Fréttablaðið - 14.09.2001, Qupperneq 15
FÖSTUDAGUR 14. september 2001
FRÉTTABLAÐIÐ
15
Þýskir fjölmiðlar:
Hakkinen að hætta?
Meiðsl Rivaldo:
Þarf ekki í aðgerð
KNATTSPYRNA Rivaldo,
leikmaður Barcelona, er
farinn til Brasilíu þar
sem hann gengst undir
meðferð vegna hné-
meiðsla. í fyrstu var
talið að hann þyrfti á
uppskurði að halda, sem
hefði gert það að verk-
um að hann hefði verið
frá knattiðkun í tvo
mánuði að minnsta, en
læknar brasilíska lands-
liðsins segjast geta lagað
A HEIMLEIÐ
Rivaldo þarf ekki að fara í aðgerð á hné eins og talið var
í fyrstu. Hann mun fara heim til Brasilíu í meðferð.
kappakstur Þýska dagblaðið Bild
Zeitung greindi frá því í gær að
Finninn Mika Hakkinen hygðist
hætta keppni í Formúlu 1 eftir
þetta tímabil. í dagblaðinu segir
að líklega megi búast við því að
hann tilkynni þetta eftir
kappaksturinn í Monza á Ítalíu á
sunnudaginn. Eftir að Hakkinen
tapaði heimsmeistaratitlinum til
Michael Schumacher í fyrra og
slælegan árangur hans í ár hefur
þessi orðrómur orðið sífellt há-
værari og nú hefur Bild Zeitung
það eftir Hakkinen að eftir 10 ár
í Formúlu 1 sé hann orðinn
þreyttur og tilbúinn að setjast í
helgan stein.
Hakkinen er 32 ára gamall og
hefur keppt fyrir McLaren síðan
árið 1993 og telur dagblaðið lík-
legt að Kimi Raikkonen, 22 ára
gamall Finni sem nú ekur fyrir
Sauber, taki sæti hans í liðinu.
Nokkur óvissa ríkti um það hvort
kappaksturinn á Ítalíu færi fram
eftir hryðjuverkaárásina í
Bandaríkjunum, en nú hafa For-
ráðamenn Formúlu 1 tekið
ákvörðun um að kappaksturinn
fari fram. ■
ÞREYTTUR
Þýska dagblaðið Bild Zeitung segir
að Hakkinen sé orðinn þreyttur eftir
10 ár í Formúlu 1.
mein hans á þremur vikum. „Við
höldum að þetta sé leikmanninum
fyrir bestu sem er þar af leiðandi
liðinu fyrir bestu,“ sagði Anton
Parera sem situr í stjórn Katalón-
íuliðsins. ■
Bardagi Trinidad og
Hopkins:
Frestað
vegna árás-
arinnar
KR gæti fallið úr úrvals-
deildinni á sunnudaginn
knattspyrna Á sunnudaginn fer
sautjánda og næst síðasta umferð
Símadeildar karla fram og er
spennan gríðarleg á toppi sem
botni deildarinnar. ÍA og IBV eru
jöfn í efsta sætinu með 32 stig,
fyrrnefnda liðið tekur á móti
Fylki uppá Skipaskaga en Eyja-
menn sækja Valsmenn heim að
Hlíðarenda. FH, sem er í þriðja
sæti með 29 stig fær Grindvík-
inga, sem eru í 5. sæti, í heim-
sókn.
Á botni deildarinnar er spenn-
an einnig mikil. Breiðablik og ís-
landsmeistarar KR sitja í neðstu
sætunum og þarf fyrrnefnda liðið
að vinna báða leiki sína með mikl-
um mun ef það ætlar að halda sér
uppi en það sækir Keflvíkinga
heim. KR-ingar eru með sextán
stig, einu stigi á eftir Fram en
þessi lið mætast í Frostaskjólinu.
Með sigri getur Fram tryggt sæti
sitt í úrvalsdeildinni. Ef Valsarar
sigra einnig í sínum leik eru ís-
landsmeistararnir fallnir.
Samkvæmt mótareglum KSÍ
um stigakeppni íslandsmótsins
sigrar það lið sem flest stig fær.
Fari hinsvegar svo að tvö lið
verði jöfn ræður markamismun-
ur úrslitunum, þ.e. skoruð mörk
að frádregnum fengnum. Ef liðin
hafa sama markamismun ræður
fjöldi skoraðra marka úrslitum,
því næst fjöldi stiga í innbyrðis
leikjum.
Allir leikirnir hefjast klukkan
14.00. ■
hnefaleikar Bardaga hnefaleika-
kappanna Felix Trinidad og Bern-
ard Hopkins, sem átti að fara
fram í Madison Square Garden í
New York á laugardagskvöld, hef-
ur verið frestað. Madison Square
stendur ofan á Penn járnbrauta-
stöðinni og hefur verið talið lík-
legt skotmark. „Ég er eyðilagður
yfir árásinni," sagði hnefaleika-
jöfurinn Don King þegar hann til-
kynnti frestun bardagans. Hopk-
ins ætlaði að halda blaðamanna-
fund í gær til þess að sýna fjöl-
miðlum í hversu góðu formi hann
er. 29. september og 6. október
eru líklegir dagar fyrir bardag-
ann.
Ti'inidad WBA millivigtartitil-
inn að verja en Hopkins WBC og
IBF titla. Hopkins, sem er 35 ára,
er búinn að vera kjaftfor fyrir
bardagann, niðurlægði þjóðfána
Púertó Ríkó, heimalands Trini-
dad, í tvígang og veðjaði 100 þús-
und dölum á sjálfan sig. Samstað-
an um frestun bardagans er hins-
vegar algjör. ■
FELIX TRINIDAD
28 ára. Vann WBC titilinn með sigri á Keith
Holmes í apríl. Hopkins stendur i skuggan-
um á honum, Oscar De La Hoya og Roy
Jones Jr.
BOTN BARATTAN
KR og Fram mætast i Frostaskjólinu á heimavelli KR-inga en Íslandsmeistararnir fóru með sigur af hólmi i fyrri leiknum. Bæði lið þurfa nauðsynlega á sigri að halda ætli þau
sér að forðast fall.
Spenna á toppi og botni Símadeildar:
Deilur innan FIFA:
Arsenal vill hefta för
frönsku leikmannanna
knattspyrna Enska úrvalsdeildar-
liðið Arsenal hefur beðið FIFA um
að skerast í leikinn og koma í veg
fyrir að fjórir leikmenn liðsins
verði kallaðir í franska landsliðið
sem hyggur á langa keppnisferð
til Ástralíu. Fjórir franskir leik-
menn spila með Arsenal, þeir Pat-
rick Vieira, Thierry Henry, Syl-
vain Wiltord og Robert Pires.
Enska úrvalsdeildarliðið er hrætt
við að leikmennirnir verði þreytt-
ir eftir ferðina en þeir eiga að
koma heim degi áður en annar
hluti Meistaradeildar Evrópu
hefst.
David Dea, stjórnarformaður
Arsenal, vonast eftir stuðningi
FIFA.
„Það er kominn tími til að fólk
líti málið raunsæjum augum. Við
erum alltaf tilbúnir að hleypa
mönnum í landsleiki en nú þurf-
um við að ræða saman. Franska
landsliðið er nýkomið frá Chile og
það sást augljóslega í jafnteflis
leik okkar á Stamford Bridge að
frönsku leikmennirnir voru afar
þreyttir."
Dea benti einnig á að Frakk-
land þarf ekki að spila í und-
ankeppni HM þar sem liðið er nú-
verandi heimsmeistari og fer
sjálfkrafa í lokakeppnina í Japan
og Suður-Kóreu.
Arsenal hefur biðlað til 12 ann-
arra liða sem gætu misst leik-
menn í landsleikinn. Þar á meðal
eru Man. Utd. (Fabien Barthez og
Michael Silvestre), Chelsea
(Marcel Deasilly og Emmanuel
Petit), Fulham (Steve Marlet), AS
Roma (Vincent Candela), og
Juventus (David Trezeguet og
Lilian Thuram).
Roger Lemmere, landsliðs-
þjálfari Frakklands, segist hins-
vegar standa fastur á því að fá
leikmennina í leikinn gegn Áströl-
um.
„Ég veit að félögin eru ósátt en
við höfum réttinn okkar megin.
Þessi vika er ætluð fyrir lands-
leiki og sett af FIFA,“ sagði
Lemmere.
„Við viljum hafa alla leikmenn
til taks og það þýðir að við köllum
til leikmenn sem spila í úrvals-
deildinni og við ætlumst til að
þeir hlýði kallinu.“ ■
THIERRY HENRY
Arsenal vill m.a. ekki missa aðal framherja sinn í ferðalag til Ástrallu. Henry hefur farið
mikinn með liðinu og skorað nokkur mörk I ensku deildinni.