Fréttablaðið - 27.09.2001, Blaðsíða 14
FRÉTTABL AÐIÐ
FÓTBOLTI
Finnst þér vanta eitthvað
í vörn Man. Utd.?
„Það vantar góðan hafsent. Mér finnst
kaupin á Laurent Blanc ekki vera réttu
kaupin. Það vantar lika vinstri bakvörð
en Dennis Irwin er alveg á síðasta snún-
ingi og Blanc er orðinn of gamall fyrir
þetta. Það vantar tvo góða varnarmenn
ef þeir ætla sér eitthvað i Evrópufótbolt-
anum en þeir eru nógu góðir til að
vinna á Englandi." ■
Njáll Eiðsson, þjálfari ÍBV
1. deild karla:
Haukar byrja
af krafti
handknattleikur Haukar byrjuðu
íslandsmótið í handknattleik með
glæsibrag þegar liðið lagði Víking
að velli með 28 mörkum gegn 21 í
Víkinni í gær. Valur og Stjarnan
áttust við að Hlíðarenda og fóru
lærisveinar Geirs Sveinssonar
með sigur af hólmi 28-19. ÍR-ingar
lögðu Fram að velli í Safamýrinni
með eins marks mun. Breiðhylt-
ingar skoruðu 17 mörk gegn 16
heimamanna. ■
,1 PEILDKARLA
Leikur Úrslit
Fram - ÍR 17-16
Valur - Stjarnan 28-19
Víkingur - Haukar 21-28
LEIÐRÉTTINC
hanpknattleikur í Fréttablaðinu í
gær var sagt að KA hefði hafið titil-
vörn sína úti í Eyjum með tapi, en
hið rétta er að Haukar urðu íslands-
meistarar í fyrra. Beðist er velvirð-
ingar á þessum mistökum. ■
haustsins
fæst i KRINGLUNNl
KRISTA hiisnvrlistota
Hi„u 568 ^9 77
14
27. september 20011 FIIVIIVITUDAGUR
Meistaradeild Evrópu:
Arsenal tapaði
knattspyrna Liverpool vann sinn
fyrsta sigur í Meistaradeild Evrópu
þegar liðið lagði Dynamo Kiev að
velli í Bítlaborginni. Það var Finn-
inn Jari Littmanen sem skoraði
eina mark leiksins. Enska liðið réð
MEISTARAPEILD EVRÓPU:
Leikur Úrslit
Real Madrid- Anderlecht 4-1
Roma- Loko. Moscow 2-1
Boavista- Dortmund 2-1
Liverpol- Dynamo Kiev 1-0
Panathinaikos- Arsenal 1-0
Schalke- Mallorca 0-1
Nantes- Galatasary O-l
PSV Eindhoven- Lazio 1-0
gangi leiksins og var óheppið að
skora ekki fleiri mörk.
Arsenal tapaði fyrir Panathinai-
kos með einu marki gegn engu í
Grikklandi. Karagounis skoraði
eina mark leiksins á 25. mínútu.
Real Madrid lenti 0-1 undir á
móti Anderlecht en það hafði lítið
að segja gegn sterku liði heima-
manna því þeir skoruðu fjögur
mörk áður en flautað var til leikslo-
ka. Raúl skoraði tvö af fjórum
mörkum Spánverjanna á glæsileg-
an hátt.
Roma marði sigur á Lokomotiv
Moscow en liðið lenti undir eftir 59
mínútna leik. ftalirnir jöfnuðu leik-
GRÍSKUR SIGUR
Arsenal tapaði fyrir Panathinaikos í Meistaradeildinni i gær með einu maki gegn engu. Jan
Michaelsen leikmaður gríska liðsins reynir hér að stöðva Robert Pires.
inn og Francesco Totti kom liðinu Antonioli markvörður Róma liðsins
yfir. Moskvuliðið hefði getað jafnað missti boltann á milli handa sér en
leikinn á síðustu mínútunni þegar beint í stöngina. ■
Michael „Air“ Jordan
Michael Jordan mun leika með Washington Wizards næstu tvö árin. Ferill hans er nánast óað-
finnanlegur en hann hefur 6 sinnum hampað NBA titlinum. Jordan, sem ólst upp í N-Karolínu-
fylki, var aðeins valinn þriðji í háskólavalinu 1984.
ii:
körfuknattleikur Nýtt tímabil er
að hefjast í körfuboltasögunni.
Michael „Air“ Jordan besti
körfuknattleiksmaður samtímans
og líklega sögunnar ákvað í fyrra-
dag að snúa sér aftur að leiknum
sem hann elskar. Jordan, sem
hampaði NBA titlinum 6 sinnum
með Chicago Bulls, hefur tvisvar
lagt skóna opinberlega á hilluna,
fyrst árið 1993 og síðan aftur árið
1998, en virðist ekki geta fengið
nóg af íþróttinni. Phil Jackson,
núverandi þjálfari Los Angeles
Lakers og fyrrum þjálfari Jordan
hjá Bulls, bauð honum leika með
Lakers, en Jordan hafnaði því og
gerði tveggja ára samning við
Washington Wizards, en hann hef-
ur verið einn af eigendum liðsins
síðustu ár.
Michael Jeffrey Jordan, sem
nú er 38 ára gamall, var fæddur í
Brooklyn í New York 17. febrúar
1963. Fjölskylda hans flutti til
Wallace í Norður-Karolínufylki
það sama ár og síðan til Wilm-
ington. Hann byrjaði snemma að
leika sér með körfubolta í bak-
garðinum heima hjá sér og hæfi-
leikarnir leyndu sér ekki. Þegar
hann var 14 ára fékk hann viður-
kenningu fyrir framúrskarandi
árangur í körfubolta og amerísk-
um fótbolta, en hann var einnig
góður hafnaboltamaður á sínum
yngri árum.
Á síðasta ári sínu í Laney-
framhaldsskólanum var Jordan
valinn í McDonalds-úrvalslið
austurdeildarinnar. Hann skoraði
úrslitakörfuna þegar 11 sekúndur
voru eftir af leiknum og í heildina
skoraði hann 30 stig, en það er
met sem stendur enn í dag. Há-
skólinn í Norður-Karolínu í
Chapel Hill fékk Jordan til liðs og
varð hann háskólameistari með
liðinu á sínu fyrsta ári og skoraði
þá úrslitakörfuna í leik gegn Ge-
orgetown háskólanum þegar 15
sekúndur voru eftir af leiknum.
Maðurínn og ferillinn
YFIRBURÐARMAÐUR
Michael Jordan hampaði NBA titlinum sex sinnum með Chicago Bulls. Þegar hann var 14 ára
fékk hann viðurkenningu fyrir framúrskarandi árangur ( körfubolta og amerískum fótbolta.
Mikil ákveðni og einbeiting
einkenndi Jordan sem körfubolta-
leikmann og þá hafði hann óbilan-
di trú á sjálfum sér. Buzz Peter-
son, herbergisfélagi hans í há-
skóla lýsti þessu vel.
„Þegar hann hafði unnið
Naismith og Wooden verðlaunin
(veitt besta körfuknattleiksmanni
í bandaríska háskólaboltanum)
kom hann til mín og sagði, „Þeir
ætla að nefna skótegund eftir
mér.“ Ég var frekar vantrúaður
og sagði bara já, já. Michael þeir
nefna kannski skó eftir Larry
Bird eða Magic Johnson, en held-
urður virkilega að þeir nefni skó í
höfuðið á þér? Þá sagði hann, „Ég
er að segja þér það að núna er
rétti tíminn til að kaupa hlutabréf
í Nike.“
Þó ótrúlegt megi virðast var
Jordan aðeins valinn þriðji í há-
skólavalinu árið 1984. Houston
Rockets átti fyrsta valrétt og
valdi Hakeem Olajuwon og
Portland Trailblazers valdi í liðið
hinn hávaxna Sam Bowie.
Chicago Bulls, sem átti þriðja val-
rétt, hlaut þar með hnossið. Jord-
an lét strax til sín kveða með
Bulls og var valinn nýliði ársins.
Vonandi hefur Peterson tekið
mark á herbergisfélaga sínum því
í nóvember 1984 gerði Jordan
samning við Nike og fyrstu skórn-
ir, rauðir og svartir, seldust eins
og heitar lummur.
Þó Jordan hefði alltaf staðið
sig vel með Bulls og m.a.
unnið troðslukeppnina
1987 og verið valinn
verðmætasti leikmaður
deildarinnar árið 1988
vann Bulls ekki NBA tit-
ilinn fyrr en árið 1991.
Með sigrinum hófst nýtt
gullaldartímabil í
Chicago, því Bulls, með
Jordan í fararbroddi,
unnu titilinn einnig
næstu tvö ár.
Sumarið eftir að Jord-
an hampaði sínum þriðja
NBA-titli varð viðburð-
arríkt fyrir Jordan.
Snemma í ágúst fannst
James, faðir hans, myrt-
HAFNABOLTA-
MAÐURINN
Árið 1994 samdi Jordan
við hafnaboltaliðið
Chicago White Sox.
ur í Robeson sýslu í Norður-Kar-
olínu og voru tveir ungir menn
dæmdir fyrir morðið. Atburður-
inn hafði mikil áhrif á Jordan sem
tilkynnti tveimur mánuðum síðar
að hann væri hættur í körfubolta.
í febrúar 1994 gerði hann samn-
ing við hafnaboltaliðið Chicago
White Sox, en faðir hans hafði
alltaf séð hann fyrir sér í þeirri
íþrótt þegar hann var yngri. Ár-
angur Jordan á hafnaboltavellin-
________um var ekki góður og
\ vorið 1995 sneri hann
aftur til Chicago Bulls,
en var í frekar lélegu
leikformi eins og gefur
að skilja. Ári síðar var
hann hins vegar aftur
kominn í sitt besta
form og fagnaði fjórða
titlinum með Bulls,
sem einnig urðu meist-
arar 1997 og 1998 .
Þann 14. júní 1998 skor-
aði Jordan körfuna sem
tryggði Bulls 6. titilinn
á áratugnum. Eftir það
tilkynnti hann öðru
sinni að hann væri
hættur. Fullkominn
endir á frábærum ferli hugsuðu
flestir, en Jordan er greinilega
annarrar skoðunar og endur-
speglast það kannski best í orðun
hans: „Ég get sætt mig við að gera
mistök, en ég get ekki sætt við við
að hafa ekki reynt."
trausti@frettabladid.is
Jordan var haldinn
spilafíkn:
Lék golf
upp á
peninga
veðmál Michael
Jordan, sem
án efa er
einn auð-
u g a s t i
íþrótta-
maðurinn í
dag, hefur
átt við spi-
lafíkn að etja. í
maí 1993 áttust Chicago Bulls
og New York Knick við í úrslit-
um Austurdeildarinnar og
nóttina fyrir annan leik lið-
anna, sem fór fram í New
York, sást til Jordan í spilavíti
í Atlantic City. Bulls tapaði
leiknum og hitti Jordan aðeins
úr 12 af 32 skotum sínum í
leiknum.
Árið 1998 greindi Richard
Esquinas, kaupsýslumaður frá
Kaliforníu, frá því í bók sinni
að hann hefði leikið rúmlega
100 golfhringi gegn Jordan og
að ávalt hefði verið veðjað upp
á peninga. Esquinas sagði að
um tíma hefði Jordan skuldað
honum rúmlega 900 þúsund
dollara en að hann hefði samið
við Jordan um að hann greiddi
300 þúsund. ■
NAFN: Michael Jeffrey Jordan
FÆDDUR: 17. febrúar 1963 í New
York
HÆÐ: 2 metrar
ÞYNCD: 106 kg
ÁR í NBA: 13
LIÐ: Trask Middle School, Laney High
School
-University of North Carolina Tar Heels
-Chicago Bulls
-Chicago White Sox
-Washington Wizards.
VIÐURKENNINGAR: Valinn þriðji í
háskólavalinu
-Ólympíumeistari 1984 og 1992
-Nýliði ársins 1995
-Troðslumeistari 1987 og 1988
-Besti varnarmaðurinn 1988
-Verðmætasi leikmaður NBA 1988,
1991, 1992, 1996 og 1998
-NBA meistari
1991, 1992,
1993, 1996,
1997 og
1998
-Stigahæsti
leikmaður NBA 1988 til 1993 og 1995
til 1997
-Þriðji stigahæsti leikmaður NBA frá
upphafi með 29.277 stig
-Flest stig í úrslitakeppni, 63 gegn
Boston Celtic 1986
MAKI: Juanita
BÖRN: Jamine, Jeffrey og Marcus
ANNAÐ: Samdi við Nike 1984
-Launahæsti Iþróttamaður heims
1992
-James faðir hans myrtur 1993
-Michael Jordan rakspírinn kom í búð-
ir 1996
-Lék I Space Jam 1996