Fréttablaðið - 23.08.2001, Síða 22

Fréttablaðið - 23.08.2001, Síða 22
HRAÐSOÐID [ MAGNÚS MÁR MAGNÚSSON Veðurstofu fslands Skipti mestu hvað úrkoman kom hratt niður HVAÐ er það sem veldur aurskriðum? Það eru fyrst og fremst jarðlög- in, hvernig undirlagið er og síðan er það úrkoman, hversu hratt hún kemur og svo skiptir tíðar- farið sem á undan er máli. Ef t.a.m. miklir þurrkar eru búnir að vera þá getur það haft áhrif hversu mikið vatn fer niður og bindingin inn í jarðlögunum. Það getur haft stór áhrif. En það sem gerðist þegar aurskriðurnar voru á Austfjörðunum er að úrkomu- magniö var mikið, hvað það kom hratt niður. HVAÐA byggðarlög eru það fyrst og fremst sem verða fyrir hamför- um að þessu tagi? Það eru engin sérstök byggðar- lög, þetta getur gerst út um allt land. Það eru reyndar þessir úr- komustaðir, þar sem mikil úr- koma er, sem eru hættara við þessu frekar en aðrir staðir en við getum ekki tekið út neina landshluta eða nein byggðarlög. Þetta er mismikið og það fer mikið eftir úrkomunni. HVAÐA varúðarráðstafana er hægt að grípa til varnar aurskriðum? Það er ýmislegt hægt að gera. Það sem hefur verið gert er að setja upp varnargarða. Einnig hefur verið gengið frá ræsum og séð til þess að farvegir séu hreinir. Það sem vill oft gerast er að það koma einhverjar aurskrið- ur og þá hreinsa farvegirnir sig, síðan gróa þeir og fyllast þá aft- ur og þegar næsta flóð gerist er ekki fyrir hendi eðlilegur far- vegur fyrir skriðurnar. Magnús Már Magnússon er jarðeðlis- fræðingur að mennt og sérfræðingur í snjóflóðum. Hann hefur unnið á Veður- stofu íslands síðan árið 1988. 22 W’V*, PP&'f FRETTABLAÐIÐ 23. ágúst 2001 FIIVIIVITUDAGUR 'Karl Bretaprins og Gamilla Parker Bowles: Meirihluti Breta vill giftingu london. ap. Þrátt fyrir að Karl Bretaprins þurfi að fá leyfi frá móður sinni til að giftast ástkonu sinni til margra ára, Camillu Park- er Bowles, þá hefur hann þegar fengið samþykki almennings í Bretlandi. Samkvæmt skoðana- könnun sem birt var í breska dag- blaðinu The Guardian í gær eru 43% Breta samþykkir því að Karl giftist Parker Bowles. 32% Breta eru hins vegar á öndverðri skoðun og 26% eru ekki vissir í sinni sök. Svo virðist sem almenningur í Bret- landi sé smám saman að taka sam- band þeirra í sátt því í svipaðri könnun árið 1998, aðeins ári eftir lát Díönu, voru 46% Breta á móti því að Karl gifti sig aftur en aðeins 35% voru því samþykkir. Fari svo að Karl og Parker Bowles giftist er ljóst að meirihluti Breta, eða 70%, eru á móti því að Parker Bowles verði drottning um leið og Karl tek- ur við krúnunni. Erfingjar bresku krúnunnar þurfa samþykki konungsveldisins til að giftast, en Karl stendur fyrir KARL OG PARKER BOWLES Breskur almenningur virðíst vera búinn að taka samband þeirra i sátt. öðru vandamáli sem er það að fyrr- þeim toga. Auk þess er hætta talin á verandi eiginmaður Parker Bowles því að Karl muni sverta minningu er enn á lífi og líta ensk kirkjuyfir- Díönu heitinnar prinsessu með því völd illum augum á hjónabönd af að giftast aftur. ■ FRÉTTIR AF FÓLKI I Borgarráð Reykjavíkur sam- þykkti á föstudag að ráða Sigurð Ármann Snævarr í stöðu borgarhagfræðings. Sigurður er þjóðþekktur hagfræðingur úr starfi hjá Seðlabankanum en ráðning hans mætti nokkurri andstöðu borgarráðsfulltrúa Sjálfstæðisflokksins sem bók- uðu að í raun hefði embætti borgarhagfræðings verið lagt niður við stjórnkerfisbreytingar 1998 en fram að þeim tíma var borgarhagfræðingur yfirmaður fjármála- og hagsýsludeildar borgarinnar. Nú sé þetta hins vegar orðið undirmannsstarf á fjölskyldu- og þróunarsviði, sem sé hvergi að finna í skipuriti borgarinnar. Þótti minnihluta- mönnum sérkennilegt að undir- mannsstarfið fengi svo fínan tit- il, með tilliti til þeirrar sögu. Þó svo KR-ingum gangi illa í fótbolta þá er ástandið ekki svo slæmt að þeir reyni ekki fyrir sér í öðrum íþróttum. Á laugardag ætla þeir að reyna með sér í golfi - en árlegt golf- mót KR fer fram á Hellu á laug- ardag - en keppni hefst snemma dags - eða um hálf ellefu. Miðað við gengi fótboltamanna félags- ins er KR-ingum kannksi hollast að keppa hver við annan. Þá er allavega öruggt að KR-ingur fer með sigur af hólmi. Golfmótið er í umsjón tveggja félags- manna, en það eru félagarnir Guðmundur Kr. Jóhannesson í Nærmynd og Sæbjörn Guð- mundsson tannlæknir. Meira um KR. Meðal félags- manna eru hafnar miklar vangaveltur hvað taki við þegar þessari hörmungartíð félagsins lýkur. Sumir vilja leita eftir hæfustu þjálfurum landsins - á meðan aðrir vilja umfram allt að einhverjum KR-ingi verði falið það hlutverk að rífa fót- boltaliðið upp á afturendandum. Til þess hafa flestir nefnt Will- um Þór Þórsson, en hann er þjálfari Hauka og er að ná því ágæta liði upp um tvær deildir á tveimur árum. Hvar sem KR endar þessa göngu, í fyrstu deild eða úrvaldsdeild, má ör- uggt teljast að mikilla frétta sé að vænta úr herbúðum núver- andi íslandsmeistara. Aðeins tveir leikmenn félagsins eru með lausa samninga, en það eru gamlingjar liðsins; Þormóður Egilsson fyrirliði og Sigursteinn Gíslason. Enn og aftur KR. Slakt gengi liðsins hefur orðið til þess að heimasíða KR-klúbbsins hefur verið morandi í athugasemdum - bæði nettum og grófum frá hinum og þessum - bæði KR- ingum sem stuðningsmönnum annarra liða. Nú hafa KR-ingar gripið til þess ráðs að aftengja spjallið. Þar er ekki lengur hægt að lesa hug þeirra sem hafa tjáð sig og ekki er heldur hægt að setja inn nýjar athuga- semdir eða segja sínar skoðanir. Annar vefur, sem heitir kr-ing- ar.is hefur einnig aftengt spjall- svæði sitt. Þögnin hefur tekið völdin í vesturbænum. TÓBAKSVERSLUNIN BJÖRK Gluggaútstilling verslunarinnar hefur vakið töluverða athygli vegfarenda. Varúd, Vctrúð, tóbaksvöruverslun Tóbaksverslun med nýstárlega gluggaútstillingu. Segir tilganginn augljósan. verslun Þeir sem hafa lagt leið sína í Bankastrætið undanfarna daga hafa ekki komist hjá því að sjá gluggaútstillingu Tóbaksversl- unarinnar Bjarkar en þar hefur verið tjaldað fyrir nema að tvö göt hafa verið gerð á dúkinn og þar má sjá tölvu sem sýnir hinar ýmsu upplýsingar um varninginn sem verslunin selur. Fréttablaðinu lék forvitni á að vita hvað eigendum gengi til og hafði samband við Sölva Óskarsson. „Okkur þótti sjálfsagt að láta vita af þessari sjö- tíu og fimm ára gömlu verslun og benda í leiðinni á það sem er að gerast í kringum okkur í þjóðfé- laginu.“ Sölvi var spurður að því hvort þetta væri einhvers konar andóf gegn tóbaksvarnarlögunum. „Það hlýtur hver að sjá tilganginn með þessu en hér er um að ræða verslun sem hefur verið gefið leyfi til að selja tóbaksvörur sem lögum samkvæmt mega síðan ekki sjást.“ Sölvi sagðist hafa fengið feiki- lega góð viðbrögð vegfarenda við útstillingunni en hugmyndasmið- SÖLVI ÓSKARSSON Segir tilganginn útstillingarinnar augljósan og tala sfnu máli. urinn að henni er verslunarstjór- inn Óskar Sölvason sem jafnframt er sonur Sölva. Sagði hann fólk hafa verið að koma inn alla helgina og þakka gott framtak og þar hefðu ekki einungis reykingarfólk verið á ferðinni. Sölvi hefur jafn- framt komið fyrir viðvörunarskilti fyrir ofan búðina sem á stendur Varúð, varúð, tóbaksvöruverslun. „Þarna gefum við fólki kost á að fara yfir götuna ef því skyldi mis- líka það sem verslunin býður upp á - þannig að það ætti að vera lýð- um ljóst að ég er ábyrgur kaup- maður,“ sagði hann glettnislega. Sölvi vildi að lokum koma á framfæri varnarorðum til blaða- mannsins og benda honum á að samkvæmt nýju tóbaksvarnarlög- unum sé ekki heimilt að fjalla um tóbak á jákvæðan hátt. Blaðamað- ur þakkar varnaðarorðin en þykist ekki vera með þessum skrifum að mæla reykingum bót. kolbrun@frettabladid.is Samfylkingarfólk þarf að leita að eftirmanni Agústs Einars- sonar, en hann hefur gefið út að / hann verði ekki H W • 7 áfram formaður framkvæmda- stjórnar flokks- ins. Ekki er ljóst hvort hinn al- menni flokksmaður sé áhyggju- fullur um hver muni gegna þessu hlutverki í næstu framtíð. Þrátt fyrir það er verið að leita að arftakanum. Þau nöfn sem helst eru nefnd eru riöfn Marðar Árnasonar og Ásu Richards- dóttur. Áður hafa Helgi Hjörvar og Einar Már Sigurðarson verið nefndir. Líttu á þetta svona. Þú hækkar útgjaldarliðinn minn, þannig höldum við peningunum innan fjölskyldunnar.

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.