Fréttablaðið - 14.09.2001, Page 6
6
FRÉTTABLAÐIÐ
14. september 2001 FÖSTUDAGUR
SPURNINC DACSINS
Geta hryðjuverk verið
réttlætanleg?
Hryðjuverk er ekki hægt að réttlæta.
Hryðjuverk eru glæpur og glæpur er og
verður alltaf glæpur. Átök á milli aðila
verða ekki leyst með hryðjuverkum.
Það verður að leita einhverra annarra
leiða. Leiða sem ekki fela í sér átök og
bitna á saklausu fólki.
Gunnlaugur B. Snædal er starfsmaður í DKNY í
Kringlunni.
GEÐHJÁLP
Félagsþjónustan hefur nú tekið yfir stuðn-
ingsþjónustuna, en hún hefur verið rekin
af Geðhjálp til þessa.
Stuðningsþjónusta fyrir
geðfatlaða:
Félags-
þjónustan
tekur við
ceðfatladir Félagsþjónustan í
Reykjavík hefur tekið við rekstri
á stuðningsþjónustu við geðfatl-
aða sem undanfarin ár hefur ver-
ið rekin af Geðhjálp. Um er að
ræða stuðning til sjálfstæðrar bú-
setu fyrir 35 geðfatlaða Reykvík-
inga. Þjónustan er samstarfsverk-
efni ríkis og borgar og gerði Fé-
lagsþjónustan þjónustusamning
við Svæðisskrifstofu málefna
fatlaðra í Reykjavík og félags-
málaráðuneytið. Samningurinn
gildir út árið 2002 og gert er ráð
fyrir framlengingu ef fyrir liggur
vilji beggja aðila. Ingibjörg
Hrönn Ingimarsdóttir geðhjúkr-
unarfræðingur er forstöðumaður
þjónustunnar. ■
.;.♦.
Eltingaleikur á Suður-
iandsbraut:
Reyndi að
þvinga ann-
an bíl út af
veginum
lögreglumál Ökumaður hafði
samband við lögregluna í Reykja-
vík og sagði óðan mann vera að
keyra utan í bíl sinn á mikilli ferð
og reyna að þvinga hann út af veg-
inum. Atburðurinn átti sér stað á
Suðurlandsveginum um níuleytið
í fyrrakvöld og var kallað til að-
stoðar lögreglunnar í Kópavogi og
á Selfossi. Bíllinn fannst síðan
mannlaus í Lögbergsbrekku og
þurfti að draga hann af vettvangi
með kranabíl. Engan sakaði en í
bílnum voru auk ökumannsins
tvær stúlkur.
Árásarmaðurinn, sem er tæp-
lega tvítugur, átti ekkert sökótt
við ökumanninn en virðist hafa átt
óuppgerðar sakir við stúlkurnar
tvær sem fengið höfðu far með
manninum. Er lögreglunni kunn-
ugt um hver var að verki og er
málið í rannsókn. ■
Áfengiseitranir í
Eistlandi:
33 hafa látist
og 64 veikst
tallin.estóníu.ap Alls hafa 33
menn látist og 64 veikst í Eist-
landi eftir að hafa drukkið
heimatilbúið kornbrennivín sem
mengað hafði verið af metanóli,
að því er talið er. Flest fórnar-
lambanna drukku brennivínið
um síðustu helgi í bænum Parnu
sem er um 125 km suður af höf-
uðborg landsins, Tallin. Lögregl-
an telur að fólkið hafi keypt
áfengið vegna þess að það var
ódýrara en það sem selt er í búð-
um. Þetta er eitt versta tilfelli
FLUTTUR BURT í SJÚKRABÍL
Eistneskur karlmaður er fluttur í burtu í
sjúkrabíl í Tallin, höfuðborg Eistlands.
Þetta er eitt versta tilfelli áfengiseitrunar
í landinu
áfengiseitrunar í sögu Eistlands,
en í fyrra létust 155 menn af
völdum slíkrar eitrunar. ■
Þróun heimsframleiðslu:
Samdráttur allsstaðar
efnahagur Heildarframleiðsla á
öllum helstu efnhagssvæðum dróst
verulega saman frá öðrum árs-
fjórðungi síðasta árs til sama tíma
á yfirstandandi ári. Á línuritinu er
það borið saman hvernig hægst
hefur á aukningu heildarfram-
leiðslu Evrópusvæðisins, ESB,
Bandaríkjanna og Japan. í Japan
varð beinlínis samdráttur og í Evr-
ópu og Bandaríkjunum hefur vöxt-
ur framleiðslunnar farið hratt nið-
ur á við frá því bandarískir hluta-
bréfamarkaðir náðu hámarki á öðr-
um ársfjórðungi ársins 2000. ■
ÞJÓÐARFRAMLEIÐSLA
Vöxtur þjóðarframleiðsla i Evrópu
og Bandaríkjunum hefur minnkað
verulega á einu ári.
Bæjarráð klagar Scimskip
fyrir brot á skilmálum
Bæjarráð Vestmannaeyja segir áform Samskipa um fækkun í áhöfn Herjólfs brot á útboðsskil-
málum og óskar skýringa frá Vegagerðinni. Þorgerður Jóhannsdóttir bæjarfulltrúi segir Samskip
ætla að skerða þjónustuna og loka hluta farþegarrýmsins á sama tíma og farþegum íjölgi mikið.
samgóngur Bæjarráð Vestmanna-
eyja hefur falið Guðjóni Hjörl-
eifssyni bæjarstjóra að óska eftir
upplýsingum frá Vegagerð ríkis-
ins um það hvort sú fækkun
skipverja um borð í Herjólfi sem
Samskip hafi boðað séu heimilar.
Bæjarráðið vill að því sé svarað
hvort fækkunin samræmist út-
boðsgögnum vegna
reksturs Herjólfs
„Þeir að ætla frá í fyrra og
að skerða samningi Vega-
þjónustuna gerðarinnar við
við okkur með Samskip þar að lút-
því að tak- andi.
marka far- Eins og Frétta-
þegafjölda í blaðið hefur sagt
skipið," segir frá vill Samskip
Þorgerður Jó- fækka um allt að
hannsdóttir. fjórðung í áhöfn
^ . skipsins eftir því
hversu margir far-
þegar eru um borð.
Það var meirihluti sjálfstæðis-
manna í bæjarráði Vestmanna-
eyja sem lagði tillöguna fram en
hún var samþykkt samhljóða.
Þorgerður Jóhannsdóttir, sem
sæti á í bæjarráðinu fyrir minni-
hluta Vestmannaeyjalistann, sit-
ur í stjórn Herjólfs hf., fyrirtæk-
is heimamanna sem missti rekst-
ur ferjunnar í hendur Samskipa
eftir útboð í fyrra.
Þorgerður segir bæjarráðið
ósátt við áætlanir Samskipa. I-Iún
segir að þegar Herjólfur hafi haft
rekstur ferjunnar með höndum þá
hafi verið gerðar miklar kröfur og
kvaðir um reksturinn. „Nú vilja
Samskipsmenn fá undanþágu frá
því að reka skipið eins og útboðs-
gögn sögðu til um hvernig ætti að
gera. Þeir eru að tala um fækkun í
mannskap sem þýðir að þeir ætla
loka einhverjum hólfum í far-
þegarýminu," segir Þorgerður.
Að sögn Þorgerðar var á sín-
um tíma árangurslaust reynt af
hálfu stjórnar Herjólfs hf. að fá
leyfi til fækkunar í áhöfn. Hún
segir að þá hafi verið grundvöll-
ur fyrir slíku en segir að aðstæð-
ur nú séu hins vegar breyttar frá
því sem þá var og að fækkunin
geti ekki átt rétt á sér í dag.
„Farþegafjöldi hefur aukist
um nær þriðjung á þessu ári og
miðað við það hljóta þeir að ætla
að skerða þjónustuna við okkur
með því að takmarka farþega-
HERJÓLFUR
„Nú vilja Samskipsmenn fá undanþágu frá
því að reka skipið eins og útboðsgögn
sögðu til um hvernig ætti að gera."
fjölda í skipið,“ segir Þorgerður
Jóhannsdóttir.
garjfrettabladid.is
Leigjendasamtökin:
Stefnulaus borg
fyrir fólk í neyð
húsnæði Jón Kjartansson for-
maður Leigjendasamtakanna er
harðorður í garð borgaryfirvalda
og fullyrðir að þau hafi enga
stefnu i húsnæðismálum leigjenda
og heimilislausra. Hann segir
áform félagsmálayfirvalda um úr-
bætur í þessum efnum leysa
kannski sárasta broddinn fyrir
hluta af hópi þeirra sem eiga hver-
gi höfði sínu að halla. Hann tekur
svo djúpt í árina að halda því fram
að húsnæðistefnan á fslandi beiá
mörg einkenni rasisma. Það sé
byggt yfir þá ríku, sterku og hvítu
en hinir séu skildir eftir.
Hann bendir á að núverandi
borgaryfirvöld séu búin að hafa
tvo kjörtímabil til að gera eitthvað
raunhæft í þessum málum. Þótt
ríkið hafi brugðist sinni ábyrgð þá
telur hann að það sé engin afsökun
fyrir borgina að hafa ekki mótað
sér neina stefnu í þessum mála-
flokki. Hann segist því leggja til að
þær óseljanlegu íbúðir sem eru í
JÓN FRÁ PÁLMHOLTI
Segir rasisma rikja ( opinberri
húsnæðistefnu.
Grafarholti og Bryggjuhverfi
verði teknar í notkun fyrir þá sem
eiga hvað sárast um að binda í hús-
næðismálum. ■
Undanskot á skatti:
Borga sekt
eða í fangelsi
pómsmál 52 ár karlmaður var á
miðvikudag dæmdur í Héraðs-
dómi Reykjaness í fjögurra mán-
aða skilorðsbundið fangelsi og til
greiðslu 5,1 milljóna króna sektar
fyrir að hafa ekki staðið skil á
virðisaukaskatti.
Maðurinn játaði að hafa haldið
eftir um 2,5 milljónum króna sem
hann innheimti sem virðisauka-
skatt vegna atvinnustarfsemi
sinnar á árunum 1996 og 1997 og
að hafa ekki haldið lögboðið bók-
hald vegna starfseminnar. Greiði
hann ekki áðurnefnda 5,1 milljón
króna sekt innan fjögurra vikna
mun hann sæta þriggja mánaða
fangelsisvist. ■