Fréttablaðið - 27.09.2001, Blaðsíða 12

Fréttablaðið - 27.09.2001, Blaðsíða 12
12 FRETTABLAÐIÐ 27. september 2001 FIMMTUDACUR Norrænt samstarf: Framtíðin rædd norðurlönd Siv Friðleifsdóttir sit- ur í dag og á morgun fund sam- starfsráðherra Norðurlandanna í Helsinki þar sem fjallað verður um tillögur að framtíðarstefnu hins norræna samstarfs. Tillög- urnar hafa verið mótaðar á grund- velli skýrslunnar „Norðurlöndin 2000 - umleikin vindum veraldar" en hún var unnin af átta norrænum sérfræðingum undir stjórn Jóns Sigurðssonar, bankastjóra Nor- ræna fjárfestingarbankans. Meðal þeirra sviða sem munu fá sérstak- an forgang samkvæmt tillögunum má nefna tækniþróun, velferð og innri markað á Norðurlöndum. ■ Skuldir Bandaríkjanna hjá Sameinuðu þjóðunum: Verða greiddar að mestu SAMEINUÐU ÞJÓÐIRNAR Bandarísk stjórnvöld hafa árum saman staðið í hatrömmum deilum við Sameinuðu þjóðirnar um uppsafnaðar skuldir sínar við þær. Á mánudaginn sam- þykkti fulltrúadeild Bandaríkja- þings að greiða afborgun af skuld- unum að upphæð 582 milljónum bandarískra dala. Öldungadeild þingsins samþykkti þessa greiðslu í maí síðastliðnum, en margvíslegt þjark kom í veg fyrir að fulltrúa- deildin samþykkti hana. George W. Bush forseti þarf nú að samþykkja greiðsluna, en búist er við þvi að hann dragi það ekki lengi, enda þykir Bandaríkjunum FRÁ BANDARÍKJAÞINCI Þingmenn beggja flokka hafa sagst ætla að standa sameinaðir að baki forseta sín- um í aðgerðum gegn hryðjuverkum. Neðri deild þingsins samþykkti í gær að tefja ekki lengur fyrir afborgun inn á skuldir Bandaríkjanna hjá Sameinuðu þjóðunum. mikils vert nú að njóta fulls stuðn- ings Sameinuðu þjóðanna í væntan- legum aðgerðum gegn hryðjuverk- um. Bandarísk stjórnvöld féllust loks á að greiða skuldirnar í þremur af- borgunum í lok síðasta árs eftir að Sameinuðu þjóðirnar höfðu fallist á að lækka hlutfall þeirra í rekstrar- kostnaði S.Þ. úr 25% í 21%. Fulltrúadeildin hefur hins vegar samþykkt að fresta þriðju og síðustu afborgun skuldanna, 100 milljónum dala, sem til stóð að greiða á næsta ári, þangað til Bandaríkin hafa end- urheimt sæti sitt í Mannréttinda- nefnd Sameinuðu þjóðanna. ■ Jarðhiti: Samstarf við Ungverja rannsóknir Valgerður Sverrisdóttir, iðnaðar- og viðskiptaráðherra, og György Matolcsy, efnahagsmálaráð- herra Ungverjalands, undirrituðu í gær samning um samstarf landanna á sviði jarðhitamála. í samningnum er kveðið á um samvinnu á sviði rannsókna, þróunar og nýtingar jarðhita og er meginmarkmið samn- ingsins að styrkja nýtingu á endur- nýjanlegum orkulindum í löndunum tveimur sem bæði standa framar- lega í Evrópu'á umræddu sviði. Til að fylgja áformum samningsins eft- ir verður sett á laggirnar ráð tvegg- ja manna frá hvoru landi. ■ HARLINA haustsins æst í KRINGLUNNI KRISTA hársivyrtistofa a£mi 568 99 77 Quest hair creation stmi 533 1333 Mútur mæla spillingu en fjársvikum gleymt Islensk stjórnvöld hafa engar áhyggjur af spillingu hér á landi. Alþjóðleg nefnd telur þau hins vegar einblína á mútur en horfa fram hjá spillingu á við fjársvik. Af fjölmörgum brotalömum þykir lokað bókhald stjórnmálaflokka t.d. sérstakt áhyggjuefni. Dómsmálaráðherra er ánægður með niðurstöðuna. stjórnsvsla Ríkjahópur á vegum Evrópuráðsins segir að þó spilling á íslandi sé með því minnsta í Evrópu séu hér fjölmargir ann- markar á aðgerðum gegn spill- ingu. Ríkjahópurinn, sem ber heitið GRECO, kannaði spillingu á ís- landi í þriggja daga heimsókn í byrjun maí í vor. Rætt var við fulltrúa fjölda stofnana og sam- taka. Að því er segir í niðurstöðum GRECO telja íslensk stjórnvöld að vegna þess hve afar fá mútumál komi til rannsóknar og leiði til sakfellingar geti þau treyst því að spilling sé ekki „mikilvægt áhyggjuefni". Hópurinn segir hins vegar að íslensk stjórnvöld túlki spillingu fremur þröngt með því einblína á mútugreiðslur en hafi skyld vandamál á borð við fjársvik ekki nægilega í huga. GRECO hópurinn segir að saksóknara og dómsmálaráð- herra þarf að gæta að óhæfilegum afskiptum rík- isstjórnar- valdsins af saksókn vegna spillingarbrota. ........^---- www.datecarnegíe Js . Ert þú kona sem vilt... •••fyllast sjálfstrausti ? ■■■öðlast hygsun sigurvegarans? "^eflas* vid hverja raun? ■■■að draumar þínir rastist? Leiðtoga- og samskiptaþjálfun fyrir konur er námskeið sem hefst 2. október. Þar lærir þú meðal annars að: margt í hinu íslenska umhverfi sé fallið til þess að verjast spillingu. Þó séu fjöldamörg atriði sem bet- ur megi fara og segir íslendinga þurfa að taka upp virkari afstöðu —♦— og samræmda Vegnaform- stefnu ge§n sPin- tengsla ríkis- in8u-, N,ýta Þurfi möguleika eftir- litsstofnana betur og ganga frá aðild landsins að tiltekn- um þjóðréttar- samningum Mútur í milli- ríkjaviðskiptum voru gerðar refsi- verðar á íslandi árið 1998 en GRECO þendir á að enn hafi ekki reynt á þau lög í framkvæmd jafnvel þó vafi leiki á um afstöðu íslenskra fyrirtækja til laganna. Hópurinn segir að þó smæði ís- lensks samfélags þýði gegnsæi tákni hún einnig hugsanlegar hagsmunaandstæður og að erfið- leika við að taka á spillingu. Eink- um sé áhyggjuefni í því tilliti að engar reglur séu til um tekjuöflun stjórnmálaflokka og að á því verði Alþingi að taka. Minnt er á að þótt stéttir eins og lögmenn og endui'- skoðendur hafi siðareglur séu engar slíkar reglur til fyrir kjörna fulltrúa. Fundið er að því að engar skyldur hvíli á opinberum starfs- mönnum, ekki einu sinni lög- RÍKISSTJÓRN fSLANDS Smæð Islensku þjóðarinnar getur valdið því að hagsmunaandstæður komi upp og gert spillingarvanda verri viðureignar en ella væri. í þessu samhengi var það einkum nefndinni til áhyggju að ekki er fyrir að fara reglum um fjárútvegum stjórnmálaflokka, segir GRECO ríkjahópurinn. reglumönnum, um að kæra spill- ingu og lagt er til að bætt verði úr því. Efnahagsbrotadeild Ríkislög- reglustjóra er sögð of fámenn til að rannsaka mál af eigin frum- kvæði eins og nauðsynlegt sé. GRECO segir að vegna form- tengsla ríkissaksóknara og dóms- málaráðherra þurfi að gæta að óhæfilegum afskiptum ríkis- stjórnarvaldsins af saksókn vegna spillingarbrota. Sólveig Pétursdóttir dóms- málaráðherra, sem kynnti skýrslu GRECO hópsins, sagðist í samtali við blaðamann Frétta- blaðsins vera ánægð með niður- stöðuna. gar@frettabladid.is Tveir slasaðir eftir slys á kvartmílubrautinni: Vitni kölluðu á hjálp Trúa á sjálfa þig og hæfileika þína Setja þér raunhæf markmið og ná þeim Þora að standa fyrir framan hóp og tala Þora að taka erfiðar ákvarðanir Minnka streitu, kvíða og áhyggjur Skapa jafnvægi milli starfs og einkalífs Selja hugmyndir þínar Ná betri árangri á fundum Kaffi og örlitiíl glaaningunýrír femin-konur. Hlökkum til að sjá þig. slys Tveir karlmenn liggja mikið slasaðir á gjörgæsludeild Landspít- alans í Fossvogi eftir bílslys á kvartmílubrautinni í Kapelluhrauni við Itafnarfjörð seint í fyrrakvöld. Að sögn vakthafandi læknis í gær var annar mannanna enn meðvit- undarlaus. Tveimur bílum var ekið í öfuga aksturstefnu á myrkvaðri brautinni og enduðu ofan í gjótu við brautar- endann. Þrír voru í jeppa bifreið og einn í fólksbíl. Fólkið var á aldrin- um 15 til 19 ára. Lögreglan í Hafnarfirði segir líklegt að fólkið hafi ekki veriö kunnugt aðstæðum. Einhverjir fleiri hafi verið með í för en ekki verið í bílunum og gert lögreglu og sjúkrabíi viðvart þegar slysið varð. Á meðan hjálpuðu þeir fólk- inu út úr bílflökunum og mátti ekki miklu muna því eldur bloss- STEYPTUST ÚT AF BRAUTINNI Ökumenn bílanna sáu ekki brautarenda og steyptust ofan í gjótu, sem talin er vera um 10 m. djúp. Vitni hjáipuðu fólkinu út en stuttu síðar kviknaði eldur i bílunum. aði upp stuttu síðar. Fólkið brenndist ekki. Einar Kári Möller, sem var keppnisstjóri á kvartmílubrautinni síðast liðið sumar, segir brautina eign Kvartmíluklúbbsins og þetta sé land í einkaeigu. Ilún sé ekki opin fyrir hverjum sem er og því séu þeir í leyfisleysi sem þarna fara um. Erfitt hafi verið að loka svæð- inu þar sem Skotfélag Hafnarfjarð- ar sé með aðstöðu í nágrenninu og malarnám komi í veg fyrir að vegin- um sé lokað. Nokkuð er um að ökumenn prufi afl bíla sinna á þessari braut og seg- ir lögreglan það ill skárri kost en að gera það á götum borgarinnar og stefna þar með öðrum í hættu. Það þurfi þó að fara eftir ítrustu örygg- isreglum og segir Einar að afar fá- títt sé að slys verði á fólki sem keppir í kvartmílu. ■

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.