Fréttablaðið - 26.09.2001, Blaðsíða 12

Fréttablaðið - 26.09.2001, Blaðsíða 12
12 FRÉTTABLAÐIÐ 26. september 2001 IVIIDVIKUDAGUR Bandaríkin, Rússland og Kina: Með SÞ gegn hryðjuverkum 5AMEINUÐU ÞJÓÐIRNAR.flP Yfirlýsing Kofi Annan, aðalritara Sameinuðu þjóðanna á mánudag þar sem hann óskaði eftir því að Sameinuðu þjóð- irnar gegndu stóru hlutverki í hinni alþjóðlegu baráttu gegn hryðju- verkum, hefur fengið góðan hljóm- grunn hjá Bandaríkjunum, Rúss- landi og Kína. Igor Ivanov, utanrík- isráðherra Rússlands, sagði m.a. að Sameinuðu þjóðirnar eigi að gegna forystuhlutverki í alþjóðlegri bar- áttu gegn hryðjuverkum. Varaði hann auk þess við hvers kyns að- gerðum þjóða gegn hryðjuverkum sem brotið gætu alþjóðleg lög. ■ KOMIN TIL PAKISTAN Sendinefnd Evrópusambandsins er komin til Pakistan. Hér sést hún funda í Islama- bad I Pakistan. Javier Solana, yfirmaður ut- anríkis- og öryggismála hjá ESB, er lengst til vinstri. Sendinefnd ESB: Ætlar að aðstoða Pakistana islamabad.pakistan.ap Sendinefnd Evrópusambandsins er komin til Pakistan. Hefur hún m.a. heitið því að aðstoða Pakistana við að taka á móti þeim mikla fjölda flóttamanna sem búist er við að muni streyma inn í landið frá Afganistan ef Bandaríkin ákveða senda herlið sitt þangað. Pakistan er fyrsti viðkomustaður sendi- nefndarinnar, en meðlimir hennar ætla á næstu dögum að ferðast um Mið-Austurlönd til að leita eftir stuðningi í baráttunni gegn hryðjuverkum. Vill sendinefndin koma því á framfæri að baráttan gegn hryðjuverkum sé ekki bar- átta gegn islamstrú. „Við vitum að öfgafólk hefur undanfarna daga varpað rýrð á islamstrú. Við vit- um einnig að það er út í hött að dæma islam vegna þessara illsku- verka, alveg eins og það er út í hött að dæma, t.d. kristna trú eða Vesturlönd af verkum aðskilnað- arhreyfingar Baska eða írska lýð- veldishersins,“ sagði Chris Patten talsmaður sendinefndarinnar. ■ ' ..... Franska ríkisstjórnin: Flugfélög fá ábyrgð parís.ap Franska ríkisstjórnin td- kynnti í gær að hún ætli að veita flugfélögum í landinu fjárhags- tryggingu til skamms tíma vegna ástandsins sem skapast hefur vegna hryðjuverkaárásanna á Bandaríkin. Tryggingin mun nema rúmlega 5 milljörðum króna og gildir hún að minnsta kosti næsta mánuðinn. Yfirlýsingin kom í kjöl- far ákvörðunar fjármálaráðherra innan Evrópusambandsins um síð- ustu helgi að tryggja það að flugfé- lög innan ESB verði aðstoðuð vegna núverandi ástands í flug- málum í heiminum. I síðustu viku vöruðu evrópsk flugfélög við því að þau gætu þurft að leggja niður starfsemi sína vegna þess að tryggingafélög voru ekki tilbúin til að veita þeim nægilega tryggingu fyrir mögulegum hryðjuverkum eða hernaðaraðgerðum. ■ Hinn ungi bin Laden: Var feiminn og kurteis london.ap Osama bin Laden var feiminn og afar kurteis þegar hann var 13 ára gamall. Þetta segir breskur kennari sem kenndi honum ensku í skóla í Sádi Arabíu. „Hann var afar kurteis, þögull og ég myndi segja að hann hafi verið mjög feiminn. Hann var ekki með bestu einkunnirnar í bekknum, en heldur ekki heldur þær lökustu. Hann var miðlungsnem- andi,“ sagði hinn 69 ára gamli Bri- an Fyfield-Shayler í nýlegu viðtali BIN LADEN Samkvæmt gömlum enskukennara bin Laden var hann sem drengur afar feiminn og kurteis. á breskri sjónvarpsstöð. „Hann var reyndar í öðrum af tveimur bestu skólunum í land- inu og því eflaust einn af 50 til 60 bestu nem- endunum á hans aldri,“ sagði hann. Bætti Shayler því við að bin Laden gæti hafa verið í uppreisn gegn hinum vestrænu kennslu- brögðum sem notuð voru í skólanum. „Ef ég lít til baka þá hefðum við eflaust getað kennt vísindi og erlend tungu- mál og einblínt á notkun skólabúningum á aðeins var- færnislegri hátt.“ Ilögreglufréttir Vörubíll valt í beygjunni að Nesjavöllum á Geithálsi fyrri part dags í gær. Vörubíll- inn var með malarfarm en ekki urðu slys á fólki og vegurinn fáfarinn. Bílstjóri vörubílsins var þó eitthvað stirður eftir veltuna. Verið var að vinna við að koma bílnum aftur á hjólin þegar Fréttablaðið hafði sam- band við lögreglu. Eitthvað sinnaðist skólapilti við skólafélaga sína á Hellu í gær og hljóp út úr grunnskól- anum. Hafin var leit að honum og fannst hann stuttu seinna rétt við bæinn að sögn lög- reglu. F ær bor gað fyrir að planta trjánum ísólfur Gylfi Pálmason fær eins og aðrir þátttakendur í Suðurlandsskógum um tíu krónur fyrir hvert tré sem hann fær úthlutað og plantar í landi sínu að Uppsölum. Ekki hefur verið gengið frá samningi við þingmanninn en hann hefur þó þegar fengið allt að 2500 tré og á von á um 25 þúsund króna greiðslu vegna þeirra. Menn verða ekki rík- ir af þessu," segir Björn B. Jónsson skógrækt Þrátt fyrir að ísólfur Gylfi Pálmason hafi þegar fengið trjáplöntur í þúsundatali frá Suð- urlandsskógum hafa enn engir samningar verið gerðir um þátt- töku alþingismannsins í Suður- landsskógaverkefninu. í lögum um Suðurlandsskóga segir að slíka samninga eigi að gera og leggja þá fyrir landbúnaðar- ráðherra til stað- festingar. Að sögn Björns B. Jónssonar fram- kvæmdastjóra Suðurlandsskóga fengu ísólfur Gylfi og fjölskylda hans allt að 2500 trjáplöntur fyrr á árinu til að planta á jörðinni Uppsölum. Björn segir að þegar nýir þátttakendur í Suðurlandsskógum koma til liðs við verkefnið sé vaninn að þeir fái á bilinu 1000 til 2500 trjáplöntur til að fá tilfinningu fyrir starfinu. Síðan sé hafist handa við að gera nákvæma áætlun um skógræktar- verkefnið á viðkomandi jörð og í kjölfar þeirrar vinnu sé gengið frá formlegum samningum um sam- starfið. „Það verður uppgjör í desem- ber. Þá verður gengið frá samn- ingnum um nytjaskóga á Uppsöl- um og ísólfur og fjölskylda hans fá greitt fyrir þá vinnu sem þau hafa innt af henti," segir Björn. Greiðslan fyrir hverja trjá- UPPSALIR ísólfur Gylfi fær í desember greitt fyrir að hafa sett plöntur frá Suðurlandsskógum á jörð sína Uppsali. „Menn verða ekki rikir af þessu," segir Björn B. Jónsson plöntu sem sett er niður og borin á hana áburður er um tíu krónur að sögn Björns. ísólfur Gylfi á þan- nig von á allt að 25 þúsund krónum fyrir að planta trjánum sem hann fékk frá Suðurlandsskógum. Þá fá þátttakendur í Suðurlandsskógum greitt fyrir ýmsa aðra vinnu teng- da skógræktinni í framtíðinni. Þess má geta að alls eru nú um 230 þátttakendur í Suðurlands- skógaverkefninu. Að sögn Björns hefur engum sem á annað borð uppfyllir skilyrði verið neitað um aðild að verkefninu. Um einni milljón trjáplantna var plantað á þessu ári á vegum verkefnisins og Björn segist gera sér vonir um að þær verði 1,3 milljón á næsta ári. „Það er yndislegt hversu margir hafa sýnt þessu áhuga ef haft er í huga að hér er ekki um mjög arðvænlegan rekstur að ræða. Menn verða ekki ríkir af þessu,“ segir Björn. gar@frettabladid.is Laglausir þjást einnig af „tónskorti" Fólk sem er laglaust getur heldur ekki greint mismunandi tóna. Ástand- ið ekki talið tengjast skorti á gáfum. vIsinpi Kanadískur vísindamaður hefur komist að því að fólki sem ekki getur haldið lagi virðist ein- nig vera fyrirmunað að greina í » sundur mismun- andi tóna auk þess að vera taktlaust með eindæmum. Að sögn Isabelle Peretz, vísinda- manns við háskól- ann í Montreal, merkir þetta að „tónskert" fólk finni ekki fyrir neinni sérstakri tilfinningu þeg- ar það hlustar á tónlist. „Fyrir þetta fólk er það að hlusta á tón- „Fyrir þetta fólk er það að hlusta á tón- list eins og að hlusta á erlent tungumál." list eins og að hlusta á erlent tungumál," sagði hún í viðtali á fréttavef BBC, en rannsókn hennar birtist í tímaritinu „New Scientist." í rannsókninni athugaði Dr. Peretz hvort fólk gæti greint á milli tveggja hálftóna (sem jafn- gilda einum tóni) eða smærri tóna. Komst hún að því að „tónskert" fólk gat það ekki, en hálftónn er minnsta tónbilið í hinum hefðbundna vestræna tón- stiga. „Tónskert" fólk gat heldur ekki greint ranga tóna í þekktum lögum eða tekið eftir því þegar mismunandi tónar rákust saman vegna þess að þeir pössuðu ekki saman í laginu. Tim Griffiths, vísindamaður við háskóla í Newcastle hefur ein- nig rannsakað „tónskort" hjá fólki. Telur hann að líkur séu á því að fólk með slík einkenni vilji ekki að aðrir komist að ásigkomulagi þeirra. „Þeir sem þjást [af „tón- skorti“] setja ef til vill geislaplötu í græjurnar þegar vinir koma í heimsókn til þess að það líti út eins og þeir hafi gaman af tón- list,“ sagði hann. Vísindamenn halda því fi'am að ástæðan fyrir því að fólk geti ekki greint mismunandi tóna tengist á SYNGUR I KARAOKE Margir kannast eflaust við þá þjáningu sem fylgir því að hlusta á laglaust fólk syngja. engan hátt skorti á gáfum, geð- rænum vandamálum eða skorti á tónlist í umhverfi þeirra í æsku. Hins vegar kemur mönnum ekki saman um hvort tengja má ástandið við slaka tungumála- færni. freyr@frettabladid.is

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.