Harður árekstur varð við Drangsnes í gærmorgun þegar ökumaður blindaður af sól keyrði aftan á bíl sem hafði stansað vegna sólblindunnar. Bílarnir skemmdust mikið og lögreglan á Hólmavík segir bílbelti hafa bjargað því að ekki urðu slys á mönnum. Almennt keyrðu menn á löglegum hraða í umdæmi Hólmavíkurlögreglu en mikil umferð var á svæðinu. ■ ÁSTARGANGAN Þær voru á meðal 800.000 teknó-aðdáenda sem skemmtu sér hið besta þrátt fyrir að há- tíðin hafi frestast og skipuleggjendur hafi verið skildir eftir í fjárkröggum. Berlín: Færri í Astargöngu berlín. ap „Teknó“-þyrstir gestir hinnar árlegu Ástargöngu í Berlín sem haldin var um helgina voru mun færri en búist hafði verið við. Skipuleggjendurnir rekja fækkun- ina til þess að þeir urðu að fresta hátíðinni um tvær vikur vegna þess að umhverfisverndarsinnar höfðu þegar tryggt sér rétt til að mótmæla annan laugardag júlí- mánaðar, sem er hinn hefðbundni Ástargöngudagur. Þeir gripu til þess ráðs að „stela“ deginum til að mótmæla þeim óþrifnaði sem þeir segja fylgi æstum múgnum. í kjöl- farið hættu margir stuðningsaðilar við að taka þátt í fjármögnun Ást- argöngunnar og segjast skipu- leggjendur hafa tapað jafnvirði um 67 milljóna króna vegna þess. Klaus Wowereit, borgarstjóri Berlínar, sagði stefnu borgarinnar að halda í Ástargönguna. 800.000 manns tóku þátt um helgina sam- anborið við rúma milljón manns í fyrra. Skipuleggjendur vonast eft- ir því að borgaryfirvöld sýni stuðning sinn í verki og hlaupi und- ir bagga hvað varðar fjármögnun að þessu sinni. ■ GEYMSLUSKÚRINN SEM BRANN Það var uppi fótur og fit í Bústaðahverfinu f gær þegar kviknaði í verkfæraskúr en eftir að slökkvilið hafði beitt öflugum vatnsdælum var látið nægja að dreypa úr garðslöngu til að halda glóðum i skefjum. Reykmökkur og eldhaf í Bústaðahverfi: Dularfullur skúrbruni eldsvoði Geymsluskúr úr timbri á baklóð húss við Bústaðaveg eyði- lagðist í eldi laust fyrir hádegi í gær. Mikinn og svartan reyk lagði hátt upp af frá baklóðinni upp úr klukkan ellefu og dreif að nokkurn mannfjölda úr nágrenn- inu til að fylgjast með brunanum. Þegar klukkan var um 20 mínútur yfir ellefu stóð skúrinn í björtu báli. Slökkvilið var þá komið á staðinn og slökkti eldinn fljótt og örugglega. Ekkert rafmagn var á skúrnum en eitthvað var af eldfimum efn- um í honum, til dæmis var þar bensínsláttuvél, og breiddist eld- urinn því mjög hratt út. Hjá slökkviði fengust þær upplýsing- ar að enginn hefði verið í hættu vegna eldsins. Mikill trjágróður er hins vegar umhverfis skúr- stæðið og við húsin í kring og hefði eldurinn geta borist víða um ef ekki hefði gengið eins vel og raun bar vitni að ráða niðurlögum hans. íbúar hússins voru staddir út í garði þegar kviknaði í en þeir gátu ekki gefið slökkviðliðinu skýringar á eldinum og að sögn lögreglu sem rannsakar málið eru eldsupptök enn ókunn. ■ hamingju dagar CITROÉN i6. júli-3. ágúst 2001 j Komdu fagnandi og gerðu góð kaup Frábærar viðtökur Nú höfum við afhent íoo. Citroén- bílinn og i tilefni af þvi höldum við Hamingjudaga Citroén í Reykjavík og á Akureyri. Komdu og gerðu frábær kaup. Hamingjutilboð Kaupir þú Citroén Xsara eða Xsara Picasso á Hamingjudögum fylgja álfelg- ur, skyggðar rúður, vindskeið og króm á pústið með í kaupunum. Qtroen Xsara Mcasso QtroenXsara Sérlega glæsilegur 5 dyra fjölnotabíll með einstöku geymslu- og farangursrými. Frábærir aksturseiginleikar, þétt veggrip og seiðandi mýkt einkenna Citroén Xsara. HORFÐUINYJA ATT-SJAÐU OTROÉN www.biimborg.is Raykjavík Brimborg Bildshöfða 6 Sími 515 7000 Akureyri Brimborg Tiyggvabraut 5 Simi 462 2700 Reyiarfjörður Biley Búðareyri 33 Simi 474 I453 Seltoss Betri bilasalan Hrísmýri 2a Simi 482 3100 Reykjaaesbar Bilasalan Bilavfk Njarðarbraut 15 Sími421 7800 bnmborg

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.