Fréttablaðið - 26.09.2001, Blaðsíða 24

Fréttablaðið - 26.09.2001, Blaðsíða 24
FRETTABLAÐIÐ SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 515 75 00 Ritstjórn: 515 7515, símbréf: 515 75 06, rafpóstur: ritstjorn@frettabladid.is Auglýsinga- og markaðsdeild: 515 75 15 - símbréf 515 75 16 - rafpóstur auglysingar@frettabladid.is Dreifing: 515 75 20 VlÐ SECiUM FRÉTTIR Fréttavefurinn á VÍSÍI*.ÍS Fyrstur með fréttirnar Aádeýúnu Kr. 1090 ny Grensásvegur 10 I Sími 553 88 33 HUSID OfficelSuperstore { Þráins Bertelssonar Vaki, vaki vaskir menn... Jæja, þá eru Tælendingar víst orðnir leiðir á næturgöltri og farnir að koma sér í bælið á skikkan- legum tíma. Þeir loka núna sjoppun- um í Bankok í síðasta lagi klukkan tvö á nóttunni því að eftir dýrkeypt- ar rannsóknir hafa þeir reiknað út að fólk geti skemmt sér jafnmikið milli kl. níu og tvö og milli tólf á miðnætti og fimm á morgnana. Þar að auki hafa Tælendingar komist að þeirri niðurstöðu að ferðamenn sem næt- ursukk, eiturlyfjaneysla og kynlífs- iðnaður laðar til landsins séu vand- ræðafólk og meiri akkur í túristum sem vilja koma og skoða fallegt land og vinalega og gæfulega þjóð. ..♦-.. EN BORGARSTJÓRNIN OKK- AR VAKIR og vakir þótt kollegarn- ir í Bankok séu orðnir lúnir og syfj- aðir. Hér er búið að leggja mikla undirbúningsvinnu í að byggja upp allar aðstæður til að lokka hingað nátthrafna sem ekki eru lengur vel- komnir til Tælands. Hér eru ótelj- andi krár og skemmtistaðir og hóru- hús og strípiklúbbar og mikið úrval af vændisfólki innlendu og erlendu. Hér er hægt að sitja að sumbli allan sólarhringinn og skemmta sér við að halda sér vakandi - meira að segja svo glaðvakandi að við eigum senni- lega heimsmet í meðferðarþörf vímuefnasjúkra ungmenna. —♦—- HÉR ER ALLT TIL REIÐU til að taka við þeim ferðamönnum sem Bankok hafnar. Næturklúbbar, eitur- lyfjaneysla og sukk í hæsta gæða- flokki. Og allt fer þetta mjög snyrti- lega fram: Ofbeldisglæpir og líkams- árásir á svæði 101 í sumar (maí- ágúst) hafa ekki verið nema 167 - sem er alls ekki mikið miðað við hvað allir skemmtu sér vel - og önn- ur lögregluverkefni í miðbænum voru ekki nema um 7000 á sama tíma. ÞAÐ ER GREINILEGA mikill styrkur að því fyrir 101-svæðið að eiga sérstakan miðborgarstjóra. Það þarf endilega að ráða fleiri svona stjóra í vinnu við að hressa upp á drungaleg úthverfin svo að 101- hverfið sé ekki eitt um hituna.Við þurfum að hamra járnið meðan það er heitt og fá dópistana, pervertana og barnaníðingana sem Tælendingar eru að reyna að losa sig við til að drífa sig hingað og taka þátt í hinu blómlega næturlífi Reykjavíkur og sletta ærlega úr klaufunum. Vaki, vaki vaskir menn.. ■ Tryggið ykkursæti ítíma! Við bjóðum Helgarslaufur, pakkaferðir með flugi og gistingu, á frábæru verði, til áfangastaða okkar innanlands. Nú er rétti tíminn til að bregða út af hinni daglegu venju, hnýta litríkar og spennandi slaufur á tilveruna og halda á vit skemmtilegra og rómantískra ævintýra. Munið eftir Helgarslaufunum þegar ykkur langar í tilbreytingu. Hafið samband í síma 570 30 30 fax: 570 3001 websales@airiceland.is www.flugfelag.is .. .fljúgðu frekar FLUGFELAG ISLANDS — fyrir fólk eins og þig! Hópar, klúbbar og starfsmannafélög: Við bjóðum Helgarslaufur á sérstöku tilboðsverði fyrir stærri hópa. (} JJfJDSSJT KÆLI SKÁPAR Umbo>menn um land allt Kæliskápur CA-138 . Kælir: 213 Itr. * Frystir: 93 Itr. . Sjálvirk afþýöing í kæli . Mál hxbxd: 180x60x60 Kr: 69.900 stgr. f i Kæliskápur R -29 • Kælir: 212 Itr. • Frystir: 59 Itr. . Sjálvirk afþýðing í kæli ! . Mál hxbxd: 150x60x60 ll Kr: 49.900,- stgr. 1 vev ■THj Kæliskápur R -24 • Kælir: 184 Itr. . Frystir: 46 Itr. . Sjálvirk afþýðing (kæli . Mál hxbxd: 140x55x60 Kr: 43,900 sigr ITÖLSK WÖNNUN ÍTÖLSK GÆDI BRÆÐURNIR ORMSSON HEIMILISTÆKI Lágmúla 8 • Slmi 530 2800

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.