Fréttablaðið - 27.09.2001, Blaðsíða 18
18
FRÉTTABLAÐIÐ
27. september 2001 FIMIViTUDACUR
HVAÐA BÓK ERTU AÐ LESA?
Ragnheiður Eiríksdóttir,
hjúkrunarfræðingur og kynlífsnám-
skeiðahaldari.
Ég er alltaf að lesa nokkrar bækur. Núna eru á
náttborðinu bækumar Heartbreaking Work of a
Staggering Cenius sem er skáldsaga eftir David
Eggers, Women on top eftir Nancy Friday en
hún safnar fantasíum kvenna. Loks er ég að
lesa Women's Sexuality eftir Caroi Ellison.
Litháensk þjóðlagatónlist:
Leika á hjarðmannahljóðfæri
tónleikar Þjóðlagahljómsveitin
Sutaras frá Litháen verður með
tónleika á Kringlukránni í kvöld
og hefjast þeir kl. 21.
Sutaras, sem er einn þekktasti
þjóðlagahópur Litháens, hefur
leikið þjóðlagatónlist síðastliðinn
áratug og á að baki um 1500 tón-
leika. Hljómsveitin er skipuð
fimm atvinnutónlistarmönnum
sem bæði syngja og dansa og
hvetja áheyrendur til að taka þátt
og skemmta sér. Notast er við
hjarðmannahljóðfæri auk sígildra
hljóðfæra. Dagskrá Sutaras sam-
anstendur af tveimur þáttum. Sá
fyrri nefnist „Gömul litháensk
þjóðlög á hljóðfæri" og sá síðari
„Litháensk
skemmtun, dans og
söngvar í lok tutt-
ugustu aldar og
upphafi 21. aldar.“
Klukkan 22.00 á
föstudag leikur
sveitin á Kaffi
Reykjavík. Á laug-
ardag verður hún í
Deiglunni á Akur-
eyri og hefjast tón-
leikarnir kl. 21.30.
Á sunnudag verða
tónleikar með
Sutaras í norræna
húsinu og hefjast
þeir kl. 16. ■
SUTARAS
Hljómsveitin Sutaras er einn þekktasti þjóðlagahópur Litháa.
Hljómsveitina skipa fimm atvinnutónlistarmenn.
Vatnadísir í Laugardal:
Listdans í laug
listdans Vatnadísirnar sýna listir
sínar í Laugardalslaug í kvöld kl.
20 á vegum Orkuveitu Reykjavík-
ur og Iþrótta- og tómstundaráðs
Reykjavíkur. Þá mun stúlknakór
einnig syngja töfrandi tóna undir
stjórn Margrétar Pálmadóttur.
Vatnadísirnar eru stúlkur á aldr-
inum 13-15 ára og munu þær sýna
listdans í vatni. Iþrótt þessi er ný
af nálinni hér á landi en keppt er í
vatnadansi á Ólympíuleikunum.
Dísirnar hafa heillað alla þar sem
þær hafa komið fram en þjálfari
stúlknanna er Rosmary Kajioka.
Aðgangur er ókeypis og eru
áhorfendur beðnir um að koma
vel klæddir þar sem dagskráin fer
fram utandyra. ■
BORGARLEIKHÚSIÐ
KRISTNIHALD UWDIR JÖKLI e. Halldór Laxness
i leikgerð Sveins Einarssonar
FRUMSVNING fös. 28. sept. kl. 20:00 UPPSELT
2. sýning sun. 30. sept. kl. 20 - UPPSELT
3. sýning fim. 4. okt. kl. 20 - ÖRFÁ SÆTI
4. sýning fös. 5. okt. kl. 20 - N0KKUR SÆTI
5. sýning lau. 13. okt. kl. 20 - N0KUR SO
6. sýning sun. 14. okt. kl. 20 - LAUS SÆTI
7. sýning fim. 18. okt. kl. 20 - LAUS SÆTI
8. sýning fös. 19. okt. kl. 20 - LAUS SÆTI
MEÐ VÍFIÐILÚKUNUM e. Rav Coonev___________
Lau. 29. sept. kl. 20 - ÖRFFÁ SÆTÍ
Lau. 6. okt. kl, 20 - LAUS SÆTI
Fös. 12. okt. kl. 20 - LAUS SÆTI
Lau. 20. okt. kl. 20 - ÖRFÁ SÆTI
Fös. 26. okt kl. 20 - LAUS SÆTI
PÍKUSÖGUR e. Eva Ensler___________________
I dag 27.sept.kl. 20-ÖRFÁSÆTI
Lau. 29. sept. kl. 20 - ÖRFÁ SÆTI
Sun. 30. sept. kl. 20 - ÖRFÁ SÆTI50. sýning
Fim. 4. okt. kl. 20 - UPPSELT
Fös. 5. okt. kl. 20 - NOKKUR SÆTI
Lau.6. okt. kl. 20 - N0KKUR SÆTI
Fim.11.okt. kl. 20-LAUSSÆTI
Lau. 13. okt. kl. 20-LAUSSÆTI
Litla svið:
ÖNDVEGISKONUR e. Werner Schwab____________
Lau. 29.sept.kl. 20-UUSSÆTI
Lau.6. okt. kl. 20 - LAUS SÆTI
Fim. 11. okt. kl. 20-LAUSSÆTI
Fös. 12. okt. 20 - LAUS SÆTI
ATH. ABEiNS þessar sýningar
Munið áskriftarkortin
Kortasölu lýkur um helgina
VERTU MEÐ í VETUR!!!
MIÐASALA 568 8000
Miðasalan er opin kl. 13 -18 alla virka daga
og fram að sýningu sýningardaga.
Sími miðasölu opnar kl. 10 virka dag. Fax
5680383 midasala@borgarleikhus.is
www.borgarleikhus.is
Bókhald & Ráðgjöf
«ími: 821-1313
FIMMTUDAGURINN
27. SÉPTEMBER
LEIKHÚS_____________________________
20.00 Hver er hræddur við Virginíu
Woolf? eftír Edward Albee sýnt á
litla sviði Þjóðleikhússins.
20.00 Píkusögur eftir Evu Ensler sýnt á
þriðju hæð Borgarieikhússins.
TÓNLEIKAR___________________________
20.00 Tónleikar i Salnum í kvöld undir
yfirskriftinni Kóngur, kjáni, ill-
menni. Bjarni Thor Kristinsson
bassasöngvari og Franz Carda á
píanó. Efnisskráin er tileinkuð
bassanum og hans ólíku hlutverk-
um í óperunni.
21.00 Tónleikar á Cauknum í tilefni
þess að IO ár eru liðin frá því að
platan Nevermind með hljóm-
sveitinni Nirvana kom út Hljóm-
sveitirnar Quarashi, Ensími,
Botnleðja, Mínus, Klink, Gra-
veslime og Noise leika.
21.00 Þjóðlagasveitin Sutaras frá Lit-
háen leikur á Kringlukránni.
FYRIRLESTRAR________________________
16.15 Málstofa í læknadeild H.í. Mar-
grét Birna Andrésdóttir mun flyt-
ja erindi er hún nefnir: Afkom-
endarannsókn Hjartaverndar.
Málstofan fer fram í sal Krabba-
meinsfélags íslands, efstu hæð
en kaffiveitingar eru frá 16:00.
17.15 Flötur - samtök stærðfræðikenn-
ara stendur fyrir málfundi i tilefni af
degi stærðfræðinnar undir yfirskríft-
inni: „Þurfa allir að læra stærð-
fræði?" Fundurinn verður haldinn í
Odda, stofu 101. Frummælendur
eru Benedikt Jóhannesson stærð-
fræðingur og forstjóri Talnakönnun-
ar, Hreinn Pálsson heimspekingur,
Jón Torfi Jónasson prófessor I upp>-
eldis- og menntunarfræði og Sig-
ríður Laufey Gunnarsdóttir skóla-
stjóri Baugsskólans.
BÍÓ________________________________
20.30 Goethe-Zentrum á 3.hæð Lauga-
vegi 18 sýnir þýsku gamanmynd-
ina "Fussball ist unser Leben"
frá árinu 2000. ( myndinni, sem
lýsír lífi 'Titia mannsins" á hlýleg-
an hátt, segir frá hópi kunningja
sem lifa fyrir fótbolta. Myndin er
með enskum texta og aðgangur
er ókeypis og öllum heimill.
22.30 Filmundur sýnir gamanmyndina
LesVacances De M. Hulot í leik-
stjóm Jacques Tati i Háskólabíói.
SKEMMTANIR__________________________
20.00 Vatnadísirnar sýna listdans í Laugar-
dalslaug og stúlknakór undir stjórn
Margrétar Pálmadóttur syngur.
H látur jf rir aíia
Hláturinn losar um spennu og eykur vellíðan. Trimmar innyflin, styrkir ónæmiskerfið, linar verki og sársauka. Leysir úr læðingi sköpunar- kraftinn og lífsgleðina. Tilvalið fyrir fyrirtæki sem vilja efla starfsandann, og auka vellíðan starfsmanna sinna, einbeitingu og afkastagetu. jjpg
Hlátursnámskeið Fyrirtæki, félög, hópar 1/2 tími 1.000 kr. 3ja. tíma 5.000 kr. Verð á mann.
yj.l t/ii $: 82oO 82,88, h©fid@isj.i$
HlaEjandi Líf 14/aridi loíf ficfera L>íf
Filmundur sýnir Les Vacances De M. Hulot:
Ein frægasta gamanmynd allra tíma
kvikmyndir Filmundur sýnir í kvöld
í Háskólabíói gamanmyndina Les
Vacances De M. Hulot í leikstjórn
Jacques Tati. Myndin er ein þekk-
tasta kvikmynd leikstjórans og
jafnframt ein frægasta gaman-
mynd allra tíma. í myndinni
bregður herramaðurinn Hulot sér
í frí og dvelur á strandhóteli.
Ýmsar kostulegar persónur eru
kynntar til sögunnar og á Hulot í
mesta basli í samskiptum sínum
við þær þrátt fyrir góðan vilja.
Les Vacances De M. Ilulot er
önnur mynd Tati í fullri lengd, og
sú fyrsta af fjórum þar sem Tati
túlkar hina kostulegu persónu
herra Hulot, sem átti eftir aö
verða afar vinsæl um allan heim.
Tati sækir til meistara þöglu
myndanna hvað stíl varðar og hef-
ur oft verið Iíkt við menn á borð
við Chaplin og Keaton. Látbragð,
umhverfishljóð og tónlist koma að
miklu leyti í stað tals og er óhætt
að segja að Tati sé einn af helstu
meisturum gamanmyndanna.
Undir ærslafullu yfirborðinu
glittir þó alltaf í hárbeitta þjóðfé-
lagsádeilu, en Tati hafði áhyggjur
af afdrifum mannkynsins í heimi
sem einkenndist af síauknum
hraða og tæknivæðingu. Les
Vacances De M. Hulot er gerð
1953 en Tati gerði einungis fjórar
myndir næstu tvo áratugi.
Sýningin hefst kl. 22.30 í
kvöld og verður endursýnd á
mánudag. Myndin er 114 mínút-
ur að lengd. ■
FYRSTA AF FJÓRUM
Jacques Tati skrifaði, leikstýrði og lék að-
alhlutverkið i myndinni. Hinar myndirnar
sem hann gerði um Monsineur Hulot
voru Mon Oncle árið 1958, Playtime árið
1967, ogTrafic 1971.
Plötusnúðarnir DJ Reynir (drum & bass)
og DJ Bjössi Brunhani (techno) munu
tæta dansgólf Café 22 i kvöld.
SÝNINGAR________________________
í Byggðasafni Hafnarfjarðar standa yfir
sýningarnar Blóðug vfgaferli og Götulíf
víkinganna f York . Sýningarnar eru
opnar alla daga frá 13 til 17 og standa
til 1. október.
MYNPLIST________________________
Guðný Magnúsdóttir listakona opnar í
dag kl. 18 vinnustofusýningu I tilefni
flutnings vinnustofu hennar á Lindar-
götu 14. Sýningin stendur til 14. októ-
ber.
Jón Valgard Jörgensen opnaði á laugar-
dag slna fimmtu mynd Sýningin stendur
til 9. nóvember.
Kristfn Helga Káradóttir, myndlistar-
nemi ( Listaháskóla Islands, sýnir
flöskuskúlptúr í Gallerí Nema hvað,
Skólavörðustig 22c. Sýningin er opin frá
14 -18. Siðasti sýningardagur.
Linda Oddsdóttir opnaði í gær sina
fyrstu einkasýningu á Cafe Presto Hlíða-
smára 15. Sýningin stendur til 19 októ-
ber.
Kristjáns Davíðsson efur opnað sýn-
ingu áverkum sínum í gallerí i8. Sýning-
in stendur til 27. október. Opið þriðju-
daga til laugardaga frá kl. 13 -17.
Friðrika Geirsdóttir sýnir graffkverk og
lítljósmyndir í sýningarsal félagsins (s-
lensk grafik í Hafnarhúsinu, Tryggva-
götu 17 .
Mörg andlit bassasöngvarans:
Kóngur, kjáni, illmenni
tónleikar Bjarni Thor Kristins-
son, bassasöngvari og Franz
Carda píanóleikari, koma fram í
kvöld, kl. 20, á fyrstu tónleikun-
um í annarri röð Tíbrártónleika í
Salnum. Á efnisskránni eru ýmis
verk sem bregða upp svipmynd-
um af bassanum í ýmsum óper-
um. Bjarni tekur á sig gervi
kóngs, kjána, prests, illmenni,
gjálífismanns, heimsspekings og
skemmtikrafts í aríum eftir tón-
skáldin Wagner, Verdi, Offen-
bach, Mozart, Rossini og Gers-
hwin svo fátt eitt sé nefnt.
Bjarni Thor Kristinsson hélt
til framhaldsnáms við Tónlistar-
háskólann í Vín eftir söngnám á
íslandi. Árið 1997 var hann ráð-
inn sem einn af aðalsöngvurum
Þjóðaróperunnar í Vín (Wiener
Volksoper) samhliða því að
koma fram sem gestasöngvari
við ýmis óperuhús, m.a. Ríkisóp-
eruna í Berlín, íslensku óperuna
og óperuna í Wiesbaden. Bjarni
sneri sér alfarið að lausa-
mennsku árið 1999 og hefur
sungið víða eftir það, m.a. við
Parísaróperuna og Teatro
Massimo á Sikiley.
Franz Carda er Austurríkis-
maöur búsettur í Vín. Að loknu
námi við píanóleik, sögu og tón-
mennt var hann ráðinn við Tón-
listarháskólann í Vín þar sem
hann hefur starfað síðan sem
prófessor í tón- og hljómfræði.
BJARNI THOR KRISTINSSON OG
FRANZ CARDA
Koma fram á tónleikum i Salnum í kvöld.
Samhliða þessu hefur Franz
Carda tekið þátt í margvíslegu
tónlistarstarfi. ■