Fréttablaðið - 21.09.2001, Síða 16
Sýnd kl. 6, 8 og 10 FIUVIUNPUR
BRAGGAR kl. 10.30
ALFABAKKA 8, SÍMI 587 8900
www.samfilm.is
HAGATORGI, SÍMI 530 1919
Þar sem allir salir eru stórir
RUGARTS IN PARIS
kl.6| TOWN AND COUNTRY
kl.6
Qg8|
BRIDGET JONES'S DIARY
kl. 8 JURASSIC PARK III
PLATAN
HANNA D. STURLUDÓTTIR
óperusöngkona
Milljónamæringar
í geislaspilaranum
„Ég er með nýjasta disk Miiljónamær-
inganna í geislaspilaranum. Ég fór á hið
árlega ball þeirra á Broadway og fannst
svo gaman að ég varð að kaupa
diskinn - og á reyndar alla hina diskana
þeirra. Satt að segja hlusta ég ekkert
sérlega mikið á klassík heima" |
Rokkland á Rás 2:
Veisla og
ljósmynda-
sýning
tónlist Ólafur Páll
Gunnarsson út-
varpsmaður Rásar
2 og forseti Rokk-
lands hefur í
mörgu að snúast
þessa dagana. Út
var að koma
geislaplata með
lögum sem öll
eiga það sameiginlegt að hafa
hljómað í þáttunum og í tilefni
þess verður blásið til veislu á veit-
ingastaðnum Vídalín við Ingólfs-
torg í kvöld. Ekki er aðeins verið
að fagna útgáfunni því Óli Palli er
einnig að opna ljósmyndasýningu.
Myndirnar voru teknar á rokk-
leiðangrum Óla um heiminn og á
þeim má sjá þekkta tónlistar-
menn. Miðnes mun kynna utanrík-
isstefnu Rokklandsins. Húsið opn-
ar kl. 21. ■
■—♦—
Mistök segja tónleika-
halaarar:
Dýraklám á
tónleikum
tónleikar Mynd með dýraklámi
var sýnd á tónleikum hljómsveit-
anna Thayer, Thayer, Thorsteins-
son, Stjörnukisa og Úlpu sem
haldnir voru í Borgarleikhúsinu á
miðvikudagskvöld. Að sögn skipu-
leggjanda tónleikanna, Magnúsar
Þorsteinssonar, var um mistök að
ræða en myndin, sem sýnd var
þegar hljómsveitin Úlpa var á
sviðinu, átti ekki að vera í fókus
og því átti ekki að sjást hvað var
að gerast.
Magnús segir að Sigurbjörn
Ingvarsson, sem sá um myndræn-
an hluta tónleikanna, hafi tekið
myndina úr fókus þegar mistökin
urðu ljós. Samkvæmt heimildum
Fréttablaðsins var sumum tón-
leikagesta nóg boðið og gengu
þeir út á meðan myndin var sýnd.
Magnús segist harma mjög að
þessi mistök hafi átt sér stað og
hann voni að þetta hafi ekki áhrif
á ákvörðun Borgarleikhússins að
leigja salinn til tónleika.
Sigrún Valbergsdóttir, kynn-
ingarfulltrúi Borgarleikhússins,
sagði málið litið mjög alvarlegum
augum þar. Hún bendir á að tón-
leikarnir hafi ekki verið á vegum
Leikfélags Reykjavíkur, eiganda
hússins. Algengt sé að húsið sé
leigt út til ýmissa viðburða eins og
þarna hafi verið raunin. „Við höf-
um ekki lagt það í vana okkar að
spyrja fólk út úr um þá viðburði
sem það stendur fyrir enda öll rit-
skoðun í sambandi við listir
óæskileg. Við höfum treyst fólki
til að fara ekki yfir velsæmis-
mörk, en þegar svona kemur fyrir
þá hrekkur maður illilega við,“
segir Sigrún og sagði ekki óhugs-
andi að strangara eftirlit yrði með
viðburðum sem haldnir verða í
húsakynnum Borgarleikhússins í
framtíðinni. ■
FRETTABLAÐIÐ
21. september 2001 FÓSTUDAGUR
jCRAZY BEAUTIFUL H6,8oglo|^H ÍCATS & DOGS m/ ensku tali ~ kl. ajEtl
|THE EAST&THE FURIOUS kllo|^H SHREK m/ islensku tali ~ ~ kfe] g£]
HÁSKÓLABÍÓ
Sýnd kl. 6, 8 og 10 vit 270
Sýnd kl. 6, 8 og 10 vrr 268
lCATS & POGS m/ íslensku tali Id. 6[E5t
Tfréttir af fólki
LAND OG SYNIR
Tónleikarnir í kvöld hefjast klukkan 19.00 og lýkur klukkan 22.00. Þrettán ára aldurstakmark er, nema í fylgd með fullorðnum.
Nafnlaus sveit með
stóran plötusamning
Land og Synir spila annad kvöld en þeir eru að reyna fyrir sér erlend-
is. Sveitin hefur breytt um tónlistarstefnu en er ekki enn komin með
nafn. XXX Rottweilerhundar og Quarashi koma einnig fram.
tónleikar Þrjár vinsælustu
hljómsveitir landsins Quarashi,
XXX Rottweilerhundar og Land
og Synir koma fram á tónleikum
Kóka-kóla í Laugardalshöllinni
annað kvöld. Rottweilerhundar
eru að leggja lokahönd á fyrstu
breiðskífu sína en Quarashi og
Land og Synir hafa lagt land und-
ir fót og eru komnar með samn-
ing við bandarísk stórfyrirtæki.
Sú síðarnefnda er með samning
við London-Sire Records sem er
dótturfyrirtæki AOL-Time Warn-
er risans.
„Samkvæmt því sem okkur er
sagt er þetta ansi stór og viða-
mikill samningur," sagði Njáll
Þórðarson, hljómborðsleikari
Land og Sona í samtali við Frétta-
blaðið í gær.
„Þetta er álíka stór samningur
og Sykurmolarnir gerðu á sínum
tíma. Þetta er í raun sex platna
samningur en við verðum að
selja ákveðið mörg eintök til að
sú næsta verði gefin út.“
Njáll vildi ekki gefa upp hver-
su margar plötur sveitin þurfti
að selja til að sú næsta verði gef-
in út en segir það mun færri plöt-
ur en gengur og gerist þegar
svona samningar eru annarsveg-
ar.
Röð tilviljana varð til þess að
sveitin fékk samningin en upphaf
hans má rekja til heimsóknar
bandaríska upptökustjórans og
tónlistarmannsins Jive Jones
sem kom hingað til lands.
„Hann heyrði lög af plötunni
okkar Herbergi 313, sem þótti
heldur avante garde fyrir þennan
sveitaballabransa hér heima, og
kollféll fyrir þeim. Hann bað um
meira efni með okkur sem hann
og fékk og í kjölfarið fóru hjólin
að snúast.“
Platan er að mestu leyti unnin
hér heima en Hreimur, söngvari
sveitarinnar, og Jones þessi hafa
unnið saman að lagasmíðum.
Meðal þeirra sem koma að eftir-
vinnslu plötunnar eru Tom Lord-
Algie, sem m.a. hefur unnið með
hljómsveitum á borð við Rolling
Stones, U2, The Cure og Limp
Bizkit, og Mike Shippley sem
hefur unnið með Blondie, Aer-
osmith og Shaniu Twain.
Það kveður við nýjan tón hjá
sveitinni en hún hefur sagt skilið
við sveitaballa músíkina sem hún
sló í gegn með hér heima og spil-
ar nú svokallað háskólarokk.
„Þetta er þetta college rokk
eins og það er kallað. En þetta er
svona samtíningur héðan og það-
an í anda Green Day, Blink 182 og
Foo Fighters," segir Njáll og lof-
ar því að tónleikagesti annað
kvöld fái að heyra nýja efnið.
Fyrsta smáskífan kemur út í
febrúar eða mars í Bandaríkjun-
um og verður í kjölfarið dreift
víðar. Njáll segir sveitina samt
ekki komna með nafn sem henti á
erlendri grundu en segir þá opna
fyrir öllum tillögum.
Sveitin fékk fyrirfram-
greiðslu sem notuð er í vinnu við
plötuna sjálfa en verða menn rík-
ir af þessu?
„Ef þetta gengur vel er
ábyggilega hægt að lifa ágætu
lífi.“
kristjan@frettabladid.is
/ / /
EG VAKNAÐIIMORGUN, FOR A KLOIÐ, KLÆDDIMIG OG FOR NIÐUR.
ÞAÐ LEIÐ EKKIA LONGU ADUR
EN MAMMA QJG PABBIBYRJUÐU
AÐBOGGAMIG.
Sjónvarpsþátturinn Sopranos
vann sigur í réttarsölum í
Bandaríkjunum á dögunum en
samtök ítalsk ætt-
aðra Bandaríkja-
manna í Chicago
höfðu kært þátt-
inn fyrir að koma
vondu orði á sam-
landa sína af
ítölskum uppruna.
Dómarinn vísaði
málinu frá með
þeim rökum að samtökin hefðu
engan rétt samkvæmt stjórnar-
skránni að höfða mál gegn þátt-
unum, þar sem þau gætu ekki
sýnt fram á eitt einasta dæmi
þess að einstaklingur hefði hlotið
skaða af sýningu þeirra.
Söngkonan Mariah Carey, sem
tvisvar hefur skráð sig inn á
betrunarhæli síðasta mánuðinn
vegna „líkamlegrar og andlegrar
ofþreytu", hefur í hyggju að snúa
aftur í sviðsljósið í kvöld er hún
tekur þátt í sameiginlegri sjón-
varpsútsetningu sjónvarps-
risanna í Bandaríkjunum til
styrktar þeim sem eiga um sárt
að binda eftir hryðjuverkaárás-
irnar. Álagið á söngkonuna
reyndist henni um megn, en hún
er nýlega búin að gefa út sína átt-
undu breiðskífu auk þess að leika
í tveimur kvikmyndum. Var hún
víst að vinna að öllum verkefnun-
um á sama tíma.
Leikarinn James Woods, sem
ef til vill er þekktastur fyrir
að leika vonda gæjann í bíó-
myndunum, kom
sér í samband við
Alríkislögregluna
í Bandaríkjunum
og sagði þeim frá
fjórum grunsam-
legum mönnum
sem hann hafði
verið með í flug-
vél mánuði fyrir
hryðjuverkaárásina. Hann sagði
þá hafa verið af mið-austur-
lenskum uppruna og að þeir
hefðu hegðað sér á afar undar-
legan hátt. Þeir hefðu ekki borð-
að, lesið, sofið eða neitt slíkt.
Heldur í stað þess setið, fylgst
með starfsfólkinu og hvíslast sín
á milli. Woods segist hafa til-
kynnt þetta um leið og vélin
lenti.