Fréttablaðið - 25.09.2001, Blaðsíða 14
14
FRÉTTABLAÐIÐ
25. september 2001 ÞRIÐJUDACUR
HVERNIC FER?
Haukar og
Valur sigra
JÚLfUS JÓNASSON ÞJÁLFARI ÍR
„Ég held að Haukar eigi eftir aðSigra í
karlaflokki en I kvennaflokki verða það
Valsstúlkur sem standa uppi sem
sigurvegarar."
Sander Westerveld:
Neitaði
að fara til
Alaves
Hverjir verða íslands-
meistarar í handknattleik?
knattspvrna Sander Westerveld,
markvörður Liverpool, neitaði að
fara á lánssamning til spænska
liðsins Alaves. Spánverjarnir
vildu fá Westar-
veld að láni fram í
desember, en
hann vildi gera
langtímasamning
og því varð ekkert
úr því að hann
færi. Alaves lék
&e8n Liverpool í
úrslitaleik Evr-
ópukeppni félags-
liða á síðasta tíma-
bili, sem lauk með
5-4 sigri Liver-
pool.
Gerard Houlli-
er, framkvæmda-
stjóri Liverpool,
keypti tvo markmenn fyrr í þess-
um mánuði. Pólska landsliðs-
markvörðinn Jerzy Dudek frá
Feyenoord og hinn unga Chric
Kirkland frá Coventry. Dudek
hefur verið í byrjunarliði Liver-
pool allt síðan hann var keyptur
og Westerveld því verið úti í kuld-
anum. Líklegt þykir að Wester-
veld verði seldur frá Liverpool á
næstunni, þar sem hann sættir sig
ekki við að verma varamanna-
bekkinn. ■
f KULDANUM
Westerveld hefur
verið úti í kuldan-
um hjá Liverpool
eftir að Cerard
Houllier keypti
tvo markmenn
fyrr í mánuðinum.
NBA:
Beðið eftir
Jordan
körfuknattleikur Michael Jordan
lætur menn enn bíða eftir, ákvörð-
un sinni um það hvort hann hygg-
ist taka fram skóna að nýju og
leika í NBA deildinni í vetur.
Flestir bandarískir fjölmiðlar
telja næsta víst að Jordan ákveði
að leika á næstu leiktíð og að hann
muni tilkynna það í dag. ■
Model HR4000C
SDS Max Bor/brotvél 1050 W, Max 0= 40 mm
H BnliaiJ. Lm,ián f| . tfcfi - 4 UMl
■Mi ' tœ 4#1-»»7wl
Paolo di Ganio:
Vandar Eiði Smára
ekki kveðjurnar
knattspyrna Hinn litríki knatt-
spyrnumaður Paolo di Canio, sem
leikur með West Ham, vandar Eiði
Smára Guðjohnsen og félögum
hans í Chelsea ekki kveðjurnar eft-
ir drykkjulæti þeirra á Posthouse
hótelinu við Heathrow flugvöllinn
daginn eftir hryðjuverkin í Banda-
ríkjunum. Fjöldi bandarískra ferða-
manna, sem var á leið heim til sín,
var staddur á hótelinu þennan dag
og finnst di Canio leikmennirnir
hafa sýnt þeim mikla vanvirðingu
með athæfi sínu.
Di Canio telur að Eiður Smári,
Frank Lampard, John Terry og
Jody Morris hafi ekki hlotið nægi-
lega harða refsingu, en samkvæmt
enskum fjölmiðlum fækkuðu þeir
fötum, blótuðu og ældu á hótelinu í
viðurvist syrgjandi Bandaríkja-
manna. Eiður Smári hefur sagt að
hann hafi verið farinn af hótelinu
þegar drykkjulætin hófust.
„Ef þú ferð á fyllerí daginn eftir
það sem gerðist í Bandaríkjunum
þá gerirðu þér greinilega ekki
grein fyrir því hvað gerðist," sagði
PAOLO
Di Canio lék með armband í bandarísku fánalitunum gegn Newcastle á laugardaginn í
virðingarskyni við þá sem létust í hryðjuverkunum.
di Canio. „Kannski hugsuðu Chel-
sea-leikmennirnir þetta ekki til
enda og það er skömm að því, af því
að það sem gerðist snerti ekki bara
Bandaríkjamenn heldur alla. Það
var rétt af forráðamönnum Chelsea
að sekta þá um tveggja vikna laun,
en eftir það sem þeir gerðu hefðu
þeir einnig átt að setja þá í leikbann
í einn mánuð, þetta var hræðilegt
hjá þeim.“
Di Canio lék með armband í
bandarísku fánalitunum gegn
Newcastle á laugardaginn í virðing-
arskyni við þá sem létust í New
York og Washington. ■
Handknattleikurinn
stendur á tímamótum
íslandsmótid í handknattleik hefst í kvöld. Geir Sveinsson segist hafa viljað prófa keppni
með tveimur riðlum. Hann segist hafa séð framtíðina bjartari en nú en segir fullt af ungum
leikmönnum að koma upp.
handknattleikur íslandsmótið í
handknattleik karla hefst í kvöld.
Geir Sveinsson, þjálfari Vals-
manna og landsliðsmaður til mar-
gra ára, er einn af þeim sem spá
Islandsmeisturum Hauka sigri á
íslandsmótinu.
„Ég tippaði að Haukar yrðu
meistara en við verðum þarna í
baráttunni. Okkar markmið er
fyrst og fremst að koma okkur í
úrslitakeppnina."
Valsmenn hafa misst tíu leik-
menn úr æfingahóp sínum og er
liðinu spáð 5.-6. sæti í deildinni.
Geir hefur ekki áhyggjur af stöðu
liðsins.
„Einhvern veginn á Valur aðra
leikmenn til að taka við og ég er
með sautján manns á æfingu í dag
og ég kvarta ekki. Þetta eru allt
hörkudrengir sem leggja mikið á
sig.“
Mótið í ár verður spilað með
hefðbundnu keppnisfyrirkomu-
lagi, fjórtán lið spila í einni deild
og mætast öll heima og að heiman.
Átt efstu liðin mætast síðan í úr-
slitakeppni. Líkt og komið hefur
fram í Fréttablaðinu var horfið
frá tveggja riðla keppni þegar lið
Fjölnis dró sig úr keppni.
Aðspurður segist hann frekar
hafa verið hlynntur þeirri keppni
sem átti að spila, þ.e. í tveimur
riðulum.
„Ég var hlynntur henni og
hefði viljað prófa hana. Mér þykir
þetta mjög miður með Fjölni og
það er slæmt fyrir handboltann í
GEIR SVEINSSON
Þjálfari Valsmanna ætlar sér í úrslitakeppnina í ár. Liðinu er spáð 5.-6. sæti ásamt
Gróttu/KR. Hann segir liðið hafa misst marga leikmenn en hann hafi marga unga og efni-
lega stráka sem mun án efa láta að sér kveða.
landinu. Það er alltaf slæmt að
missa heilt félag, það er ekki eins
og við megum við því.“
En hver er staða handknatt-
leiks á íslandi nú?
„Ég vil meina að við stöndum á
ákveðnum tímamótum. Ég hef oft
séð það bjartara en það er fullt af
efnilegum leikmönnum að koma
upp og ég held að það þurfi ekki
að kosta miklu til að rífa handbolt-
ann aftur upp, þar sem hann á að
vera. Þetta er í okkar eigin hönd-
um hvort við að þetta virki al-
mennilega eða ekki.“
kristjan@frettabladid.is
1. umferð:
Þriðjudagur 25. sept kl. 20.00
Þór Ak. - HK
FH - UMFA
Grótta KR - Selfoss
ÍBV- KA
Miðvikudagur 26. sept kl 20.00
Fram - ÍR
Valur - Stjarnan
Víkingur - Haukar
Harpa Melsted, fyrirliði Hauka:
„Spáin gekk
upp í fyrra“
Halldór Ingólfsson,
fyrirliði Hauka:
„Betri en
í fyrra“
handknattleikur Haukar úr Hafn-
arfirði urðu Islandsmeistarar í
fyrra eftir harða rimmu við KA
menn. Liðinu er spáð sigri í deild-
inni og segir Halldór Ingólfsson,
fyrirliði, liðið stefna hátt.
„Þetta er náttúrulega bara leik-
ur. En við fáum fyrsta sætið og
stefnum hátt en við þurfum að
hafa fyrir öllu sem við gerum.
Þetta verður að sjálfsögðu erfitt
en við gerum okkar besta.“
Haukar hafa bæði misst og
fengið til sín leikmenn.
„Það fóru frá okkur góðir leik-
menn sem við söknum en við
fengum líka mjög góða leikmenn í
staðinn. Við teljum okkur jafnvel
betri en í fyrra.“
Halldór telur að nokkur lið eigi
eftir að blanda sér í toppbarátt-
una.
„KA menn voru sterkir í fyrra
og verða það áfram. Annars verð-
ur þetta bara jafnt. Það þurfa allir
að hafa fyrir sigri og lið munu
reita stig af hvert öðru.“ ■
1. DEILD KARLA
HANDKNATTLEIKUR
Haukastúlkur
unnu íslandsmeist-
aratitilinn í fyrra,
líkt og karlarnir.
Þeim er spáð fyrs-
ta sætinu af fyrir-
liðum og þjálfur-
um 1. deildar.
„Mér líst bara vel á þetta og von-
andi gengur þetta upp en maður vill
ekki vera horfa of mikið á þessar
spár. Það gekk að vísu upp í fyrra
en ég held að deildin verði mun
jafnari á toppnum,“ sagði Harpa
Melsted eftir að spáin lá fyrir.
Lið Hauka hefur orðið fyrir ein-
hverjum breytingum en hún telur
það ekki eiga eftir að hafa áhrif á
liðið.
„Við misstum Auði Hermanns-
dóttur og fengum í staðinn Nínu K.
Björnsdóttir. Ég vona að hún komi
til með að fylla skarð hennar full-
komlega. Það kemur alltaf maður í
manns stað.“
En hvaða lið verða í toppbarátt-
unni fyrir utan Hauka?
„Ég held að Valur, Grótta/KR og
ÍBV eigi að vera næst toppnum en
lið eins og Víkingur og Stjarnan
geta líka farið að spila inní þetta." ■
1. DEILD KVENNA
Sæti Lið Stig
1. Haukar 101
2. Grótta/KR 82
3.-4. IBV 77
3.-4. Valur 77
5. Vikingur 65
6. Stjarnan 54
7. FH 36
8. KA/Þór 22
9. Fram 20