Fréttablaðið - 14.09.2001, Síða 11

Fréttablaðið - 14.09.2001, Síða 11
FÖSTUPAGUR 14. september 2001 FRETTABLAÐIÐ 11 Skinnaiðnaður á Akureyri gjaldþrota: 120 manns missa vinnuna atvinnumál Störf yfir 120 manna á Akureyri eru nú í uppnámi eftir að fyrirtækið Skinnaiðnaður hf. var úrskurðað gjaldþrota í gær. Skuldir Skinnaiðnaðar voru orðn- ar því ofviða og viðskiptabanki fyrirtækisins hafði neitað því um frekari fyrirgreiðslu að því er stjórnarformaður þess upplýsti í beiðni sinni um gjaldþrotaskiptin. „Það er ljóst að þarna eru mikl- ar skuldir," sagði Orlygur Hnefill Jónsson, skiptastjóri þrotabúsins, aðspurður um stöðu mála, en tók fram kröfulýsingar ættu eftir að berast. Eignir fyrirtækisins verða seldar upp í skuldir og sagði Ör- lygur erfitt að meta fyrirfram SKINNAIÐNAÐUR Eignir umfram skuldir eru sagðar 32 millj- ónir. Ekki öruggt að auðvelt verði að koma eignum í verð, segir skiptastjórinn. hvernig það muni ganga. „Það verður unnið þarna smávægilega til að bjarga verðmætum, en það er allt og sumt. Þetta verða fá störf til skamms tíma.“ Ein helsta ástæða taprekstrar Skinnaiðnaðar eru m.a. sagðar vera langvarandi erfiðleikar á mörkuðum. Skinnaiðnaður tapaði tæpum 94 milljónum króna á tólf mánaða tímabili frá 1. september í fyrra til 31. ágúst í ár. I bókum félags- ins eru eignir sagðar 834 milljón- ir króna og skuldir 802 milljónir króna. Eignir umfram skuldir eru samkvæmt því 32 milljónir króna. ■ Flugleiðir voru fyrst frá Kennedyflugvelli Umferð um lofthelgi Bandaríkjanna háð ströngum skilyrðum. Engin stálhnífapör um borð í vélum Flugleiða. Oryggisverðir um borð vestra. árásin Á ameríku Flugmálastjórn Bandaríkjanna hefur opnað fyrir allt flug um lofthelgi sína. Frakt- vél Flugleiða var fyrsta flugvélin sem fór frá Kennedyflugvelli við New York, eftir að völlurinn opn- aði. Lofthelgi Bandaríkjanna, og flugvellir þar í landi, voru opnað- ir klukkan þrjú í gær að íslensk- um tíma. Einni mínútu síðar hóf fraktvél Flugleiða sig til flugs. í kjölfarið fylgdu aðrar frakt- og farþegavélar, bæði til og frá Bandaríkjunum. Umferð um loft- helgi og flugvelli í Bandaríkjun- um er háð ströngum skilyrðum. Samkvæmt upplýsingum af heimasíðu FAA er þeim flugfélög- um sem flogið er með, og þeir flugvellir sem flogið er frá er gert skylt að innleiða strangar örygg- isreglur. Öryggi á flugstöð Leifs Eiríkssonar var hert til muna á þriðjudaginn. Öryggisvörðum AFHENTU SAMÚÐARSKJAL TIL MINN- INGAR UM FALLNA FÉLAGA Hrólfur Jónsson, slökkviliðsstjóri, sagði úti- lokað fyrir menn að setja sig í þær að- stæður sem félagar þeirra í Bandaríkjunum urðu að glíma við þegar árásin var gerð á World Trade Center í New York. Afhentu samúðarskjal: Það sem við óttumst ÁRÁS Á AMERÍKU Slökkvilið höfuð- borgarsvæðisins og lögreglan í Reykjavík afhentu í gær banda- ríska sendiherranum samúðar- skjal og tvö kerti til minningar um starfsbræður sína sem féllu við björgunarstörf við World Trade Center í New York síðastliðinn þriðjudag. Að sögn Árna Oddsson- ar, stöðvarstjóra, var þetta tilfinn- ingaþrungin stund og sagði hann sendiherrann hafa verið mjög snortinn og eins hafi verið um aðra viðstadda. Árni var spurður hvort menn hafi ekki verið slegn- ir yfir þessum atburði og sagði Árni svo vera. „Þetta er einn sá þáttur í starfinu sem menn óttast innra með sér í stóru útkalli." ■ hefur verið fjölgað og áhafnir véla fara í gegnum vopnaleit. Flugmálastjórn Bandaríkjanna hefur kannað öryggi og eftirlit á flugstöðinni og heimilað flug það- an. Ekki er, að svo stöddu, vitað hvaða reglur verða formlega kynntar af flugmálastjórn Banda- ríkjanna, eða hvenær það verður. Auknu öryggisstigi á flugstöð Leifs Eiríkssonar verður ekki aflétt fyrr en þróun mála er ljós. Að sögn Guðjóns Arngrímssonar, upplýsingafulltrúa Flugleiða var mikið um að vera í Leifsstöð eftir hádegi í gær. Farþegar ,sem marg- ir voru að komast heim eftir lang- þráða bið, stóðu í brottfararsal flugstöðvar Leifs Eiríkssonar. Alls fóru sex vélar á vegum Flugleiða til Bandaríkjanna á skömmum tíma. Farþegar voru bæði íslend- ingar og Bandaríkjamenn. Þeir höfðu hinsvegar forgang á sætum sem verið höfðu strandaglópar hér á landi síðan á þriðjudaginn. Að sögn Guðjóns eru engar stórar breytingar á öryggismálum Flug- leiða. Helstu breytingar fela í sér að plast hnífapör um borð í vélum flugfélagsins, í stað stálhnífapara. arndis@frettabladid.is Full búð af s • • • nyjum vorum Buxur - Blússur - Peysur Pils og fleira. Stærðir 36 - 52 Meyjarnar Austurveri Háaleitisbraut 68 ^ sími 553 3305___ Meö Kara “doild Brei»»»liks Af hverju? Góð alhliða líkamleg þjálfun - byggir upp andlegan styrk eykur þol - góðar teygjuæfingar - ódýr líkamsrækt - enginn stofnkostnaður - hentar báðum kynjum - hentar börnum, unglingum og fullorðnum - sérhannaður karatesalur tækjasalur - heitur pottur og gufa - góð staðsetning á miðju höfuðborgarsvæðisins - góðir þjálfar og öflug stjórn. Upplýsingar og skráning: 898 0188 (Indriði) 897 5348 (Gylfi) Kíktu á: breidablik.is/karate Steiktar kartöfluskífur z stk. kartöflur á mann (fer eftir stærð) i stk. laukur ólífuolía 200 gr spinat eða annað blaðsalat sjávarsalt og nymulinn pipar Cott að hafa einnig örlítið afnýju engiferi og grænan chilipipar. Sneiðið kartöflurnar í i sm þykkar sneiðar og saxið laukinn. Steikið kartöflurnar og laukinn á heitri pönnu í 10-15 mín. Fylgist með hitanum og lækkið hann eftir u.þ.b. 7 mín. Saxið blaðsalatið. bætið því i pönnuna og steikið 11 min. Saltið og piprið eftir smekk. Engiferið og chilipiparinn eru sett út I um leið og blaðsalatið. ff r Kartöflur eru ágætur C-vítamingjafí ef við borðum í einu a.m.k. 150 g eða 2 meðalkartöflur. Kartöflur geymast best við 4.5°C og 95% loftraka. íslenskt grcenmeti - alltaf 1/3 Slml: 570-9700 mi(ívikt(ÁAi)$MArkAÍHriHn

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.