Fréttablaðið - 12.10.2001, Blaðsíða 22

Fréttablaðið - 12.10.2001, Blaðsíða 22
22 FRETTABLAÐIÐ 12. október 2001 FÖSTUDACUR HRADSODIÐ FINNBJÖRN A. HERMANNSSON Formaður Samiðnar Nokkuð um uppsagnir HVAÐA fréttir hafa borist af upp- sögnum nú þegar framkvæmdum við Smára- lind lýkur? Við vitum af uppsögnum sem ekki eru komnar til framkvæmda. Við gerum ráð fyrir að sjá ein- hverja á atvinnuleysisskrá upp úr áramótum. Við eigum samt ekki von á því að það verði neitt stór- kostlegt. Við vorum búnir að sjá þetta fyrir í vor og bentum á að ef ekkert yrði að gert færi þetta svona. Ibúðamarkaðurinn liggur niðri enda er lítið selt af nýbygg- ingum. Svo kemur fjármála- stjórnin sterk inn í þetta þar sem það er ekkert fjármagn í gangi. Við eigum því von á að það verði eitthvað atvinnuleysi eftir ára- mótin en vonumst til að það lagist eins og hefðbundið er með vorinu. HVAÐ ræður þvi að þið búist ekki við atvinnuleysi fyrr en upp úr áramótum? Þau fyrirtæki sem voru í Smáralind voru að fresta verkefn- um sem þau voru með. Nú er far- ið í þau verkefni en verður kanns- ki eitthvað daprara upp úr ára- mótum. Það eru ekki mjög margir sem er verið að segja upp hjá hverju og einu fyrirtæki. Fyrir- tæki gera þetta gjarnan á haustin að setja varnagla á starfsemina hjá sér. Þá eru þau jafnt að gera þetta gagnvart markaðnum og veðrum og vindum. HVAÐA stóru verkefni eru framundan sem gætu veítt mörgum atvinnu? Það er búið að samþykkja Búð- arhálsvirkjun og hún er komin í farveg. Hún fer væntanlega af stað núna fljótlega. Ef það verður farið í virkjanir fyrir austan er væntanlega einhver tími í það. En það eru engin stór verkefni sem við vitum um sem verður farið í alveg á næstunni. HVAÐ verður um útlendinga sem hafa starfað hér í byggingariðnaði? Það er búið að vera töluvert af erlendu starfsfólki í byggingar- iðnaði. Ég geri ráð fyrir að það verði meðal þeirra fyrstu sem hætta störfum. Það er væntanlega eitthvað dýrara fyrir fyrirtækin að halda því fólki uppi hérna og ég geri ráð fyrir að það fari því fyrst. Hvað varðar fólk frá löndum utan EES þá förum við ekki að veita at- vinnuleyfi fyrir það fólk ef það fer að bera á atvinnuleysi meðal okkar fólks. Finnbjörn A. Flermannsson er formaður Samiðnar, sambands iðnfélaga. Flann er 47 ára trésmiður. Kolaportíð - Lagersala islenskar vidíó myndir kr. 300.- Einnig annað myndefni kr. 300.- Tannburstar og snyrtivörur kr. 50.- Nælonsokkar kr. 100.- Ódýrir skartgripir. Kaupum lagera Upplýsingar í síma 869 8171 Málþing Rannsóknarstofnunar Kennaraháskóla ís- lands: Þróun og MÁLÞINC Markmið málþings Rann- sóknarstofnunar Kennaraháskóla íslands er að skapa vettvang til kynningar á verkefnum á sviði þró- unar- og nýbreytnistarfs og efla rannsóknar- og þróunarviðleltni kennara og annarra uppeldisstétta. Málþingið hefst í dag með fyrir- lestri Jörgens Pinds, prófessors við Háskóla íslands. Fyrirlesturinn nefnist „Lestur, mál, skynjun. Hverju breyta nýlegar heilarann- sókni fyrir kennara?" og mun að sögn Jörgens gefa almennt yfirlit yfir lesblindu og lesraskanir og rannsóknir á þeim. „Ég mun koma inn á ríkjandi skilning á lesblindu nýbreytni og hvernig hann varð til. Einnig mun ég kynna nýjustu rannsóknir á taugafræði og lesröskunum," segir Jörgen sem segir töluvert mikið vera að gerast í þessum fræðum. „Ég horfi einnig heim og fjalla um hvað gæti verið í betri farvegi í rannsóknum hér.“ Á morgun verða svo flutt 83 er- indi á málþinginu. Erindin verða flutt samtímis í sjö lotum en innan hverrar lotu eru fjórar málstofur. Meðal efnis þeirra má nefna tungu- málakennslu, málnotkun, umhverf- ið, líðan á vinnustað, fullorðnir og skólinn, áherslur í skólastarfi, að- lögun náms yngri barna, lífsýn JÖRGEN PIND Flytur inngangsfyrirlestur kl. 16:15 I dag i húsnæði Sjómannaskólans. kennara, nám ungmenna, kennara- menntun, námsráðgjöf, skólaþróun og fleira. Málþingið er öllum opið en þátt- tökugjald á laugardag eru 1000 krónur. ■ FRÉTTIR AF FÓLKI Guðmundur Steingrímsson, heimspekingur og íslensku- fræðingur, skoðar stefnuskrár íslenskra stjórn- málaflokka og kemst að því að þær eru undar- lega samhljóma, hvort sem flokk- arnir kenna sig við umhverfis- vernd, sjálfstæði, félagshyggju eða frjálslyndi. Orðalag flokkanna er fljótandi og annað hvort eru þeir allir sammála eða hægt að túlka orð þeirra á ýmsa lund segir í grein Guðmundar í tmm sem ber heitið Allt sama tóbak- ið? Guðmundur er sonur Stein- gríms Hermannssonar, fyrrum leiðtoga Framsóknarflokksins, þannig að áhugann á stjórnmál- um er ekki langt að sækja þó hann nálgist þau frá öðru sjón- arhorni. Eftir tvo daga á tilboðsmark- aði VÞÍ höfðu hlutabréf í Símanum skipt um hendur fyrir samtals rúmlega 1.800 þúsund krónur í fimm viðskiptum. Haldi einkavæðing fyrirtækis- ins áfram með sama hraða mun það taka um 40 ár að koma svo- nefndum 24% almenningshluta í dreifða eign. Fréttablaðið hefur þó heimildir fyrir því að einka- væðingarnefnd og ríkisstjórn bindi vonir við að áhugi lands- manna glæðist þegar leyst verð- ur úr óvissu um kjölfestuhluta og aðra þætti. að hefur ekki farið fram hjá neinum að verslunarmiðstöð- in Smáralind opnaði í vikunni. Daginn áður en miðstöðin opnaði var tilkynnt að H&M Rowells muni í ársbyrjun 2002 opna 940 fm verslun í Smára- lindinni. Þar með bætist enn ein verslunin í hóp þeirra sem hafa löngum dregið til sín kaupóða íslendinga í út- löndum. Þar með minnkar enn ástæðan fyrir því að fara í verslunarferðir til útlanda hafa margir bent á, bæði verslunar- eigendur og neytendur og ljóst að margir gleðjast yfir því. ölvupóstur gekk manna á milli í síðustu viku. í honum var bent á að ef dagsetningu opnunardags Smáralindar og tíma 101001010 (tíundi október 2001 klukkan tíu mínútur yfir tíu) er varpað úr tvinntölukerfi yfir í tugakerfi verður talnarun- an að tölunni 666. Sú tala hefur löngum þótt minna á kölska og hans kóna. Skemmtileg, eða að minnsta kosti, athyglisverð til- viljun. Enn um Smáralind. Það þarf ekki táknfræðing til að sjá að með byggingu Smáralindar er búið að reisa sttersta reður- tákn landsins. Loftmynd af Aldrei að segja aldrei Fyrsta doktorsvörnin við félagsvísindadeild H.L fer fram í Hátíðar- sal, Aðalbyggingu kl. 16 í dag. Arelía E. Guðmundsdóttir, lektor við Háskólann í Reykjavík, ver doktorsritgerð í stjórnmálafræði. Ritgerð- in Qallar um íslenskan vinnumarkað á umbrotatímum. UM VINNUMARKAÐINN í ritgerð sinni sýnir Árelía fram á að tengsl séu á milli breytinga á vinnumarkaði og breytinga innan fyrirtækja og stofnana. háskólinn „Það er svo merkilegt með svona tilviljanir og hvað líf- ið leiðir mann áfram. Ég fór á Bifröst þegar ég var yngri og ákvað eftir það að ég myndi aldrei fara í neitt nám tengt við- skiptafræði. Eftir stúdentspróf úr Kvennaskólanum fór ég að kenna í Héraðsskólanum á Núpi og í framhaldinu ákvað ég að verða aldrei kennari," segir Ár- elía E. Guðmundsdóttir sem nú gegnir stöðu lektors í viðskipta- deild í Háskólanum í Reykjavík. Hún segist hafa lært að mað- ur á aldrei að segja aldrei en við- urkennir að þegar hún útskrif- aðist með B.A. í stjórnmálafræði frá H.í. árið 1991 hafi ekki hvarflað að henni að hún ætti eftir að verja doktorsritgerð frá sama skóla. Árelía lauk M.sc. gráðu í vinnumarkaðsfræði frá London School of Economics and Political Science árið 1993 og stundaði doktorsnám við Uni- versity of Essex á árunum 1993 - 1997 áður en hún flutti rann- sóknina yfir í H.í. í ritgerðinni, sem ber titilinn: íslenskur vinnumarkaður á um- brotatímum: Sveigjanleiki fyrir- tækja, stjórnun og samskipti að- ila vinnumarkaðarins, sýnir Ár- elía fram á að tengsl séu á milli breytinga á vinnumarkaði og breytinga innan fyrirtækja og stofnana. Tímabilið 1987 til 1995 er til umfjöllunar og viðbrögð stjórnenda og aðila vinnumark- aðarins við efnahagskreppu skoðuð sérstaklega. Aðspurð segir Árelía nokkurn mun vera á dokt- orsvörn við íslenskan og erlend- an háskóla. Á íslandi sé dokt- orsvörnin mun meiri viðburður en til að mynda í Bretlandi og líkari því sem gengur og gerist á Norðurlöndunum með tilheyr- andi viðhöfn. Hún bendir á að þessi tegund af rannsóknarvinnu sé tiltölu- lega ný af nálinni hér á landi auk þess sem fólk innan félagsvís- indadeildar hafi fram að þessu ekki átt kost á að ljúka sínu doktorsnámi á íslandi. Um nýj- an og kærkomin valkost sé því að ræða sem sé viðburður í sjál- fu sér. Hún segir doktorsvörn- ina breyta litlu fyrir sig og sitt starf innan háskólans.“Ætli ég sé ekki aðallega blankari. Nei, annars. Þetta verður fyrst og fremst léttir þegar þessu er lok- ið“ segir Árelía og kímir. kristjang@frettabladid.is byggingunni afhjúpar þennan sannleik sem ekki liggur svo ljós fyrir þegar byggingin er skoðuð af jörðu niðri. Spurning- in er hvaða fræðimaður verður fyrstur til að setja saman grein þar sem Smáralindin er ana- lýseruð. Ymsar athyglisverðar greinar er að finna í fjórða tölublaði tmm í ritstjórn Brynhildar Þór- arinsdóttur. Þar á meðal er grein Natösu Babic Friðgeirsson, sem skrifar um hag- fræði krafta- verksins eða hvernig lítið þorp í Herzegóvínu hefur stórgrætt á reglulegum heimsóknum Maríu guðsmóður. Natasa spyr hvort að það sé tilviljun að María skyldi birtast í þessu þorpi þar sem þjóðernisátök og kirkju- deilur lituðu mannlífið, eða hvort að þetta sé allt saman pólitískt plott og liður í gróða- bralli. T7r <=] þrúðái Eins og venjulega byrjar mamma jólainn- kaupin snemma og pabbi borgar reikn- ingana seint.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.