Fréttablaðið - 15.10.2001, Síða 4
4
FRETTABLAÐIÐ
15. okróber 2001 MÁNUDAGUR
SVONA ERUM VIÐ
FLEIRI GIFTIR Á LANDSBYGGÐINNI
Þrír af hverjum fjórum einstaklingum 18-
75 ára á landsbyggðinni er í hjónabandi
eða sambúð. Á höfuðborgarsvæðinu eru
hins vegar rúmlega'þrfraf hverjum-fimm i
hjónabandi eða sambúð. Fimmtungur
landsbyggðarfólks er einhleypur en ríflega
fjórðungur þeirra sem búa á höfuðborgar-
svæðinu. Hlutfall fráskilinna, og ekkja og
ekkla er svipaður á höfuðborgarsvæðinu
og landsbyggðinni.
H Höfuðborgarsvæði |D Landsbyggð
Hjón og fólk í sambúð
■ 6%
6%
Fráskilin
12%
2%
Ekkjur/ekklar heimild: gallup
HÓLAR í HJALTADAL
Stúlka á leið til Hóla var ekki ábyrg fyrir
dauða folalds sem hún ók á.
Hæstiréttur:
Eigendur
folalds borgi
tjón ájeppa
dómsmál Hæstiréttur hefur dæmt
eiganda folalds sem varð fyrir
jeppa í Hjaltadal til að greiða eig-
anda jeppans bætur.
Héraðsdómur Norðurlands
hafði áður sýknað eiganda folalds-
ins. Héraðsdómurinn taldi sannaö
að folaldið ásamt nokkrum öðrum
hrossum hefði verið á lausagöngu
þegar atvikið varð en Hæstiréttur
segir að hrossin hafi verið í rek-
stri og því á ábyrgð eigandans.
Ökumaður jeppans, ung stúlka,
sem er dóttir jeppaeigandans, ók
á folaldið síðkvöld eitt í ágúst
1998 þar sem það var á þjóðvegin-
um til Hóla handan við blindhæð
sem hún ók yfir. Folaldið drapst
strax og jeppinn skemmdist veru-
lega.
Tjónaskoðunarstöð mat tjónið
á 309 þúsund krónur en faðir
stúlkunnar sem ók gerði við
skemmdirnar og var gerð krafa
um 188 þúsund króna bætur.
Hæstiréttur taldi kröfunni í hóf
stillt og geröi eiganda folaldsins
og þeim sem höfðu umsjón með
rekstri hrossanna að greiða um-
beðna upphæð og 300 þúsund
krónur í málskostnað að auki. ■
—♦—
Innflytjendamál:
Læknar án landamæra:
Segja matarpakka
vera gagnslitla
washington. ap Mannúðarsamtök
hafa sum hver gagnrýnt þá iðju
bandaríska hersins að varpa mat-
arpökkum úr flugvélum yfir
Afganistan, milli þess sem sprengj-
um er varpað. Þau halda því fram
að matarsendingarnar komi að litlu
gagni og þjóni hugsanlega ekki
þeim tilgangi sem þeim er ætlað.
Nicolas de Torrente, fram-
kvæmdastjóri alþjóðlegu mann-
réttindasamtakanna Læknar án
landamæra, segir að þegar annar
aðilinn í stríði sendir jafnframt
matvæli, þá geti það stofnað starfs-
mönnum hjálparsamtaka í hættu.
Þeir verði að geta haldið hlutleysi
sínu í stríði.
Ef ekki er hægt að líta svo á að
hjálparstarfið sé óháð pólitískum
markmiðum, sagði Torrente, „þá
getur annar eða báðir aðilar stríðs-
ins litið á það sem hluta af styrjald-
arátökunum. Og hjálparstarfsfólk
getur þá orðið skotmark í stríðinu."
Bandaríkjamenn hafa varpað
um það bil 35.000 dagskömmtum af
mat á dag, en talið er að allt að ein
HNETUSMJÖR FRAMLEITT
Þessi mynd var tekin í matvælafyrirtæki (
Georgíu í Bandaríkjunum. Fyrirtækið nýtur
þess heiðurs að framleiða hnetusmjörið
sem er í matarpökkunum, sem Bandaríkja-
menn varpa úr flugvélum yfir Afganistan.
og hálf milljón Afgana eigi hungur-
dauða á hættu áður en vetur er á
enda. Pakkarnir úr háloftunum
duga skammt gegn þeirri neyð. ■
Breskir unglingar:
40% drengja
nota eiturlyf
london. ap Þriðjungur breskra
stúlkna og tæp 40% breskra
drengja hafa notað einhvers kon-
ar eiturlyf, aðallega marijuana.
Þetta kemur fram í nýlegri könn-
un sem gerð var á vímuefnanotk-
un 15 og 16 ára unglinga í Bret-
landi. Alls tók 1361 stúlka og 180
drengir þátt í könnuninni. Hvað
varðar áfengisnotkun höfðu 6,2%
unglinganna aldrei drukkið áfengi
á meðan 72% þeirra sögðust ein-
hvern tímann hafa orðið ölvaðir.
„Þessi hegðun er orðin að reglu-
legu mynstri í lífi unglinga í Bret-
landi,“ segir í niðurstöðum rann-
sóknarinnar. ■
Hörð gagnrýni
á efnahagsstefnu
Þórður Friðjónsson, forstjóri Þjóðhagsstofnunar, gagnrýnir stefnu
stjórnvalda. Erlendar skuldir aukist úr 50% af landsframleiðslu í 84% á
skömmum tíma. Segir að aðhald hafi verið ófullnægjandi 1998 og 1999.
efnahagsmál Hörð gagnrýni kom
fram á efnahagsstefnu stjórn-
valda í ræðu Þórðar Friðjónsson-
ar forstjóra Þjóðhagsstofnunar á
fjármálaráðstefnu sveitarfélaga.
Erlendar skuldir stefna í að vera
84% af landsframleiðslu í lok
þessa árs. „Þetta hlutfall hefur
um all langt skeið verið nálægt
50%. Þetta er því mikil aukning á
skömmum tíma,“ sagði Þórður.
Ástæðuna seg-
ir Þórður fyrst og
fremst vera þá að
þjóðarútgjöld
hafi aukist mun
meira en þjóðai'-
tekjur. „Þetta
samsvarar tæp-
um 220 milljörð-
um á árunum frá
1996. Þetta ásamt
gengisfalli skýrir
hækkun hlutfalls-
ins. Viðskiptahalli
er í raun og veru
krafa í framtíðar-
tekjum þjóðar-
búsins og þýðir að
við þurfum á næstu árum að ráð-
stafa meiru af þeim gjaldeyris-
tekjum sem við öflum í að greiða
vexti og afborgarnir af erlendum
ÞÓRÐUR
FRIÐJÓNSSON
Stofnun hans
verður lögð niður
á næstunni og
hann fer ófögrum
orðum um efna-
hagsstefnuna.
lánum."
Þar sagði Þórður m.a. að sá
hraði taktur sem verið hefur í
gengis- og verðbreytingum sl.
tólf mánuði eigi sér rætur í ófull-
nægjandi aðhaldi í efnahagslíf-
inu á árunum 1998 og 1999. Á
þessum árum hefði aðhaldsstig
efnahagsstefnunnar einnig verið
ófullnægjandi, bæði á sviði ríkis-
fjármála og peningamála. Hann
sagði að þá hefði verið æskilegt
að beita ríkisfjármálunum til
frekara aðhalds að eftirspurn en
—♦....
1998 hefði
verðlagsþró-
unin hérlendis
verið í góðu
samræmi við
það sem
gerðist í öðr-
um iðnríkjum
og innan ESB.
Þetta hefði
hins vegar
gjörbreyst árið
1999.
..•♦•—
gert var á um-
ræddum árum auk
þess sem þá hefði
Seðlabankinn far-
ið hægt í sakirnar
í andófi sínu gegn
verðbólgunni.
í ræðu sinni
benti hann einnig
á að fi-am til 1998
hefði verðlagsþró-
unin hérlendis
verið í góðu sam-
ræmi við það sem
gerðist í öðrum
iðnríkjum og inn-
ÞJÓÐHAGSTOFNUN
Stofnunin verður lögð niður á næstunni og
ekki var tekið markVahenni við gerð fjár-
lagafrumvarps. Á fjármálaráðstefnu sveitar-
félaga setti forstjóri hennar fram harða
gagnrýni á efnahagsstefnuna.
an ESB. Þetta hefði hins vegar
gjörbreyst árið 1999. Þá hefði
verðbólgan á íslandi verið rúm-
lega tvöfalt meiri en annars stað-
ar. Þessi þróun hefði haldið
áfram í fyrra og í ár. Þótt spáð sé
minni verðbólgu á næsta ári telur
Þórður að hún verði þrefalt meiri
en í viðmiðunarlöndunum. ■
LÖGREGLUFRÉTTIR
Nokkur erill var hjá lögregl-
unni í Kópavogi um helgina
vegna ölvunaróláta. Þurfti lög-
reglan að sinna nokkrum útköllum
í heimahús vegna háreysta og
stimpinga. Þá voru þrír teknir
vegna ölvunaraksturs.
Lögreglan í Borgarnesi fór um
víðan völl á laugardag og
sunnudag til að fylgjast með því
að rjúpnaveiðimenn freistuðust
ekki til að taka í gikkinn of snem-
ma en rjúpnaveiðitímabilið hófst í
dag, mánudag. Að sögn talsmanns
lögreglunnar varð hún ekki var
við neinn ólöglegan veiðimann á
laugardag en sagði menn verða á
tánum og fylgjast grannt með.
Tvær bifreiðar urðu fastar á
Þorskafjarðarheiði um kvöld-
matarleytið á laugardag vegna
mikilla snjóa. Kalla þui’fti til að-
stoðar björgunarsveitarinnar og
gekk vel að koma bifreiöunum
niður og til byggða. Að sögn lög-
reglunnar í Hólmavík er Stein-
grímsfjarðarheiðin vel fær en því
munar að Þorskafjarðarheiðin
liggur hundrað metrum ofar.
Amnesty International:
Ónóg
mannréttindi
í Mið-Asíu
mannréttindi Mannréttindasam-
tökin Amnesty International hafa
sent frá sér skýrslu þar sem vak-
in er athygli um ástand mannrétt-
indamála í nokkrum Mið-Asíuríkj-
um. Lýsa samtökin yfir áhyggjum
á því að stjói'nvöld þar nýti sér
stríðið gegn hryðjuverkamönnum
til að grafa enn frekar undan
mannréttindum. í skýrslunni er
komið inn á ummæli Islam
Kai'imov, forseta Uzbekistan, þar
sem hann lýsir því yfir að allir
sem á einhvern hátt styðji músli-
ma þar í landi skuli sæta fangels-
isvist en brögð er að því að heit-
trúaðir múslimar sitji nú þegar á
bak við lás og slá án þess að hafa
hlotið réttmæt réttarhöld. ■
Áfengis- og vímuvarnarráð:
Bíóbarinn vart
kominn á kortið
Annar hver
Dani músli-
mi eftir 60 ár
danmörk Eftir 40 ár verður þriðji
hver Dani múslimi og eftir 60 ár
verður helmingur íbúa Danmerk-
ur múhameðstrúar. Þetta segir fé-
lagsfræðingurinn Eyvind Vessel-
bo í samtali við netútgáfu B.T.
„Nú standa yfir störkostlegir
fjöldaflutningar frá löndum mús-
lima til Danmerkur. Það er stjórn-
málamönum mikil áskorun að
tryggja að sú þróun verði ekki til
þess að gildi okkar samfélags bíði
tjón af. Þetta er án efa stærsta
áskorunin sem við stöndum fram-
mi fyrir," segir Eyvind.
Hann byggir útreikninga sína á
þróun innflytjendamála undanfar-
in 10 ár. ■
5MÁRABÍÓ Hildur Hafstein hjá
Afengis- og vímuvarnarráði segir
að ráðið hafi ekki fjallað neitt þá
nýjung sem felst í því að bíógestir
geti keypt sér léttvín og bjór á
sérstökum bar sem starfræktur
er í Smárabíói. Þaðan af síður hef-
ur ráðinu borist neinar athuga-
semdir eða fyrirspurnir frá for-
eldrum vegna barsins, enda sé
hann nýtekinn til starfa. Hún ger-
ir þó ráð fyrir að ráðið muni skoða
þá umgjörð sem barinn hefur í
bíóinu.
Karl Schiöth forstöðumaður
kvikmyndadreifingar hjá Noi'ður-
ljósum segir að barinn sé opinn
frá 17,30 - 00,30 og að þessi þjón-
usta hafi mælst vel fyrir. I það
minnsta hafi enginn kvartað fram
til þessa. Aldurstakmark inn á
barinn er bundið við 18 ár en
áfengissala er miðuð við 20 ára
aldur. Hann segir að það sé
strangt eftirlit með því að þessum
skilyrðum sé fylgt og m.a. er séi'-
stakur dyravörður sem fylgist
með því auk þess sem menn séu
BÍÓBARINN
Staðhæft er að eftirlit sé meira og strang-
ara en t..d. með vínsölu hjá leikhúsunum
krafðir um skírteini þegar þeir
versla á barnum. Hann staðhæfir
að eftirlit með barnum sé meira
en gengur og gerist hjá leikhúsun-
um. í því sambandi bendir hann á
að hjá Loftkastalanum sé sjoppa
og rauðvín á sama stað. |
Smáralind:
Myndatökur
leyfðar
smáralind Hópur nemenda var
stöðvaður við myndatöku í Smára-
lind á opnunardaginn á þeim for-
sendum að myndatökur væru
bannaðar í húsinu. „Þetta er byggt
á misskilningi," segir Þorvaldur
Þorláksson, markaðsstjóri Smára-
lindar. Hann segir að víða erlend-
is séu myndatökur bannaðar í
verslanamiðstöðvum án tilskil-
inna leyfa. „Yfirstjórn hússins
hefur farið yfir málið. Myndatök-
ur eru ekki bannaðar hér og ekki
stendur til að gera það,“ Hann
segir að verið geti að fólk verði
spurt í hvaða tilgangi myndatakan
sé, enda sé eðlilegt að fylgst sé
með því. ■