Fréttablaðið - 21.09.2001, Side 11
FÖSTUPAGUR 21. september 2001
FRÉTTABLAÐIÐ
11
Nýsköpunarsj óður atvinnulífsins:
Nýtt eldsneytis-
kerfi verðlaunað
Sjúkraliðar:
Óbreytt
staða
VERKALÝÐSMÁL Ekkert þokaðist í
átt til samkomulags í kjaradeilu
sjúkraliða og ríkisins á sáttafundi
í gær. Annar fundur hefur verið
boðaður í dag, föstudag klukkan
13 en fyrsti hluti í þrisvar sinnum
þriggja daga boðaðu verkfalli
sjúkraliða hefst eftir rúma viku
hafi ekki samist áður. Þá fundaði
verkfallsstjórn og undanþágu-
nefnd sjúkraliða í gær til að fara
yfir verklagsreglur. Sjúkraliðar
hafa verið án nýs samnings í tæpt
ár. Þeir fóru síðast í verkfall 1994
sem stóð í átta vikur. ■
nÝsköpun Nýsköpunarsjóður at-
vinnulífsins verðlaunaði í gær að-
standendur verkefnisins Fjöl-
blendis fyrir áætlun sína um að
þróa, framleiða og markaðssetja
nýja tegund eldsneytiskerfis.
Eldsneytiskerfið er uppfinning
Kristjáns Björns Ómarssonar og
er um að ræða nýja tegund blönd-
ungs fyrir bensín- og gasvélar
sem á að gefa nær fullkominn
bruna. Verðlaunin námu einni
milljón króna auk þess sem að-
standendur njóta leiðsagnar sér-
fræðinga KPMG.
Önnur verðlaun hlaut verkefn-
ið Nordic Photos sem gengur út á
söfnun, flokkun og dreifingu nor-
rænna ljósmynda á netinu. Þá
voru fjögur verkefni valin til að
keppa í fjórum flokkum fyrir ís-
lands hönd í evrópskri nýsköpun-
arkeppni í Brussel um miðjan
nóvember. ■
NÝSKÖPUNARVERÐLAUN
VEITT ÞRIÐJA SINNI
Verðlaunin voru afhent í gær og hefur
þátttaka aldrei verið meiri. Alls bárust 109
viðskiptahugmyndir og áætlanir.
Rannsókn á flugslysi:
Þrjá mán-
uði hjá sak-
sóknara
SKERJAFJARÐARSLYSIÐ Að SÖgn Egils
Stephensens saksóknara, er flug-
slysið sem varð í Skerjafirði í ágúst
í fyrra enn til skoðunar hjá lög-
fræðideild embættisins. Lögreglu-
rannsókn lauk í júní sl. og var mál-
ið þá sent saksóknara. Egill segir
málið flókið og tímafrekara en
reiknað var með. „Það liggur fyrir
gríðarlegt magn af gögnum sem
bæði lögreglan og aðstandendurnir
hafa aflað. Tíðinda er að vænta á
næstu dögum þó ekki sé komið að
lokaákvörðun,“ segir hann. ■
HERNAÐARAÐGERÐIR
(slensk stjórnvöld hafa ekki kannað af-
stöðu þjóðarinnar til hernaðaraðgerða á
grundvelli fimmtu greinarinnar.
Hernaðaraðgerðir:
Afstaða al-
mennings
ekki könnuð
HERNAÐARAÐGERÐIR íslensk StjÓrn-
völd hafa ekki kannað afstöðu al-
mennings til hernaðaraðgerða,
samkvæmt upplýsingum frá
PricewaterhouseCoopers, Gallup
á íslandi og Félagsvísindastofn-
unar. Utanríkisráðherra hefur
lýst því yfir að komi til átaka af
hálfu Bandaríkjanna vegna
árásanna, muni ísland taka þátt í
þeim á grundvelli fimmtu grein-
arinnar. Gallup hefur gert könnun
á meðal flestra NATO þjóða um
afstöðu almennings til hernaðar-
aðgerða í kjölfar árásanna á Am-
eríku. Samkvæmt upplýsingum
frá Gallup á íslandi hefur þessi
könnun ekki verið gerð hér á
landi. ■
—♦—
Starfsgreinasambandið:
Obreyttir
samningar
útilokaðir
verkalÝðsiviál Á fundi fram-
kvæmdastjórnar Starfsgreina-
sambandsins um sl. helgi voru
menn sammála um að óbreyttir
samningar kæmu ekki til greina
vegna verðbólgunnar. Halldór
Björnsson formaður sambandsins
segir að það þýðir að launaliður
gildandi samninga verði laus við
endurskoðun þeirra eftir áramót
ef ekki koma til kjarabætur eins
og gert var við endurskoðun
samninga sl. vetur. Hann segir að
á fundinum hefði komið fram vilji
til að mynda breiða samstöðu um
þetta innan verkalýðshreyfingar-
innar þar sem ASÍ mundi leiða
þær viðræður við atvinnurekend-
ur. Á fundinum var einnig gagn-
rýnt að stjórn efnahagsmála skuli
vera látin reka á reiðanum.
í síðustu Hagvísum Seðla-
banka íslands kemur fram að á
síðustu þremur mánuðum hefur
verðbólgan aukist úr 6,8% í 8,4%
miðað við vísitölu neysluverðs
undanfarna 12 mánuði. Þar kemur
fram að helsta ástæðan fyrir þess-
ari verðbólguaukningu sé að
mestu vegna verðhækkana á inn-
lendri vöru og þjónustu. ■
Ý msum finnst mat
Ríkiskaupa lágt
segir Guðni Agústsson landbúnaðarráðherra. Ráðuneytið kom hvergi
að sölu Uppsala, að sögn ráðherrans, nema hvað það afþakkaði for-
kaupsrétt ríkisins eins og í öllum öðrum tilfellum.
QOLF SLÍPIVÉLAH
ríkisjarðir „Allt frá því ég kom í
í'áðuneytið hefur verið farið eftir
skýrum reglum um sölu ríkisjarða
og ekki frá þeim vikið," segir Guðni
Ágústsson landbúnaðarráðherra.
„Þær reglur eru frá því í maí 1999
og voru settar í kjölfar athuga-
semda frá Ríkisendurskoðun sem
framkvæmdi stjórnsýsluendur-
skoðun á jarðadeild landbúnaðar-
ráðuneytisins. Allar ríkisjarðir sem
losna og ákveðið er að selja eru
auglýstar rækilega og seldar hæst-
bjóðanda.
Ábúendur ríkisjarða, sem hafa
búið þar 10 ár eða lengur, hafa hins
vegar samkvæmt lögum rétt til
þess að leysa þær til sín, ef slíkt
fær samþykki
hreppsnefndar og
jarðanefndar. Við
fengum óháðan að-
ila, Ríkiskaup, til
þess að meta sölu-
verð slíkra jarða
og töldum okkur
með því tryggja
fagleg vinnubrögð.
Auðvitað verða
Ríkiskaup að gæta
þess að hafa ávallt
bestu forsendur til
að vinna útfrá því
GUÐNI
ÁGÚSTSSON
Búið að selja
með sama hætti
stóran hluta
ábúðarjarða í
eigu ríkisins.
við förum eftir mati þeirra í einu og
öllu. Ýmsum finnst mat Ríkiskaupa
lágt, sérstaklega ef ábúendur selja
jörðina síðar á frjálsum markaði,
en þá gleyma menn að taka með í
söluverðið eignir bóndans, sem oft
eru verulegar. Landbúnaðarráð-
herra telur ekki ástæðu til að brey-
ta þessum sölumáta, sem byggir á
lögum frá Alþingi, því búið er að
selja með þessum hætti stóran
hluta ábúðarjarða í eigu ríkisins.
„Bræðurnir í Uppsölum keyptu af
ríkinu. Þeir selja eignarjörð sína
ísólfi Gylfa Pálmasyni. Það eru við-
skipti milli einstakíinga. Landbún-
aðarráðuneytið kom hvergi að því
máli utan að það afþakkaði for-
kaupsrétt ríkisins eins og í öllum
öðrum tilfellum", segir Guðni
Ágústsson landbúnaðarráðherra. ■
Þ.ÞORGRIMSSON & CO
m-mm'mrn Ármúla 29 /108 Reykjavík
f Z4 ZÁ Símar: 553-8640 / 568-6100
Bréfasími: 588-8755
Ódýrtónlist
Tónlistarmarkaðurinn í Perlunni
15. - 30. september
Stórkostlegt úrval af geisladiskum,
myndböndum, tölvuleikjum,
DVD og GSM fylgihlutum
á hreint ótrúlegu verði!
Opið alla daga vikunnar
frá kl. 10 -18
DEAN MARTIN
Everybody Loves Somebody
Verð 299,-
GEÍRMUNDUR
Bestu lögin
Verð 899,-
imi átefesw
Bat out of Hell
Verð 999,-
LOUIS PRIM
Tbe Original
Verð 999,-
THE HUMAN LEAGUE IVAN REBROFF
The Best of His greatest Hits
Vérð 999,-
Verð 999,-
Best of the 70's
Verð 999,-
20 Great love Songs
Verð 999,-
OF IRELAND
Verð 499,-
Perlur klasslskrar tónlistar
Verð 999,-
Sími: 561-8090