Fréttablaðið - 25.09.2001, Page 22

Fréttablaðið - 25.09.2001, Page 22
22 FRÉTTABLAÐIÐ 25. september 2001 PRIDJUDACUR HRAÐSOÐIÐ EGGERT MAGNÚSSON formaður KSÍ Spila með hjartanu HVERNIG finnst þér íslandsmótið að þessu sinni hafa verið? „Mér finnst Símadeildin hafa verið mjög skemmtileg og spennandi frá fyrstu umferð til þeirrar síðustu. Það réðust ekki úrslit á toppi né botni fyrr en í síðustu umferð og þannig á það að vera. Það hafa aldrei verið fleiri áhorfendur og það hlýtur að segja að við erum á réttri leið í fótboltanum." HEFUR fótboltinn verið að breytast á síðustu árum? „Já. Til dæmis hefur umfjöllun um fótbolta breyst. Hún er miklu meiri og það er miklu meira sýnt af fót- bolta í íslensku sjónvarpi. Fótboltinn er auðvitað langstærsta íþrótta- greinin og ég tel þetta því mjög já- kvætt.“ HVERT er helsta einkenni islenska fótboltans um þessar mundir? „Helsta einkenni íslensks fótbolta í mínum huga hefur alltaf verið að menn æfa mikið í langan tíma fyrir stutt keppnistímabil. Menn eru að æfa í ellefu mánuði en spila í aðeins fjóra eða fimm mánuði í íslandsmót- inu sjálfu. Aðstæður hafa oft verið erfiðar og eru það enn. Það þýðir að í íslenskum fótbolta spila menn með hjartanu. Þeir eru líkamlega sterkir en oft hefur kannski vantað knatt- tæknina en það hefur verið að breyt- ast líka.“ HVERNIG er hægt að styrkja betur afkomugrundvöll fótboltans? „Ég held að afkomugrundvöllurinn sé dálítið háður afkomunni í þjóðfé- laginu almennt á hverjum tíma. Núna hefur verið smá bakslag í efnahagslífinu og það kemur niður á fótboltanum. Það er erfiðara að sækja pening út í atvinnulífið og mér finnst menn víða á sama tíma hafa verið að gíra sig niður. íslands- meistararnir sjálfir í Símadeildinni tóku nú aldeilis til í sínum herbúðum fyrir þetta tímabil og það virðist ekki hafa gert þeim annað en gott. Vestmannaeyingar sem urðu nú í öðru sæti gíruðu sig mjög mikið nið- ur líka. Menn verða náttúrlega að læra að haga seglum eftir vindi. Það þarf fyrst að hyggja að því hvaða tekjur menn hafa og síðan að eyða í samræmi við það. Það er hin ein- falda hagfræði." Eggert Magnússon er 54 ára og er formað- ur Knattspyrnusambands fslands. Fyrrverandi konungur Afgana: Býður fram aðstoð sína róm. ap. Mohammad Zahir Shah, fyrrverandi konungur Afganistan, á sér þann draum að Afganir muni falast eftir aðstoð hans við að setja á laggirnar friðsamlega stjórn í landinu. Zahir býr í útjaðri Róma- borgar og lætur Iítið fyrir sér fara. Hann ver dögunum 1 garði sínum, les franskar bækur og fer í göngut- úra. Eftir nýjustu þróun heimsmála þá hafa andstæðingar Talibana bor- ið víurnar í Zahir en konunglegir ráðgjafar segja að Zahir láti sér ekki dreyma um að taka við krún- unni á nýjan leik. Ástæða þess gæti reyndar verið sú að Zahir óttist um líf sitt. Fjölmargir ættingjar hans hafa fallið fyrir morðingjahendi í Pakistan í gegnum tíðina og gerð var atlaga að Zahir á heimili hans fyrir nokkrum árum. Zahir er menntaður í Frakklandi og margir heittrúarmenn urðu and- snúnir honum vegna þeirra umbóta í frjálsræðisátt sem hann stóð fyrir í stjórnartíð sinni. Stjórnarskrá Afganistan frá árinu 1964 tryggði konum til að mynda réttindi til náms og vinnu. Talibanar afnámu þau er þeir komust til valda árið 1996. Zahir tók við krúnunni í Afganistan 19 ára gamall þegar fað- ir hans var myrtur árið 1933. Frændur hans stýrðu landinu fyrir hann næstu 20 árin og einn þeirra Mohammad Daoud var lengi við stjórnvölinn. Zahir öðlaðist ekki raunveruleg völd fyrr en hann bol- aði Daoud frá völdum árið 1963, Áratug síðar hefndi Daoud harma sinna og steypti Zahir af stóli þegar Zahir var í fríi á Ítalíu þar sem hann hefur dvalið æ síðan. ■ MOHAMMAD ZAHIR SHAH Pó að Zahir þætti ekki vera atkvæðamikill I stjórnartíð sinni þá minnast margir Afganir hans með velvild enda ekki verið friðsam- legt I landinu síðan á dögum hans. FRÉTTIR AF FÓLKI Hreinn Lofts- son, formað- ur einkavæðing- arnefndar, er hvorki efstur á vinsældalista samgönguráðu- neytisins né ís- landssíma um þessar mundir. Hreinn lét þau orð falla í Kastljósinu í síðustu viku að sölu Símans hafi verið frestað sl. vor af tillitssemi við Íslandssíma hf. Össur Skarphéð- insson, formaður Samfylkingarinn- ar, greip ummæl- in á lofti og hefur notað þau sem barefli á Sturlu Böðvarsson, sam- gönguráðherra, og Sjálfstæðis- Hokkinn yfirleitt. Össur segir að hollvinabandalag Sjálfstæðisflokksins hafi lagt á ráðin og hyglt vinum sínum í ís- landssíma með þeim hugsanlegu afleiðingum að minna fáist fyrir Símann fyrir vikið. Innan samgönguráðuneytisins mun sjóða á mönnum vegna ummæla Hreins sem hafa komið Sturlu í erfiða stöðu en hann hef- ur litlum vörnum komið við vegna málsins. Forystumenn ís- landssíma eru sömuleiðis óhress- ir með að athyglin skuli beinast með þessum hætti að fyrirtækinu vegna niðurstöðunnar í einka- væðingu Símans. Hrein Loftsson ber einnig á góma í viðtali Ásgeirs Frið- geirssonar, Pressunni, við Guð- mund Franklín Jónsson, fjár- málamann í New York, um einka- væðingu á ís- landi. Guðmund- ur Franklín veltir m.a. vöngum yfir hlutverki einka- væðingarnefndar og segir óhepp- legt að Hreinn „sé þegar mikil- virkur á hlutabréfamarkaðinum og sé fyrir hádegi að selja bréf ríkisins en eftir hádegi að sinna persónulegum viðskiptum á marlcaði." Hreinn er stjórnarfor- maður Baugs hf. og bendir Ás- geir á að í sömu viku og útboð Landssímans stóð yfir birtust fréttir af viðskiptum hans með hlutabréf í tryggingafélagi. ,,“Er það siðferðilega rétt að hann geysist á sama tíma um víðan völl og kaupi hlutabréf hér og þar. Slíkt yrði a.m.k. ekki talið eðlilegt hér í Bandaríkjunum. Hann er á hálum ís.“ segir Guð- mundur," í viðtalinu við Ásgeir. Myndlistasýningin “Ferða- fuða“ var opnuð í Slunkaríki á ísafirði sl. laugardag. Sýnendur eru svo margir að þeir kæmust ekki fyrir í sýningarsalnum, seg- ir á fréttavef Bæjarins besta. Blaðamaður telur og heppilegt að verkin sem eru til sýningar eru öll í smærri kantinum, enda varla Myndsímar eru framtíðin Túlkar og tölvur eru að breyta samskiptamöguleikum heyrnarlausra. I vikunni er fyrirlestraröð í tilefni tíu ára afmælis Samskiptamiðstöð- var heyrnarlausra og heyrnarskertra í hátíðarsal Sjómannaskólans. NÝIR MÖGULEIKAR Trausti Jóhannesson flytur fyrirlesturínn Að vera heyrnarlaus í íslensku samfélagi. Hann segir samskiptaörðugleika fyrri ára hafa verið mikla en með tilkomu túlka og tölva hafa samskiptin tekið stakkaskiptum. fyrirlestraröð Fyrirlestraröðin hefst í dag og henni lýkur á föstudag. Hún fer fram í hátíðar- sal Sjómannaskólans og hefjast fyrirlestrarnir kl. 15.30 daglega. Efni þeirra snertir starfssvið stofnunarinnar á ýmsa vegu, er t.d. um táknmálstúlkun og tví- tyngi heyrnarlausra. Á föstudaginn flytur Trausti Jóhannesson fyrirlesturinn Að vera heyrnarlaus í íslensku sam- félagi. Trausti er 37 ára kerfis- fræðingur, sem hefur verið heyrnarlaus frá fæðingu. Hann lítur á táknmál sem móðurmál sitt. „Ég ætla að tala um uppvaxt- arárin og samskiptaerfiðleikana sem einkenndu þau,“ segir Trausti um fyrirlesturinn. „í langan tíma þurftu öll mín sam- skipti við umheiminn að fara í gegnum fjölskylduna." Trausti byrjaði í rafvirkjun í Iðnskólanum í Reykjavík 18 ára. Námið gekk vel vegna þess að kennararnir gátu líka kennt hon- um einsömlum utan kennslu- stundar. Þegar það gekk ekki lengur þurfti Trausti að hætta í rafvirkjun. „Það er ekki fyrr en nokkrum árum seinna að ég komst í sam- band við tvo túlka, nýlega menntaða í Danmörku. Vegna þeirra gat ég farið á tölvubraut í Iðnskólanum og var allt í einu í sömu stöðu og aðrir nemendur. Þó dönsk tákn læddust inn á milli í samræður okkar og við þurft- um að semja fjölmörg tölvu- tengd nýyrði var munurinn ótrú- legur.“ Með tilkomu túlkanna standa heyrnarlausir nemendur á fram- haldsskólastigi jafnvígir öðrum nemendum. Nú eru 15 túlkar starfandi en árið 1997 útskrifað- ist fyrsti árgangurinn úr tákn- málsfræði i Háskóla íslands. Túlkarnir anna ekki eftirspurn. í dag eru 13 í námi. Trausti er netstjóri Sam- skiptamiðstöðvar heyrnarlausra og heyrnarskertra, auk þess að sjá um myndbandagerð fyrir stofnunina. Hann vottar það að tölvubyltingin hefur haft mikil áhrif á líf heyrnarlausra. Smá- skilaboð GSM-símana, MSN hraðskilaboð á Netinu og önnur textaskilaboð eru mikil þægindi. „Draumurinn er að í framtíð- inni verði myndsímar á öllum heimilum heyrnarlausra. Þeir tengjast í gegnum miðstöð, þar sem túlkur þýðir samtalið. Þá geta heyrnarlausir haft sam- skipti úr mismunandi bæjar- hlutum. Hér eru tengingarnar til staðar en aðeins þrír mynd- símar til. Þeir eru algengir í Sví- þjóð og Finnlandi og þar eru ein- nig túlkar. Þetta eru fremstu þjóðirnar á þessu sviði. En hér eru aðeins 200 manns heyrnar- lausir, sem gerir það að verkum að ný tækni sem þessi breiðist hratt út.“ halldor@frettabladid.is pláss til annars. Brugðið var á það ráð vegna þrengslanna að koma veitingaborði fyrir ut- andyra, enda var víst veður gott fyrir vestan um helgina. Það hafði þann góða kost í för með sér að gestir gátu gengið um með glös í hendi án þess að eiga á hættu að rekast á aðra sýningar- gesti í þrengslunum. Einn fremsti trommuleikari í rokksögu íslands, Gunnar Jökull Hákonarson, lést sl. laug- ardag. Gunnar Jökull var þekktur fyrir trommuleik sinn í hljóm- sveitunum Trúbrot og Náttúru. Sú fyrrnefnda gaf meðal annars út plötuna Lifun sem er mikið meistarastykki í tónlistarsögu ís- lands. Hróður Gunnars Jökuls barst víða á þessum tíma og mun honum hafa verið boðin trommu- leikarastaða í hljómsveitinni Yes. Gunnar Jökull átti við veikindi að stríða sem drógu hann til dauða. „Þetta er afi - hann hefur lifað tímana tvenna - ef ekki þrenna."

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.