Fréttablaðið - 12.10.2001, Side 17

Fréttablaðið - 12.10.2001, Side 17
FÖSTUDAGUR 12. október 2001 FRETTABLAÐIÐ n Leicester City: Auknir möguleikar Arnars Gunnlaugssonar knattspyrna Dave Bassett, hinn nýi stjóri Leicester City, hefur varað lærisveina sína við því að þeir kom- ist ekki langt á orðsporinu einu sam- an. Bassett, sem tók við liðinu af Peter Taylor sem var rekinn fyrir stuttu, ætlar sér að bæta leik liðsins en það situr á botni deildarinnar með fimm stig eftir átta leiki. Liðið á erfiða leiki fyrir höndum gegn Chelsea (úti), Liverpool (heima) og Blackburn (úti). „Leikmennirnir byrja með hreint borð hjá mér. Nú er það þeir- ra að heilla mig,“ sagði Bassett. „Ég skil að ákveðnir leikmenn hafa komist langt á orðsporinu og ég virði það. En nú er það frammistaða þeirra á vellinum sem skiptir máli. Þar mun ég dæma þá.“ Arnar Gunnlaugsson er á mála hjá Leicester en hann var ekki í náð- inni hjá Peter Taylor og hefur ekki náð að tryggja sér sæti í leikmanna- hópnum. Ummæli Bassett ættu að auka möguleika Arnars á að komast í liðið og vonandi fáum við að sjá hann spila innan skamms. „Ég hef aldrei haldið sérstaklega upp á ákveðna leikmenn. Það hef ég SAMHERJAR? Nú reynir á liðsheildina hjá Ferrari ökuþórunum þegar síðasta mótið í Formúlunni fer fram í Suzuka í Japan um helgina. Michael Schumacher: Frami liðsins eða hans eigin? formÚla Michael Schumacher, ökuþórinn hjá Ferrari, þarf að taka erfiða ákvörðun þegar síð- asta mót ársins fer fram í Suzuka í Japan um helgina. Hann hefur þegar tryggt sér heimsmeistara- titilinn en þarf að velja á milli síns eigin frama eða að hjálpa sam- herja sínum Rubens Barrichello og hefja Ferrari liðið til vegs og virðingar. Schumacher hefur þegar slegið met Alain Prost og sigrað í 52 keppnum en hann gæti jafnað ann- að met, níu sigrar á einu og sama keppnistímabilinu, líkt og hann gerði í fyrra, og um leið orðið sá ökuþór sem oftast hefur sigrað í Japan. Barrichello á hinsvegar í harðri baráttu við David Coulthard um annað sætið í heimsmeistara- keppninni en sá síðarnefndi hefur sjö stiga forskot fyrir mótið. Ef Barrichello á að ná öðru sæt- inu í samanlagðri stigakeppni þarf hann að vinna mótið í Japan en Coulthard verður að lenda í fimm- ta sæti eða neðar. Það verður þá í fyrsta sinn síðan 1979 að ítalska liðið sigrar í keppni framleiðenda og nær tveimur efstu sætum öku- þóra. Schumacher hefur lýst því yfir að hann muni leggja sitt af mörk- unum svo Barrichello sigri. „Jafnvel þótt líkurnar séu ekki með okkur munum við gera allt sem í okkar valdi stendur til að hann nái öðru sætinu í heildar- keppninni," sagði Schumacher. Éf Schumacher er trúr orðum sínum verður leikurinn í Suzuka brautinni endurtekinn því Ayrton Senna heitinn, lék þetta eftir árið 1991 þegar hann var þegar búinn að tryggja sér titilinn og hleypti samherja sínum hjá McLaren, Gerhard Berger, framúr í síðustu beygjunni. ■ Nýtt íþrótta- og heilsublað: Ahersla á al- menningsíþróttir FJÖLMIÐLAR Sport Líf, nýtt íþrótta- og heilsublað, hefur hafið göngu sína en blaðið fer í dreifingu eftir helgi. Hafsteinn Ingi Guðmunds- son, ritstjóri blaðsins, sagði að blaðið legði áhersli á umfjöllun um almenningsíþróttir eins og hlaup, sund, líkamsrækt, jóga, golf o.fl. Einnig yrði í blaðinu fjallað um mataræði og samskipti kynjanna. Blaðið mun koma út einu sinni í mánuði og verður bæði selt í áskrift og smásölu, þar sem það kostar 899 krónur. Blaðið byggir á erlenda blaðinu Sport Life sem gef- ið er út víða í heiminum. Hafsteinn Ingi sagði að Spoi-t Líf væri auk þess í samstarfi við Visi.is og að á vefnurn gæti fólk spurt spuminga og fengið svör við þeim í blaðinu. í fyrsta tölublaðinu er m.a. að finna greinar um það hvernig SPORT LÍF í fyreta tölublaðinu er m.a. að finna greinar um það hvernig hægt er að styrkja fætur og maga sem og greinar um teygjur og leyndarmál hjartans. hægt er að styrkja fætur og maga sem og greinar um teygjur og leyndarmál hjartans. ■ ARNAR GUNNLAUGSSON Hefur aðeins komið einu sinni komið við sögu i deildinni það sem af er tímabilinu. aldrei gert og ég lít ekki á þetta á persónulegan hátt. Ég vel bara liðið sem ég held að vinni leikinn fyrir mig,“ sagði Bassett og bætti við. „Ég kem með opnum hug til Leicester og allir leikmenn munu fá tækifæri.“ Bassett fær 50 milljón króna bónusgreiðslu ef honum tekst að halda Leicester í deildinni. ■ Stoke Gity: Ríkharður aftur í aðgerð knattspyrna Ríkharðui' Daðason, leikmaður Stoke City og íslenska landsliðsins, þarf að gangast und- ir aðra aðgerð á hné og verður frá knattspyrnuiðkun í það minnsta fram að jólum. Um smávægilega aðgerð er að ræða en Ríkharður hefur þjáðst af þrálátum verkjum í hnénu og fór í aðgerð fyrr á ár- inu. „Þetta er ekki stór aðgerð en hún krefst mikillar nákvæmni því skera þarf upp nálægt taug sem liggur í kringum slag- og bláæð- ar,“ sagði Stefán Stefánsson, læknir Stoke. Ríkharður þarf að jafna sig í að minnsta mánuð áður en hann hef- ur æfingar að nýju. ■ Leikur líklega ekki með Stoke City fyrr en eftir áramót. Gæti þýtt V/I\IV'W'V l | í fjörukt’Ámii 11.-14. októbcr Fjöldi skemmtikrafta kemurfram m.a. hin heimsfræga hljómsveit „Die Stötthammer" frá Munchen. Borðin svigna undan þýskum krásum í veitingatjaldinu en tjaldið opnar alla daga kl. 18:00. Fjörið heldur áfram fram á næsta dag í Fjörugarðinum með KOS og Stötthammer. ÞÝSKTVERÐÁBJÓRÍ

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.