Fréttablaðið - 27.09.2001, Blaðsíða 15

Fréttablaðið - 27.09.2001, Blaðsíða 15
FIIVIIVITUPflGUR 27. september 2001 FRÉTTABLAÐIÐ Axgentína heiðrar Maradona: Treyja 10 sett til hliðar knattspyrna Knattspyrnusam- band Argentínu, AFA , hefur ákveðið að hætta að nota landslið- streyju númer 10 til að heiðra Diego Armando Maradona. Sam- bandið hefur farið þess á leit við FIFA að landsliðið þurfi ekki að nota treyjuna og verður hún til að mynda ekki notuð í leik gegn Ur- uguay í undankeppni HM þann 14. nóvember. Ti-eyja númer tíu verð- ur heldur ekki notuð hjá 21 árs og yngri landsliðinu. „Maradona hefur veitt okkur svo mikla gleði í treyjunni og við DIEGO ARMANDO MARADONA Hefur oft verið nefndur bestl leikmaður sögunnar. viljum heiðra hann með þessu uppátæki," sagði Julio Grondona, forseti FAA. Maradona sagði skilið við at- vinnuknattspyrnu árið 1997 eftir litríkan feril en hann var m.a. val- inn besti leikmaður heims. ■ EFNILEGIR Anthony Le Tallec (nr. 7) fagnar hér marki ásamt samherjum á Dwight Yorke leikvangin- um í Trinidad og Tobago, í átta liða úrslitum gegn Brasiliu i heimsmeistarakeppni 17 ára og yngri. Tallec er á leið til Liverpool ásamt félaga sinum Pongolle (nr. 9). Stórliðin tryggja sér stjörnur framtíðarinnar Heimsmeistarakeppni 17 ára og yngri í knatt- spyrnu lýkur innan skamms. Stórlið Evrópu hafa tryggt sér bestu leikmenn keppninnar. Sextán ára gamall Frakki hefur slegið í gegn og jafnað 16 ára gamalt markamet keppninnar. knattspyrna Heimsmeistara- keppnin í knattspyrnu, 17 ára og yngri, fer nú fram í Trinidad og Tobago. Þar mætast margir af efnilegustu leikmönnum heims og sýna listir sínar. Síðastliðnar vik- ur hefur fjöldi útsendara frá stærstu liðum Evrópu flykkst til eyjaklasans til að berja knatt- spyrnumennina ungu augum. Margir af þeim eru algjörlega óþekktir fyrir utan heimalönd sín og þó margir af þeim hafi ekki enn lokið skólagöngu býðst þeim einstakt tækifæri á að komast að hjá stórliðum úti í hinum stóra heimi. Þeir sem þykja skara fram úr á mótinu hafa þegar gert samning við stórlið í Evrópu. Enska úr- valsdeildarliðið Liverpool hefur til að mynda gert samning við frönsku leikmennina Florent Sinama Pongolle, 16 ára, og Ant- hony Le Tallec, 17 ára, sem báðir koma frá Le Havre. Þekking Ger- ard Houlliers, stjóra Liverpool, á frönskum efniviði á eflaust ekki eftir að bregðast honum frekar en fyrri daginn. Pongolle hefur skorað átta mörk í fjórum leikjum og er bú- inn að jafna markamet keppninn- ar sem Marcel Witeczek frá Vest- ur-Þýskalandi setti árið 1985. Oft- ar en ekki hefur Tallec lagt mörk- in upp fyrir hann með frábærum sendingum. Leikni þeirra kom Frökkum í undanúrslit keppninn- ar eftir sigur á Brasilíu í átta liða úrslitum. Nígería er einnig komið í und- anúrslit keppninnar en liðið hefur ekki tapað leik í mótinu. Það er ekki síst fyrir hina ótrúlega snög- gu framherja að liðið hefur lagt hvern andstæðinginn á fætur öðr- um. „Við þurfum ekki að óttast önnur lið,“ sagði Ikhayere Amun, tæknilegur ráðgjafi liðsins en bú- ast má við að einhverjir af níger- ísku leikmönnunum muni gera samning innan tíðar. Sömu sögu er að segja af leik- mönnum spútnikliðs mótsins Burkina Faso. Þessar þjóðir mæt- ast í öðrum undanúrslitaleiknum en þær mættust í úrslitaleik Afr- íkukeppninnar og þá fóru Níger- íumenn með sigur af hólmi. Frakkland og Argentína mætast í hinum undanúrslitaleiknum. Enska liðið Southampton hefur einnig tryggt sér tvo leikmenn, Ástralana Darren Broxton og Jay Lucas en þeim síðarnefnda hefur verið líkt við landa sinn Harry Kewell, hinn frábæra sóknar- mann Leeds. PSV Eindhoven, sem er þekkt fyrir gott unglingastarf, hefur einnig krækt í tvo efnilega leik- menn, hinn brasilíska Leandro og bróðir hans. Þess má geta að Eið- ur Smári Guðjohnsen og Ronaldo léku um tíma saman í framlínu hollenska liðsins. Talið er að fleiri lið muni fylg- ja í kjölfarið og tryggi sér stjörn- ur framtíðarinnar en meðal þeir- ra sem átt hafa útsendara á keppninni eru Manchester United, Aston Villa og Arsenal. ■ Úrvalsdeildin kærir Liverpool: Brögð í tafli? knattspyrna Stjórn ensku úr- valsdeildarinnar hefur kært Liverpool fyrir að hafa haft brögð í tafli þegar liðið keyp- ti þýska landsliðsmanninn Christian Ziege frá Middles- brough í fyrra. Leikmaður- inn var einnig kærður fyrir hlutdeild að málinu. Talsmað- ur úrvalsdeildarinnar sagði að Liverpool hefði haft sam- band við Ziege með hugsanleg kaup í huga án þess að ræða við stjórn Middlesbrough. Samkvæmt regl- um deildarinnar mega lið ekki reyna að lokka til sín leikmann nema með samþykki þess félags sem hann er samningsbund- inn. „Ziege átti hræðilegt tímabil hjá AC Milan og við settum ákvæði í saminginn þess efnis að hann mætti fara ef honum gengi illa hjá okkur,“ sagði Steve Gibson, stjórnarformaður Middles- brough. „Hlutur liðsins var tryggður með títtnefndu ákvæði sem úrvalsdeildin setti og því höf- um við ákveðið að leita réttar okk- ar.“ Ef Liverpool verður fundið sekt þarf það að borga 8 milljónir punda í skaðabætur. ■ CHRISTIAN ZIEGE Drykkjulæti leikmanna Ghelsea: S amningur inn ekki í hættu knattspyrna Flugfélagið Em- irates Airlines hefur dregið til baka þá frétt að 24 milljón punda samningur félagsins við enska úr- valsdeildarliðið Chelsea sé í hættu vegna drykkjuláta leikmanna á hóteli í London, daginn eftir hryðjuverkaárásina í Bandaríkjunum. Mike Simons, talsmaður fyrir- tækisins, dró fréttina til baka í gær og sagði: „Það er ekkert til í því að við ætlum að draga samninginn til baka. Við munum standa við fjög- urra ára samninginn sem við gerðum við Chelsea. „Það sem var haft eftir talsmanni okkar í fyrradag er hreinn og beinn skáldskap- ur. Félagið sjálft tek- ur á agabrotum leik- manna og sem styrkt- araðilar viljum við ekki hafa áhrif á ákvarðanir Chelsea." Forrráðamenn Chelsea hafa einnig staðfest að Eiður Smári Guðjohnsen hafi ekki verið á hót- elinu þegar mestu drykkjulætin voru höfð í frammi. ■ REYKJAVÍK: Ármúla 11 - Slmi 568-1500 AKUREYRI: Lónsbakka - Sími 461-1070 HENCO Álpex rör Sérlega meðfærileg rör til vatns- og hitalagna. Val um presstengi eða skrúfuð tengi ^ VA TNSVmKtNN ehf. Ármúla 21, Sími: 533-2020

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.