Fréttablaðið - 15.10.2001, Side 17
MÁNUDAGUR 15. okóber 2001
FRÉTTABLAÐIÐ
17
Sýnd kl. 6,8 og 10 vrr 278
ISWORPFISH kl. 8 og 10-lQlO
ÍTAILOR OC PflNAMA kl. 5.45,8og lO.lslCT
jCAIS & POGS m/ Islensku tali kLstEH
Sýnd kl 3.40, 5.45, 8 og 10.10 vit hi
ICRAZY BEAUTIFUL kL6,8ogloQ
IRUGARISIN RARIS m/ blensku taB kl. 4|j^T1
jCAIS & POGS m/ Islensku tali kL4ÍK3
Sýnd kl. 5.40, 8 og 10.20
|RATRACE kl. 6,8 og 10.101
|pélUR OG KÖmiRINN BRANPUR kLsf
|RUSHHOUR2 kL8ogl0.lö|
HVERFISCÖTU SÍMI 551 9000
www.skifan.is
Sýnd kl. 5.50, 8 og 10.10
|RAT RACE kl. 5.4p|
jWHAT'S THE WORST... kl. 8 og IQ.lÖj
| H EARTBREAKERS kl. 5.30,8 og 10.sÖ|
IPLANET OF THE APES kl. 5.30,8 og 10.301
Filmundur í kvöld:
Og meira af Oasis, því svo
virðist sem útgáfu nýju
breiðskífunnar hafi verið frestað
vegna ósætta
Gallagher bræðr-
anna Liam og
Noel. Noel var
ekki nægilega
sáttur við það
efni sem þeir
höfðu tekið upp
og hann segir
bróður sinn hafa
tafið framþróun mála enn meira
með því að gera „akkúrat ekki
neitt“ í þrjá mánuði. Liam á sem-
sagt eftir að syngja öll lögin á
plötuna.
Búið er að handtaka mann sem
grunaður er um að hafa sent
sportkryddinu Mel C segul-
bandsspólu sem
innihélt kynferð-
isleg hljóð og
morðhótun. Mað-
urinn býr í
Hollandi og var
það fyrir sam-
vinna hollensku
lögreglunnar og
Scotland Yard
sem náðist að hafa hendur í hári
mannsins.
ingmaður breska þingsins
hefur lagt það til að væntan-
leg breiðskífa Gary Glitters
verði bönnuð. Glitter sat f jóra
mánuði í fangelsi eftir að hafa
játað að hafa tekið um 54 ósið-
legar nektarljósmyndir af börn-
um.
Söngkonan Beyonce Knowles
hefur verið boðið að fara með
aðalkvenhlutverkið í næstu
Austin Powers mynd, Goldmem-
ber. Stúlkan á víst að vera
smeyk við það að taka hlutverk-
ið að sér, enda fékk hún afar
strangt kristilegt uppeldi.
Some
Like it Hot
kvikmynp Some Like It Hot eftir
Billy Wilder er sýnd í Filmundi í
kvöld kl. 22:30. Myndin
er ein af bestu og
vinsælustu
gamanmynd-
um sem gerð
hefur verið
og var til
dæmis kosin
besta gaman-
mynd allra tíma
af bandarísku
kvikmyndastofn-
uninni fyrir stut-
tu. Með aðalhlut-
verk fara Jack
Lemmon, Tony
Curtis og Marilyn Monroe, en þau
hafa öll hlotið einróma lof fyrir
leik sinn í þessari mynd.
CURTIS OG
LEMMON
Fara á kostum í
kvikmyndinni
Some Like it Hot.
I Some Like It Hot segir frá fé-
lögunum Joe og Jerry, tveimur
seinheppnum tónlistarmönnum.
Fyrir tilviljun verða þeir vitni að
skipulögðum morðum á vegum
mafíunnar og verða því að fara
huldu höfði. Þeir bregða á það ráð
að dulbúa sig sem konur og sækja
um vinnu í kvennahljómsveit sem
er á leiðinni í tónleikaferðalag til
Flórída. Þeir félagarnir komast
fljótlega að því að það er erfitt að
vera kona í karlaheimi og þeir
lenda í mesta basli við að leyna
kynferði sínu. Jerry er lagður í
einelti af miljónamæringi í Flór-
ída sem vill helst af öllu giftast
honum og Joe verður ástfanginn
af hinni stórglæsilegu Sugar
Kane, söngkonu hljómsveitarinn-
ar. Hann kemst brátt aðþví að hún
hefur hugsað sér að næla sér í rík-
an mann í Flórída, og því eru góð
ráð dýr, þar sem hann hefur engin
tök á því að tjá tilfinningar sínar.
Úr þessu öllu verður hinn mesti
ærslaleikur, og oft munar litlu að
félagarnir fari út af sporinu, enda
eru freistingarnar margar. ■
UNDIR GEISLANUM
Siglt í strand
Hljómsveitinni Starsailor
hefur verið komið snyrti-
lega fyrir á forsíðum helstu tón-
listarfréttablaða Breta og henni
hampað sem björtustu von þeir-
ra. Þeir eru þegar búnir að eiga
tvo slagara, lögin „Fever“ og
„Good Souls“. Þriðja smáskífu-
laginu, „Alcoholic", er einnig
spáð miklum vinsældum. En ef
þetta er bjartasta von Breta þá
er líklegast ekki mjög mikið um
þar að vera í augnablikinu. Jú,
jú, lögin eru sum svolítið gríp-
andi en ekkert lag á plötunni
býður hlustandanum upp á nýja
upplifun og því fær maður óven-
ju fljótt leið. Starsailor vantar
nauðsynlega sinn eigin stíl, á
þessari plötu má aðeins heyra
fjóra unga menn votta hetjum
sínum virðingu með því að
reyna stíga nákvæmlega í þeir-
ra fótspor. Þar af leiðandi eru
liðsmenn Starsailor fastir í
skugga fyrirrennara sinna, og
ná engan veginn að skína.
starsailor
STARSAILOR:___________ Love is here
Söngvarinn dýrkar greinilega
Jeff Buckley, og er söngstíll
hans aum tilraun til þess að ná
þeim tilfinningarlegu hæðum
sem hljómuðu svo náttúrulega
úr iðrum þess látna snillings.
Gítarhljómurinn á plötunni er
einnig afleitur og textar eru
merkilega grunnir. Ég þykist
skilja í hvaða átt Starsailor vilja
sigla, þ.e. að leika tilfinningar-
ríka og heiðarlega rokktónlist.
En ef þú notar ekki þína eigin
rödd, hvernig er þá hægt að
vera heiðarlegur?
Birgir Örn Steinarsson
Kossafar á ilinni:
Astin tekur meira pláss
tónlist Fabúla er listamannanafn
tónlistarkonunnar Margrétar
Kristínar Sigurðardóttur. Margir
muna eflaust eftir henni syngja
lagið „Röddin þín“ í undankeppni
Evróvisjón í vor. Á þriðjudag kom
svo í búðir önnur plata hennar,
Kossafar á ilinni. „Þema laganna
eru ólík,“ útskýrir Magrét Kristín.
„Ég skrifa um ýmislegt sem læðist
inn um gluggann. Ástin tekur
meira pláss á þessari plötu en þeir-
ri fyrri. Meðal annars út af því að
ég eignaðist barn fyrir 2 árum síð-
an. Titillag plötunnar er einmitt
um kossafar á hennar il.“ Flest lög-
in á plötunni eru þó sungin á
ensku, þrátt fyrir alíslenskan titil.
„Ég verð nú eiginlega að biðjast af-
sökunnar á því. En þó að ekki nema
eitt lag kæmist út fyrir landstein-
anna myndi það breyta heilmiklu
fyrir mig. Maður verður ekki feit-
ur á því að semja jaðartónlist fyrir
þorpið sitt, við erum bara ekki það
mörg.“ Margrét semur flest lögin
á píanó, tekur þau upp á segul-
band, velur svo lög sem hún full-
vinnur í hljóðveri. Evróvisjón lag-
ið „Röddin þín“ lagið er að finna
sem aukalag á plötunni, með ensku
texta." Það passaði ekki alveg inn í
heildarmyndina, þannig að ég
FABÚLA
Einnig þekkt sem Wlargrét Kristín
Sigurðardóttir.
hafði það sem aukalag. Það er unn-
ið á annan hátt en hin og með öðr-
um hljóðfæraleikurum.“ Margrét
Kristín er nú að undirbúa útgáfu-
tónleika og verða þeir haldnir í
næsta mánuði.
biggi@frettabladid.is
Þím frístund - Okkar fag
4* VINTERSPORT
Bíldshöfða • Smáralind • www.intersport.is
SARENA peysa.
St.36-42 .
Kr. 5.160,-
éP?
SORAYA peysa.
St.36-42 .
Kr. 7.190,-
SILK skór.
St.36-41,-
Fleiri litir.
Kr. 3.920,-
SEVERIN buxur.
St.S-XL .
Kr. 5.990.-
FIREFiy
'mt
SCOOTER buxur.
St.S-XL. Fleiri litir.
Kr. 4.290.-
SANTOS skyrta.
St.S-XL. Fleiri litir.
Kr. 3.290,-
Itti11
**££*«*
SNOW RIDER skór.
St.36-46 .
Kr. 6.440,-
CALAOS úlpa.
St.S-XL. Fleiri litir.
Kr. 9.980.-