Fréttablaðið - 12.10.2001, Side 8

Fréttablaðið - 12.10.2001, Side 8
8 FRÉTTABLAÐIÐ 12. október 2001 FÖSTUDAGUR Öryggisverðir á Kastrup -flugvelli: Héldu mæli vera sprengju KAUPMANNAHÖFN.AP Ein af þremui’ flugstöðvarbyggingum Kastrup- flugvallarins í Kaupmannahöfn var rýmd í gær og tíu millilanda- flugum var frestað eftir að óttast var að sprengja hefði fundist í farangri. Við gegnumlýsingu á tösku eins farþega kom í ljós að einhvers konar vírar voru inni í henni. Eftir að sprengjusérfræð- ingar höfðu rannsakað innihald töskunnar kom hins vegar í ljós að um var að ræða lítið tæki til að mæla suðutíma eggja. ■ Þriðja miltisbrandstilfellið á Flórída: Glæparannsókn hafin BQCA RATON.FLÓRÍDA.AP Hafin ei’ glæparannsókn til að komast að orsökum miltisbrandssýkingar á Flórída eftir að þriðja mann- eskjan, 35 ára gömul kona, greind- ist með bakteríuna í gær. Þegar hefur einn maður látist af bakter- íunni auk þess sem annar er á sjúkrahúsi. Öll hafa þau starfað hjá útgáfufyrirtækinu American Media, sem staðsett er á Flórída. Mikil hræðsla hefur gripið um sig vegna málsins í Bandaríkjunum vegna möguleika á efnavopnaárás á landið, sérstaklega eftir að loft- árásirnar hófust á Afganistan sl. sunnudag. Alríkislögreglan, FBI, segist hins vegar engar sannanir hafa fyrir því að um hryðjuverk sé að ræða. Fyrirtækið þar sem bakterían greindist er nú rann- sakað hátt og lágt af starfsmönn- um alríkislögreglunnar en auk þess hafa rúmlega 1000 manns farið í læknisrannsókn vegna mögulegrar miltisbrandssýking- ar. Allt að sjö dagar geta liðið frá smiti þar til einkennin koma í ljós, en aftur á móti getur tekið 60 daga fyrir bakteríuna að þróast áfram í líkama fólks. ■ RANNSÓKN Fulltrúar FBI rannsaka bygglnguna þar sem starfsmennirnir þrír hafa unnið. LÖGREGLUFRÉTTIR ~ Brotist var inn á skrifstofu Sýslumannsins í Reykjavík í fyrrinótt. Rúða var brotin í kjall- ara og tók þjófurinn með sér tölvu og skjá. Lögreglunni barst tilkynn- ing um innbrotið á fimmta tíman- um. Ekki er vitað hverjir voru að verki og er málið í rannsókn. Lögreglunni í Reykjavík barst tilkynning frá vegfarenda að golfbifreið væri ekið á göngustíg við Strandveg í Grafarvogi í fyrra- dag. í ljós kom að búið var að stela þremur golfbifreiðum úr golfskál- anum við Korpúlfsstaði. Fundust bílarnir allir, einn hafi verið skil- inn eftir við Vættarborgir, annar í Geldinganesi og hinn þriðji niðri í fjörunni. Að sögn lögreglunnar komu við sögu málsins fimm 17 ára piltar. GASGRlMA Gasgríman nýja kynnt i Tókýó. Japanir eru afar óttaslegnir þessa dagana og vilja vera við öllu búnir komi til hryðjuverkaárása á landið. Japanir óttaslegnir: Mikil eftir- spurn eftir gasgrímum tókÝó.ap Mikil eftirspurn hefur verið eftir gasgrímum í Japan í kjölfar loftárásanna á Afganistan. Kumiko Rikiishi, starfsmaður Koken-fyrirtækisins, sýnir á myndinni hvernig á að nota nýj- ustu afurð fyrirtækisins; gas- grímu sem telst afar nothæf ef kemur til efna-, sýkla-, eða kjarn- orkuvopnaárása á Tókýó. Fyrir- tækið ætlar að setja grímurnar á markað í nóvember og mun stykk- ið kosta tæpar 6000 krónur. ■ —4— Gáfu New York slökkvi- liðsengil KALIFORNIA.LOS ANGELES.AP Borgar- yfirvöld í Los Angeles í Bandarík- unum hafa ákveðið að gefa New York-borg styttu af slökkvi- liðsengli sem tákn fyrir hetjudáð þeirra slökkviliðsmanna sem lét- ust í hryðjuverkaárásinni á World Trade Center. Á myndinni sjást Steve Johnson (til vinstri) og Vict- or Martin flytja styttuna skömmu eftir að Jim Hahn, borgarstjóri Los Angeles tilkynnti um gjöfina á blaðamannafundi þar í borg. ■ [lögreglufréttir[ Slökkviiið höfuðborgarsvæðis- ins var kallað til í fyrradag um fimmleytið vegna reyks í her- bergi í kjalíara íbúðarhúss í Hraunbæ. Hafði húsráðandi verið við skál við matseld þegar hann missti stjórn á eldamennskunni og eldur kviknaði. Reykræsta þurfti herbergið en skemmdir eru taldar minni háttar. Var mað- urinn fluttur í vörslu lögreglu. STYTTAN FLUTT Steve Johnson og Victor Martin flytja stytt- una í Los Angeles. Borgaryfirvöld í Los Angeles: Stjórnarandstaðan leggur fram tvö frumvörp um breytingar á lögum sem varða breytt brunabótamat. Lagt til að heimild til afskrifta verði afnumin og ekki verði tekið mið af brunabótamati við mat á veðhæfni. Frumvörpin verða skoðuð í efnahags-og viðskiptanefnd. FASTEIGNIR Breytingamar taka mið af því að, brenni hús, fái eigandinn það sem nemur endurbygg- ingakostnaði fasteignarinnar, án afskrifta, auk gjalds vegna hreinsunar brunarústa. (Húsið á myndinni tengist ekki efni greinarinnar.) Frumvarpið geri ráð fyrir, að vá- tryggingaverðmæti fasteigna verði núvirt og taki mið af raunveruleg- um endurbyggingakostnaði, án af- skrifta. „Við erum með þessu, að færa brunatrygginar til samræmis við það sem er í nágrannalöndum okkar,“ segir Jóhanna. Um það, hvort hún telji að frum- varpið nái fram að ganga, segir Jó- hanna, að stjórnarandstaðan öll fly- tji frumvarpið. Hún hafi sent, bæði frumvarp um brunatryggingar og húsnæðismál, til formanns efna- hags-og viðskiptanefndar, áður en að þau voru lögð fram, til þess að reyna að fá stuðning hans. „Hann hefur sagt að frumvörpin verði skoðuð í efnahags-og viðskipta- nefnd. Mér hefur fundist vera já- kvætt viðhorf í nefndinni til þess, að hætta að miða veðhæfni eigna hjá íbúðalánasjóði við brunabóta- mat. Meiri óvissa er um bruna- tryggingarnar," segir Jóhanna. arndis@frettabladid.is brunabótamat Stjórnarandstaðan hefur lagt fram tvö frumvörp um breytingu á lögum. Þeim er ætlað að leiðrétta þá erfiðu stöðu fast- eignaeigenda sem breytt lög um brunabótamat hafa valdið. Að sögn Jóhönnu Sigurðardóttur, þing- manns Samfylkingarinnar, er markmið frum- varpsins um breyt- ingar á lögum um brunatryggingar, að afnema heimild ^ sfskrifta á vá- tryggingaverð- i| mæti húseigna samkvæmt lögun- um 1999. Frum- varpið um breyt- ingu á lögum um húsnæðismál gerir ráð fyrir því að hætt verði að taka mið af brunabóta- mati við ákvörðun á matsverði fast- stað verði verðmat JÓHANNA SIG- URÐARDÓTTIR Þar sem búið er að skerða bruna- bótamat verulega, þá samræmist það ekki reglum vátryggingaréttar um að tjónþoli sé jafn settur fyrir og eftir tjón. eigna. Þess í byggt á kaupverði eigna. „Við erum að reyna að leiðrétta þau mistök sem gerð voru 1999,“ segir Jóhanna um markmið breyt- inga á lögum um brunatryggingar. „Eg tel að verulegur hluti eigna hér á landi sé undirtryggður, eins og staðan er nú.“ Hún segir, að þar sem búið sé að skerða brunabóta- mat um tuttugu til fimmtíu prósent, þá samræmist það ekki reglum vá- tryggingaréttar um að tjónþoli sé jafn settur fyrir og eftir tjón. Erum ad leið- rétta mistök ÁRITAR Kuldagalli Mittisjakki Smíðavesti Samfestingur Vinnubuxur Vinnuregnföt kr. 7.900 kr. 3.900 kr. 2.600 kr. 1.400 kr. 1.200 kr. 900 VINNUFATALAGERINN SMIÐJUVEGI 4 OPIÐ MÁNUD -FÖSTUDAG KL 10-18 LAUGARD 12-16 Iðnaður: Merki um geymslu- þol á flest sælgæti neytendavernd Framvegis þarf að merkja allt sælgæti annað en brjóstsykur með „best fyrir“ dag- setningu. Þetta kemur fram í bréfi sem Hollustuvernd ríkisins hefur sent Samtökum iðnaðarins. Jafnframt bendir stofnunin á að væntanleg sé ný til- skipun frá ESB, sem tekin verður upp hér á landi, þar sem krafist er geymsluþolsmerk- ingar á allar súkkulaði- vörur. Þessar breyting- ar er sagðar tilkomnar vegna aukins réttar neytenda til upplýs- inga um geymsluþol á sælgæti. SÆLGÆTI Neytendur eiga framvegis að geta treyst þvi að þeir séu ekki að kaupa gamalt sælgæti ef framleiðendur og kaupmenn fara að sett- um reglum Finnur Geirsson forstjóri Nóa- Síríus segir að þessi breyting breyti ekki miklu fyrir þá vegna þess að fyrirtækið sé þegar farið að geymsluþolsmerkja flestar sín- ar framleiðsluvörur. Aðspurður hvernig verður um merkingar á sælgæti sem selt er í stykkjatali án umbúða segir hann að slíkar vörur komi merktar frá verksmiðjum eins og t.d. frá þeim. Það sé væntanlega síðan kaup- manna að sjá til þess að þær vörur séu ekki á boðstólum lengur en geymsluþolið segir til um. ■ Tom Cruise áritar mótorhjólið í þættinum „The Tonight Show" sem tekinn er upp í Kaliforníu. Spjallþáttur Jay Leno: Mótorhjól áritað burbank.kaliforníu.ap Harley- Davidson mótorhjól sem hefur verið í eigu spjallþáttastjórnand- ans vinsæla, Jay Leno, var þann 7. október sett á uppboð hjá eBay- uppboðshaldaranum í Bandaríkj- unum. Hjólið verður selt hæst- bjóðanda þann 17. október næst- komandi og mun ágóðinn renna til tvíburaturnasjóðsins sem stofnað- ur var vegna fórnarlamba hryðju- verkaárásarinnar á Bandaríkin í síðasta mánuði. Fjölmargar kvik- myndastjörnur hafa ritað nafn sitt á hjólið í þætti Leno, þ.á.m. Tom Cruise, Arnold Schwarzenegger og Sylvester Stallone. ■

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.