Fréttablaðið - 12.10.2001, Side 16

Fréttablaðið - 12.10.2001, Side 16
HNEFALEIKAR Hvernig fer bardagi Tyson og Nielsen? „Ég held að Tyson verði nú fljótur að slá Nielsen niður. Að líkja þeim saman er eins og að bera saman átján hjóla trukk og Trabant. Tyson klárar þetta i annarri lotu." BUBBI MORTHENS tónlistarmaður og áhugamaður um hnefaleika. handknattleik. liðum Bikarkeppni karla: Komast Lod- fíllinn og fé- lagar áfram? handknattleikur í gær var dregið í 16-liða úrslitum SS-bikarkeppn- Af sextán eru þrjú sem ekki koma úr fyrstu deild, ÍBV b, Breiðablik og Hraðlestin, sem skipuð er gömlum kempum úr Val s.s. Stefáni Hilm- arssyni söngvara, Brynjari Harðar- syni, Einari Þor- varðarsyni og Jóni Kristjáns- innann. syni. Peran kemur frá Akureyri gæti prðið fjórða liðið en það spilar við ÍR-a í 32-liða úrslitum á morgun. Þekktasti leikmaður Perunnar er líklega Torfi Ólafsson aflrauna- maður, betur þekktur sem Loðfíll- inn, en hann er fyrirliði liðsins. Einungis sex lið keppa í 16- liða úrslitum í bikarkeppni kvenna en fimm lið sitja hjá og fara beint í átta liða úrslit. ■ 16-LIÐA ÚRSLIT BIKARKEPPNI KARLA:_______ TORFI ÓLAFSSON Fyrirliði Perunnar frá Akureyri jafnt utan vallar sem Þór - Valur Crótta KR - Haukar UMFA - FH HK- iBVa Hraðlestin - Stjarnan IBV b - |R a / Peran Breiðablik - Fram KA - Vfkingur 16-LIÐA URSLIT BIKARKEPPNI KVENNA: Fram - Valur Fjölnir - Stjarnan Vikingur - Grótta KR Þau lið sem sitja hjá: FH Haukar Ibv KA/Þór Fylkir 16 FRETTABLAÐIÐ 12. október 2001 FÖSTUDAGUR Akranes: Haraldur aftur í íA? fótbolti Haraldur Ingólfsson gæti verið á leið í raðir íslandsmeistara ÍA á nýjan leik eftir að hafa leikið um fjögurra ára skeið í Svíþjóð og Noregi. Gunnar Sigurðsson, for- maður rekstrarfélags meistara- flokks og 2. flokks karla hjá ÍA, staðfesti í samtali við Fréttablaðið í gær að hann og Haraldur hefðu rætt saman um endurkomu Harald- ar í Skagaliðið en sagði að ekkert ákveðið í þessum efnum. Haraldur er samningsbundinn norska liðinu Raufoss en getur að sögn Gunnars losnað undan þeim samningi ef hann vill snúa heim. % S J 1 %, á k\ SIGURSÆLL Fimmfaldur (slandsmeistarí og tvöfaldur bikarmeistari. Haraldur var lykilmaður í liði ÍA þegar það vann íslandsmótið fimm ár í röð 1992 til 1996. Hann var jafn- framt sá leikmaður íslandsmótsins sem gaf flestar stoðsendingar sex ár í röð. ■ Viggó Sigurðsson um andstæáinga Hauka í EM: „Spila. hraðan bolta“ handknattleikur Haukar mæta pól- ska liðinu Kolporter í seinni leik lið- anna í Evrópukeppni félagsliða í handknattleik á morgun og hefst leikurinn klukkan 17.00. Liðin skil- du jöfn, 29-29, í fyrri leiknum sem fram fór í Póllandi. „Þetta er nú hreint atvinnulið og gerir ekkert annað en að æfa og keppa,“ segir Viggó Sigurðsson, þjálfari Hauka. Hann segist hafa verið vonsvikinn með úrslitin úti og býst við hörkuleik á morgun. „Við erum með góða stöðu og eigum, með góðum leik, að geta klárað þetta. Við erum að spila okkar 16 Evrópuleik á árinu. Það eru fleiri leikir en mörg lið geta státað af.“ Með Kolporter leika fimm pólsk- ir landsliðsmenn og auk þess eru tveir Rússar á mála hjá liðinu. „Þetta er skemmtilegt lið sem spilar hraðan bolta. Fyrri leikur- inn var opinn og skemmtilegur." Viggó hefur ekki sparað stóru orðin í garð dómara í Evrópukeppn- inni. Aðspurður um þá sem dæma á morgun sagði hann. „Eg veit bara að þeir eru fransk- ir og vona að þeir verði hlutlausari en þeir voru úti. Við erum ekki að fara fram á heimadómgæslu heldur að við klárum þetta á eigin getu.“ ■ 7 Hvað gerir Tyson: Hinn óútreiknanlegi Mike Tyson mætir í hringinn á ný á morgun þegar hann berst við Brian Nielsen á Parken. Tyson ólst upp í mikilli fátækt í Brooklyn í New York. Hæfileikar hans í hnefa- leikum komu fljótt í ljós enda vó hann 90 kíló þegar hann var 13 ára og tók 100 í bekkpressu. hnefaleikar Það er eitthvað óút- skýranlegt sem gerist þegar menn sjá „Iron“ Mike Tyson í hringnum. Ahorfendur fá furðulegan fiðring í magann og margir andstæðingar hans skjálfa hreinlega á beinunum, enda hefur honum verið lýst sem „versta manni í heirni." Hgnn hef- ur margsinnis sýnt að hann er gjörsamlega óútreiknanlegur og það er einmitt það sem gerir hann að einum „vinsælasta" íþrótta- manni heims. Milljónir manna hóp- ast fyrir framan sjónvarpið þegar hann berst í von, eða af ótta, um að eitthvað óvænt gerist. Á laugar- daginn snýr Tyson enn og aftur inn í hringinn og núna til að lumbra á Dananum Brian Nielsen á Parken í Kaupmannahöfn. Michael Gerard Tyson var fæddur þann 30. júní árið 1966 í Brooklyn í New York. Tyson kynnt- ist aldrei föður sínum og ólst því upp með móður sinni og tveimur systkinum í fátækrahverfinu Brownsville í Brooklyn. 'íyson var alltaf stór miðað við aldur en hafði mjög háa og frekar skræka ródd og var honum stundum strítt vegna þessa. Snemma á unglingsárunum leiddist Tyson út í glæpi og hafði móðir hans enga stjórn á honum. Hún sendi hann því í heimavistar- skólann 'I’ryon í Norður-New York fyllki, þar sem hann kynntist Bobby Stewart, fyrrum hnefa- leikakappa. Stewart sá fljótlega hversu hæfileikaríkur Tyson var, en 13 ára gamall vó hann 90 kíló og tók rúmlega 100 kíló í bekkpressu. í Tryon lagði Tyson stund á hnefa- leika undir handleiðslu Stewart, en árið 1980 urðu þáttaskil í líf hans. Þá fór Stewart með hann til Catt- skills í New York, til að hitta Cus í hnotskurn SNARÓÐUR ( þriðju lotu bardaga Tyson og Holyfield spýtti Tyson munnstykkinu út úr sér og beit hluta af eyra Holyfield. ( kjölfarið var hann dæmdur I eins árs keppnisbann. í febrúar 1990 var komið að lyson að verja titilinn í enn eitt skiptið og að þessu sinni í Tókíó í Japan. ÍSLANDSMEISTARAMÓTIÐ í KUMITE Sunnudaginn 14. október kl. 13:00 íþróttahúsinu við Austurberg Úrslit hefjast kl. 16:30 Komdu 09 fylgstu meö bestu karatemönnum iandstns í frjálsum bardaga! KARATESAMBAND ÍSLANDS D’Amato, sem m.a. hafði þjálfað Jose Torres og Floyd Patterson, en sá síðarnefndi var yngsti heims- meistari sögunnar. Reyndar átti það eftir að breytast. Eftir að Tyson hafði æft stutta stund spurði Stewart: „Jæja, hvað heldurðu?” D’Amato svaraði: „Hvað held ég. Ég held að við séum að horfa á næsta heimsmeistarann í þungavigt.” í kjölfarið hóf Tyson æfingar undir stjórn D’Amato og árið 1985 gerðist hann atvinnumað- ur. Fyrsta árið barðist hann 15 sinn- um og sigraði í öll skiptin með rot- höggi. Árið 1986, lagði hann Trevor Berbick í bardaga um WBC heims- meistaratitilinn. Þar með var hann orðinn yngsti heimsmeistari sög- unnar aðeins 20 ára gamall. Ári síð- ar var hann orðinn óumdeildur heimsmeistari þ.e. handhafi WBC, WBA og IBF heimsmeistaratit- ilanna. Þetta hafði ekki gerst í ára- tug ,eða síðan á gullaldartímabili Muhammad Ali. IVson var gjörsamlega ósigr- andi næstu ár og varði titilinn nokkrum sinnum, m.a. með sigrum á Frank Bruno og Michael Spinks. Mótherjinn var James „Buster" Douglas. Flestir töldu að Douglas ætti ekki möguleika, þar sem Tyson væri einfaldlega ómennskur bardagamaður. Douglas hafði líka misst móður sína nokkrum vikum áður og konan beðið um skilnað rétt fyrir bardagann. Mótlætið virtist hins vegar efla Douglas því í tíundu lotu kom hann öllum heim- inum á óvart þegar hann rotaði Tyson. Eftir bardagann gengu sögusagnir um það að Tyson hefði verið við drykkju nóttina fyrir bar- dagann og mætt þunnur í hringinn. Árið 1991 var Tyson dæmdur í þriggja ára fangelsi fyrir nauðgun og Tyson sneri því ekki aftur í hringinn fyrr en 1995. Hann virtist breyttur maður og þrátt fyrir að vera svolítið ryðgaður náði hann fljótlega að endurheimta WBC og WBA titlana. í lok ársins 1996 mætti hann Evander „The Real Deal“ Holyfield, handhafa IBF tit- ilsins. Holyfield barðist á mjög taktískan hátt og sigraði með rot- NAFN: Michael Gerard Tyson FÆDDUR: 30. júní 1966 New York ÞYNGDAR- FLOKKUR: Þungavigt ÞYNGD: 102 kg HÆÐ: 1,81 m FAÐMUR: 1,77 m FERILL: 53 bardagi. 48 unnir (43 rothögg), 3 tapaðir og 2 ógildir. UMBOÐSMAÐUR: Shelly Finkel ÞJÁLFARI: Tommy Brooks hraði og ná- STYRKLEIKAR: Höggþyngd, grimmd, kvæmni VEIKLEIKAR: Skaphiti, aldur, hæð og skortur á leikfléttum höggi í elleftu lotu. Sumarið 1997 gafst Tyson tækifæri á að endur- heimta virðinguna og titlana þegar hann barðist aftur gegn Holyfield. Að þessu sinni virtist 'fyson hins vegar alveg vera búinn að tapa átt- um og missti gjörsamlega stjórn á skapi sínu. í þriðju lotu bardagans spýtti hann munnstykkinu út úr sér og beit hluta af eyra Holyfield. í kjölfarið var hann dæmdur í eins árs keppnisbann og 300 milljóna króna sekt. Árið 1999 hófst enn nýr kafli í lífi Tyson, þegar hann sneri aftur í hringinn eftir keppnisbannið. Á tæpum þremur árum hefur hann barist fimm sinnum og sigrað í öll skiptin. Síðasti bardaginn var gegn Andrew Golota fyrir ári síðan. Spurningin sem brennur á vörum allra hnefaleikaáhugamanna í dag er hvort Tyson sé tilbúinn í átökin á ný. trausti@frettabladid.is Dennis Bergkamp: Hrakinn frá Arsenal? knattspyrna Rob Jansen, umboðs- maður framherjans Dennis Berg- kamp, segir að skjólstæðingur sinn hafi verið hrakinn frá Arsenal og að nýliðar Fulham hafi gert tilboð í hann. Hollenski landsliðsmaðurinn hefur einungis byrjað inná í þrem- ur leikjum af tíu sem Lundúnarlið- ið hefur spilað í deildinni á þessu tímabili. „Dennis veit að hann þarf stundum að verma bekkinn en hann er farinn að íhuga það af al- vöru hvort Arsenal sé að reyna að hrekja sig frá liöinu," sagði Jan- sen. „Ég skil ekki lengur stefnu Arsenal. Fyrr á þessu ári bauð fé- lagið honum nýjan samning og beitti hann miklum þrýstingi til að dvelja áfram í Lundúnum. Vegna þrýstingsins taldi Bergkamp að hann væri inní framtíðaráætlun- um liðsins.” Stjórn Arsenal hefur ekki viljað DENNIS BERGKAMP Umboðsmaður hans hefur staðfest að hann sé farinn að óttast um stöðu slna hjá Arsenal og að Fulham hafi gert tilboð í hann. tjá sig um málið en Jensen stað- festi þær sögusagnir að Fulham hefði gert tilboð í leikmanninn. ■

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.