Fréttablaðið - 25.09.2001, Side 9
ÞRIÐJUPACUR 25. september 2001
FRÉTTABLAÐIÐ
9
Verðbréf:
Dow Jones
hækkar
Yfirlýsing frá bin Laden:
Hvetur Pakistana
til andspyrnu
STUÐNINGSMENN BIN LADENS
Herskáir múslimar í Pakistan halda á myndum af Osama bin Laden og skæruliða með
sprengjuvörpu. „Ameríka - við erum að koma" stendur á myndinni af skæruliðanum.
dubaí. ap Osama bin Laden, sem
bandarísk stjórnvöld hafa grunað-
an um að hafa staðið að baki
hryðjuverkunum þann 11. septem-
ber, sendi í gær frá sér yfirlýsingu
þar sem hann hvatti alla múslima í
Pakistan til þess að koma með öll-
um ráðum í veg fyrir að bandarísk-
ir hermenn réðust inn í Pakistan og
Afganistan „undir forystu kross-
farans mikla Bush og fána kross-
ins._“
í Pakistan hafa mótmælafundir
verið haldnir nánast daglega und-
anfarið í borgunum Karachi, Pes-
hawar og Quetta, en múslimar þar
álíta margir hverjir bin Laden vera
hetju.
Frá því hryðjuverkin í New
York og Washington voru framin
hefur bin Laden tvisvar sinnum
neitað aðild að þeim, en minntist
ekkert á ásakanirnar í þessari síð-
ustu yfirlýsingu. George W. Bush
Bandaríkjaforseti segir þess hins
vegar skammt að bíða að gögn sem
sanni aðild bin Ladens að hryðju-
verkunum verði gerð opinber.
Leiðtogar Talibana í Afganistan
sögðust á sunnudaginn hafa leitað
hans en svo virtist sem hann sé far-
inn úr landi. í gær hins vegar sagði
Mohammad Omar, leiðtogi tali-
bana, að Bandaríkin ættu að hafa
sig á brott frá Sádi-Arabíu og brey-
ta stefnu sinni gagnvart fsrael ef
þeir vilja forðast að lenda í blóðug-
um átökum við herskáa múslima. ■
new york. ap Dow Jones vísitalan
hækkaði um 360 stig í gær, eða um
4,5%. Ekki er talið öruggt að mark-
aðir hækki áfram á næstu dögum
enda markaðir enn viðkvæmir
vegna árásar hryðjuverkamanna á
Bandaríkin fyrir tveimur vikum.
Nasdaq vísitalan hækkaði um 5,3%.
Helstu skýringar hækkunarin-
nar er talin að fjárfestar afréðu að
fjárfesta á meðan hlutabréf eru á
lágu verði.Verð þeirra sveiflast
væntanlega á næstu vikum en fjár-
festar velta nú vöngum yfir því
hversu mikla áhættu þeir vilja taka
á meðan pólitískt ástand er enn
ótryggt. ■
Andlát Samstöðu í Póllandi:
varsjá. ap Lýðræðislega vinstri-
bandalagið vann yfirburðasigur í
kosningunum í Póllandi um helg-
ina, en virðist þó ekki ætla að ná
hreinum meirihluta á þingi eins og
skoðanakannanir höfðu spáð. End-
anlegar niðurstöður kosninganna
verða ekki gerðar opinberar fyrr
en á miðvikudag, en vandaðar út-
gönguspár sýndu að bandalagið
hljóti að öllum líkindum 41-42 pró-
sent atkvæða, sem tryggja honum
219 þingsæti af 460. Tólf þingsæti
vantar því upp á að flokkurinn
verði með hreinan meirihluta.
Næsti forsætisráðherra lands-
ins verður því Leszek Miller, en
hann hafði gert sér vonir um að
þurfa ekki að leita eftir samstarfi
við annan flokk. Það gæti kostað
„erfiðar samningaviðræður, tíma-
sóun, kannski heiftarlegar deilur,“
sagði Miller.
Kosningar í Póllandi um helg-
ina urðu mjög sögulegar, ekki síst
fyrir þá sök að Samstaða, sá frægi
flokkur sem Lech Walesa stýrði í
eina tíð og á rætur að rekja til bar-
áttu hugdjarfra verkalýðsfröm-
uða gegn alræði Kommúnista-
flokksins, náði ekki einum einasta
manni inn á þing. Fall Samstöðu er
hátt, því flokkurinn sigraði í síð-
ustu kosningum og hefur farið
með stjórnartaumana í landinu
síðan.
„Þetta er mikið áfall fyrir okk-
ur,“ segir Jerzy Buzek, fráfarandi
forsætisráðherra, en miklu at-
vinnuleysi og sífelldum hneykslis-
málum er kennt um hvernig fór.
Ekki hefur gífurlegur fjárlaga-
halli bætt úr skák.
Fall Samstöðu kom þó fáum á
óvart. Verkalýðsfélagið, sem upp-
haflega myndaði kjarnann í
flokknum, sagði skilið við stjórn-
NÆSTI FORSÆTISRÁÐHERRA PÓLLANDS
Leszek Miller, leiðtogi Lýðræðislega vinstribandalagsins, hlakkar ekkert alltof mikið til þess að standa í samningaviðræðum við aðra flok-
ka um stjórnarsamstarf.
málin fyrr á árinu og frammá-
menn í flokknum hafa hver á fæt-
ur öðrum verið að yfirgefa skipið
og mynda nýja flokka.
Borgaralegur vettvangur, sem
er frjálslyndur flokkur fékk um
13 prósent atkvæða. Hægriflokk-
urinn Lög og réttlæti virðist ætla
að hljóta um 10 prósent. Pólski
bændaflokkurinn hlaut um 8,7
prósent atkvæða.
Einungis 47 prósent kosninga-
bærra manna sá ástæðu til að
mæta á kjörstað á sunnudaginn.
Til marks um áhugaleysi pólskra
kjósenda á hefðbundnum stjórn-
málum er að tveir umdeildir smá-
flokkar komust inn á þing. Þetta
eru Sjálfsvörn, sem er flokkur
bænda sem eru mikið á móti aðild-
inni að Evrópusambandinu, og
Bandalag pólskra fjölskyldna,
sem er flokkur kaþólskra íhalds-
raanna. ■
Stjómarskipti eftir
sögulegar kosningar
RÆÐUR FRAMTIÐARUPPBYGGINqq
Það styttist í að samvinnunefnd sveitár-
félaga um sameiginlegt svæðaskipulag'á
höfuðborgarsvæðinu skili af sérJ b
Svæðaskipulag:
Lokatillögur
að smella
saman
hófuðborgarsvæðið Vonir standa
til að samvinnunefnd átta sveitar-
félaga um sameiginlegt svæða-
skipulag á höfuðborgarsvæðinu
skili af sér í byrjun næsta mánað-
ar. Á fundi nefndarinnar fyrir
skömmu var samþykkt að standa
fyrir opnu húsi í Ráðhúsinu 9.
október n.k. þar sem fram fer loka-
kynning á tillögum nefndarinnar
um skipulag svæðisins sem nær
frá Hvalfjarðarbotni að Straumi í
Hafnarfirði. Þessi vinna er búin að
standa yfir í tvö og hálft ár og er
áætlaður kostnaður um 200 millj-
ónir króna. í framhaldi af þessari
lokakynningu hefst síðan lögform-
legt kynningarferli ef að líkum
lætur.
Sigurður Einarsson arkitekt og
fulltrúi í samvinnunefndinni segir
að það hafi orðið alveg ótrúleg
hugarfarsbreyting meðal sveitar-
stjórnarmanna á svæðinu í kring-
um þessa vinnu nefndarinnar. Sem
dæmi nefnir hann að sameining
slökkviliða og strætó á svæðinu
megi að hluta til rekja til áhrifa af
starfi nefndarinnar meðal sveitar-
stjórnarmanna á svæðinu. ■
Stáltak:
Oskar eftir
greiðslustöðvun
rekstur Stjórnendur Stáltaks
lögðu í gær fram beiðni um að
fyrirtækið væri sett í greiðslu-
stöðvun svo því gæfist svigrúm
til að endurskipuleggja fjárhag
þess. Undanfarna mánuði hafa
stjórnendur leitað leiða við að
tryggja rekstur félagsins og
segja að þrátt fyrir að árangur
hafi náðst þurfi fyrirtækið á
nokkru svigrúmi að halda.
Ólafur Hilmar Sverrisson
framkvæmdastjóri sagði að
margir samvísandi þættir lægju
að baki erfiðri stöðu fyrirtækis-
ins. Samdráttur hefur verið í
verkefnum fyrirtækisins nánast
frá byrjun. Að auki hafa verkefni
sem fyrirtækið hefur unnið kom-
ið illa út og lítið eða ekkert verið
upp úr sumum þeirra að hafa. Þá
var sjómannaverkfallið í sumar
ekki til þess að gera stöðuna auð-
veldari.
Tvö ár eru frá því Stáltak varð
til við samruna Slippstöðvarinn-
ar á Akureyri og Stálsmiðjunnar
í Reykjavík og varð Stáltak þá
stærsta fyrirtæki landsins í
málmiðnaði. Þegar mest var
STÁLTAK
Stáltak lagði ( gær fram greiðslustöðvunar-
beiðni, tveimur árum eftir að það var
stofnað við samruna Slippstöðvarinnar á
Akureyri og Stálsmiðjunnar,
störfuðu um 260 manns hjá fyrir-
tækinu en þeir eru nú 180 talsins.
Fækkunina má að hluta rekja til
þess að gripið hefur verið til upp-
sagna en einnig munu menn hafa
leitað í önnur störf og ekki verið
ráðið í staðinn. ■
George W. Bush:
Ætlar að stöðva fjár-
streymi til bin Laden
WASHI NGTQN.AP Ge-
orge W. Bush,
Bandaríkjaforseti,
ætlar að stöðva
alla reikninga og
eignir Osama bin
Laden og annarra
kunnra hryðju-
verkamanna í
Bandaríkjunum.
Þannig vill forset-
inn þjarma að
hryðjuverka-
mönnum og gera
starfsemi þeirra á
endanum óvirka.
undanfarið rætt við
BUSH
George W. Bush, Bandarikjaforseti, hefur
haft I mörg horn að líta undanfarið.
Bush hefur
ýmsa þjóðar-
leiðtoga og leit-
að eftir stuðn-
ingi þeirra í bar-
áttunni gegn
hryðjuverka-
starfsemi. Hitti
hann m.a. Vla-
dimir Putin, for-
seta Rússlands í
þriðja sinn á
skömmum tíma
um helgina auk
þess sem fyrir-
hugaður er
fundur með
Junichiro Koizumi, forsætisráð-
herra Japans, í dag. q