Fréttablaðið - 21.09.2001, Qupperneq 14
FRÉTTABLAÐIÐ
21. september 2001 FÖSTUDACUR
KNATTSPYRNA
14
Hvemig endar Símadeildin?
„Ég held að Skaginn nái að halda jöfnu
úti í Eyjum og verði meistari fyrir vikið.
Ég er nokkuð hræddur um Val en það er
ósanngjarnt ef hann fellur. Fram nær ör-
ugglega að vinna Keflavík á heimavelli
en KR vinnur ekki í Grindavík og fellur
með Breiðabliki." ■
Þórhallur Sverrisson,
dagskrárgerðarmaður og Valsari
HOPKINS YBBAR GOGG
„Ég er svekktur yfir því að þurfa að bíða
með það að sýna heiminum að ég er
bestur í millivigt," sagði hann þegar bar-
daganum var frestað.
Bardagi Trinidad og
Hopkins:
Tveimur
kílómetrum
frá rústunum
hnefaleikar Bardagi Felix TVinidad
og Bernard Hopkins, sem átti að
fara fram sl. laugardag en var
frestað vegna hryðjuverkanna í
Bandaríkjunum, mun fara fram
laugardaginn 29. september. Þar
takast kapparnir á um hvor þeirra
verður heimsmeistari í millivigt
en Trinidad mætir með WBA titil-
inn og Hopkins með WBC og IBF
titlana. Trinidad hefur aldrei tapað
í 40 bardögum og slegið rothögg 33
sinnum. Hopkins hefur tapað tvis-
var í 41 bardaga, einu sinni gert
jafntefli og slegið 28 rothögg.
Bardaginn verður haldinn í
Madison Square Garden í New
York, sem er tæpum tveimur kíló-
metrum frá rústum World Trade
Center. íþróttahöllinn er einn af
þeim stöðum sem þjóna nú tilgangi
miðstöðva til að koma borginni í
skikkanlegt ástand. Báðir hnefa-
leikakapparnir voru í borginni
þegar ódæðin voru framin.
„George W. Bush forseti og
Rudolph Giuliani borgarstjóri
hvetja Bandaríkjamenn til að snúa
sér aftur að sýnu daglega Iífi,“ seg-
ir hnefaleikafrömuðurinn Don
King. „Ég styð þá 100% sem leið-
toga. Bardaginn mun þjappa íbú-
um New York saman og vera dæmi
um stolt Bandaríkjamanna." ■
—♦—
Þjálfari AS Roma:
Ekki á leid
til Englands
knattspyrna Fabio Capello, stjóri
AS Roma, hefur slegið á allar
sögusagnir þess efnis að hann
vilji hætta í starfi sínu og hefur
beðið um framlengingu á samn-
ingi sínum við ítölsku meistarana.
Ropa hefur ekki byrjað tímabilið
á Ítalíu vel og gengu þær sögu-
sagnir fjöllum hærra að Capello
vildi gerast arftaki Alex Fergu-
sonar hjá Manchester United og
hætta fyrr en samningur hans
sagði til um en hann rennur út um
áramótin 2002-2003.
„Ég hef aldrei sagt að ég vilji
yfirgefa liðið. Ég mun virða minn
hluta samningsins," sagði Capello
og bætti við.
„Ég er meira að segja tilbúinn
að framlengja samninginn ef fé-
lagið fer fram á það.“ ■
Fjölnir ekki með á Islandsmótinu:
„Vonbrigði frekar en áfall“
HANDKNATTLEIKUR Skrifstofu
Handknattleikssambands ís-
lands barst tilkynning í gær frá
aðalstjórn Fjölnis þess efnis að
liðið hefði dregið meistaraflokk
karla úr keppni í íslandsmótinu í
handknattleik. Jónas_ Már Fjeld-
sted, mótastjóri HSÍ, vildi ekki
meina að það væri áfall fyrir
sambandið að Fjölnir hefði dreg-
ið sig úr keppni.
„Eg myndi frekar segja að
þetta væru vonbrigði frekar en
áfall. Fyrirkomulagið skiptir
ekki öllu máli, það er bara alltaf
leiðinlegt þegar lið detta út. Það
er alltaf slæmt fyrir íþróttina."
HSÍ hafði afskipti af málinu
og gaf meðal annars Fjölni frest
á því að tilkynna liðið til þátt-
töku.
„Við reyndum að vera sátta-
semjarar á fyrri stigum málsins
en því miður gekk það ekki upp.
Við kölluðum aðalstjórn og hand-
knattleiksdeild saman og reynd-
um að vinna að þessu máli, með
þeirri lausn að hægt væri að
reka meistaraflokkinn. Við
reyndum að vera þeim innan
handar, en við getum ekki beitt
okkur í innanfélagsmálum sem
slíkum."
Fjórtán lið munu því keppa á
íslandsmótinu í ár og verður
spilað með hefðbundinni deilda-
keppni, tvöfaldri umferð. Átta
lið komast síðan í úrslitakeppn-
ina sjálfa að deildakeppninni
lokinni. ■
EYRS.TA. UMFE8Ð_________________■
ÞRIÐJUDAGUR 25. SEPT. KL. 20.00
Þór - HK
FH - UMFA
Grótta KR - Selfoss
fBV-KA
MIÐVIKUDAGUR 26. SEPT. KL 20.00
Fram - ÍR
Valur - Stjarnan
Víkingur - Haukar
ÚR NISSANDEILDINNI f FYRRA
HSÍ segir það ekki áfall að Fjölnir hafi
dregið sig úr keppni.
Spáað
Fram falli
Kristján Guðmundsson, þjálfari Þórs, spáir ÍA
Islandsmeistaratitlinum, en Þorvaldur Orlygs-
son, þjálfari KA, telur að IBV muni standa
uppi sem sigurvegari. Báðir spá Fram falli.
knattspyrna Um helgina ráð-
ast úrslit í Símadeildinni í
knattspyrnu, en mikil spenna
er bæði á toppi og botni deild-
arinnar. Hreinn úrslitaleikur
verður í Vestmannaeyjum á
sunnudaginn, þar sem ÍBV
tekur á móti IA. Á morgun
ræðst hvaða lið fellur í 1.
deild ásamt Breiðabliki, en
Valur, KR og Fram geta öll
fallið. Fréttablaðið fékk þjálf-
ara 1. deildarliðanna sem unnu sér
sæti í Símadeildinni um síðustu
helgi til að spá í umferðina.
Kristján Guðmundsson, þjálfari
1. deildarmeistara Þórs, sagðist
hafa trú á því leikur ÍBV og íA yrði
spennandi, en að Skagamenn hefðu
verið betri í sumar.
„Þessi lið spila ólíkan bolta, ÍBV
liggur til baka og Skagamenn pres-
sa hátt,“ sagði Kristján. „Mér líkar
vel sókndirfska og hápressa þannig
að ég held að Skagamenn verði
meistari hvort sem þeir gera jafn-
LOKASTAÐAN:
KRISTJÁN
Á heildina hafa
Skagamenn ver-
ið betri í sumar.
FRAM FELLIJR EF:
Fram gerir jafntefli eða tapar.
tefli eða vinna. ÍBV vinnur
ekki leikinn."
Varðandi fallbaráttuna
sagði Kristján að það væri
hans trú að ekkert þeirra
liða sem gætu fallið myndu
vinna sína leiki. Þau myndu í
mesta lagi ná jafntefli.
„Ég hef trú á að Grinda-
vík sigri KR. Ég á erfitt með
að sjá KR vinna þó Ramsey
og Kekic verði ekki með
Grindvíkingum vegna leikbanns.
Mér finnst Grindvíkingarnir loks-
ins vera búnir að jafna sig eftir
Evrópukeppnina og spila vel.“
Kristján sagði að Keflavík
myndi sigra Fram.
„Ég held að Framararnir nái
ekki að vinna leikinn. Þeir voru í
fallsæti langt fram eftir sumri og
nú þurfa þeir að vinna til að halda
sæti sínu í deildinni og það verður
þeim að falli. Þetta „ að verða“ er
rosalega erfitt. Ég held líka að
Breiðablik sýni smá manndóm og
sigri Val. Mér líst ekkert á það
hvernig Valsmen eru búnir að vera
að leika í undanförnum leikjum.
Annars getur náttúrlega allt gerst í
VALUR FELLUR EF:
Fram sigrar, KR gerir jafntefli og Valur
tapar.
Fram og KR sigra og Valur gerir jafntefli
eða tapar.
KRFELLUREF:
Fram sigrar og KR og Valur tapa.
Fram og Valur sigra og KR gerir jafntefli
eða tapar.
Fram sigrar, Valur gerir jafntefli og KR tap
ar eða gerir jafntefli.
SÍMADEILDIN
Lið Leikir U J TMörk Stig
ÍA 17 11 2 4 27 : 14 35
Ibv 17 11 2 4 21: 13 35
FH 17 8 5 4 21 : 16 29
Grindavík 17 9 0 8 27 : 27 27
Fylkir 17 7 4 6 26 : 21 25
Keflavik 17 6 5 6 24 : 25 23
Valur 17 5 4 8 18 : 24 19
KR 17 5 4 8 14 : 20 19
Fram 17 5 2 10 23 : 25 17
Breiablik 17 3 2 12 15 : 31 11
Ólympíuleikarnir 2012:
Rómaborg meðal
umsækjenda
ólympIuleikar Róm sótti um að
halda Sumarólympíuleikana árið
2012 á miðvikudag en ítalska
ólympíunefndin segist vera tilbú-
in að draga umsóknina til baka
svo New York geti haldið leikana
ef aðrir umsækjendur samþykkja
það. í kjölfar hryðjuverkanna í
Bandaríkjunum hefur stuðningur
við borgina farið vaxandi en alls
hafa átta borgir þar í landi sótt
um að halda leikanna. Bandaríska
Ólympíunefndin tekur ákvörðun í
október á næsta ári en Alþjóða
Ólympíunefndin tekur ákvörðun
árið 2005.
„Við ætlum að sækja um því
Róm telur sig geta boðið uppá
eitthvað sérstakt," sagði Ottavia
Cinquanta en bætti við.
„Ef allir draga umsókn sína til
baka svo New York geti haldið
leikana munum við gera slíkt hið
sama. Við teljum það vera hið
rétta svo hægt sé að sýna New
York virðingu í kjölfar hryðju-
verkanna."
„Það ætti að gefast nægur tími
til uppbyggingar í New York og
ég held að þetta sé rétti tíminn til
að heimurinn sameinist í borg-
inni.“ ■
FYRRI LEIKUR IA OG IBV
Fór fram á Akranesvelli 10. júlí. Leikurinn endaði með markalausu jafntefli.
þessu. Það verður mark ein-
hvers staðar á lokamínútun-
um og það mun ráða úrslitum
um það hvaða lið falli.“
Kristján sagði að nokkur
lið hefðu komið sér á óvart í
sumar. Breiðablik hefði gert
það með áberandi slökum
leik, sem og hefðu Valsarar
verið slakari en hann hefði
gert ráð fyrir. Skagamenn
hefðu hins vegar komið á
óvart með áberandi góðum
leikjum. Þá sagði Kristján að ár-
angur KR hefði náttúrulega verið
skelfilegur, en hann sagðist halda
að rót vandans í Vesturbænum
væri stjórnunarlegs eðlis. Liðið
hefði verið með hreðjatak á ís-
lenskri knattspyrnu fyrir tveimur
árum, en væri búið að missa það.
Þorvaldur Örlygsson, þjálfari
KA, var ekki sammála Kristjáni
varðandi það hverjir myndu hampa
titlinum á sunnudaginn. „Það eru
ekki mörg lið sem hafa farið út í
Eyjar og unnið, þannig að ég held
að Vestmannaeyingar nái að knýja
fram sigur," sagði Þorvaldur. „Það
er kraftur í Skagaliðinu, en mín til-
LOKAUMFERÐIN
Fyikir - FH lau. 14:00
Breiðablik - Valur lau. 14:00
lau. 14:00
Grindavik - KR lau. 14:00
ÍBV - (A sun. 14:00
finning er sú að það hann
muni ekki duga.“
Þorvaldur sagði að ÍBV
hefði lagt mikla áherslu á að
verjast og hægt sígandi náð
að smala inn stigum. Nú
væri liðið komið í þá stöðu
að geta klárað mótið á
heimavelli og að það myndi
ekki láta tækifærið af hendi.
Þorvaldur sagði að þó það
væri mikil pressa á ÍA og
ÍBV væri hún meiri á þau lið
sem gætu fallið.
„Það verður ekkert grín fyrir
KR-inga að fara til Grindavíkur,
því Grindvíkingarnir hafa verið að
spila mjög vel. Eg held samt að KR-
ingar sigri Grindavík 1-0, þeir
sýndu geysilega baráttu gegn
Fram um síðustu helgi og ég held
að þeir standist álagið og haldi sér
uppi. Ég tel líka að Fram og Valur
vinni sína leiki og ef þetta fer
svona þá fellur Fram.“
Um sumarið í heild sagði Þor-
valdur að Skagamenn hefðu sýnt
mjög góða leiki. Liðið væri ungt og
það hefði verið gaman að horfa á
þá því þeir hefðu lagt sig mikið
fram. Þorvaldur sagði að KR og
Grindavík hefðu hins vegar komið
honum mjög á óvart með slökum
leikjum. Miklar væntingar hefðu
verið gerðar til liðanna og að þau
hefðu einfaldlega ekki staðist
pressuna. ■
ÞORVALDUR
„Það eru ekki
mörg lið sem
hafa farið út í
Eyjar og unnið."
RÓMVERJAR f COLOSSEUM
Itölsku umsækjendurnir um Ólympíuleikana árið 2012 segja þá geta gert þá sérstaka
enda Róm sögufræg borg með fallegum byggingum.