Fréttablaðið - 14.09.2001, Blaðsíða 4
SVONA ERUM VIÐ
FJÖLDI MÁLA FÉLAGSÞJÓNUSTUNN-
AR f BORGINNI ÁRIÐ 2000
Hér má sjá samanburður á fjölda fjárhags-
aðstoðarmála Félagsþjónustu Reykjavíkur-
borgar á siðasta ári. Flestir sem þurfa á
fjárhagsaðstoð að halda eru atvinnulausir
eða öryrkjar.
Atvinnulaus
910
Öryrki
495
f launavinnu
350
Nemi
275
Sjúklingur
210
rtui
ilífeyrisþegi
50
Heimild: Félagsþjónustan í Reykjavík 2001
'fréttáblAðið'
14. september 2001 FÖSTUDÁGUR
HJÁLMINN OFAN
Verkamenn í skipasmíðastöðinni í Kiel
„Howaldtswerke - Deutsche Werft AG"
lögðu niður vinnu eins og fleiri Þjóðverjar.
Minningarathöfn:
Fimm mín-
útna þögn í
Þýskalandi
árás Á ameríku Fimm mínútna
þögn ríkti í Þýskalandi í gær-
morgun þegar Þjóðverjar vottuðu
fórnarlömbum árásar hryðju-
verkamanna á Bandaríkin samúð
sína. Starfsfólk í fyrirtækjum,
verksmiðjum, verslunum og opin-
berum stofnunum um allt landið
tóku þátt í athöfninni, sem hófst
klukkan tíu að staðartíma, og
lögðu niður vinnu.
Víða um Evrópu hafa verið
haldnar athafnir til að minnast
fórnarlamba árásanna síðastliðin
þriðjudag. ■
Fjölskylduharmleikur:
Slapp úr
turninum, en
systir í vélinni
ÁRÁS Á ameríku írskur maður,
Ronnie Clifford að nafni, þakkaði
sínum sæla fyrir að hafa sloppið
út úr World Trade Center í New
York áður en turnarnir hrundu á
þriðjudag. Hann fékk þó slæmar
fréttir skömmu síðar, þegar í ljós
koma að systir hans og dóttir
hennar höfðu verið um borð í
fyrri flugvélinni sem flogið var
beint á annan turn World TVade
Center. Clifford hafði flúið sem
fætur toguðu eftir að fyrri flug-
vélin skall á öðrum turninum, en
hann var staddur í hinum turnin-
um og hafði komist út rétt áður en
hin flugvélin skall á honum sköm-
mu síðar. ■
IlögreglufréttirI
Ráðist var á mann á heimili
hans í síðustu viku. Að sögn
lögreglunnar á Selfossi höfðu
árásarmennirnir, tveir karlmenn,
bankað upp á hjá manninum sem
býr í uppsveitum Árnessýslu og
reynt að þvinga hann til að skrifa
undir skuldarviðurkenningu. Þeg-
ar maðurinn neitaði réðust þeir
að honum með þeim afleiðingum
að hann rifbeinsbrotnaði. Húsráð-
andinn þekkti annan árásarmann-
anna og hefur lagt fram formlega
kæru til lögreglunnar á Selfossi
sem er með málið í rannsókn.
í skjóli harmleiksins í Bandaríkjunum:
ísraelsher réðst á Jeríkó og Jenín
JERÚSALEM. JERÍKÓ. ap í gærmorgun
tveimur dögum eftir árásirnar á
New York og Washington, réðust
ísraelskir skriðdrekar á tvo bæi á
Vesturbakkanum, Jenín og Jeríkó.
Þrír Palestínumenn létu lífið og 21
særðist.
fsraelski herinn sagði þessum
síðustu aðgerðum ætlað að „upp-
ræta hryðjuverkamenn", en
Palestínumenn sögðu ísraelsk
stjórnvöld vera að notfæra sér
ástandið, þegar umheimurinn
væri með allan hugann við
hryðjuverkin í Bandaríkjunum, til
þess að herða árásirnar á Palest-
ínumenn.
„ARAFAT ER OKKAR BIN LADEN"
Forsætisráðherra (sraels túlkar árásirnar á
Bandarikin sér í hag.
„Allir eiga sér sinn bin Laden.
Arafat er okkar bin Laden,“ sagði
Ariel Sharon, forsætisráðherra
ísraels við Colin Powell, utanrík-
isráðherra Bandaríkjanna. Hann
sagði að Arafat bæri ábyrgð á
hryðjuverkum gegn ísrael undan-
farið átakaár.
Sakher Habash, einn leiðtoga
Fatah-hreyfingar Arafats, sagði
að þessum ummælum Sharons
væri greinilega ætlað að réttlæta
aukna hörku í árásum ísraelska
hersins á Palestínumenn. ísraels-
menn telji sig nú vera komna með
afsökun fyrir því að „halda áfram
að drepa Palestínumenn." ■
Sorgardagur í dag:
Heimurinn
syrgir
árás Á ameríku í dag er víða sorg-
ardagur vegna árásarinnar á Am-
eríku á þriðjudag. Aðildarríki
Evrópusambandsins voru fyrst til
þess að lýsa yfir sorgardegi í dag
og mælast til þess að hinum látnu
yrði vottuð virðing með þögn kl.
10 GMT. í gær tók Evrópuráðið
undir og hvetur 800 milljónir íbúa
í aðildarlöndum ráðsins til að
votta hinum látnu virðingu með
þriggja mínútna þögn í dag.
Nokkur ríki utan Evrópu hafa
einnig lýst því yfir að dagurinn í
dag sé sorgardagur vegna árásar-
innar á Ameríku. ■
Hetjudáð í háloftunum
Farþegar um borð í flugvélinni sem brotlenti í Pennsylvaniu kusu um hvort ráðast ætti á hryðju-
verkamennina. „Nokkrir okkar ætla að gera eitthvað í rnálinu," sagði einn farþeganna. Talið er
að komið hafi verið í veg fyrir mun stærra slys.
árás Á ameríku Farþegar sem um
borð voru í fjórðu flugvélinni sem
rænt var af hryðjuverkamönnum
í Bandaríkjunum á þriðjudaginn
og brotlenti í Pennsylvaniu-fylki,
kusu um hvort ráðast ætti á flug-
ræningjana og reyna að yfirbuga
þá. Þetta kom fram í samtali sem
einn farþeganna átti við ættingja
sinn í gegnum farsíma.
Jeremy Glick, einn farþeganna
um borð, var að ferðast með tveg:
gja mánaða gömlum syni sínum. í
við
„Það sem Tom
gerði og þeir
sem hjálpuðu
honum bjarg-
aði lífi fjöl-
margra."
arnir höfðu
einhverjar
samtali hans
eiginkonu sína
fékk hann stað-
festingu á því að
fregnirnar um
árásirnar á World
Trade Center
væru á rökum
reistar, en farþeg-
flestir þegar fengið
fregnir af slysinu.
Gerði hann þá stutt hlé á símtal-
inu. Á meðan virðist sem nokkrir
farþeganna, sem safnað hafði ver-
ið saman aftast í flugvélinni, hafi
ákveðið að ráðast á hryðjuverka-
mennina, því þegar hann sneri
aftur í símann sagði hann: „karl-
arnir kusu um að ráðast á hryðju-
verkmennina." Síðan fór hann úr
símanum en sagðist ætla að koma
aftur. Það var hins vegar það síð-
asta sem heyrðist frá honum. Ekki
bárust fregnir af því hversu
margir hefðu kosið um að ráðast á
mennina, sem litu út eins og
arabar og töluðu arabísku, að sögn
Glick.
Hinn 38 ára gamli,Thomas E.
Burnett, sem einnig var um borð í
vélinni hringdi fjórum sinnum í
eiginkonu sína, Deena, sem býr í
Kaliforníu. „Nokkrir okkar ætla
að gera eitthvað í málinu,“ sagði
hann, en skömmu áður hafði flug-
vélin snúist um 180 gráður á leið í
suðaustur, að því er virðist til
Washington á leið í Hvíta húsið
eða Þinghúsið. Bætti
Burnett því við að
einn farþeganna hefði
þegar verið stunginn.
„Kannski munum við
aldrei fá að vita hve
margir hjálpuðu hon-
um eða til hvaða ráða
þeir gripu, en ég er
ekki í vafa um að flug-
vélinni var stefnt á
eitthvað kennileiti og
að það sem Tom gerði
og þeir sem hjálpuðu
honum bjargaði lífi
fjölmargra," sagði
eiginkona hans. „Ég er svo stolt af
honum og þakklát."
Að sögn John Ashcroft, yfir-
manns dómsmálaráðuneytis
Bandaríkjanna, var hverri vél
rænt af þremur til sex mönnum
vopnuðum hnífum. Kemur það
heim og saman við frásagnir flug-
farþeganna sem greindu m.a. frá
því að þrír menn hefðu rænt vél-
inni og að þeir hefðu haft
sprengju meðferðis. Auk þess
HOLA f JÖRÐU
Enginn hinna 45 farþega og
áhafnarmeðlima komst lifs af
þegar Boeing 757 flugvélin frá
United Airlines brotlenti norður
af Somerset-sýslu í Pennsylvaniu.
Sérfræðingar reyna nú að kom-
ast að orsökum slyssins.
HETJA
Thomas Burnett, þriggja
barna faðir, sem var um borð
í flugi 93 frá Boston til San
Francisco. Hann hringdi i eig-
inkonu sína skömmu áður
en flugvélin brotlenti og
sagði að nokkrir mannanna um borð
ætluðu sér að gera eitthvað i málinu.
kom fram að þrfr áhafnarmeðlim-
ir hefðu verið stungnir til bana.
freyr@frettabladid.is
Sameining sveitarfélaga:
Kosið á íjórum svæðum
fyrir norðan og sunnan
sameining Fyrirhugað er að greiða
atkvæði um sameiningu sveitar-
félaga á fjórum svæðum n.k. nóv-
ember. Viðræður standa á milli
viðkomandi sveitarfélaga um
áformaðar kosningar og því geta
dagsetningar breyst á næstu vik-
um frá því sem þegar hefur verið
ákveðið. Þarna er um að ræða
sameiningu sveitarfélaga bæði
fyrir norðan og sunnan.
Fyrstu kosningarnar eru fyrir-
hugaðar 3. nóvember n.k. Þá
munu íbúar Ljósavatnshrepps,
Hálsahrepps, Bárðdælahrepps og
Reykdælahrepps greiða atkvæði
um sameiningu þeirra. Sama dag
greiða atkvæði um sameiningu
íbúar sjö sveitarfélaga í Þingeyj-
arsýslu með Húsavík í broddi
fylkingar. Viku seinna eða 10. nóv-
ember n.k. er stefnt að atkvæða-
greiðslu 5 sveitarfélaga í upp-
sveitum Árnessýslu, þ.e. sumar-
bústaðasvæðið í Grímsnesi, Laug-
arvatni, Þingvöllum og Biskups-
tungum. Þann 17. nóvember er
svo fyrirhuguð atkvæðagreiðsla í
sex sveitarfélögum f Landeyjum,
Hvolhreppi, undir Eyjafjöllum og
Fljótshlíð. ■
ÞINGVELLIR
Verið er að vinna að undirbúningi kosn-
inga um sameiningu nágrannahreppa á
söguslóðum í uppsveitum Árnessýslu
Tlögreglufréttírí
Tilkynnt voru nokkur innbrot
fyrir klukkan tíu í gærmorg-
un. Brotist hafði verið inn í bíla-
geymslu í Austurbænum og brot-
ist inn í bíla, einnig var tilkynnt
um innbrot í bíl í Árbæjarhverfi.
Þá var farið inn í kjallara ný-
byggingar í Grafarvogi og þaðan
stolið verkfærum. Brotist var inn
í kirkju í Þingholtunum. Engin
helgispjöll voru unnin en lausa-
munir teknir. Málið er til rann-
sóknar.
Harður árekstur tveggja bíla
varð á Neskaupstað seint í
fyrrakvöld. Flytja þurfti far-
þega og báða ökumenn til að-
hlynningar á sjúkrahúsið á Nes-
kaupstað en að sögn lögreglu er
talið að um minniháttar meiðsl
séu að ræða. Tildrög slyssins
eru enn ókunn og er málið til
rannsóknar.
AP/MYNDIR